Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 59
KÓPAVOGSKIRKJA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 59
H
ér er opin sýn til himins og svo langt,
sem auga eygir til hafs og heiða,“ sagði
séra Gunnar Árnason prestur í Kópa-
vogi m.a. þegar hornsteinn var lagður
að Kópavogskirkju árið 1960.
„Ég vil trúa því að bygging þessarar
kirkju og annarra, sem nú eru í smíð-
um, sé ekki eingöngu tákn um velmeg-
un og framfarir, heldur einnig tákn
þess, nú á atómöld, að efnishyggjan hafi þrátt fyrir allt ekki al-
veg náð yfirhöndinni og hugur nútímamannsins „æski einhvers
skírra, einhvers blárra“, eins og skáldið kvað,“ sagði Hulda
Jakobsdóttir formaður sóknarnefndar við sama tækifæri.
Kópavogskirkja reis á Borgum og var vígð þann 16. desem-
ber 1962. Enn í dag er víðsýnt frá þessum grjóthálsi og sannar
að það var framsýnt fólk, hjónin Hulda og Finnbogi Rútur
Valdemarsson og aðrir forráðamenn Kópavogshrepps sem tóku
frá þennan stað fyrir kirkjubyggingu.
„Bygging þessarar kirkju var í raun hreint kraftaverk, að
henni stóð ungt og efnalítið fólk hér í bænum en samhug og
dugnað átti það mikinn.
Kirkjan stendur óneitanlega á óvenjulega fallegum stað, og
bygging hennar og öll hönnun tókst að mínu viti afar vel. Hún
er teiknuð af Herði Bjarnasyni húsameistara ríkisins þótt raun-
ar sé talið að Ragnar Emilsson arkitekt eigi þar jafnvel meiri
hlut að máli, en hann vann þá hjá embætti Húsameistara ríks-
ins. “ segir Ægir Fr. Sigurgeirsson prestur Kópavogskirkju,
hann var áður prestur á Skagaströnd en tók við núverandi
starfi þann 1. júlí 1990 af séra Árna Pálssyni. Fyrsti prestur
Kópavogsprestakalls og Kópavogskirkju, – fyrirrennari séra
Árna, var séra Gunnar Árnason, er lét af störfum 1971.
„Kópavogskirkja þjónar nú formlega um 4500 manns, hins
vegar er það svo að kirkjan á afar rík ítök í fólki sem hefur búið
hér í Kópavogi. Börn sem hér hafa alist upp leita gjarnan upp-
komin og jafnvel burtflutt eftir þjónustu hér. Kársneskórarnir
sem Þórunn Björnsdóttir stjórnar æfa oft hér í kirkjunni og
hafa sungið við guðsþjónustur reglulega í um 30 ár. Börnin
byrja að syngja hjá henni Þórunni um leið og þau hefja grunn-
skólanám og mörg þeirra taka þátt í kórstarfinu meðan þau eru
í grunnskóla. Þau mynda sterk tengsl við kirkjuna og leita því
gjarnan hingað þótt þau séu farin í önnur prestaköll,“ segir
séra Ægir.
„Kópavogsprestakalli var skipt 1971, þá varð til Kársne-
sprestakall sem fyrr gat og Digranesprestakall sem séra Þor-
bergur Kristjánsson þjónaði – bæði prestaköllin höfðu um
nokkuð langt skeið starfsaðstöðu í Kópavogskirkju eða til árs-
ins 1994. Árið 1987 varð til Hjallasókn og í sumar var Linda-
prestakall stofnað, austan Reykjanesbrautar.“
Í máli séra Ægis kemur fram það álit að mjög vel hafi verið
staðið að byggingu Kópavogskirkju í hvívetna.
„Þar fór Hulda Jakobsdóttir síðar bæjarstjóri í fararbroddi
ásamt fleira góðu fólki í söfnuðinum, t.d. Jósafat Líndal sem
enn er á lífi,“ segir séra Ægir.
„Mér er sagt að lögð hafi verið viss prósenta ofan á útsvörin
til að fjármagna kirkjubygginguna og að ekki einn einasti mað-
ur hafi mótmælt þeirri skipan mála, það var greinilega Kópa-
vogsbúum mjög hugleikið að eignast sína eigin kirkju.
Ég held að þeim hafi fundist það nauðsynlegt til þess að
Kópavogur yrði „fullburða“ kaupstaður, – ef svo má segja. Því
lögðust allir á árarnar og reistu þessa glæsilegu kirkju.“
Í tilefni af 40 ára afmælinu er komið út hátíðarblaðið Borgir,
safnaðarblað Kársnessóknar, 20. árg. 2. tbl.
Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt.
Þú, Herrans kristni, fagna mátt,
því kóngur dýrðar kemur hér
og kýs að eiga dvöl hjá þér.“
Með þessari tilvitnun í einn af aðventusálmum kirkjunnar
hefur séra Ægir Fr. Sigurgeirsson ávarp sitt í umræddu blaði.
Þegar gengið er um þessa fallegu kirkju í bláu skini hinna
gullfallegu steindu glugga sem Kópavogsbúinn og listamað-
urinn Gerður Helgadóttir er höfundar að þá er ekki erfitt að
skilja þau orð séra Ægis að oft komi í kirkjuna fólk að afloknum
vinnudegi til að eiga þar næðisstund, eitt með sjálfu sér, og ekki
heldur hitt að þangað leggja fjölmargir ferðamenn leið sína,
innlendir sem erlendir.
„Sagt er að Hulda Jakobsdóttir hafi komið í kirkju í Frakk-
landi sem í voru einkar fallegir steindir gluggar og strengt þess
þar heit að gluggar af því tagi skyldu prýða Kópavogskirkju, og
unnið að því máli ásamt fleirum,“ segir séra Ægir.
„Gerður teiknaði gluggana sem fyrr greindi en þeir voru
framleiddir í gluggasmiðju Oidtmann-bræðra í Þýskalandi.
Þess má geta að sá sem vann verkið í hinu þýska fyrirtæki kem-
ur oft til Íslands og kemur þá ævinlega í Kópavogskirkju til að
skoða gluggana. Mér vitanlega eru þessir steindu gluggar
stærsta uppsetta verk Gerðar Helgadóttur af þessum toga og
eykur það gildi Gerðarsafns hér við hliðina. Myndir af þessum
gluggum hafa birst í listaverkablöðum víða um heim og sjálf
Kópavogskirkja er orðin víðfræg bygging. Oft er talað um að
Perlan og Kópavogskirkja séu þær byggingar á svæðinu sem
séu kunnastar. Sem dæmi get ég nefnt að fyrir nokkrum árum
gifti ég hér brúðhjón, brúðguminn var flugmaður, hann færði
mér skömmu eftir giftinguna blað sem hann hafði séð í Hong
Kong, þar sem í var mynd af Kópavogskirkju.“
Meðan þetta viðtal við séra Ægi fer fram berst að eyrum óm-
ur af söng barnsradda og eru þar á ferð leikskólabörn að sögn
prests. Hann kveður kirkjuna vera mjög mikið notaða.
„Kársneskórinn æfir hér að staðaldri, – kirkjan hefur viljað
hlúa að starfi kóra og einnig er kirkjan mjög mikið notuð fyrir
alls kyns athafnir. Margt fólk giftir sig í Kópavogskirkju, lætur
skíra þar börn sín og ferma og héðan fara fram margar jarð-
arfarir.
Sumum finnst að Kópavogskirkja sameini á vissan hátt betur
en ýmsar aðrar kirkjur nálægð og nánd sveitakirkjunnar og
glæsileika hins stóra Guðshúss. Hún tekur töluvert á fjórða
hundrað manns í sæti en samt finnst manni hún ekki tiltak-
anlega stór, hún heldur vel utan um þá sem í henni eru,“ segir
séra Ægir.
Og víst er þessi kirkja vingjarnleg yfir að líta. Þar er mynd
eftir Barböru Árnason og alltaristaflan, sem er byggð á frásögn
13. kafla Jóhannesarguðspjalls um hvernig Kristur laugaði fæt-
ur lærisveina sinna. Hún er gerð af Steinunni Þórarinsdóttur
myndhöggvara sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um gerð
töflunnar. Altaristaflan er helguð minningu fyrstu prest-
hjónanna í Kópavogsprestakalli, þeirra frú Sigríðar Stef-
ánsdóttur og séra Gunnars Árnasonar.
„Í Kópavogskirkju er mjög góður hljómburður fyrir talað
mál og hljómburður fyrir hljómlist og söng er líka mjög góður –
þar hefur tekist gott jafnvægi milli tónlistar og talaðs máls sem
er eftirsóknarvert,“ segir séra Ægir ennfremur.
Kópavogskirkja hefur fengið eðlilega endurnýjun á þeim 40
árum sem liðin eru frá því hún var vígð.
„Nú síðast, á þessu ári, voru bólstraðir allir bekkir í kirkjunni
og fyrir fáum árum var hún máluð. Undanfarin fjögur ár hefur
líka verið unnið við að setja tvöfalt gler fyrir utan listglerið, þar
var áður einfalt gler. Þetta er ekki án erfiðleika þar sem taka
þarf mót af hverjum glugga, engir þeirra eru alveg eins.“
Séra Ægir tekur fram að viðhorf safnaðarbarna Kópavogs-
kirkju sé afar jákvætt og að aldursdreifing safnaðarins sé svip-
uð og í öðrum prestaköllum í Kópavogi þótt þarna í kring séu
nokkur elstu hverfi bæjarins.
„Fólki hér finnst vænt um kirkjuna
sína og vill veg hennar sem mestan.
Sem dæmi um þetta get ég nefnt að
fyrir nokkrum árum komu tilmæli í
grunnskóla um að börn þar teiknuðu
eitthvað sem væri einkennandi fyrir
bæinn þeirra. Niðurstaðan hér var sú
að skólabörnin völdu að teikna Kópa-
vogskirkju. Voru teikningarnar sýnd-
ar innrammaðar í safnaðarheimilinu
Borgum og vöktu verðskuldaða at-
hygli.“
Mikið safnaðarstarf fer fram í
tengslum við Kópavogskirkju.
„Í safnaðarheimilinu Borgum eru
barnaguðsþjónustur, þar fer fram
starf fyrir börn á ýmsum aldri,
mæðramorgnar og starf með eldri
borgurum, auk fræðslufunda og
margs annars,“ segir séra Ægir.
„Í framtíðinni þyrftum við að geta
byggt nýtt safnaðarheimili sem
myndi þjóna okkur betur en það nú-
verandi gerir,“ bætir hann við.
Í tilefni af 40 ára afmælinu Kópa-
vogskirkju hafa þrjú skáld ort sálma
til hennar við tónlist þriggja tónskálda. Skáldin eru Gylfi Grön-
dal, Hjörtur Pálsson og Bjarni Jónsson, tónskáldin eru öll af
Kársnesinu, þau Þuríður Jónsdóttir, Haraldur Vignir Svein-
björnsson og Þóra Marteinsdóttir. Tvö laganna verða frumflutt
í desember en eitt bíður flutnings fram á næsta ár.
Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur held-
ur tónleika í kvöld kl. 20.30 og á morgun kl. 14.00 verður hátíð-
armessa þar sem séra Árni Pálsson fyrrverandi sóknarprestur
predikar en ég þjóna fyrir altari. Samvera og kaffi verður að at-
höfn lokinni í Gjábakka. Á sjálfan afmælisdaginn verður kirkju-
kór Kópavogskirkju með tónleika í kirkjunni klukkan 20.30.
– „Þannig hefst afmælisárið – en margt fylgir í kjölfarið, svo
sem orgeltónleikar, mjög gott orgel er í kirkjunni og fleira
kemur í ljós á næstu mánuðum.
Síðast en ekki síst vil ég benda á „afmælisgjöf“ sókn-
arnefndar Kópavogskirkju, – vandlega unna samantekt Stefáns
M. Gunnarssonar um Kópavogskirkju í hátíðarblaði Borga. Þar
er verið að bjarga frá glatkistunni ýmsum fróðleik varðandi
kirkjunni, byggingu hennar og sögu,“ segir séra Ægir Fr. Sig-
urgeirsson.
Í lok fyrrnefndrar samantektar sinnar vitnar Stefán M.
Gunnarsson í sálmaþýðingu Matthíasar Jochumsonar þar sem
segir:
Lyfti mér langt í hæð
lukkunnar hjól,
hátt yfir stund og stað,
stjörnum og sól,
hljómi samt harpan mín.
Hærra minn Guð til þín,
hærra til þín.
„Í anda þessa vers reis Kópavogskirkja af grunni sínum og
varð strax kennileiti bæjarfélagsins, Kópavogskaupstaðar.“
segir Stefán og bætir við:
„Kópavogskirkja stendur sem eitt af björgunum í holtinu,
það bjargið sem hæst ber og fær ekki dulist, í miklu víðerni.
Björt í lit sínum í ljósi dagsins, björt í ljósum sínum í myrkri
nætur, í sinni hógværu tign, fangar hún augu vegfarandans.“
Opin sýn
til himins
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Sverrir
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, prestur í Kópavogskirkju.
Morgunblaðið/Sverrir
Málverk af Kópavogskirkju sem Sigfús Halldórsson tónskáld og heiðursborgari Kópa-
vogs málaði árið 1963 er kirkjan var nýlega vígð.
Morgunblaðið/Arnaldur
Kópavogskirkja
Á grjóthálsinum Borgum stendur Kópavogskirkja sem er eitt þekktasta kennileiti höfuðborgar-
svæðisins. Hinn 16. des. nk. eru 40 ár liðin frá vígslu hennar. Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson segir hér
Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá byggingu Kópavogskirkju og starfinu í tengslum við hana.