Morgunblaðið - 14.12.2002, Page 4

Morgunblaðið - 14.12.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BALDVIN Þorsteinsson EA 10, fjöl- veiðiskip Samherja hf., kom til heimahafnar á Akureyri í gær- kvöldi, eftir fimm sólarhringa sigl- ingu frá Riga í Lettlandi. Umfangs- miklar breytingar voru gerðar á skipinu, það m.a. lengt um tæpa 18 metra og er nú lengsta skip íslenska fiskiskipaflotans, um 86 metrar. Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja sagði að fæðingin í Lett- landi hefði verið erfið enda er verk- ið um 5 mánuðum á eftir áætlun. „Skipasmíðastöðin í Riga er mjög stór og við töldum okkur hafa skoð- að málin mjög vel fyrirfram. Verk- efnið var stórt og mjög flókið og því er ekki að neita að það reyndist þeim erfitt,“ sagði Þorsteinn Már. „En fall er fararheill og við erum bjartsýnir á rekstur skipsins.“ Áætlaður kostnaður við breyt- ingar á skipinu var áætlaður um hálfur milljarður króna en Þor- steinn Már sagði að kostnaðurinn hefði farið fram úr áætlun. Nýi Baldvin Þorsteinsson EA hét áður Hannover NC og þar áður Guðbjörg ÍS og var þá gert út frá Ísafirði. Skipið var smíðað í Flekkefjord í Noregi árið 1994, fyrir Hrönn hf. og stýrt í upphafi af feðgunum Guð- bjarti Ásgeirssyni og Ásgeiri Guð- bjartssyni. Samherji eignaðist Guðbjörgina síðla árs 1996 er Hrönn hf. samein- aðist félaginu og gerði það út um tíma. Skipið var síðan selt til DFFU, dótturfélags Samherja í Þýskalandi þar sem það fékk nafnið Hannover NC. Frystiskipið Baldvin Þor- steinsson EA, fyrsta nýsmíðaskip Samherja, var selt til DFFU fyrr á þessu ári en jafnframt var ákveðið breyta Hannover í fjölveiðiskip og taka skipið aftur inn í flota Sam- herja. Baldvin Þorsteinsson er þriðja fjölveiðiskip Samherja en fyrir á félagið Vilhelm Þorsteinsson EA og Þorstein EA. Eftir er að ganga frá hluta af vinnslubúnaði skipsins en Þorsteinn Már sagði að skipið færi til uppsjáv- arveiða í byrjun en yrði einnig gert út á rækju. Skipið fer í prufutúr fyr- ir jól og svo til loðnuveiða strax á nýju ári. Aðalvél skipsins er 6.000 hestöfl, frystilestar eru um 1.600 rúmmetrar að stærð, sem er um helmings stækkun frá því sem var. Skipið mun geta fryst allt að 150 tonn af uppsjávarfiski á sólarhring og borið um 750 tonn af frystum af- urðum og um 2.500 tonn af uppsjáv- arfiski. Skipstjórar á Baldvini Þorsteins- syni EA eru tveir, þeir Hákon Þröstur Guðmundsson og Árni V. Þórðarson en yfirvélstjóri er Vil- hjálmur Kristjánsson. Gert er ráð fyrir að 30-35 manns verði í áhöfn skipsins, 16–26 í hverri veiðiferð. Lengsta fiskiskip flotans í heima- höfn Skipstjórarnir á Baldvini Þorsteins- syni EA sýna tækin í brúnni við komuna til Akureyrar í gærkvöld. F.v. Árni Þórðarson skipstjóri, sonur hans Þórður Mar, Björg Finnbogadóttir, ekkja Baldvins Þorsteinssonar, Svanhildur Bragadóttir og maður hennar Hákon Þröstur Guðmundsson skipstjóri. Morgunblaðið/Kristján Baldvin Þorsteinsson EA leggst að bryggju á Akureyri í gærkvöld. HÁMARKSREFSING fyrir kyn- ferðisbrot gegn börnum hækkar í 8 og 12 ára fangelsi, í stað 6 og 10 ára refsivistar nú, samþykki Al- þingi frumvarp til laga um breyt- ingu á almennum hegningarlögum. Á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun var samþykkt að leggja frumvarp- ið fram sem stjórnarfrumvarp. Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra væntir þess að lagabreyt- ingin verði til þess að dómar fyrir kynferðisbrot muni þyngjast en tekur fram að það sé að sjálfsögðu ekki hennar að segja dómstólum fyrir verkum. Refsiréttarnefnd samdi frum- varpið en Sólveig segir að tilgang- ur þess sé í fyrsta lagi að auka refsivernd barna gegn kynferðis- brotum og því sé lagt til að refsi- rammi við grófustu kynferðisbrot- unum gegn börnum verði hækkaður upp í 8 og 12 ára fangelsi. „Á undanförnum árum hefur orðið betur ljós sá mikli skaði sem börn geta orðið fyrir þegar þau eru misnot- uð kynferðislega. Í mörgum tilvikum geta afleiðingarnar verið langvarandi og jafnvel varanlegar. Í alvarleg- ustu tilvikum er varla ofsagt að velferð og framtíð barns hafi ver- ið lögð í rúst. Einnig hefur dómsmálum vegna þessara brota fjölgað mikið á síðustu 10–15 árum. Það er ekki einhlítt hvernig það verður skýrt en fjölg- unin getur bæði verið rakin til þess að fleiri brot séu framin eða brot af þessu tagi hafa áður verið dulin,“ segir hún. Í frumvarpinu er í öðru lagi lagt til að í hegningarlögum verði sér- ákvæði sem lýsir mansali og öðr- um tengdum brotum sem refsi- verðum. „Þótt þessi háttsemi sé í flestum tilvikum refsinæm nú þeg- ar er með þessu verið að leggja sérstaka áherslu á þessi brot og auka refsivernd gegn þeim,“ segir Sólveig. Munur á refsiramma gagnrýndur Í minnisblaði frá dómsmálaráðu- neytinu segir að talsverð gagnrýni hafi komið fram á þann greinar- mun sem gerður er í lögum á nauðgun annars vegar og kynferð- islegri misnotkun á börnum hins vegar. Gagnrýnt hafi verið að há- marksrefsing fyrir nauðgun sé 16 ár, en refsiramminn fyrir að mis- nota kynferðislega barn eða stjúp- barn yngra en 16 ára sé 10 ár. Það hafi þótt skjóta skökku við að sá verknaður að hafa samræði við barn gegn vilja þess sé talið með þessum hætti léttvægara en að nauðga fullorðnum einstaklingi. Sólveig segir að á öllum Norðurlöndun- um sé gerður grein- armunur á nauðgun og kynferðisbrotum gegn börnum. Það þyki eðlismunur á þessum brotum þar sem við naugðun beiti gerandinn of- beldi við verknaðinn. Það verði þó að hafa í huga að hægt sé að ákæra mann fyrir nauðgun á barni, beiti hann ofbeldi við verknaðinn. Slíkt brot falli undir nauðgunarákvæði hegningarlaga og þar með sé refsi- ramminn 16 ár. Í minnisblaðinu kemur einnig fram að á hinum Norðurlöndunum sé meira samræmi milli refsi- ramma fyrir nauðgun og kynferð- islegrar misnotkunar barna. Há- marksrefsing fyrir kynferðislega misnotkun barna sé almennt ekki lægri hér á landi en annars staðar, en hafa verði til hliðsjónar að hin Norðurlöndin, að Danmörku und- anskilinni, hafi ákvæði um lág- marksrefsingar sem stuðli að þyngri refsingum. Ekki refsilágmark Aðspurð hvort komið hafi til greina að tilgreina lágmarksrefs- ingu við kynferðisbrotum gegn börnum, segir Sólveig að það heyri til algjörrar undantekningar að ís- lensk hegningarlög tilgreini lág- marksrefsingu. Slík ákvæði er þó að finna vegna nauðgunar, mann- dráps og ráns. „Það væri stílbrot að leggja til refsilágmark í þessum ákvæðum,“ segir hún. Einnig sé óvíst hvað væri fengið með slíku. Á hinn bóg- inn sé ástæða til þess að refsirétt- arnefnd skoði þann kafla hegning- arlaga sem fjalli um kynferðisbrot og athugi hvort ástæða sé til að huga að frekari breytingum. Stjórnarfrumvarp sem þyngir refsingar fyrir kynferðisbrot gegn börnum Telur að breytingarnar muni leiða til þyngri dóma Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra. Í FRUMVARPINU er lagt til að refsimörkin í 200. grein og 201. grein hegningarlaga verði hækkuð þannig að brot varði fangelsi allt að 8 árum, en 12 árum sé barnið yngra en 16 ára. 200. grein fjallar um samræði eða önnur kynferð- ismök við eigið barn eða annan niðja og 201. grein um samræði eða önnur kynferðismök við barn eða ungmenni, yngra en 18 ára, sem er kjörbarn viðkomandi, stjúpbarn, fósturbarn, sambúðarbarn eða ungmenni sem honum hefur verið trúað fyrir til kennslu eða uppeldis. Þá er lagt til að aldurinn verði hækkaður í yngra en 18 ár í 202. grein, þar sem segir að hver sem með blekkingum, gjöfum eða á annan hátt tælir ungmenni á aldr- inum 14–16 ára til samræðis eða annarra kynferðismaka skuli sæta fangelsi allt að fjórum árum. Sérákvæði um mansal Í frumvarpinu er lagt til að inn í hegningarlögin komi sérákvæði sem lýsi mansali, eða verslun með fólk, og tengdum brotum refsiverð- um. Fyrir mansal skuli refsa með allt að 8 ára fangelsi hverjum þeim sem gerist sekur um nánar til- greindan verknað í þeim tilgangi að notfæra sér mann kynferð- islega, til nauðungarvinnu eða til að nema á brott líffæri hans. Við samningu ákvæðisins hafi verið höfð hliðsjón af 3. grein bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna gegn alþjóðlegri og skipulagðri glæpastarfsemi, sem nefndur hefur verið Palermó-samningurinn. Hámarks- refsing hækkuð í 8 ár og 12 ár 41 ÁRS karlmaður var dæmdur í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær, fyr- ir kynferðisbrot gegn 16 ára dóttur sinni í fyrra. Ákærði neitaði sök í málinu og bar við minnisleysi. Dóttir hans var að mati dómsins staðföst í vitn- isburði sínum og var framburður hennar talinn einkar trúverðugur. Dómurinn taldi háttsemi ákærða alvarlega, þar sem hann braut gegn dóttur sinni sem var gestkomandi á heimili hans og gat sér enga björg veitt vegna svefndrunga og ölvun- arástands. Átti ákærði sér engar málsbætur að mati dómsins. Auk fangelsisrefsingar var hann dæmd- ur til að greiða dóttur sinni 700 þúsund krónur í miskabætur. Hann á að baki langan sakaferil og hefur samkvæmt sakavottorði hlotið refs- ingu 33 sinnum, einkum fyrir um- ferðarlagabrot, skjalafals, auðgun- arbrot og samtals hlotið fjögurra og hálfs árs fangelsi. Fangelsi fyr- ir kynferðis- brot gegn dóttur sinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.