Morgunblaðið - 14.12.2002, Page 34
„ÞAÐ sem er hvað ánægjulegast á
þessum námskeiðum er að starfs-
menn eru virkir og sjá sjálfir um
að leiðbeina og miðla sinni þekk-
ingu og reynslu,“ segir Benedikt
Guðmundsson framkvæmdastjóri
hjá hópferða- og ferðaþjón-
ustufyritækinu Guðmundi Tyrf-
ingssyni ehf. á Selfossi. Á nám-
skeiðinu, sem haldið er árlega, var
farið vel yfir umhverfis- og örygg-
isstefnu fyrirtækisins, áherslur
ræddar, auk þess sem gæða-
handbók bílstjóra var kynnt en í
henni er að finna starfsreglur bif-
reiðastjóra Guðmundar Tyrfings-
sonar ehf. allt frá undirbúningi
fyrir ferð þangað til ferð lýkur.
Gæðahandbók þessi er ítarleg
þar sem farið er yfir þá þætti sem
lúta að bifreiðastjóra og varða
umhverfis-, öryggis- og gæðamál.
Bók þessi var afhent hverjum bif-
reiðastjóra en jafnframt er hún
höfð í hverjum bíl. Það er meðal
annars gert vegna þess að fyr-
irtækið hefur jafnframt bílaleigu-
leyfi og leigir hópferðabíla sé þess
óskað án bifreiðarstjóra. Með
þessu vonast forsvarsmenn G.T. til
að ná betur að koma sínum
áherslum til þeirra sem leigja hóp-
ferðabifreið með þessum hætti.
„Við reynum samt alltaf að
víkka sjóndeildarhringinn enn
frekar. Það komu núna tveir
starfsmenn frá Beluga jafnframt
að þessu námskeiði, þeir Úlfur
Björnsson sem fjallaði um mik-
ilvægi virkrar umhverfisstefnu og
umhverfisstjórnunarkerfis og
Guðjón Ólafsson sem fjallaði um
að rækta umhverfisvitundina.
Þeirra innlegg var skemmtilegt og
fróðlegt en umhverfisstefna okkar
er viðurkennd af Beluga. Við telj-
um að þetta námskeið hafi tekist
vel í alla staði en það er nauðsyn-
legt að bílstjórar okkar og aðrir
starfsmenn séu viðbúnir að mæta
óvæntum aðstæðum af öryggi og
að þeir séu meðvitaðir um rekstur
fyrirtækisins,“ sagði Benedikt
„Á námskeiðinu er alltaf farið
yfir skyndihjálp og er aðal-
áherslan lögð á hnoð og blástur.
Grænn akstur eða sparakstur var
einnig tekinn fyrir bæði verklega
og eins bóklega. Í stuttu máli má
segja að hann byggist á því að
skipta fljótt upp í háu gírana og að
halda bílvélinni á lágum snúningi.
Minni mengun
Eins var farið yfir mikilvægi
þess að nota olíumiðstöðina í bíl-
unum bæði til að hita bílvélina áð-
ur en lagt er af stað og eins til að
takmarka lausagang. Þessi bún-
aður er í nær öllum bílum fyr-
irtækisins og þannig útbúinn að
hann tengist bæði vatninu sem er
á vél bifreiðar og eins því vatni
sem er á ofnum í farþegarými. Ef
þessi búnaður er notaður rétt þá
er bílvélin um 60° heit þegar hún
er ræst og mengar því mun minna
en ella.
Á námskeiðinu var jafnframt
farið yfir akstur á hálendinu og í
ám, sölustarf bifreiðastjóra og
þjónustulund, skólaakstur, notkun
slökkvitækja og neyðarbúnaðar
auk æfinga við erfiðar aðstæður
t.d. í snjó og hálku,“ sagði Bene-
dikt Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Guðmundar Tyrfingssonar
ehf. á Selfossi.
Bílstjórar séu
ávallt viðbúnir
óvæntum aðstæðum
Selfoss
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Starfsmenn Guðmundar Tyrfingssonar ehf. á Selfossi við bifreiðina sem notuð var á námskeiðinu en hún mun vera
eina hópferðabifreiðin sem er sérútbúin til kennslu í svonefndum grænum akstri.
Unnið
við gang-
stéttir
EINSTÖK veðurblíða hefur gert
mögulegt að vinna ýmiss konar jarð-
vinnu sem alla jafna er ekki fært í
desember. Starfsmenn Árborgar
hafa notað þær stundir, þegar ekki
þarf að sinna aðkallandi verkefnum,
til þess að endurleggja gangstéttir
við Eyrargötu á Eyrarbakka.
Þegar snjóþungt er lenda stund-
um þungar snjóruðningsvélar upp á
gangstéttirnar og brjóta þá hellurn-
ar eða aflaga og gera skeinuhættar
gangandi fólki.
Vatnsveita
Fyrir skömmu bilaði grunnvatns-
dæla vatnsveitunnar svo vatnslaust
var um skamma hríð. Nýuppgerð
varadæla brást hins vegar eftir fáa
daga.
Loks þegar ný dæla var fengin
kom í ljós að þrýstijafnari, sem
stjórna á þrýstingi í dreifikerfinu,
var bilaður svo þrýstingur fór hærra
en æskilegt er og olli því að set innan
í lögnunum rótaðist upp og vatn varð
ærið mórautt. Þetta hefur nú allt
verið lagað og einnig nokkrir leka-
staðir sem uppgötvuðust í öllu þessu
amstri. Nú er vatnið tært og gott og
með góðum og hæfilegum þrýstingi,
svo allir eru ánægðir.
Markaður í Tryggvaskála
Markaðir gerast nú tíðir hér um
slóðir og verður einn slíkur haldinn í
Tryggvaskála á Selfossi laugardag-
inn 14. desember frá kl. 11 til 18.
Eyrarbakki
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Starfsmenn Árborgar ganga frá lækkun gangstéttar, frá vinstri: Finn
Nilsen, Gísli Eggertsson og Guðmundur Sigurjónsson.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
34 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AÐVENTAN er gengin í garð með
öllum sínum sjarma. Í Grunnskól-
anum í Hveragerði hafa skapast
ýmsar hefðir í áranna rás sem gera
þessa árstíð að einum skemmtileg-
asta tíma vetrarins. Úti á skólalóð-
inni er stórt grenitré sem Kári
Tryggvason rithöfundur og kennari
gróðursetti fyrir mörgum áratug-
um. Fyrir hver jól er það fagurlega
skreytt marglitum perum.
Þegar kveikt er á trénu safnast
allir saman við það og formaður
nemendaráðs flytur ávarp. Í ár var
það Auður Elísabet Guðjónsdóttir
sem minnti okkur á jólaboðskapinn
og síðan syngja allir saman nokkur
jólalög. „Jóla-opið-hús“ er einnig ár-
leg uppákoma. Þá er nemendum í
5.–10. bekk boðið að koma einn eft-
irmiðdag að loknum venjulegum
skóladegi og föndra, baka, útbúa
kerti og kertaskreytingar, búa til
konfekt og ýmislegt fleira.
Nemendur í 6. bekk fá það hlut-
verk ár hvert að fara upp að Garð-
yrkjuskóla og sækja jólatré sem sett
er upp og skreytt í anddyri skólans.
Ein af skemmtilegu hefðunum í
bænum er sú að Garðyrkjuskólinn
gefur stofnunum bæjarins jólatré,
sem síðan eru skreytt og prýdd ljós-
um. Síðan er það gangasöngurinn,
sem gamlir nemendur segjast sakna
hvað mest úr skólanum. Gang-
asöngur er stór hluti af desember,
annan hvern dag safnast allir saman
frammi í anddyri og syngja saman
jólalög.
Nú í haust var skólinn einsetinn í
fyrsta sinn, þannig að fjöldinn hefur
aldrei verið meiri en í ár eða yfir 400
manns. Það er skólastjórinn Guðjón
Sigurðsson ásamt Kristínu Sigfús-
dóttur tónmenntakennara sem
stjórnar söngnum en Margrét S.
Stefánsdóttir spilar undir á píanó.
Þegar kemur að jólaböllum nem-
enda er dagskráin orðin hefðbundin,
fyrst atriði á sviði, síðan er dansað í
kringum jólatré og þá er stofnuð
hljómsveit, sem skipuð er starfs-
mönnum skólans. Þessi hljómsveit
æfir aldrei og má það ekki, heldur er
skipuð á þessum böllum og er mis-
jafnt hverjir lenda í hljómsveitinni.
Guðjón skólastjóri sagði í haust
þegar hann bauð nýtt starfsfólk vel-
komið að hann legði metnað sinn í
að ráða starfsfólk sem eitthvað
kynni fyrir sér í tónlist, því þetta
væri jú ein af mörgum skyldum
starfsfólks Grunnskólans í Hvera-
gerði.
Aðventan er
ljúf og notaleg
Hveragerði
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Hveragerði syngja saman annan
hvern dag í desember í gangasöng undir styrkri stjórn Guðjóns og Kristínar.
ER fréttaritari var staddur í hús-
næði Hólmarastar á Stokkseyri,
var honum bent á að tala við
handverksmann sem þar hefur
nýverið fengið aðstöðu. Þessi
handverksmaður heitir Daníel
Örn Heiðarsson og hefur hann
aðallega unnið við að gera hand-
unna veiðihnífa og annan útskurð
úr tré en einnig hefur hann lít-
illega stundað smíði á skartgrip-
um úr silfri.
Daníel segir að það séu um tvö
ár síðan hann byrjaði að skera út
hnífa og annan útskurð en nú er
hann meira að fara út í skart-
gripasmíð. Hann segist jafnframt
vera mun þekktari erlendis en
hér heima. Til að mynda hafi
hann tekið þátt í heimsmeistara-
móti í gerð handunninna veiði-
hnífa sem haldið var í Bandaríkj-
unum þar sem hann lenti í fjórða
sæti. Einnig hafi hann fengið
góða dóma fyrir heimasíðu sína
en slóðin er mookmaan.com.
Fréttaritari getur með sanni
sagt að hnífarnir séu hrein lista-
smíð og gefst almenningi kostur
á að skoða hnífana og önnur verk
Daníels sunnudaginn 15. desem-
ber næstkomandi þegar haldinn
verður heljarinnar mikill hand-
verksmarkaður í húsnæði Hólm-
arastar á Stokkseyri milli kl. 14
og 18. Jafnframt mun hann sýna
hnífana sína í skötuveislu Ung-
mennafélags Stokkseyrar sem
haldin verður í íþróttahúsinu á
Stokkseyri á Þorláksmessu.
Hnífar og
skartgripir
handverks-
manns
Stokkseyri
Morgunblaðið/Gísli Gíslason
Daníel Örn með einn hnífinn.
SETTUR hefur verið upp send-
ir fyrir þráðlaust netsamband á
Hótel Selfossi. Sendirinn er öfl-
ugur og getur þjónað fjölmörg-
um fyrirtækjum og einstakling-
um, segir í fréttatilkynningu.
Það eru fyrirtækin eMax ehf. í
Kópavogi og Toppnet í Þorláks-
höfn sem standa í sameiningu að
uppsetningu á sendibúnaðinum
sem tengdur er við ljósleiðar-
anet Línu.nets í Reykjavík.
Ljósleiðari Línu.nets nær frá
Reykjavík, um Suðurland og til
Vestmannaeyja.
Með tilkomu þessa býðst Sel-
fyssingum að tengjast Netinu
með háhraðatengingu án þess
að símtæki þurfi að koma þar við
sögu.
Með nýja sendinum verður
boðið upp á tvenns konar þjón-
ustu til að byrja með: Fyrir-
tækjatengingar þar sem tryggð
bandbreidd er í boði og geta fyr-
ir fyrirtæki valið um 1 MB og
þaðan af stærri tengingar. Þá
stendur heimilum, einstakling-
um og smærri fyrirtækjum til
boða háhraðasítenging. Fyrir-
tækin tvö sem standa að þessu
verkefni hafa undirritað sam-
starfssamning og er Selfoss
fyrsti viðkomustaðurinn á Suð-
urlandi en fyrirtækin ætla sér að
setja upp senda mun víðar á
næstu mánuðum.
Toppnet ehf. rekur þráðlaust
örbylgjukerfi í Þorlákshöfn og
eMax ehf. rekur eigið fjarskipta-
kerfi á höfuðborgarsvæðinu.
Háhraða-
tenging
við Netið
Selfoss