Morgunblaðið - 14.12.2002, Síða 35
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 35
BÖRN úr Andakílsskóla á Hvann-
eyri fóru á fimmtudag í hinn árlega
jólatrésleiðangur að Hvammi í
Skorradal til að velja jólatré, sem
sett verður upp í skólanum. Börnin
skemmta sér vel í ferðum þessum,
en aðstoð þurfa þau að fá frá Gísla
Baldri Henrýssyni, starfsmanni
Skógræktarinnar, við að fella tréð,
sem valið var.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Börnin sækja sjálf jólatré
Skorradalur
ÍÞRÓTTA- og æskulýðsfélög á
Akranesi skiptu á milli sín
styrk að upphæð 2 milljónir
sem bæjarráð Akraneskaup-
staðar veitti 10. desember sl.
Markmiðið með styrknum er að
hvetja og styðja við félagasam-
tök sem viðhalda góðu og fag-
legu barna- og unglingastarfi.
Styrkurinn á einnig að sporna
við hækkun æfingagjalda og er
þannig komið á móts við for-
eldra barna sem vilja stunda
heilbrigt félagslíf hvort sem um
ræðir íþróttir eða æskulýðs-
starf.
Sveinn Kristinsson, forseti
bæjarstjórnar Akraness, sagði
við afhendinguna að styrkur
hvers félags væri reiknaður
annars vegar út frá fjölda þátt-
takenda undir 15 ára aldri og
hins vegar út frá hlutfalli félag-
anna af heildarþjálfunar- og
leiðsagnarkostnaði barna undir
15 ára aldri.
Sveinn bætti því við að öllum
væri ljóst að rekstur félaga
væri almennt mjög dýr og fag-
legt barna- og unglingastarf
kostaði það að fjárfesta þyrfti í
góðu starfsfólki. Bæjaryfirvöld
vilja þar af leiðandi bregðast
við með þessum hætti. Styrk-
urinn er viðbót við þá fjármuni
sem renna til íþrótta- og æsku-
lýðsmála á hverju ári.
Alls eru þrettán félög sem
skipta á milli sín styrknum:
Badmintonfélag Akraness fær
96.616 kr., Fimleikafélag Akra-
ness 168.012 kr., Golfklúbbur-
inn Leynir 97.807 kr., Hesta-
mannafélagið Dreyri 56.371 kr.,
Íþróttafélagið Þjótur 50.617
kr., Karatefélag Akraness
77.684 kr., Keilufélag Akraness
102.904 kr., Knattspyrnufélag
ÍA 596.042 kr., Körfuknatt-
leiksfélag Akraness 163.415 kr.,
Skátafélag Akraness 60.100 kr.,
Sundfélag Akraness 294.487
kr., Sundfélag Akraness v/
sundskóla 102.671 kr. og
TTT-klúbburinn fékk 133.274
kr.
Morgunblaðið/Sigurður
Þessar brosmildu fimleikadömur, Lilja,
Sigurrós, Sigurbjörg og Þórdís, stunda
fimleika á Akranesi.
Aukin framlög til
íþrótta- og æskulýðsmála
Akranes
OPINN kynningarfundur um
vegamál var haldinn í félags-
heimilinu Miklagarði, Vopna-
firði, kl. 20 miðvikudagskvöld-
ið 11. des. sl.
Á fundinn voru mættir
fulltrúar vegagerðarinnar og
gerðu þeir grein fyrir þeim
valkostum sem til skoðunar
hafa verið varðandi tengingu
Vopnafjarðar og nærsveita
við þjóðveg eitt.
Á fundinn voru einnig
mættar hreppsnefndir Vopna-
fjarðarhrepps og Skeggja-
staðahrepps. Fundurinn var
vel sóttur því alls mættu milli
80 og 90 manns. Fyrst gerðu
fulltrúar vegagerðarinnar
grein fyrir þeim valkostum
sem unnið hefur verið að.
Farið var yfir kosti og galla
þessara leiða. Fram kom að
áætlaður kostnaður við svo-
kallaða Hofsárdalsleið er
1.350 m.kr. en kostnaður við
svokallaða Hofshálslínu 900
m.kr.
Á fundinum kom fram að
allmikil vinna væri eftir í því
að ljúka umhverfismati. Í lok
fundarins kom fram eftirfar-
andi ályktun til stjórnvalda
um flýtingu þessa mikilvæga
verkefnis fyrir svæðið:
„Opinn kynningarfundur
um vegamál haldinn í Félags-
heimilinu Miklagarði, Vopna-
firði, 1. des. 2002 hvetur til
þess að yfirvöld samgöngu-
mála flýti umhverfismati á
leiðinni um Hofsárdal, þannig
að mögulegt verði að hefja
framkvæmdir árið 2004 og
ljúka þeim eigi síðar en 2007.
Skorað er á þingmenn og
samgönguyfirvöld að sjá til
þess að nægir fjármunir fáist
til verksins.
Fundurinn hvetur hrepps-
nefndir Vopnafjarðarhrepps
og Skeggjastaðahrepps til að
fylgja málinu fast eftir.“
Tillaga þessi var samþykkt
samhljóða á fundinum.
Vinnu
vegna
vegar um
Hofsárdal
verði flýtt
Vopnafjörður
ÞAU hjónin Friðrik Sigurðsson og
Magnea Magnúsdóttir hjá Bóka-
verslun Þórarins Stefánssonar af-
hentu Heilbrigðisstofnun Þing-
eyinga skjá að gjöf á dögunum.
Skjárinn er tengdur þannig og
staðsettur, að verðandi mæður og
feður eiga auðveldara nú en áður
með að fylgjast með ómskoðun. Áð-
ur þurfti, með tilfæringum að fylgj-
ast með á skjá sem viðkomandi
læknir notar við skoðunina. Alex-
ander Smárason kvensjúkdóma-
læknir sagði þetta til mikilla bóta,
nú gætu verðandi mæður legið af-
slappaðar á meðan skoðun fer fram
og fylgst með um leið á skjánum.
Magnea, sem átti von á sér innan
fárra daga þegar afhendingin fór
fram, var að sjálfsögðu fyrst
kvenna til að fara í ómskoðun eftir
að skjárinn var tengdur. Hún sagði
þetta allt annað líf miðað við það
sem áður var þegar þurfti að snúa
sér og teygja til að geta séð á skjá-
inn. Friðrik sagði að þau hefðu tek-
ið þá ákvörðunað í stað þess að
senda út jólakort þetta árið, myndi
verslunin færa Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga þennan skjá að gjöf .
Betri aðstaða
við ómskoðun
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Magnea og Friðrik ásamt dóttur fylgjast með á skjánum er ómskoðun fer
fram. Einnig eru á myndinni f.v. Lilja Skarphéðinsdóttir ljósmóðir, Frið-
finnur Hermannsson og Alexander Smárason.
NÝ kapella var vígð við hátíð-
lega athöfn á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Lundi á Hellu
um síðustu helgi. Séra Sigurð-
ur Sigurðarson, vígslubiskup í
Skálholti, annaðist vígsluna og
séra Sigurður Jónsson, sókn-
arprestur í Oddaprestakalli,
þjónaði fyrir altari. Kór Odda-
og Þykkvabæjarkirkna söng
við undirleik Nínu Maríu
Morávek.
Athöfnin var hin hátíðleg-
asta og í upphafi hennar báru
inn í kapelluna helga gripi
hennar séra Önundur Björns-
son, sóknarprestur á Breiða-
bólsstað, biblíu og handbók,
séra Halldór Gunnarsson,
sóknarprestur í Holti, kaleik
og patínu, og séra Halldóra
Þorvarðardóttir, prófastur í Fells-
múla, bar inn altariskerti. Vígslubisk-
up tók við hinum helgu gripum, lagði
á altarið og tendraði ljós á kertunum.
Fjöldi gesta var við athöfnina og
var henni sjónvarpað á efri hæð bygg-
ingarinnar en kapellan er á jarðhæð.
Í athöfn eftir vígsluna kom fram í
máli Drífu Hjartardóttur, formanns
stjórnar, að margir einstaklingar,
kvenfélög, kirkjusóknir, sveitarfélög
og líknarfélög í Rangárvallasýslu og
kirkjugarðasjóður hefðu fært kapell-
unni veglegar gjafir allt frá því að
vinna við innréttingu hennar hófst
fyrir u.þ.b. ári.
Kapellan er ákaflega falleg. Gólfið
er lagt olíubornu eikarparketi en eftir
endilangri miðju þess og út til hlið-
anna framan við altarið er vönduð
steinflísalögn skreytt fínlega sögu-
ðum marmaraflísum. Altarið er úr
stuðlabergssteini með eikarborði og
er það gjöf frá Hagakirkju í Holtum.
Kvenfélagið Framtíðin í Ásahreppi
gefur skírnarfont sem er steinn hol-
aður innan af náttúrunnar hendi, tek-
inn við Sóleyjarhöfða á Holtamanna-
afrétti. Undirstaðan verður úr
smíðajárni.
Minningarsjóður Ólafs Björnsson-
ar héraðslæknis hefur gefið 35 stóla,
kaleikur og patína eru gjöf frá Braga
Ólafssyni sem býr á Lundi og Rauða-
krossdeild Rangárvallasýslu gaf lík-
kæli svo fátt eitt sé nefnt af gjöfum.
Ný kapella vígð
Hella
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Vígslubiskup og prestar sem önnuðust
vígsluna; Önundur Björnsson, Halldóra J.
Þorvarðardóttir, Sigurður Sigurðarson,
Sigurður Jónsson og Halldór Gunnarsson.