Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 36
NEYTENDUR
36 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
H
IN sígilda jólasteik,
reyktur hamborgar-
hryggur, hefur aldrei
verið ódýrari en nú.
Hangikjöt er á lækk-
uðu verði, ferskt
svínakjöt hefur verið
á útsölu um hríð og
kjúklingaverð hefur
hríðlækkað. Svo virðist sem verð á kalkúnum
haldist nokkuð stöðugt þótt um tímabundin
tilboð hafi sums staðar verið að ræða en fram-
boð á rjúpu er afar takmarkað og verðið hefur
hækkað.
Nóatún og Melabúðin-Þín verslun og Þín
verslun á Seljavegi hafa boðið sínum við-
skiptavinum upp á nýjungar á jólaborðið, þar
fást t.d. fasanar frá Englandi og dádýralundir
frá Nýja-Sjálandi. Í Nóatúni eru líka fáan-
legar bandarískar foreldaðar kalkúnabringur,
grænlenskt hreindýrakjöt og von er á lyng-
hænum frá Frakklandi. Bónus hefur hafið sölu
á sænskum kjúklingabringum og ætlar að
vera með ferska reykta kjúklinga fyrir jólin og
Fjarðarkaup bjóða reyktar og ferskar anda-
bringur frá Englandi.
Hangikjöt selt með afslætti
Guðmundur Marteinsson, framkvæmda-
stjóri Bónuss, segir að Alí-hamborgarhryggir
verði seldir með 30% afslætti fram að jólum og
segir að Bónus-hamborgarhryggir, sem einn-
ig eru framleiddir hjá Alí, kosti 594 krónur
kílóið en á sama tíma í fyrra voru Bónus-ham-
borgarhryggir seldir á 699 krónur kílóið. Úr-
beinaður hamborgarhryggur er einnig seldur
með töluverðum afslætti. Guðmundur bendir
á að einnig séu góð kaup í léttreyktum lamba-
hrygg en veittur er 42% afsláttur frá upp-
runalegu verði.
Þá segir hann að hangikjöt sé á lækkuðu
verði. „Bónus ákvað að taka til prufu niður-
sagaða hangiframparta með beini og selja á
innan við sex hundruð krónur kílóðið. Þessi
nýjung hjá okkur hefur slegið í gegn og við er-
um þegar búnir að selja um 15 tonn af þessu
kjöti. Annars er allt hangikjöt selt með 15–
30% afslætti núna. Bónus mun á næstu dögum
selja úrbeinaðar, skinnlausar kjúklingabring-
ur frá Svíþjóð á 1.199 krónur kílóið og Bónus
ætlar að bjóða ferskan reyktan kjúkling fyrir
jólin.“
Bayonne-skinka með 42% afslætti
Elías Þorvarðarson, verslunarstjóri hjá
Nettó, segir að fyrir þessi jól sé hagstæðast
fyrir fólk að kaupa hamborgarhryggi en kílóið
er á 695 krónur. Hann segir að í fyrra hafi
verðið á hamborgarhryggjum hjá sér verið á
bilinu frá 1.100–1.300 króur. „Við byrjuðum
með tilboðin fyrir þremur vikum og það er
ljóst að neytendur munu geta gengið að þessu
verði vísu fram að jólum.“ Elías segir tvennt
skýra þessa verðlækkun; aukna samkeppni á
matvörumarkaði og mikið framboð af svína-
kjöti í landinu.
En hann bendir einnig á að hangikjötið sé á
frábæru verði fyrir neytendur, sagaður fram-
partur með beini frá Norðlenska sé seldur á
innan við sex hundruð krónur kílóið en á sama
tíma í fyrra var kílóið selt á 998 krónur. „Það
sama á við um frampartana og hamborgar-
hryggina. Við byrjuðum að bjóða hangikjötið á
tilboði og höfum ekki treyst okkur til að
hækka verðið aftur.“
Kalkúnn er á svipuðu verði og í fyrra en
kílóið er á 598 krónur. Elías segir að einn kalk-
únaframleiðandi sé í landinu og samkeppnin
sé engin sem skýri stöðugt verðlag.
Elías segir að neytendur geti einnig gert
reyfarakaup í Bayonne-skinku núna sem seld
sé með 42% afslætti á meðan birgðir endast.
Sama á við um léttreyktan lambahrygg sem
seldur sé með svipuðum afslætti.
Í fyrra voru seldar rjúpur í Nettó á 450
krónur stykkið en Elías segir að verslunin
hætti sér ekki út í þann slag núna því inn-
kaupsverð á rjúpu sé yfir þúsund krónur.
Bjóða 25% afslátt til jóla
Finnur Árnason, framkvæmdastjóri hjá
Hagkaupum, segir að 25 % afsláttur sé veittur
af hamborgarhrygg frá Alí fram til jóla, og
kílóið af hamborgarhrygg frá Gæðagrís kostar
699 krónur en þeir eru framleiddir af Alí líka.
Finnur segir að í Hagkaupum sé lögð
áhersla á að vera með breitt úrval og í boði sé
kjöt frá mörgum framleiðendum.
Hann segir það sama eiga við um hangikjöt,
selt sé kjöt frá ýmsum framleiðendum til að
hafa kjöt við flestra hæfi. Hann segir að af
hangikjöti sé einnig veittur afsláttur og bendir
á að t.d. sé birkireykt Strandahangikjöt, bæði
úrbeinaður frampartur og læri, selt með 25%
afslætti.
Finnur segir að verð á kjúklingum hafi ver-
ið lágt undanfarið og að nýlega hafi Hagkaup
selt kílóið af frosnum kjúklingi á 269 krónur.
Fólk tilbúið að prófa nýjungar
Dádýralundir, fasani, grænlenskt hrein-
dýrakjöt og bandarískar kalkúnabringur eru
meðal þess sem viðskiptavinum Nóatúns
stendur til boða að kaupa fyrir jólin.
„Við höfum selt umtalsvert magn af dádýra-
lundum undanfarið enda eru dádýralundir
ákaflega meyrt og gott kjöt en litlu dýrari en
nautakjöt,“ segir Sólmundur Oddsson hjá
Nóatúni. Hann segir að fólk sé tilbúnara en
áður að prófa nýjungar á jólaborðið og sala á
þessum vörum aukist frá ári til árs.
Rjúpa er fáanleg í takmörkuðu magni og
einnig eru á boðstólum villigæsir og hrein-
dýrakjöt, bæði íslenskt og grænlenskt.
Verð á hamborgarhryggjum Nóatúns hefur
lækkað frá því í fyrra og Sólmundur segir að
hangikjötsverð hafi einnig lækkað.
Hann bendir á að Nóatún selji einungis
fyrsta flokks vöru og daglega komi í verslanir
nýreyktir hamborgarhryggir.
Hreindýrakjötið stendur upp úr
„Hreindýrakjötið stendur upp úr hjá okk-
ur,“ segir Árdís Sigmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Galleríi Kjöti, þegar hún er
spurð hvað viðskiptavinir verslunarinnar velji
í jólamatinn. Næsta koma hangikjötið og ham-
borgarhryggur.
„Þeir sem alla jafna borða rjúpu eru
kannski að snúa sér að hreindýrakjötinu í
auknum mæli þar sem framboð af rjúpunni er
takmarkað.“
Þá segir hún að nóg sé til af íslenskum
gæsabringum og sænska jólaskinkan sé alltaf
vinsæl. Þá er töluvert sóst eftir veturgömlu
sauðakjöti og sumir eru farnir að borða fasana
á jólum.
Breskar andabringur vinsælar
Edvard Friðjónsson hjá Fjarðarkaupum
segir að fyrir þessi jól sé salan mjög mikil á
hamborgarhryggjum og hangikjöti enda verið
að bjóða kjötið með umtalsverðum afslætti.
„Að meðaltali seljum við hamborgarhrygg á
35% lægra verði en í fyrra og hangikjötið með
20–25% afslætti.“
Kalkúnninn selst einnig vel og ferskt svína-
kjöt, en það er nú verið að selja með allt að
40% afslætti.
Edvard segir að Fjarðarkaup séu að bjóða
ferskar og reyktar andabringur frá Bretlandi
og þær hafi hlotið athygli viðskiptavina.
„Bringurnar koma í staðinn fyrir íslensku
pekingöndina sem hætt hefur verið fram-
leiðslu á og fólk er tilbúið að prófa eitthvað
nýtt.“
Hann segir líka að töluvert seljist af finnsku
hreindýrakjöti en Edvard segir að sér hafi
ekki boðist íslenskt hreindýrakjöt í ár.
Þegar talið berst að rjúpu segir hann að hún
verði ekki fáanleg í Fjarðarkaupum í ár.
„Framboð er takmarkað og menn eru að
falast eftir allt að 1.600 krónum fyrir rjúpuna.
Viðskiptavinir okkar eru ekki tilbúnir að
borga slíkt verð fyrir hana.“
Samkeppnin hörð
Pétur Guðmundsson hjá Melabúðinni-Þinni
verslun segir að samkeppnin sé hörð í ár og
hangikjötið sé selt með 30% afslætti fram að
jólum, hamborgarhryggir einnig með 30% af-
slætti og reyktur og grafinn lax svo dæmi séu
tekin.
Pétur segir að í Melabúðinni og í Þinni
verslun á Seljabraut verði rjúpur á boðstólum
en þær séu þó uppseldar í augnablikinu.
Auk hefðbundins jólamatar verður til sölu
hjá þeim hreindýrakjöt, villigæsir, dádýra-
kjöt, fasanar og dúfur.
Pétur segist finna aukinn áhuga hjá fólki á
að prófa nýjungar, sérstaklega hjá þeim sem
hafa verið með rjúpu og sjá fram á að hún
verði ekki fáanleg á næstu árum.
„Þetta fólk er oft til í að skipta yfir í hrein-
dýrakjöt, dádýralundir, villigæs, dúfur eða
fasana.“
Næstum helmingsafsláttur
af hamborgarhryggjum
Ingvi Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Sparverslunarinnar í Bæjarlind, segir að
bestu kaupin séu í hangikjöti, svínahamborg-
arhrygg og Bayonne-skinku fyrir þessi jól.
„Verðið á þessum vörum hefur hríðlækkað
undanfarið og við veitum nærri helmingsaf-
slátt af hamborgarhryggjum núna, seljum
kílóið á 698 krónur frá kjötvinnslunni Esju.
Sama verð er á Bayonne-skinku.
Hangikjötið er frá SAH á Blönduósi og það
er boðið á 15–20% lægra verði en í fyrra. Við-
skiptavinir sem kaupa hangikjöt með beini fá
síðan úrbeiningu sér að kostnaðarlausu.“
Ingvi bendir á að auk þessa sé selt kjöt frá
mörgum öðrum framleiðendum og flestir veiti
afslátt.
Hann bendir að lokum á að í september hafi
ferskt svínakjöt lækkað um 40% í Sparversl-
uninni og sú verðlækkun haldist óbreytt fram
að jólum.
Sauðahangikjöt að norðan
Matthías Sigurðsson hjá Europris segir að
taðreykt úrbeinað hangikjöt að norðan sé selt
á hagstæðu verði um þessar mundir, kílóið af
úrbeinuðum framparti kosti 896 krónur. Þá er
sauðahangikjöt einnig til sölu í Europris og
framparturinn seldur á 789 krónur kílóið.
Matthías bendir á að ferskur svínabógur frá
Alí verði seldur á góðu verði fyrir þessi jól eða
á 299 krónur kílóið en kílóið af hamborgar-
hrygg er á 698 krónur um þessar mundir.
Matthías segir að viðskiptavinir geti því
fyrir þessi jól keypt jólasteikina á frábæru
verði.
Allt að 40–
50% afsláttur
af jólakjötinu
Hamborgarhryggur og hangikjöt seljast vel þessa dagana enda kjötið á mun lægra verði en í
fyrra. Sumir kjósa þó að prófa eitthvað nýtt, sérstaklega þeir sem ekki fá rjúpu um þessi jól og
þeir velja kannski hreindýrasteik eða aðra villibráð eins og gæs.
Það er hagstætt að halda sig við hefðir í vali á jólasteik þetta árið. Hamborgarhryggur hefur aldrei verið
ódýrari og hangikjöt er á niðursettu verði. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir segir að þeir sem vilja prófa
eitthvað nýtt geti til dæmis eldað fasana, reyktar andabringur, dúfur eða dádýralundir.
gudbjorg@mbl.is
KOMNAR eru á markað hér á landi sér-
saumaðar yfirbreiðslur sem henta öllum
sófum og stólum.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá um-
boðsaðila, Vigdísi Haraldsdóttur, eru efnin
í þeim endingargóð bólsturefni flutt inn
frá Spáni. Ýmsar tegundir af yfir-
breiðslum eru í boði, hvort sem sófarnir
eru með lausum setum eða föstum og litaúr-
valið fjölbreytt; einlitt og mynstrað.
Auðvelt er að klæða sófana í yfirbreiðsl-
urnar og eru ýmsar lausnir á því, hvort sem
fólk vill hafa þær lausar eða sérsaumaðar.
Efniskostnaðurinn er nú á kynningartilboði.
Metrinn kostar nú 3.600 en breiddin á efninu
er 2,80 cm. Sem dæmi þá kostar að sérsauma
yfir þriggja sæta sófa 5.500, tveggja sæta sófa
4.500 og stól 3.500.
Önnur gerð af yfirbreiðslunum er svoköll-
uð teygjustykki, en þau eru flutt inn tilbúin.
Teygjustykkin kosta frá 8.400–12.400 krónur.
Efnin má þvo við 30°C í þvottavél.
Hægt er að kaupa yfirbreiðslurnar á Net-
inu en slóðin er: www.islandia.is/vigdish.
Umboðsaðili er Vigdís Haraldsdóttir, GSM-
sími: 692 8022.
Sérsaumaðar
yfirbreiðslur
BLÓMAVAL hefur hafið sölu
á sérstökum hlífðarpokum
fyrir jólatré. Pokarnir eru úr
plastefni sem hleypir að súr-
efni en ekki vætu. Í frétta-
tilkynningu frá Blómavali
kemur fram að pokarnir séu
sérstaklega hentugir til flutn-
ings á jólatrjám og fólk ætti
ekki lengur að vera í vand-
ræðum með óþrif og greninálar í bíl-
um sínum.
Einnig er ákjósanlegt að geyma
jólatrén utandyra í opnum pokunum.
Pokarnir verða á boðstólum endur-
gjaldslaust á öllum útsölustöðum
Blómavals, Reykjavík, Akureyri, Kefla-
vík og Selfossi.
Hlífðar-
pokar fyr-
ir jólatré