Morgunblaðið - 14.12.2002, Síða 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 39
Í dag, laugardaginn 14. desember kl. 17 / Tónadans
Hans-Dieter Möller frá Düsseldorf og Hörður Áskelsson kynna hljóðheim
orgelsins. Á efnisskránni er einnig Tokkata og fúga í d-moll eftir Bach og
frumflutningur á verkinu Innsigli eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Félagar úr
Íslenska dansflokknum sýna dansverkið Klukkuturna eftir Peter Anderson
við Passacaglíu eftir Bach. Ókeypis aðgangur.
Sunnudagur 15. desember kl. 11 / Orgelmessa
Áhersla verður lögð á margþætta notkunarmöguleika orgelsins í helgihaldinu.
Organistar: Hörður Áskelsson og Hans-Dieter Möller.
Sunnudagur 15. desember kl. 20 / Orgeltónleikar
Prófessor Hans-Dieter Möller flytur m.a. verk eftir Bach og Tournemiere
og frumflytur eigið verk sem hann tileinkar þessum tímamótum. Hann mun
einnig leika af fingrum fram yfir þekkt jólalög. Aðgangur 1.500 kr.
Mánudagur 16. desember kl. 20 / Orgeltónleikar
Christian Schmitt, verðlaunaorganisti frá Þýskalandi, leikur verk
eftir Bach, Reger, Messiaen o.fl. Þýska sendiráðið styrkir tónleikana.
Aðgangur 1.500 kr.
Klaisorgel Hallgrímskirkju 10 ára • Afmælishátíð
KAMMERKÓR Langholtskirkju,
er sl. júlí tók þátt í alþjóðlegri kóra-
keppni í Randers í Danmörku og
sigraði í flokki kammerkóra, hélt
þokkalega sótta tónleika á fimmtu-
dagskvöld í tilefni af útgáfu geisla-
disks með m.a. verkum þeim er kór-
inn flutti í keppninni. Á undan
„hitaði upp“ Laugaráskvartettinn
fyrir Kammerkórinn með fjórum
jólalögum, spænskri endurreisnar-
canzónu eða laudu, rakarasveiflunni
Java Jive, Spilverkslaginu Daisy og
Bing Crosby-ballöðunni sígrænu
White Christmas; ágætlega sungin
burtséð frá ýtrustu hreinleikakröf-
um sem fylgja vesturheimskum
eyrnadillum af því tagi vegna al-
þekktra fyrirmynda frá háfaglegum
flytjendum.
Þá tók Kammerkórinn við og söng
velska jólasálminn Stráið salinn
greinum grænum (Deck the halls),
síðan fallegan erlendan jólasöng frá
1350 með íslenzka heitinu Borið er
oss barn í nótt, eftir það Í Betlehem
hjá blíðri móður (englahymnann
góðkunna með viðlagið Gloria in ex-
celsis Deo, elzta jólasálm kristninnar
frá dögum Telesforusar Rómarbisk-
ups, 129). Þá voru tekin af nýja disk-
inum Heilræðavísur Jóns Nordal í
frískandi væmnilausri túlkun, tand-
urskýr nálgun á Hættu að gráta
hringaná (úts. Hafliða Hallgríms-
sonar), innblásin Grafskriftarútsetn-
ing Hjálmars H. Ragnarssonar í frá-
bært tærum og þróttmiklum
flutningi sem jafnaðist á við stór-
riddarakross á leiði Sæmundar
Klemenzsonar og hið kyrrláta Vor
hinzti dagur er hniginn eftir Jón Ás-
geirsson. Keppnilögin tvö eftir Mich-
ael Bojesen voru fagmannlega samin
og mynduðu skemmtilega blöndu af
þjóðlagalituðum stíl og léttpoppuð-
um módernisma, með flottum klasa-
„blævæng“ í miðju seinna laginu.
Prentuð tónleikaskrá var ekki fyr-
ir hendi, en flest kom samt skýrt
fram af munnlegum kynningum
stjórnandans. Eftir hlé var fyrst hið
kunnuglega hljómandi Dagur er nær
(að manni heyrðist) í saraböndu-
hrynjandi, þar sem helzti agnúinn á
annars afburðagóðri túlkun kórsins
kom hvað berlegast fram, nefnilega
fullmikið styrkhnig í hendingalokum
sem jöðruðu við ofmótun í kyrrlátari
lögum. Á því bar hins vegar lítt í síð-
ustu lögum dagskrár. Fyrst Faðir
vor e. Jón Ásgeirsson sem myndaði
tvo fallega risboga fyrir niðurlags-
coda, en síðan Næturljóð úr píanó-
noktúrnu Chopins eftir ókunnan
kórútsetjara í sannkallaðri sottiss-
imo meðferð við hæfi. Kammerkór-
inn tók nú á öllu sínum beztu gæða-
tólum og Haustvísur til Máríu (Atli
Heimir Sveinsson) voru engu minna
virði en crème de la crème. Sama
gilti um fimmtaktskipta smellinn
Báru Grímsdóttur til guðsmóður, Ég
vil lofa eina þá, og sömuleiðis (sem
aukalag) um perlu Jóns Ásgeirsson-
ar, Hjá lygnri móðu.
Af öllu saman mátti ljóst vera að
KKL er kirfilega kominn í fremsta
flokk kammerkóra landsins – þeirra
sem aðeins verða taldir á fingrum
annarrar handar, og varla það. Veri
hann velkominn á toppinn.
Kominn kyrfilega
á toppinn
TÓNLIST
Langholtskirkja
Laugaráskvartettinn (Egill Árni Pálsson,
Hreiðar Ingi Þorsteinsson, Þorvaldur
Skúli Pálsson og Þröstur Freyr Gylfason);
Kammerkór Langholtskirkju u. stj. Jóns
Stefánssonar. Fimmtudaginn 12. desem-
ber kl. 20:30.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
ÓPERUKÓRINN mun nú, sem
fyrr, gera vegfarendum í miðborg
Reykjavíkur
dagamun í inn-
kaupaönnunum
með jólasöngvum
í dag. Kórinn
syngur við Tísku-
val á mótum
Laugavegar,
Bankastrætis og
Skólavörðustígs
kl. 15.30 og geng-
ur síðan syngj-
andi að Aðventkirkjunni þar sem
tónleikar verða kl. 16. Jóhann Frið-
geir Valdimarsson tenór syngur ein-
söng og óperukórinn flytur fagnað-
artónlist tengda hátíðinni sem
framundan er. Píanóleikari með
kórnum er Clive Pollard og stjórn-
andi Garðar Cortes. Aðgangur er
ókeypis. Eftir tónleikana bjóða Að-
ventsöfnuðurinn og Ömmubakstur
tónleikagestum í jólasúkkulaði og
kleinur.
Dagamunur hjá
Óperukórnum
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
MARTA Guðrún Halldórsdóttir
sópransöngkona, Camilla Söd-
erberg blokkflautuleikari og
Snorri Örn
Snorrason,
sem leikur á
lútu og
teorbu
(bassalútu),
halda tón-
leika í Lista-
safni Einars
Jónssonar
kl. 15 á
morgun,
sunnudag. Á
efnisskránni er ensk, frönsk og
ítölsk endurreisnar- og
snemmbarokktónlist eftir van
Eyck, Dowland, Lanier,
Chancy, Megli o.fl., en einnig
verða flutt jólalög frá sama tíma.
Barokktón-
list í skamm-
deginu
Marta Guðrún
Halldórsdóttir