Morgunblaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 65
ÚR VESTURHEIMI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 65
KOSTAR MINNA
Nú gerum vi› enn betur og gefum 70% afslátt vi› kassann.
Lagersölunni l‡kur svo laugardaginn 21. desember.
SÍ‹USTU DAGAR!!!
A‹EINS A‹ KEILUGRANDA 1,
200 METRA FRÁ JL HÚSINU
í lagerhúsnæ›i Krónunnar
OPI‹ VIRKA DAGA 12-18
OG 11-16 UM HELGAR
70%afsláttur
LAGERSALA Á JÓLASKRAUTI, GJAFAVÖRU, VERKFÆRUM, BÚSÁHÖLDUM OG MÖRGU FLEIRA!
HJÁLMAR W. Hannesson, sendi-
herra Íslands í Ottawa í Kanada, af-
henti tveimur kjörræðismönnum Ís-
lands í Toronto skipunarskjöl sín í
vikunni.
Kjörræðismenn eru ólaunaðir og
skiptast í þrjá flokka, vararæð-
ismenn, ræðismenn og aðalræð-
ismenn. Jon Ragnar Johnson var
skipaður vararæðismaður í To-
ronto 1971, ræðismaður 1983 og nú
aðalræðismaður, en Gail Einarson-
McCleery var skipuð ræðismaður.
Við athöfnina gat Hjálmar þess
að Jón Ragnar Johnson hefði einna
lengsta starfsreynslu í hópi kjör-
ræðismanna Íslands, en Gail Ein-
arson-McCleery væri ný á þessum
vettvangi. Hins vegar hefði hún
starfað lengi innan Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga í Vesturheimi
og verið formaður verkefnisnefnd-
arinnar The International Visits
Program frá byrjun eða síðan 1997,
en vegna þeirra starfa hefði hún
fengið hina íslensku Fálkaorðu árið
2000.
Íbúar Kanada eru um 31 milljón.
Ontario-fylki er fjölmennasta fylkið
með um 11,9 milljónir íbúa og þar
af um 5,1 milljón á Toronto-
svæðinu, samkvæmt opinberum töl-
um í fyrra. Hjálmar sagði að þótt
Ontario væri fjölmennasta fylkið og
þótt þar væri mesta fólksfjölgunin
og mesti vöxturinn ættu Íslend-
ingar miklu meiri viðskipti við til
dæmis Nýfundnaland og Nova
Scotia. Með tveimur kjörræð-
ismönnum í Toronto væri stigið
skref í þá átt að reyna að stuðla að
auknum samskiptum milli Íslands
og Ontario.
Jon Ragnar Johnson kemur fyrst
og fremst til með að sinna sam-
skiptum á sviði stjórnmála og við-
skipta en menningarmálin og sam-
skipti við Kanadamenn af
íslenskum ættum falla meira undir
Gail Einarson-McCleery.
Jon Ragnar Johnson aðalræðismaður, Gail Einarson-McCleery ræð-
ismaður, og Hjálmar W. Hannesson sendiherra.
Tveir ræðismenn
í Toronto
alltaf á þriðjudögumÍÞRÓTTIR