Morgunblaðið - 14.12.2002, Síða 76
FRÉTTIR
76 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
lenzka safn Indriða Pálssonar. Þá
hefur Sigurður R. Pétursson komið
upp tveimur íslenzkum söfnum, sem
fengu nýlega mjög góð verðlaun á
alþjóðasýningu á eyjunni Kýpur í
Miðjarðarhafi. Annað er íslenzkt
spjaldbréfasafn, sem hlaut gullverð-
laun og hitt er safn Tveggja kónga
frímerkja, sem fékk gyllt silfur.
Hjalti Jóhannesson á svo áhugavert
safn íslenzkra póststimpla frá upp-
hafi þeirra 1873 og fram yfir alda-
mót, sem hlotið hefur ágæt verð-
laun. Þá á sá, sem þetta ritar, safn,
sem er í nokkrum öðrum dúr, því að
það er danskt með svonefndum tví-
litum frímerkjum frá 1870–1905.
Hefur það einnig hlotið mjög góð
verðlaun, bæði hér innanlands og
eins erlendis. Engu skal spáð um
það á þessari stundu, hvort þessi
söfn verða öll tiltæk á næsta ári, en
þau sýna þá grósku, sem hefur verið
í söfnun íslenzkra safnara á liðnum
árum. Þá hefur Rúnar Þór Stef-
ánsson, varaformaður L.Í.F., verið
að koma upp frambærilegum söfn-
um.
Sýndi hann á heimssýningunni á
Kýpur herpóst, tengdan Íslandi í
seinni heimsstyrjöldinni, og hlaut
fyrir gyllt silfur. Þá á hann annað
safn, sem er að mínum dómi öllu
nær Íslandi. Er það bréfa- eða um-
slagasafn frá 1944, þ.e. lýðveldis-
tíma okkar. Leggur hann þar
áherzlu á að ná saman frá þessum
tímum sem flestum frímerkjum á
FRÍMERKJSAFNARAR virðast
hafa tekið eftir því, að nokkuð er
um liðið, síðan frímerkjaþáttur hef-
ur birzt hér í Mbl. Ég hef a.m.k.
verið spurður um það á förnum
vegi, hvort ekki sé von í nýjum
þætti. Að sjálfsögðu neita ég því
ekki, að mér þykir vænt um það, að
einhverjir taki eftir fjarveru hans úr
blaðinu. Vel má vera, að skammdeg-
isdrungi og hækkandi aldur þess,
sem séð hefur um þessa þætti –
vissulega með nokkrum hléum – um
nær 30 ár eigi hér nokkra sök í.
Verð ég þess vegna að reka af mér
slyðruorðið og koma einum þætti á
framfæri fyrir jólin og í miðju því
auglýsinga- og bókaflóði, sem dynur
á okkur þessa daga.
Því verður ekki neitað, að í reynd
skortir ekki umræðuefni um frí-
merki og frímerkjasöfnun, hvort
sem er til lofs eða lasts. Ákveðinn
fróðleikur getur fólgizt í því, hvor
leiðin, sem er valin. Vel má vera, að
einhverjum finnist á stundum gæta
í þáttum mínum nokkurs nöldurs
gamals manns í garð Póstsins okkar
og þess, sem hann er að fram-
kvæma á annan veg en við höfum
vanizt á liðnum áratugum. Ekki
virðast forráðamenn Póstsins samt
hafa orðið uppnæmir fyrir þeim at-
hugasemdum og ábendingum, sem
hér hafa birzt. Þá ályktun dreg ég
m.a. af því, að þeir hafa ekki séð
ástæðu til að bregðast við þeim með
andsvörum eða skýringum eða sam-
tölum við mig. Ég vona samt, að
þeir lesi – eða hlaupi yfir þættina,
þegar þeir birtast hér í Mbl. Ým-
islegt í þeim ætti einmitt að geta
orðið íhugunarefni fyrir þá sem og
aðra lesendur.
Þá þætti mér vænt um ábend-
ingar frá þeim, sem álíta sig þurfa
að koma einhverju að, hvort sem
það er gagnvart póstmálum al-
mennt eða frímerkjasöfnun. Eins og
áður hefur verið nefnt, er þátturinn
ævinlega opinn öllum, sem vilja
koma einhverju á framfæri. Hið
eina, sem er krafizt, er það, að
menn gæti vandlega að orðavali
sínu og eins hófs í málflutningi.
NORDIA O3. Eins og íslenzkum
frímerkjasöfnurum er orðið vel
kunnugt, hleypur hin árlega sam-
norræna frímerkjasýning af stokk-
unum hér á landi í september 2003.
Verður hún hin fjórða hjá okkur frá
1984. Allar hafa þessar sýningar
farið vel og skipulega fram, og ekki
efa ég, að svo verði einnig um sýn-
inguna á haustdögum 2003.
NORDIU-sýningarnar hafa alls
staðar orðið mikil lyftistöng fyrir
frímerkjasöfnun á Norðurlöndum
og um leið góð kynning fyrir nor-
ræna frímerkjasafnara um víða ver-
öld. Því verður hins vegar ekki neit-
að, að stundum hefur tekizt
misjafnlega vel til með sýningar-
haldið og kostnaður á stundum farið
verulega úr böndunum. Hér vil ég
aftur á móti koma því á framfæri, að
íslenzkir safnarar hafa staðið sig
frábærlega í þessum efnum, enda
átt mörgum góðum mönnum á að
skipa við allan undirbúning og fram-
kvæmd þeirra NORDIU-sýninga,
sem hér hafa verið haldnar. Frænd-
ur okkar á öðrum Norðurlöndum
hafa líka tekið eftir þessu og ekki
getað orða bundizt, hvort sem er í
ræðu eða riti.
Þá eru íslenzkir safnarar svo
heppnir að eiga innan sinna vé-
banda nokkur mjög álitleg frí-
merkjasöfn, sem eru gjaldgeng á
hvaða frímerkjasýningu, sem er. Er
vonandi, að þau verði tiltæk á næsta
ári. Hér á ég auðvitað fyrst við hið
glæsilega og margverðlaunaða ís-
almennum póstsendingum. Slíkt er
vissulega ekki heiglum hent, ekki
sízt hvað snertir háu verðgildin.
Vonandi heldur hann áfram að
byggja þetta safn upp til sýningar.
Þá vil ég ekki heldur gleyma að
minnast á Zeppelinsafn, sem Árni
Gústafsson hefur verið að koma sér
upp og við sáum á Degi frímerkisins
í haust á FRÍMSÝN 2002. Eins
held ég verði ekki mjög langt í það,
að Þórhallur Ottesen geti farið á
flot með safn sitt erlendis af íslenzk-
um sérstimplum á, a.m.k. á öðrum
Norðurlöndum.
Framantalin upptalning sýnir
glögglega þá þróun, sem hefur orðið
á síðustu árum og ártugum. Er það
vel, því að nokkur söfn hafa horfið
úr frímerkjaheimi okkar við fráfall
eigenda sinna. Framangreind söfn
ættu að geta ýtt við ungum íslenzk-
um söfnurum að halda í sömu átt og
hlaupa í skörðin, þegar önnur söfn
hverfa. Ég hef trú á því, að svo
verði fljótlega á þessari öld. Dreg
þá ályktun m.a. af því, hversu marg-
ir nýir safnarar hafa gengið í F.F.
og komið bæði á skiptifundi hjá fé-
laginu. á laugardögum og eins á
mánaðarlega fundi þess. Er það
vissulega merki um vaxandi grósku
á sama tíma og félagar okkar á öðr-
um Norðurlöndum kvarta undan
minnkandi áhuga á frímerkjasöfnun
hjá sér og dræmri sókn á sýningar.
Í fyrirsögn þessa þáttar er talað
um frímerkjaveizlu Póstsins á þessu
ári. Því miður hefur of lítið verið
rætt í þáttum mínum um frímerkja-
útgáfu Íslandspósts hf. Ekki er það
af því, að hún eigi ekki skilið at-
hygli, þótt mér hafi fundizt fyrir-
svarsmenn Póstsins ærið tómlátir,
þegar frímerki eiga í hlut, og vilji
fremur nota alls kyns stimplaaðferð
í stað frímerkja. En sú stefna fer
einmitt í bága við allt tal póstmanna
um að örva frímerkjasöfnun meðal
unglinga. Hvort tveggja getur ekki
farið saman.
Hvað sem því líður, verður ekki
annað sagt en yfirleitt hafi vel til
tekizt með útgáfu Póstsins og mörg
frímerkjanna vekja verðskuldaða
athygli. Á þessu ári hafa komið út
rúmlega 20 frímerki, bæði stök og í
smáörkum og heftum. Þar mun
mörgum hafa þótt frímerkjaútgáfan
í kringum hundrað ára afmæli Lax-
ness bera af, jafnvel þótt heldur
slysalega tækist til.
Að þessu sinni fer vel á því að
birta með þættinum mynd af þeim
jólafrímerkjum, sem nota á á jóla-
póstinn í þessum mánuði. Stundum
hafa þessi frímerki ekki þótt minna
nægilega á jólin og þá jólastemmn-
ingu, sem þau eiga að vekja. Ég
held menn geti nú verið vel sáttir
við jólafrímerkin 2002. Eiga þau að
minna á þá venju landsmanna að
skreyta bæði jólatrén og eins greni-
tré í görðum sínum og eins á svölum
húsa sinna með alls kyns ljósalengj-
um. Allt er þetta gert til þess að
lýsa upp í svartasta skammdegi
vetrarins, og fer vel á því. Merki
þessi hefur Hlynur Ólafsson hann-
að, en þau vorur prentuð hjá Prent-
smiðu Cartor S/A í Frakklandi
Verðgildi merkjanna er 45 og 60 kr.
Þá er það mjög heppilegt að gefa
þau út í tíu merkja smáörk og að
auki þau frímerki, sem nota á innan-
lands í snotru hefti. Þetta kunna
viðskiptavinir Póstsins áreiðanlega
vel að meta.
Ég óska svo lesendum þessa þátt-
ar sem og öðrum landsmönnum
gleðilegra jóla og góðs nýs árs.
Frímerkjaveizla Íslandspósts hf.
Jólafrímerki 2002.
FRÍMERKI
Umsjón Jón Aðalsteinn
Jónsson
Árið 2002 endaði með nýjum jólafrímerkjum 7. nóv. sl.
www.starri.is
Sérhæfing í
Intel-vörum
Móðurborð - Örgjörvar
- Flatir skjáir
3ja ára ábyrgð
Stuðnings leit-
að í Kópavogi
MÆÐRASTYRKSNEFND Kópa-
vogs leitar nú eftir auknum stuðn-
ingi fyrirtækja, starfsmannafélaga
og einstaklinga þar sem óvenju-
margar styrkbeiðnir liggja fyrir, að
því er fram kemur í frétt frá nefnd-
inni.
Fjárframlög til nefndarinnar má
leggja á reikning í Sparisjóði Kópa-
vogs, nr. 403774, og móttaka á fatn-
aði fer fram í afgreiðslu Mæðra-
styrksnefndar í Hamraborg 20a á
þriðjudögum milli kl. 16 og 18. Óskir
um styrk þarf að leggja inn á sama
stað og tíma.
Í Mæðrastyrksnefnd Kópavogs
eru fulltrúar kvenfélaga í bænum.
JÓLAKORT ABC-hjálparstarfs
eru komin í allar helstu bóka- og
blómaverslanir á höfuðborg-
arsvæðinu og
víðar. Kortin
eru teiknuð af
Jenný Guð-
mundsdóttur
myndlist-
arkonu og
heita mynd-
irnar Frið-
arljós, Hátíð-
arljós og
Kærleiksljós. Vers inni í kort-
unum, sem tengjast myndefninu
og nöfnum kortanna, eru eftir
Rúnar Kristjánsson.
Kortin kosta 83 kr. stykkið og
eru seld sex saman í pakka. Kort-
in fást einnig án innáprentunar í
stykkjatali á skrifstofu ABC-
hjálparstarfs. Alls fást 27 gerðir
af jólakortum á skrifstofu starfs-
ins í Sóltúni 3. Hægt er að skoða
þau á heimasíðu ABC á
www.abc.is eða fá sendan jóla-
kortabækling starfsins. Tekið er á
móti jólakortapöntunum í síma og
á netfangi abc@abc.is. Hægt er
að fá jólakortin send heim endur-
gjaldslaust.
Ágóði af kortasölunni rennur
óskiptur til ABC-hjálparstarfs
sem í dag sér fyrir menntun og
framfærslu rúmlega 3.700 barna á
Indlandi, Úganda, Filippseyjum
og víðar, segir í fréttatilkynningu.
Jólakort ABC-
hjálparstarfs