Morgunblaðið - 14.12.2002, Qupperneq 80
80 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
! "# "
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
KÝST þú samfélag þar sem svart-
hvítar skoðanir ákvarða hvernig við
búum saman?
Af hverju ætli það sé til eitthvað
sem heitir „rasismi“? Við erum öll
fædd eins í þennan heim, hvort sem
við erum svört,
gul, hvít eða rauð.
99,8 prósent gena
okkar eru eins og
af þessum 0,2%
sem eru mismunandi finnast 85%
þeirra gena í öllu fólki.
Við erum flest með tvö augu, eitt
nef, tvo fótleggi, tvær hendur og einn
rass. Við erum eins. Ekkert okkar
fæðist með fordóma, hvað breytist
þegar við verðum eldri?
Við hjá Ungmennahreyfingu
Rauða kross Íslands erum að fara af
stað með verkefnið „Geimverur gegn
rasisma“. Við notum geimverur
vegna þess að þær eru hugsanlega
öðruvísi, þær eru framandi. Þær tjá
sig líklega á annan hátt en við, og þær
eru ef til vill mismunandi á litinn.
Hugmyndafræðin á bak við verk-
efnið er sú að við viljum vekja athygli
fólks á því að það eru fordómar í sam-
félagi okkar. Er það eitthvað sem við
viljum búa við eða er það eitthvað sem
við viljum sporna gegn með því að
taka virka afstöðu gegn „rasisma“?
Hvernig gerum við það? Við getum til
dæmis gert það með því að andmæla
þeim sem segja eitthvað á fordóma-
fullan hátt. Dæmum ekki aðra fyrir-
fram.
Sjálfboðaliðar
Ungmennahreyf-
ingar Rauða
krossins verða
sýnilegir í miðbæ Reykjavíkur, Hafn-
arfjarðar, Ísafjarðar, Sauðárkróks og
Akraness núna fyrir jólin. Við hvetj-
um þig lesandi góður til að koma, fá
bæklinginn okkar og taka virka af-
stöðu gegn fordómum. Þú munt
þekkja okkur á geimverunum sem við
munum hafa meðferðis.
Hlökkum til að sjá þig!
ÞÓRA KRISTÍN
ÁSGEIRSDÓTTIR,
sjálfboðaliði í Ungmennahreyfingu
Rauða kross Íslands og
JENS TODOROVIC,
sjálfboðaliði í Ungmennahreyfingu
marsneska Rauða krossins.
Geimverur
gegn rasisma
Frá Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur
og Jens Todorovic.:
HINN 19. nóvember 2002 var und-
irritaður samningur eða samkomu-
lag milli Landssambands eldri borg-
ara og ríkisins og voru þarna mörkuð
tímamót í samskiptum ríkis og sam-
taka eldri borgara þar sem þetta var
í fyrsta skipti, sem ríkisvaldið sam-
þykkir eða viðurkennir okkar sam-
tök, sem samningsaðila um málefni
aldraðra.
Samtök eldri borgara höfðu lengi
óskað eftir því að samráðsnefnd
þeirra með ráðherrum kæmi saman
og eldri borgarar fengju að vera með
í ráðum um málefni aldraðra og síð-
an var það að samráðsnefndin kom
saman 25. september og skipaði
starfshóp til að vinna að tillögugerð
um leiðir til úrbóta fyrir aldraða, en
ráherrar höfðu viðurkennt að þörf
væri á úrbótum.
Starfshópurinn hóf störf í byrjun
október og skilaði af sér samningi
þeim sem undirritaður var 19. nóv-
ember.
Starfshópurinn, sem ekki mátti
eða hafði leyfi til að gera tillögur í
skattamálum náði samkomulagi um
tillögur um aukin hjúkrunarrými,
dagvistunarrými, bætta heimaþjón-
ustu o.fl. og samþykkti ríkisstjórnin
aukið fé til þessara málaflokka.
Í samningi þessum var ekki samið
um miklar hækkanir á greiðslum frá
almannatryggingum og er langt í
land að ellilífeyrir og tekjutrygging
nái því hlutfalli af verkamannalaun-
um sem það var fyrir sex til sjö árum
og vert er að hafa það í huga að þess-
ar hækkanir sem samið var um koma
ekki óskertar til okkar og þessi mikli
kostnaður sem ráðherrar tala um, er
ekki eins mikill og þeir vilja vera láta
því á allar þessar greiðslur kemur
tekjuskattur, tæp 39%, svo er lágum
skattleysismörkum fyrir að þakka.
En Adam var ekki lengi í Paradís.
Aðeins tíu dögum eftir að samkomu-
lagið var undiritað og mánuði áður
en greiðslur áttu að hækka, setur
ríkistjórnin á lög, sem koma til fram-
kvæmda strax, um að ná til baka
þessum hækkunum í formi hækkun-
ar á víni og tóbaki, en þær hækkanir
hafa áhrif í lánskjaravísitölu, sem
þýðir að skuldabyrði heimilanna
hækkar um milljarða króna, sem aft-
ur þýðir hækkun verðbólgu.
Þarna bætti ríkistjórnin sitt fyrra
met, frá 1. júlí á síðasta ári, er hún
hækkaði greiðslur til aldraðra, en þá
tók hún það til baka sama dag með
hækkun á lækna- og lyfjakostnaði,
en núna byrjar hún að taka vænt-
anlegar hækkanir til baka mánuði
áður en þær koma til framkvæmda.
Þessi nýi skattur kemur ekki við
fyrirtæki og stofnanir, sem voru bú-
in að fá stórfelldar skattalækkanir
að undanförnu.
Það virðast vera álög á blessaðri
ríkistjórninni að snúast gegn öllum
leiðréttingum til aldraðra og ör-
yrkja, með nýjum sköttum eða laga-
breytingum og er það von mín að
þessum álögum verði aflétt sem
fyrst.
Síðan kom rúsínan í pylsuendan-
um, Tryggingastofnun skrifar okkur
bréf þar sem við og makar okkar eig-
um að veita þeim fullt umboð til að
gramsa í öllum fjármálum okkar að
vild og hótað að fella niður greiðslur
til okkar ef ekki verði orðið við þess-
um kröfum og vitnað í 47. gr. laga nr.
117 frá 1993, með síðari breytingum.
Lesið betur þessa grein nr. 47 í þess-
um lögum.
Þetta er ekki jólaglaðningur sem
ég get þakkað fyrir.
KARL GÚSTAF ÁSGRÍMSSON,
form. félags eldri borgara
í Kópavogi.
Samningar aldraðra
og ríkisvalds
Frá Karli Gústafi Ásgrímssyni: