Morgunblaðið - 14.12.2002, Síða 83
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 83
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er gef-
ið fyrir frumlegheit sem aðr-
ir dást að og hafa um leið
lúmskt gaman af.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Taktu það ekki óstinnt upp
þótt aðrir séu með spurning-
ar um tilgang þinn og starfs-
aðferðir. Kynntu þér því all-
ar aðstæður og vertu við öllu
búinn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt mann langi mikið í ein-
hvern hlut er ekki ástæða til
þess að setja allt úr skorðum
hans vegna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samræður um daginn og
veginn geta gengið úr hófi.
Það þarf ekki annað en
stutta gönguferð til þess að
fegurðin smjúgi inn í sálina.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er engu líkara en sam-
starfsmenn þínir vilji halda
þér utan við ákveðin verk-
efni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt það sé í góðu lagi að
hafa mikið að gera, þarftu að
gæta þess að fá tíma fyrir
þig. Farðu ekki of geyst og
leyfðu öðrum að njóta sín
líka.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu ekki aðra hrifsa til sín
það sem í raun er þitt. Gættu
þess þó að gera ekki úlfalda
úr mýflugu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þótt það sé freistandi til að
halda friðinn að verða við
kröfum annarra er það ekki
rétta lausnin til frambúðar.
Og ekki er allt sem sýnist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú stendur á tímamótum og
ættir ekki að líta um öxl. Þú
færð óvænt tilboð og munt
sjá að þú átt þér leynda
aðdáendur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er góð regla að teygja
sig helst til lengra en maður
getur. Þótt aðrir séu ágætir,
ert þú eigin gæfu smiður og
það krefst umhugsunar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Allt er undir því komið hvaða
viðhorf þið hafið til hlutanna.
Þú þarft að huga að þessum
málum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur yndi af skáldsögum
og lætur þig dreyma um að
skrifa eina sjálfur. Leggðu
drög að því að komast í gott
ferðalag.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft að hafa frumkvæði
að því að finna orsakir af-
skiptasemi vinnufélaga þíns.
Þú þarft á fjölskyldu þinni
og vinum að halda.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SVEIT Íslenskra aðal-
verktaka vann hraðsveita-
keppni Bridsfélags
Reykjavíkur, en fjórða og
síðasta spilakvöldið var á
þriðjudaginn. Í öðru sæti
varð sveit Ljósbrár Bald-
ursdóttur og sveitir Guð-
mundur Hermannssonar
og Birkis Jónssonar urðu
jafnar í næstu sætum.
Mikið var um hættuleg
skiptingarspil á þriðjudag-
inn þar sem vel reyndist
að fara að öllu með gát.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ KD532
♥ --
♦ 4
♣KD107632
Vestur Austur
♠ ÁG10876 ♠ --
♥ G854 ♥ 63
♦ 982 ♦ ÁKDG763
♣ -- ♣G854
Suður
♠ 94
♥ ÁKD10972
♦ 105
♣Á9
Í upphafi eru allir við
borðið með góð og mikil
sóknarspil, en það borgar
sig þó í þetta sinn að fara
ekki of geyst í baráttunni.
Hvernig sem allt veltist
fara AV a.m.k. í fimm tígla
yfir fjórum hjörtum eða
fimm laufum NS. Sá samn-
ingur lekur einn niður og
það er besta mögulega nið-
urstaða NS. En það er
skiljanlegt að suður reyni
fimm hjörtu. Með bestu
vörn má halda sagnhafa í
hjartasamningi í sjö slög-
um! Vestur spilar út
spaðaás og lægsta spaða,
sem austur trompar. Aust-
ur tekur kannski einn slag
á tígul, spilar svo laufi og
vestur trompar. Tígull yfir
og önnur laufstunga. Suð-
ur fær aðeins sjö slagi á
tromp.
Á einu borði ákvað norð-
ur að passa í upphafi og
„taka púlsinn á spilinu“.
Það gafst ekki vel. Austur
vakti á þremur gröndum
og suður kom inn á fjórum
hjörtum. Ekki beint sú
þróun mála sem norður
dreymdi um. Hann reyndi
fjóra spaða, en makker
breytti í fimm hjörtu. Þá
prófaði norður sex lauf, en
aftur breytti suður í
hjarta. AV leituðu nú uppi
doblmiðann rauða og nið-
urstaðan varð sjö lauf
dobluð, þrjá niður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
Á JÓLASPJALDI 1907
Á þig skíni endalaust
unaðssólin bjarta:
vonargeislar vor og haust
vermi þig inn að hjarta.
Og við vetrar þögn og þrár,
þegar vantar blómin,
sendi þjer hýrust bros á brár
bjarti jólaljóminn.
Þorsteinn Erlingsson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6.
He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O
9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4
Dc7 12. Rbd2 Hd8 13. b3
Bd7 14. d5 c4 15. b4 Rb7
16. a4 a5 17. Ba3 axb4 18.
Bxb4 Rc5 19. axb5 Bxb5 20.
Bxc5 Dxc5 21. Ba4 Rd7 22.
Bxb5 Dxb5 23. Hb1 Dc5 24.
Hb4 Rb6 25. Dc2
Ha6 26. Heb1 Hda8
27. g3 Bd8 28. Kg2
g6 29. H1b2 Kg7 30.
h4 h5 31. Rh2 Ra4
32. Ha2 Rb6 33.
Hxa6 Hxa6 34. Rhf1
Ha1 35. Re3 He1 36.
Rdxc4 Rxc4 37.
Hxc4 Db5 38. Hb4
Da6 39. Ha4 Db5
40. Hb4 Da6 41.
Ha4 Db5 42. c4 Dc5
43. Ha6 Bb6 44.
Db2 Ba7 45. Dd2
Hb1 46. Hc6 Dd4
Staðan kom upp á
Ólympíuskákmótinu í Bled
sem lauk fyrir nokkru.
Michael Adams (2.745)
hafði hvítt gegn Eugenio
Torre (2.523). 47. Rf5+!
gxf5 48. Dg5+ Kh7 49.
Dxh5+ Kg7 50. Dg5+ Kh7
51. Dxf5+ Kg7 52. Hxd6
Hb8 53. h5 og svartur gafst
upp. Jólaæfing Taflfélags
Reykjavíkur hefst í dag, 14.
desember, kl. 14.00 í félags-
heimili þess, Faxafeni 8.
Góðar og skemmtilegar
jólagjafir eru í verðlaun.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 15. desember, er áttræð
frú Erna Árnadóttir, Dals-
hrauni 5, Hafnarfirði. Hún
tekur á móti gestum í
Stjörnuheimilinu í Garðabæ
á afmælisdaginn milli kl. 15-
17. Blóm og gjafir eru af-
þökkuð en þeir sem vilja
heiðra hana er bent á
Krabbameinsfélagið. Einnig
verður tekið á móti framlög-
um til félagsins í afmælis-
hófinu.
70ÁRA afmæli.Fimmtudaginn 19.
desember verður sjötug
Gyða Guðmundsdóttir til
heimilis að Holti II, Stokks-
eyrarhreppi. Í tilefni af-
mælisins tekur Gyða á móti
ættingjum og vinum í
Íþróttahúsinu á Stokkseyri
sunnudaginn 15. desember
milli kl. 14 og 17.
50 ÁRA afmæli. Hrafn-hildur Þorgeirsdótt-
ir, bókasafns- og upplýs-
ingafræðingur m.m., verður
50 ára þ. 18. desember n.k.
Að því tilefni lofar hún að
vera heima hjá sér í Kögur-
seli 22, ásamt fjölskyldu
sinni, laugardagskvöldið 14.
desember kl. 20 og taka þar
fagnandi á móti vinum sín-
um, vandamönnum og vel-
unnurum vænum.
60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 14.
desember, verður sextugur
Þorgils Axelsson, Álfheim-
um 31, Reykjavík. Þorgils
og sambýliskona hans, Guð-
laug Magnúsdóttir, taka á
móti fjölskyldu, vinum,
vinnufélögum og St. Sand-
víkur „kósökkum“ í þingsal
4, Hótel Loftleiðum á af-
mælisdaginn milli kl. 17 og
19.
50 ÁRA afmæli. Næst-komandi mánudag,
16. desember, verður fimm-
tug Rannveig Stefánsdóttir,
Skipholti 10, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum á
morgun, sunnudag, í Hreyf-
ilssalnum, Fellsmúla 26,
milli kl. 18 og 21.
Vel heppnað opið hús
Það var ágætis þátttaka í opnu
húsi hjá bridssambandinu fyrir
nokkru en spilað var á átta
borðum. Byrjendur og vanir
keppnisspilarar mynduðu pör og
skemmtu sér hið besta.
Spilaður var Mitchell, 18 spil, og
efstu nýliðar verðlaunaðir í lokin.
Lokastaðan:
N-S-riðill
Nanna Mjöll Atlad. – Eyþór Hauksson 12
Þorsteinn Ásgeirsson – Hrólfur Hjaltason 7
María Rúnarsdóttir – Guðrún Jóhannesd. 5
A-V-riðill
Jónas Ágústsson – Bjarni Einarsson 15
Gunnlaugur Jóhannsson – Stefán Jónsson 5
Björg Þórarinsdóttir – Guðný Guðjónsd. 1
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Síðasta spilakvöld fyrir jól verður
mánudaginn 16. des. Þá verður spil-
aður jólagleðisveina-tvímenningur
kenndur við Mikjál erkiengil í tilefni
af komandi hátíð. Þetta kvöld er
jafnan með léttum blæ og fisléttum
veitingum, ekkert þátttökugjald.
Föstudaginn 27. des. verður svo
Jólamót Bridsfélagsins og Spari-
sjóðsins. Mótið er að venju silfur-
stigamót, 2 spil á milli para, 21 um-
ferð. Spilamennska hefst kl. 17.00 í
Flatahrauni 3, spiluð verða forgefin
spil, Mitchell-tvímenningur. Gott er
að væntanlegir spilarar skrái sig
hjá: Erlu í síma 565.3050 / 696.1794,
Guðna í síma 555.3580 / 893.4997,
Atla í síma 555.1921 / 570.7326
netf. atli.h@rabygg.is.
Jólabrids í Gullsmára
Bridsdeild FEBK Gullsmára spil-
aði tvímenning á tólf borðum
fimmtudaginn 12. desember. Miðl-
ungur 220. Beztum árangri náðu:
NS
Haukur Ísaksson – Hannes Alfonsson 267
Guðm. Helgason – Þórhallur Árnas. 252
Sig. Gunnlaugss. – Sigurpáll Árnas. 238
AV
Bragi Björnsson – Haukur Guðm. 248
Kristinn Guðm. – Kristján Guðm. 242
Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbj.s
231
Síðasti spiladagur fyrir áramót
verður mánudaginn 16. desember:
Jólabrids, stuttur tvímenningur,
sigurvegarar í sveitakeppni heiðr-
aðir og skálað í súkkulaði fyrir kom-
andi jólum og nýju bridsári!
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Hverfisgötu 6, Reykjavík, sími 562 2862
Stærðir 40-52
Toppar og skart
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Glæsilegt úrval
af dömu- og herrasloppum
Nóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, Sendum í póstkröfu
Allar stærðir