Morgunblaðið - 14.12.2002, Qupperneq 88

Morgunblaðið - 14.12.2002, Qupperneq 88
88 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ POSSESSION GWYNETH PALTROW AARON ECHART JENNIFER EHLE JEREMY NORTHAM Sýnd kl. 8 og 10.05 Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 2 ísl tal. 1/2MBL 1/2Roger Ebert  Roger Ebert 1/2 Kvikmyndir.is  DV 4 9 . 0 0 0 G E S T I R Á 2 1 D Ö G U M 1/2HL MBL  RadíóX Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem kemur öllum í jólaskap Jólamyndin 2002 Sýnd kl. 1.45, 3.50, 5.55, 8 og 10.10. Sýnd í stóra sal kl. 2, 5 og 8. Kvimyndir.is  HL. MBL  SK RadíóX  ÓHT Rás2  HK DV 1/2 Kvikmyndir.com TILRAUNIN Sýnd kl. 10.05. Ísl. texti. B.i. 16. Jólamynd film-undar FRUMSÝNING Sýnd kl. 3.45, 5.50 með enskum texta og 8. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 6, 8 og 10. H.K. DVGH. Vikan SV. MBL GH. Kvimyndir.com B.Ö.S. Fréttablaðið Tónlist eftir Sigur Rós. 8 Eddu verðlaun Yfir 54.000 áhorfendur WITH ENGLIS H SUB - TITLES AT 5.5 0 SÝND Í STÓ RA SALN UM Sýnd kl. 2, 4 og 6. Vit 461 Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal Vit 448 KRINGLA Sýnd kl. 12.40, 2.40, 4.45, 6.50, 9 og 11.10. Vit 485 Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára. Vit 487 ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI Kvikmyndir.is Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna sem Jólamyndin 2002 Kvimyndir.is 4 9 . 0 0 0 G E S T I R Á 2 1 D Ö G U M E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Í ÁLFABAKKA KL. 2, 6 og 9.15. B. I. 16. VIT 469. Það voru 1200 manns um borð þegar það týndist fyrir 40 árum.. nú er það komið aftur til að hrella þig! KRINGLA RAPPFLOKKURINN Bæj-arins bestu, sem kynnirsig gjarnan sem betri enflestir, á óvænta innkomu á plötumarkaðinn fyrir þessi jól. Svo er mál með vexti að hljómsveitin brá sér í hljóðver að taka upp eitt lag en endaði með heila breiðskífu, Tónlist til að slást við, sem tekin var upp og unnin að öllu leyti á tíu dögum, en skífan er væntanleg hingað til lands um eða eftir helgi. Í kvöld kemur rappflokkurinn síðan fram á tón- leikum á Vídalín til styrktar fátækum á Íslandi ásamt XXX Rottweiler- hundum, Afkvæmum guðanna, Bent&7berg, TZMP Dj Paranoya og Hr. kaldhæðni. Bæjarins bestu eru ekki bara betri en flestir heldur allir íslenskir rapp- arar að því er Danni segir, en hann sér um takta og tónlist í sveitinni. Við þessa yfirlýsingu grípur Kjarri inn í og segist ekki vilja taka svo sterkt til orða, þeir séu vissulega betri en flest- ir, en ekki allir íslenskir rapparar. Ekki vill hann þó segja hverjir eru betri þegar á reynir, menn verði að meta það sjálfir. Þeir Halldór, sem kallaður er Dóri DNA, og Danni byrjuðu að semja saman í jólafríinu fyrir ári og þannig voru Bæjarins bestu dúett fram til þess að þeir kynntust Kjarra á Galta- læk í sumar. Þar voru Bæjarins bestu að troða upp og Kjarri kom sér upp á svið með þeim með þeim árangri að þeir buðu honum að vera með í sveit- inni. Kemur upp úr kafinu að Kjarri er búinn að vera að spá í rappið í sjö ár, „en ég bara tvö“, gellur í Dóra. Þeir hafa allir starfað með öðrum sveitum þótt ekki hafi það starf alltaf verið formlegt. Þannig var Kjarri í Conspiracy Crew og er enn í Hug- hvarfahrifum og Dóri var í Lyrical Science Crew, en Danni vill ekki ganga lengra en svo að hann hafi ver- ið að „þvælast með“ S.O.S., sem síðar urðu Afkvæmi guðanna. Danni segir að þeir Dóri hafi byrj- að sitt samstarf á að semja lagið „Betri en flestir“, sem margir þekkja, en þá með öðrum takti en síðan varð. Það lag hefur breyst mikið í tímans rás og þeir segja að saga þess sé nokkuð dæmigerð fyrir það hvernig sveitin hefur þróast, þeir hafi breyst allmikið á þessum tíma og þótt þeir hafi verið búnir að troða talsvert upp hafi sveitin ekki mótast að marki fyrr en Kjarri gekk til liðs við hana. „Lag- ið Rappari, sem er á Rímnamínsplöt- unni, var helsta lagið okkar lengi, en á plötunni nýju er ekki nema eitt af gömlu lögunum okkar þannig að það hefur mikið breyst frá því Kjarri gekk í sveitina,“ segir Dóri. „Við ræddum það við hann að gera saman eitt lag,“ segir Dóri „en svo vatt þetta upp á sig.“ „Þeir stungu upp á að við myndum gera eitt lag saman og við gerðum það,“ segir Kjarri, „og svo var Danni með geð- veikt rólegan takt sem Dóri stakk upp á að ég reyndi að rappa yfir, þá datt okkur í hug að gera einlægt lag og allt í einu var ég bara kominn í sveitina.“ Lifandi spilamennska Fyrir tveimur mánuðum eða svo stóð til að Bæjarins bestu yrðu á safndiskinum Bumsquad sem er að koma út um þessar mundir. Þeir segjast hafa verið með margar hug- myndir í farteskinu, en ekki svo mikið af kláruðum lögum þegar hér var komið sögu. Þegar stungið var upp á því að þeir gerðu plötu áttu að vera á henni sjö lög „og þegar ég horfi á þann lista og lögin sem áttu að vera á henni sé ég að það hefði orðið öm- urleg plata“, segir Dóri með áherslu en Kjarri heldur áfram: „Svo bara duttum við inn í þetta hjá Gísla [út- gefandanum], sögðum honum að við værum með átta lög, sem var ekki al- veg rétt, og sömdum svo eins og brjálaðir menn,“ segir hann en platan var tekin upp á tíu dögum. „Þetta var erfitt en mjög gaman,“ segir Danni og „við unnum bara skipulega“ bætir Dóri við. „Vinnan hvíldi ekki bara á okkur, Arnar sem mixaði plötuna gerði líka mjög mikið,“ segir Kjarri. „Hann var á fótum til fjögur og fimm á nóttunni og var svo mættur klukk- an níu næsta morgun.“ Mikið er af lifandi spilamennsku á diskinum, sérstaklega bassalínur, en þótt það hafi verið mjög gaman að vinna með tónlistarmönnum af holdi og blóði segja þeir ekki víst að þeir eigi eftir að halda tónleika með þann- ig mannskap á næstunni. „Það er meira en að segja það,“ segir Danni og Kjarri heldur áfram: „Það er ekki bara að finna einhverja gæja sem geta spilað þessar línur heldur verða þeir að vita eitthvað um hiphop, og það er mjög sjaldgæft, eða vera opnir fyrir allri tónlist eins og Arnar og fé- lagar.“ Þeir félagar verða á ferð og flugi næstu dagana, spila út um borg og bý, eru til að mynda að fara að spila fimm til sex sinnum um helgina, en segjast ekki ætla að halda útgáfu- tónleika fyrr en eftir jól, það sé bara of mikið að gera. Morgunblaðið/Jim Smart Rappflokkurinn Bæjarins bestu gefur út sína fyrstu breiðskífu Tónlist til að slást við Tónlist til að slást við er komin í verslanir. Styrktartónleikar ís- lenskra rappflokka fyrir fátæka á Ís- landi eru á Vídalín í kvöld. Þeir hefj- ast kl. 22, miðaverð er 1.000 kr. og aldurstakmark 20 ár.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.