Morgunblaðið - 14.12.2002, Page 89
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 89
ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16 ára. Vit 487
Sýnd kl. 8. Vit 474 Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 10.
1/2HK DV ÓHT Rás2
SV Mbl RadíóX
Sýnd kl. 10.10.
ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI
RadíóX
DV
kemur öllum í jólaskap
4 9 . 0 0 0 G E S T I R Á 2 1 D Ö G U M
Roger Ebert
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Í ÁLFABAKKA KL. 2, 6 og 9.15. B. I. 16. VIT 469.
HL MBLKvikmyndir.is
KEFLAVÍKKEFLAVÍK
ÁLFABAKKI AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. Vit 487
Kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8 og 10.10 Kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Kl. 2, 4, 6, 8 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 9.15. Sýnd kl. 1, 2, 4, 7 og 10. Sýnd kl. 2 og 5. Sýnd kl. 2 og 5. Vit
ÁLFABAKKI KRINGLA AKUREYRI KEFLAVÍK
í kvöld, laugardaginn 14. des.
með hljómsveitinni Þúsöld,
Kiddi K., Pétur og Simmi.
Vestfirðingadansleikur
í Ásgarði Glæsibæ
Húsið opnað kl. 23 • Miðaverð kr. 1.000.
LANDSMENN ættu að kannast við
glaðlegt andlit Vilhelms Antons
Jónssonar af skjánum en hann er
annar umsjónarmaður sjónvarps-
þáttanna At. Tónlistaráhugafólk veit
ennfremur að hann er söngvari og
gítarleikari rokksveitarinnar
200.000 naglbíta en sveitin heldur
tónleika á Grand Rokk í kvöld.
„Við ætlum að spila gömul lög af
síðustu tveimur plötum en líka ný
lög. Við stefnum á að taka upp í
janúar og gefa út breiðskífu í vor,“
segir Villi, eins og hann er oftast
kallaður. Verður þetta þriðja breið-
skífa hljómsveitarinnar.
Búast má við því að Naglbítarnir
stígi á svið laust eftir miðnættið auk
þess sem óvænt upphitunarhljóm-
sveit stígur á svið.
At er á dagskrá Sjónvarpsins á mið-
vikudagskvöldum klukkan 21.
Næsti þáttur verður sérstakur jóla-
þáttur og upplýsir Villi að þá verði
sýnd einkaviðtöl við hljómsveitirnar
Coldplay og Ash.
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það bara skítsæmilegt takk.
Mikið að gera en þannig er það best,
kyrrstaða er dauði.
Hvað ertu með í vösunum?
Peninga, lykla, vasahníf og gítar-
neglur. Og fullt af einhverjum miðum
sem ég veit ekki alveg hvað eru.
Ef þú værir ekki sjónvarps-
maður og rokkari hvað
vildirðu þá helst vera?
Listmálari eða skáld. Ég hef mjög
gaman af því að mála. Geimfari væri
ekki ónýtt en ég er litblindur og þar-
með er NASA ekki til viðræðna.
Maður þarf nefnilega að vera flug-
maður til að verða geimfari og lit-
blindir geta ekki verið flugmenn en
eiga gott með að vera málarar.
Hver var síðasta bók
sem þú last tvisvar?
Atómstöðin eftir Halldór Laxness er
örugglega eina bókin sem ég hef
lesið tvisvar. Ég á erfitt með að lesa,
sofna alltaf eftir nokkrar
blaðsíður. Ég sofnaði einu
sinni á hraðlestrarnám-
skeiði en eftir það
ákvað ég bara að lesa
hægt og smjatta á
textanum. Ég stefni að
því að lesa LoveStar yfir
jólin. Ég gæti ef til vill
gefið þér dóm um hana ár-
ið 2006.
Hvaða lag kveikir
blossann?
Eitthvað
með Barry
White eða gott kántrý.
Hvaða plötu
keyptirðu síðast?
Eftir að ég fór að vinna hjá Sjónvarp-
inu fæ ég haug af plötum frítt. Það er
mjög gott en ég er alltaf að kaupa
mér einhverjar plötur. Man ekkert
hverja ég keypti síðast.
Hver er furðulegasti matur
sem þú hefur bragðað?
Djúpsteiktar pizzur í Skotlandi. Mað-
ur hefur líka borðað kolkrabba og
svoleiðis rusl en ég held að pizzan
slái öll met.
Trúir þú á líf
eftir dauðann?
Já, verður maður ekki að gera það.
Annars er ég ekki alveg búinn að
gera það upp við mig. Ég trúi mjög á
minninguna og það að skilja meira
eftir en maður tekur. Líf eftir dauð-
ann er mjög erfið og þung pæling. Ég
læt mér nægja í bili að trúa á þetta
líf og að velta því fyrir mér hvernig sé
best að lifa því, það er ekki of langt.
Sofnaði á hrað-
lestrarnámskeiði
Hefurðu tárast í bíó?
Já, hver grét ekki þegar Svart-
höfði kastaði keisaranum ofaní
eilífðina til að bjarga syni sínum
Loga? Vona að ég sé ekki að
kjafta frá að Svarthöfði sé
pabbi Loga.
Hverjir voru
fyrstu tónleik-
arnir sem þú fórst á?
Man það ekki, ekki hugmynd.
Hvaða leikari fer mest í
taugarnar á þér?
Veit það ekki, það eru svo margir
sem eru ömurlegir. Sem betur fer er
til slatti af góðum leikurum líka.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Fullt af þeim, maður fer ekki að gefa
þá upp í fjölmiðlum er það? Veikleiki
er afstætt hugtak, það sem er veik-
leiki á einu sviði getur verið styrkur
manns á öðru sviði.
Finndu fimm orð sem lýsa persónu-
leika þínum vel.
Nei, ég get það ekki.
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Erfitt, Sgt. Peppers er ein af betri
plötum sögunnar og líka Hvíta
albúmið en Rolling Stones, sérstak-
lega Jagger, eru flottir. Þetta er erfitt,
sami munur og á Blur og Oasis,
Beach Boys eða Brian Wilson. Ég
segi bara Pet Sounds við þessu öllu.
SOS
SPURT & SVARAÐ
Vilhelm Anton
Jónsson