Morgunblaðið - 14.12.2002, Page 92
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
ALLT að 50% afsláttur er nú af
hefðbundinni jólasteik á borð við
hamborgarhrygg og léttreykt
lambakjöt. Hangikjöt er sömu-
leiðis víðast hvar selt með mikl-
um afslætti. Rjúpur hækka hins
vegar í verði frá í fyrra enda
framboðið af þeim takmarkað í
ár.
Ferskt svínakjöt hefur verið á
útsölu um hríð og kjúklingaverð
hefur hríðlækkað í verslunum en
svo virðist sem verð á kalkúnum
haldist nokkuð stöðugt.
Þeir sem vilja hafa eitthvað
nýtt á borðum geta t.d. valið
villigæs, dádýrakjöt, fasana, dúf-
ur, breskar andabringur og
grænlenskt eða finnskt hrein-
dýrakjöt svo eitthvað sé nefnt.
Lítið framboð virðist hins vegar
vera á íslensku hreindýrakjöti.
Víða afsláttur af jólamatnum
Allt að/36
JÓN KRISTJÁNSSON, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að
bjóða út rekstur nýrrar heilsugæslustöðvar
í Salahverfi í Kópavogi. Gert er ráð fyrir að
stöðin verði tekin í notkun síðla árs 2003.
Rekstur af þessu tagi hefur ekki verið boð-
inn út áður. Á nýju heilsugæslustöðinni
verður veitt nánast öll þjónusta hefðbund-
inna heilsugæslustöðva.
Ýmsar nýjungar eru í útboðinu. Þær
helstar að þeir sem taka að sér rekstur
heilsugæslustöðvarinnar geta hagað stjórn-
un og rekstri svo sem þeir telja heppilegast
á grundvelli þeirra laga sem um starfsem-
ina gilda. Samningurinn sem gerður verður
um reksturinn er við heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið, sem ber ábyrgð á eftirliti
með starfsemi stöðvarinnar. Embætti
Landlæknis sér um faglegt eftirlit en ráðu-
neytið mun sjá um fjárhagslegt eftirlit. Í út-
boðinu felst að ráðuneytið leggur þeim, sem
tekur að sér reksturinn, til tekjugrundvöll
og eru tekjurnar að hluta afkastatengdar.
Fyrirhugað er að halda kynningarfund
með þeim sem bjóða í reksturinn í byrjun
janúar, en skilafrestur er til 30. janúar nk.
Heilsugæsla
í Salahverfi
boðin út
Rekstur/28
Morgunblaðið/Golli
GUÐRÚN Jóhanna Ólafsdóttir, sem
nemur óperusöng við Guildhall
School of Music and Drama í Lond-
on, syngur um
þessar mundir í
konsert-
uppfærslu Classi-
cal Opera Comp-
any í London á
óperunni Artax-
erxes eftir enska
átjándu aldar
tónskáldið Thom-
as Arne í St.
John’s Smith
Square þar í borg. Dómur um sýn-
inguna birtist í enska blaðinu In-
dependent á miðvikudag og þar fær
Guðrún Jóhanna framúrskarandi
góða dóma fyrir söng sinn. Gagn-
rýnandinn, Roderic Dunnett segir
eftir misjafna dóma um aðra söngv-
ara í uppfærslunni:
„En það varð allt með réttu vit-
laust í salnum við söng íslensku
mezzósópransöngunnar Guðrúnar
Ólafsdóttur með sinn geislandi per-
sónuleika.[...]Rödd hennar á eftir
að finna sinn endanlega stað og það
tók hana smástund að syngja sig
upp, en hún heillaði áheyrendur
líka gjörsamlega í tveim stórum
aríum Arbaces í þriðja þætti verks-
ins; – þar jafnast Arne líka vel á við
Händel. Guðrún Ólafsdóttir er –
vona ég minnsta kosti – á leið með
að verða stórkostleg söngkona.“
Guðrún Jóhanna kemur til Ís-
lands eftir helgi og syngur í beinni
útvarpsútsendingu Ríkisútvarpsins
úr Hallgrímskirkju til fjölmargra
landa Evrópu.
Á leið með
að verða
stórkostleg
söngkona
Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir
Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir heillar Breta
GERHARD Sabathil, sendiherra
ESB á Íslandi og í Noregi, segir
ljóst að framlag EFTA-ríkjanna
til fátækari ríkja EES hafi farið
minnkandi sem hlutfall af lands-
framleiðslu. Árið 1994 hafi verið
samið um fast árlegt framlag
EFTA-ríkjanna sem hafi þá verið
0,025% af landsframleiðslu. Það
hlutfall sé í dag um 0,01%.
Sabathil bendir jafnframt á að
hagvöxtur og verðmætasköpun
hafi verið miklum mun jákvæðari í
EFTA-ríkjunum en í ríkjum ESB.
Sabathil segir að Evrópusam-
bandið sé reiðubúið að taka til
skoðunar kröfur og hugmyndir Ís-
lendinga varðandi markaðsaðgang
fyrir sjávarafurðir; um fríverslun
með allar sjávarafurðir í ESB, til
að vega upp á móti missi fríversl-
unarsamninga við umsóknarríkin.
Hann tekur þó fram að engin laga-
leg skylda hvíli á sambandinu að
bjóða bætur fyrir þennan missi
markaðsaðgangs.
Samningar eini kosturinn
Spurður hvort ESB telji sér
ekki einu sinni skylt að gefa Ís-
landi og Noregi tollfrjálsan inn-
flutningskvóta sem byggist á inn-
flutningi síðustu ára, eins og gert
var þegar Svíþjóð og Finnland
gengu í ESB, segir hann að þar sé
ekki tvennu saman að jafna.
„Þá voru EFTA-ríki að ganga
inn í sambandið. Síðan höfum við
átt í erfiðum viðræðum um við-
skipti með t.d. landbúnaðarafurð-
ir. Menn ættu ekki að búast við að
ESB hliðri aftur til einhliða [...].“
Hann er bjartsýnn á að hægt
verði að undirrita samkomulag
ESB og EFTA-ríkjanna um
stækkun EES í Lúxemborg 15.
apríl á næsta ári, jafnvel þótt það
verði tveimur vikum fyrir alþing-
iskosningar á Íslandi. Í raun sé
enginn annar kostur í stöðunni en
að semja.
„Það væri óhugsandi að á sömu
stundu og sameining Evrópu verð-
ur undirrituð 16. apríl liði Evr-
ópska efnahagssvæðið undir lok.
Enginn lítur á það sem möguleika,
hvorki í ESB, í umsóknarríkjun-
um né í EFTA-ríkjunum. Þess
vegna verðum við að finna lausn
sem við getum sætt okkur við.“
Ekki skylda ESB að
semja um fríverslun
Fjárframlög EFTA/20
Sendiherra ESB
segir raunfram-
lög EFTA-ríkja
hafa lækkað
ÞRÍR eigendur fasteigna í Garðhúsum í
Grafarvogi hafa höfðað mál gegn Reykja-
víkurborg og Vegagerðinni til að fá ógiltan
úrskurð umhverfisráðuneytisins um mat á
umhverfisáhrifum Hallsvegar.
Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gærmorgun en Óskar Sig-
urðsson hdl., lögmaður eigendanna, segir að
þetta sé í fyrsta skipti sem reyni efnislega á
lög um umhverfismat fyrir íslenskum dóm-
stólum. Umhverfisráðuneytinu var einnig
stefnt en bæði héraðsdómur og Hæstiréttur
vísuðu málinu á hendur ráðuneytinu frá
dómi, þar sem það var ekki talið hafa lög-
varða hagsmuni í málinu.
Eigendurnir krefjast þess m.a. að fram
fari heildstætt mat á umhverfisáhrifum
Hallsvegar en ekki einungis á einum hluta
framkvæmdanna, þ.e. tvegga akreina
Hallsvegi frá Víkurvegi að Fjallkonuvegi,
líkt og gert er hinum kærða úrskurði.
Dómstólar
úrskurði um
Hallsveg
BALDUR Björnsson er harla
óvenjulegur framhalds-
skólanemi. Hann stundar fjar-
nám í tveimur stærðfræðiáföng-
um við Fjölbrautaskólann við
Ármúla og gengur vel. Það er þó
ekki það sem vekur undrun
flestra heldur miklu fremur sú
staðreynd að hann er aðeins 11
ára.
Baldur á ekki langt að sækja
stærðfræðiáhugann því foreldrar
hans Árdís Þórðardóttir og Björn
Bjarnason hafa mikinn áhuga á
stærðfræði. Þá er langt síðan
bróðir hans, Bjarni, 14 ára, var
farinn að stunda stærðfræðinám
á menntaskólastigi. Baldur segir
valið hafa staðið á milli tónlistar-
náms og stærðfræði á sínum
tíma. „Vinir mínir hafa leyft mér
að prófa svolítið á fiðlu og mér
fannst það ekkert spes,“ segir
hann.
Hann reiknar í einn og hálfan
tíma á dag. „Það er bara ekki
hægt að reikna meira í einu,“
segir hann með þunga.
Morgunblaðið/Jim Smart
Baldur lét ekki heimsókn ljósmyndarans í prófið í gær trufla sig heldur sökkti sér ofan í dæmin.
Ellefu ára stærðfræðingur við nám í framhaldsskóla
Tók reikning fram yfir fiðlu
Fær stuðning/6
♦ ♦ ♦