Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Opið til 22.00 til jóla ... er m eð a llt f yr ir jó lin Jóladagskrá í dag Jólasveinar á ferðinni kl. 15.00 Jazzdúettinn Desmin kl. 16.00 spilar þægilegan jólajazz. Jólaskemmtun í dag kl.17.00 Sigga, Grétar og jólasveinarnir á torginu 1.hæð Jazzdúettinn Augnablik kl. 18.00 spilar þægilegan jólajazz. Guðmundur Haukur kl. 20.00 píanóleikari, leikur jólalög. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði karl- mann af ákæru ríkissaksóknara fyrir kynferðis- brot gagnvart stjúpdóttur sinni um margra ára skeið. Ákært var fyrir nær dagleg kynferðisbrot frá árinu 1988 eða 1989, er stúlkan var 5 til 6 ára, fram í desember 2000, er hún var tæplega 18 ára. Dómur héraðsdóms var fjölskipaður og klofnaði í afstöðu sinni til málsins með því að einn dómari vildi sakfella ákærða en tveir sýkna hann. Maðurinn var annars vegar ákærður fyrir að hafa nær daglega haft samræði við stjúpdóttur sína eða önnur kynferðismök á heimilum þeirra á Akureyri og í Reykjavík og víðar. Hann var einnig sakaður um brot gegn 7 ára stúlku árið 1991 á þá- verandi heimili sínu á Akureyri, en allir dómararn- ir voru sammála um að sýkna hann af þeirri sök. Meirihluti dómenda, sem skipaður var Pétri Guðgeirssyni og Loga Guðbrandssyni, sagði í nið- urstöðum sínum, að enda þótt telja yrði líkur á því að ákærði hefði framið þau kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni sem hann var ákærður fyrir, væru ekki fram komnar fullar sönnur um sekt. Ákærði neitaði sök Ákærði hafi frá upphafi neitað sök og verið stað- fastur og samkvæmur sér í framburði sínum. Stúlkan hafi og gefið einarðar skýrslur í málinu og frásögn hennar oft verið átakanleg og ávallt sann- færandi. Hún og þrír aðrir unglingar hafi hins vegar tekið sig saman um það þegar lögreglurann- sókn hófst í málinu að segja ósatt um eitt atvik málsins. Og er einn þeirra hafi breytt framburði sínum og viðurkennt að hafa sagt ósatt um málið, hafi hún reynt að gera framburð hans tortryggi- legan fyrir dómurunum. Minnihlutann skipaði Valtýr Sigurðsson dóms- formaður og komst í séráliti sínu að þeirri nið- urstöðu, að sakfella bæri ákærða. Taldi hann til- greint atvik ekki hafa áhrif á mat á trúverðugleika framburðar beggja stúlknanna um ákæruatriði málsins. Væri framburður ákærða að mati dóms- ins í heild ótrúverðugur. Þegar öll atriði málsins væru virt taldi hann sannað með vitnisburði stúlk- unnar, sem fengi stoð af vitnisburðum og öðrum gögnum málsins, en gegn neitun ákærða, að hann hafi gerst sekur um að hafa haft við hana samræði eða önnur kynferðismök með þeim hætti og á þeim stöðum er í ákæru greinir. Karlmaður sýknaður af ákæru um ítrekað kynferðisbrot gegn stjúpdóttur Sekt ákærða ósönnuð þrátt fyrir líkur á kynferðisbrotum ÁRNI Ragnarsson, fyrrverandi kaupmað- ur, lést á Spáni þriðju- daginn 17. desember sl. Árni var fæddur á Flateyri við Önundar- fjörð 16. maí 1935. For- eldrar hans voru Mar- grét Jónsdóttir og Ragnar Jakobsson út- gerðarmaður. Árni útskrifaðist frá Kennaraskóla Islands 1956 og nam síðar við verslunarskóla í Eng- landi í eitt ár. Eftir heimkomuna starfaði hann við verslunarstörf í Raftækja- verslun Heklu hf. Hann keypti Hljóðfærahús Reykjavíkur ásamt Jó- hanni bróður sínum og rak það um áratuga skeið fyrst í Hafnar- stræti og síðar við Laugaveg. Hann seldi Hljóðfærahúsið og keypti framköllunar- fyrirtækið Express við Suðurlandsbraut og rak það ásamt eigin- konu sinni í nær ára- tug. Þau seldu fyrir- tækið og fluttust búferlum til Spánar og hafa dvalið þar sl. 5 ár. Eftirlifandi eigin- kona Árna er Guðfinna Halldórs- dóttir frá Ísafirði. Þau eignuðust fjögur börn. Andlát ÁRNI RAGNARSSON HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur dæmt Hafnarfjarðarbæ til að greiða myndmenntakennara við Lækjarskóla 63 þúsund krónur ásamt dráttarvöxtum á grundvelli samnings um viðbótarkjör frá 1980. Stefndi, Hafnarfjarðarbær, taldi að greiðslur samkvæmt samningnum hefðu fallið niður við kerfisbreyting- ar 1. ágúst 2001 og á grundvelli yf- irlýsingar í kjarasamningi frá 9. jan- úar 2001 milli sveitarfélagsins og myndmenntakennara hjá grunnskól- um Hafnarfjarðar. Í yfirlýsingunni sagði að forsendur kjarasamningsins væru þær að ákvarðanir sem teknar hafi verið um viðbótarráðningarkjör sem samið hefur verið um á grund- velli launategunda kjarasamnings standi til og með 31. júlí 2001 og falli þá úr gildi. Stefnandi taldi samning- inn hins vegar í fullu gildi og krafðist greiðslu launa og orlofs samkvæmt honum fyrir tímabilið 1. ágúst 2001 til 1. febrúar 2002. KÍ og Félag grunnskólakenn- ara ekki með samningsumboð Í niðurstöðu dómsins segir m.a. að með kjarasamningi séu lágmarks- kjör launþega ákveðin. Með samn- ingi um yfirborgun eða persónu- bundin viðbótarkjör væri komið út fyrir svið kjarasamnings. Hafi Kenn- arasamband Íslands og Félag grunnskólakennara ekki haft umboð til að semja um afnám slíkra ráðn- ingarkjara þá er kjarasamningurinn 9. janúar 2001 var undirritaður. Að þessu virtu væri engin ástæða til að leggja annan skilning í efni um- ræddrar yfirlýsingar en þann sem vitnisburður Eiríks Jónssonar, for- manns KÍ, og Guðrúnar Ebbu Ólafs- dóttur, fyrrverandi formanns Félags grunnskólakennara, fæli í sér. Í vitn- isburði Eiríks kom fram að yfirlýs- ingunni væri í hans huga stefnt gegn samningum um viðbótarkjör sem gerðir hefðu verið í kjölfar kjara- samnings frá 1997. Ekki hefði verið hugsunin að samningar þessir féllu sjálfkrafa niður 1. ágúst 2001 á grundvelli yfirlýsingarinnar, enda hefði KÍ ekkert umboð til að semja á þann veg fyrir hönd félagsmanna sinna. Þá sagði í vitnisburði Guðrún- ar Ebbu að yfirlýsingunni hafi verið ætlað að taka til samninga eða ein- hliða ákvarðana sveitarfélaga um viðbótarkjör til handa kennurum í kjölfar kjarasamningsins frá 1997. Dómurinn taldi vitnisburð Eiríks og Guðrúnar Ebbu ekki fara í bága við efni yfirlýsingarinnar. Leit dómur- inn því svo á að með henni hafi KÍ skuldbundið sig til þess eins að að- hafast ekki þótt samningum um per- sónubundin viðbótarkjör, yrði sagt upp frá með 1. ágúst 2001. Af þessu og framangreindu leiddi að með yf- irlýsingunni yrði ekki létt af sveit- arfélögunum þeirri kvöð að þurfa að segja þessum samningum upp með lögformlegum hætti að því marki sem samningsákvæði leiddu ekki sjálfkrafa til þess að þeir féllu úr gildi. Gæti í engu breytt þótt hinn nýji kjarasamningur hefði falið í sér mikla kerfisbreytingu til hagsbóta fyrir kennara og leitt til umtals- verðrar launahækkunar þeim til handa. Sérgreinakennarar í Hafnarfirði unnu dómsmál sem þeir höfðuðu gegn bænum vegna launamála Fá greidd viðbótarlaun óháð kjarasamningnum UM EITT þúsund minkar drápust er eldur kom upp í loðdýrabúinu Dýr- holti skammt sunnan Skáldalækjar í Svarfaðardal í fyrrinótt. Tilkynnt var um eldinn laust eftir fimm um nóttina. Slökkvistarf gekk erfiðlega til að byrja með vegna vatnsskorts og komu slökkvilliðsmenn frá Ólafs- firði og Akureyri með tankbíl til að- stoðar slökkviliðinu á Dalvík. Slökkt hafði verið í laust eftir klukkan átta í gærmorgun. Dýrholt er eins og áður sagði loð- dýrabú og er ekki um annan búskap að ræða þar. Húsið samanstóð af tveimur skálum þar sem tengibygg- ing var á milli, en þar kom eldurinn upp. Tengibyggingin brann til grunna ásamt þeim tækjum og tól- um sem þar voru og efra húsið virð- ist mjög illa farið. Öll dýr í því húsi drápust, alls um 1.000 minkar, en neðra húsið slapp og dýrin sem þar voru. Ljóst er að eigendur Dýrholts hafa orðið fyrir miklu tjóni. Slátrun var nýlokið og verkun skinna stóð yfir. Eitthvað af skinnum var í frystigámi sem tókst að bjarga. Lögregla var að störfum í gær en grunur um eldsupptök beinist að rafmagni. Morgunblaðið/Guðmundur Ingi Jónatansson Mikið tjón varð í eldsvoðanum í minkabúinu í Dýrholti í Svarfaðardal. Tengibygging og annar skálinn eyðilögðust og um 1.000 minkar drápust. Um eitt þúsund minkar drápust í eldsvoðanum Dalvík. Morgunblaðið. OPNAÐUR hefur verið vefur á mbl.is með yfirliti yfir frétt- næmustu atburði liðins árs. Á þeim vef er hægt að skoða helstu fréttir hvers mánaðar fyrir sig en einnig má sjá lista yfir helstu fréttir í hverjum efnisflokki, innlendar, erlend- ar, íþróttir og svo má telja. Á upphafssíðu vefjarins er einnig tengill á sérstakan myndaannál þar sem hægt er að skoða helstu fréttamyndir ársins, inn- lendar sem erlendar og einnig að sjá úrval mynda sem ljós- myndarar Morgunblaðsins hafa tekið á árinu. Vefurinn er aðgengilegur frá forsíðu mbl.is; er þar að finna efst til hægri undir liðnum Nýtt á mbl.is. Frétta- yfirlit á mbl.is 16 ÁRA piltur meiddist á fæti er hann hrasaði í Súlum, bæj- arfjalli Akureyringa í gær. Tal- ið var að hann hefði fótbrotnað og var hann sóttur upp í fjallið af 18 liðsmönnum björgunar- sveitarinnar Súlna og borinn niður á sjúkrabörum. Pilturinn var á gangi ásamt félaga sínum þegar slysið varð og gátu þeir hringt eftir aðstoð með gsm- síma. Aðstæður til björgunar- aðgerða voru ágætar þótt ávallt sé erfitt og vandmeðfarið að bera fólk langar vegalengdir í sjúkrabörum. Meiddist á fæti í fjallgöngu STEFÁN Kristjánsson vann sinn annan sigur á Heimsmeistaramóti unglinga, 20 ára og yngri, sem fram fer í Goa á Indlandi, er hann lagði litháíska skákmanninum Asauskas Henrikas (2331). Stefán hefur nú 7½ vinning og er í 8.–18. sæti. Davíð Kjartansson tapaði hins vegar fyrir hvít-rússeska skák- manninum Dmitry Poliakov (2300) og hefur 5½ vinning og er í 53.–66. sæti. Efstur er armenski stór- meistarinn Levon Aronian (2581) með 9 vinninga. Í 13. og síðustu umferð sem fram fer í dag föstudag mætir Stefán kínverska alþjóðlega meist- aranum Ni Hua Ni (2545) en Davíð mætir indverska alþjóðlega meist- aranum Sandipan Chanda (2510). Nálægt toppnum á HM unglinga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.