Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 21
FJÓRIR biðu bana þegar sprenging
lagði í rúst byggingu í pakistönsku
hafnarborginni Karachi í gær. Emb-
ættismenn sögðu upphaflega að um
slys hefði verið að ræða en Syed
Kamal Shah, lögreglustjóri í Sindh-
héraði, sagði seinna að sprengjuefni
hefði fundist á staðnum og að fórn-
arlömbin fjögur hafi hugsanlega ver-
ið viðriðin sitthvað misjafnt.
Talið er að byggingin hafi verið
bækistöð öfgasinnaðra múslima.
Sagði Shah að fundist hefði á staðn-
um persónuskilríki en maðurinn á
mynd skilríkjanna líktist mjög Asif
Ramzi. Ramzi er á lista pakistanskra
yfirvalda yfir hættulegustu menn
landsins. „Ef það fæst staðfest að
Ramzi hafi verið þarna þá myndi það
þýða að þetta hús hafi verið notað
fyrir aðila sem tengsl hafa við al-
Qaeda [hryðjuverkasamtökin],“
sagði Shah.
Fjórir létust
í sprengingu
í Karachi
Karachi. AFP.
FYRIR úlfahjarðir og skógarbirni
ævintýranna, sem valsa um fjalla-
skóga Transylvaníu, var komm-
únisminn alls ekki svo slæmur.
Hinn alræmdi einræðisherra
Rúmeníu, Nicolae Ceausescu, sem
réð ríkjum í landinu í 25 ár unz
kommúnisminn hrundi, bannaði
bjarnarveiðar – þ.e. öllum öðrum en
sjálfum sér.
Af þessu leiddi að þegar Ceaus-
escu var steypt og hann tekinn af lífi
um jólin 1989 var allt orðið krökkt af
björnum og öðrum villtum dýrum í
skógum landsins. Raunar segja tals-
menn náttúruverndarsamtaka að
þau hafi verið orðin of mörg. Fjár-
bændur og aðrir húsdýraræktendur
misstu margt dýrið í úlfskjaft og
birnir fóru að leita út fyrir skóginn
að æti.
Blikur á lofti
En að mati sérfræðinga eru nú
blikur á lofti hvað varðar framtíð-
arhorfur villidýra austursins. Þeir
segja að hröð hagþróun, sem undir-
búningur landsins fyrir aðild að Evr-
ópusambandinu ýtir undir, gæti
þrengt mjög að einu síðasta
ósnortna svæði villtrar náttúru á
meginlandi Evrópu og sett dýralíf
þess í hættu.
Í nýlega útkominni skýrslu al-
þjóðlegu náttúruverndarsamtak-
anna WWF (World Wide Fund for
Nature) er varað við því að fram-
kvæmdir sem ætlað er að efla
hagþróun í Tékklandi, Slóvakíu,
Ungverjalandi, Póllandi, Rúmeníu
og Úkraínu ógni dýralífi í Karpata-
fjallgarðinum, sem liggur í gegnum
öll þessi lönd.
Stærstur hluti þess 100.000 fer-
kílómetra svæðis sem Karpatafjöll
ná yfir er í Rúmeníu, og skógarnir
þar, í héraðinu Transylvaníu, eru
meðal síðustu ósnortnu villtu vist-
kerfa Evrópu.
WWF spáir því að hröð uppbygg-
ing nýrra vega og útbreiðsla nútíma-
vædds landbúnaðar muni leiða til
rýrnunar landgæða og að mikið
muni draga úr fjölbreytni lífríkisins
á svæðinu.
„Ég tel að það sé þjóðsaga að
kommúnisminn hafi verið skelfileg-
ur umhverfisspillir,“ segir Paul
Csagoly, talsmaður WWF í Búda-
pest. „Kommúnisminn þjappaði
vissulega fólki og iðnaði saman á
ákveðna staði, þar sem reykskýin
lágu yfir og eiturúrgangi var dælt út
í náttúruna. Það er þetta sem fólk á
Vesturlöndum sér myndir af. En ut-
an við þessa iðnaðarkjarna var land-
ið þjóðnýtt og látið í friði.“
Stefnan inn í ESB ógnar
björnum og úlfum í Transylvaníu
Brasov. AP.
AP
Villtur skógarbjörn gengur að hópi ferðamanna við Brasov í Rúmeníu í september sl. Birnirnir hafa í auknum
mæli leitað inn í byggð í leit að matarleifum. Björnum og öðrum dýrum hefur fjölgað mjög í skógum landsins.
’ Fyrir úlfa og birnivar kommúnisminn
ekki svo slæmur. ‘