Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 50
MINNINGAR
50 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ GuðbrandurRögnvaldsson,
bílamálari og fyrrv.
vaktmaður hjá Sec-
uritas, fæddist í
Hafnarfirði 29.10.
1926. Hann lést á
heimili sínu fimmtu-
daginn 12.12. síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Rögnvald-
ur Guðbrandsson, f.
27.9. 1900, d. 28.2.
1983, lengst af verk-
stjóri hjá Slippfélag-
inu í Reykjavík, og
k.h., Steinunn Þor-
kelsdóttir, f. 14.6. 1895, d. 6.8.
1950, húsmóðir. Systkini Guð-
brands eru: Svanur, f. 14.12. 1929,
fórst með Suðurlandinu 1986, sjó-
maður í Reykjavík, var kvæntur
Fríðu Gústafsdóttur; Árna Stein-
unn, f. 5.5. 1932, húsmóðir í
Reykjavík, gift Guðjóni Andrés-
syni; Már, f. 19.8. 1942, mat-
reiðslumaður í Reykjavík, kvænt-
ur Gíslínu Gunnarsdóttur.
Hálfbróðir Guðbrands, sam-
mæðra, er Þorkell Árnason, f.
kona hans er Guðríður Jónasdótt-
ir húsmóðir og eiga þau tvö börn
en fyrir átti Albert Ómar þrjú
börn; Sævar Guðbrandsson, f. 5.1.
1954, útgerðarmaður á Húsavík,
kvæntur Svölu Björgvinsdóttur
húsmóður og eiga þau tvö börn;
Steinunn Guðbrandsdóttir, f. 3.10.
1956, bankastarfsmaður, búsett í
Hafnarfirði, gift Hallbergi Svav-
arssyni, tannsmíðameistara og
hljómlistarmanni, og eiga þau
fjögur börn; Haraldur Halldór
Guðbrandsson, f. 29.9. 1965,
starfsmaður hjá Norðuráli, bú-
settur í Borgarnesi, en kona hans
er Svanhildur M. Ólafsdóttir hús-
móðir og eiga þau þrjú börn en
fyrir átti Haraldur einn son;
Rögnvaldur Guðbrandsson, f.
16.12. 1967, matreiðslumaður í
Kópavogi og á hann þrjú börn.
Guðbrandur ólst upp í Hafnar-
firði til tólf ára aldurs og síðan í
Þingholtunum í Reykjavík. Hann
vann í Bretavinnunni á unglings-
árunum, vann hjá Slippfélaginu í
Reykjavík í nokkur ár, lærði bíla-
málun og var bílamálari hjá Ræsi
hf. og rak síðan eigið verkstæði á
árunum 1956–86. Þá hóf hann
störf hjá Securitas þar sem hann
vann til starfsloka 1996.
Útför Guðbrands fer fram frá
Hjallakirkju í Kópavogi í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
17.1. 1924, fyrrv.
starfsmaður Reykja-
víkurborgar, búsettur
í Reykjavík.
Guðbrandur kvænt-
ist 25.7. 1950 Bjarn-
dísi Ingu Albertsdótt-
ur, f. 18.8. 1926,
húsmóður. Hún er
dóttir Alberts G. J.
Magnússonar, sjó-
manns í Bolungarvík,
og k.h., Vigdísar
Benediktsdóttur hús-
móður. Börn Guð-
brands og Bjarndísar
eru Valsteinn Heiðar
Guðbrandsson, f. 12.4. 1947, d.
28.2. 2000, sveitarstjórnarmaður í
Súðavík, var kvæntur Maríu
Kristófersdóttur húsmóður og
eignuðust þau þrjá syni en fyrir
átti Heiðar einn son; Vigdís Alda
Guðbrandsdóttir, f. 14.5. 1949,
húsmóðir á Breiðavaði en maður
hennar er Magnús Jóhannsson,
verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins,
og eiga þau fjórar dætur; Albert
Ómar Guðbrandsson, f. 6.7. 1951,
iðnaðarmaður í Danmörku, en
Afi okkar er dáinn, okkur þótti
vænt um hann, enda eini afinn sem
við höfum kynnst. Og öllum börnum
þykir jú vænt um hann afa sinn.
Hann var oft stríðinn, en alltaf á
góðan og glettinn hátt, og oft kom
stafurinn hans í áttina að okkur
þegar hann var að stríða eða þykj-
ast varna okkur að komast eitthvað.
Hann var alltaf kátur og góður við
okkur barnabörnin og barnabarna-
börnin, og oftast átti hann eitthvert
nammi sem hann laumaði að okkur.
Það var nú komið ár frá því að við
sáum afa síðast, en þá fluttum við til
Danmerkur með mömmu og pabba,
en honum afa í Kópavoginum höfum
við ekki gleymt, og söknum hans
mikið. Við vonum að Guð gefi að
honum líði vel þar sem hann er núna
og að honum hafi ekki liðið mjög illa
í veikindum sínum upp á síðkastið,
en okkur leið alltaf illa þegar pabbi
sagði okkur að hann afi væri kom-
inn á spítala. Og okkur leið mjög illa
þegar pabbi sagði okkur að hann afi
væri dáinn. En hann útskýrði líka
fyrir okkur að sennilega myndi hon-
um líða miklu betur núna, og það
vonum við svo innilega. Og við von-
um að amma taki þessu líka vel, en
við söknum hennar jafnmikið þótt
hún lifi af því við erum svo langt í
burtu. Og vonum við, amma, að þú
sjáir þér fært að koma út til Dan-
merkur og heimsækja okkur, en svo
komum við líka til þín í sumar. Jón
Þór biður líka að heilsa. Þó að hann
sé bara fimm ára og hafi ekki séð
afa í tvö ár þá man hann eftir honum
og stafnum hans þegar hann hélt í
stafinn og labbaði með honum afa.
Þetta ár er frá oss farið,
fæst ei aftur liðin tíð.
Hvernig höfum vér því varið?
Vægı́ oss Drottins náðin blíð.
Ævin líður árum með,
ei vér getum fyrir séð,
hvort vér önnur árslok sjáum.
Að oss því í tíma gáum.
(Br. Jónsson frá Minna-Núpi.)
Arnór Veigar og
Bjarndís Ýr Albertsbörn.
Síðustu æviárin voru Guðbrandi
mági mínum þungbær á ýmsan hátt.
Fyrir sex árum, um það leyti er
hann var að ljúka sínum langa og oft
stranga starfsferli, fékk hann alvar-
legt áfall sem síðan hefti mjög alla
hreyfigetu hans og tjáskipti. Hvort
tveggja var honum erfitt því hann
var að eðlisfari atorkusamur, fé-
lagslyndur og glaðsinna.
Þau hjónin urðu svo fyrir þeirri
þungu sorg að missa elsta son sinn,
Heiðar, af slysförum fyrir tæpum
þremur árum. Heiðar var á margan
hátt eftirmynd foreldra sinna, harð-
duglegur til allra verka, áhugasam-
ur um almenna velferð og framfarir
og geislandi af lífskrafti.
Það er nú tæp hálf öld frá því ég
kynntist Guðbrandi. Hann var elst-
ur alsystkina konu minnar en þau
systkinin eiga einn eldri hálfbróður.
Guðbrandur fór í ýmsu fyrir
systkinahópnum. Því var betra að
hafa hann með sér en á móti.
Skemmst er frá því að segja að Guð-
brandur tók mér strax opnum örm-
um og hefur aldrei í öll þessi ár fall-
ið skuggi á vináttu okkar.
Ég minnist nú með ánægju þeirra
utanlandsferða sem við fórum sam-
an með fjölskyldur okkar, en hann
var fyrirmyndar ferðafélagi og
hrókur alls fagnaðar þegar frí gafst
frá daglegu amstri.
Guðbrandur kvæntist 1950 eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Bjarndísi
Ingu Albertsdóttur. Þau komu sér
upp myndarheimili í Garðsenda,
voru þar búsett lengst af og eign-
uðust sjö mannvænleg börn. Guð-
brandur og Bjarndís voru samhent
hjón, glaðsinna og skemmtileg í
góðra vina hópi og æðrulaus í mót-
læti sínu.
Um leið og ég þakka mági mínum
tæplega hálfrar aldar samfylgd
sendi ég Bjarndísi og börnum
þeirra mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Guðbrands.
Guðjón Andrésson.
GUÐBRANDUR
RÖGNVALDSSON
MINNINGARGREINUM þarf
að fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minningar-
greina
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Mosfellsbær
Leikskólinn Hlíð
Börn og listmenning
Vegna stækkunar leikskólans þá auglýsum
við eftir leikskólakennurum til starfa við leik-
skólann frá 1. febrúar eða eftir nánara sam-
komulagi.
Um er að ræða stöður deildarstjóra og al-
mennra leikskólakennara.
Til greina kemur að ráða aðra uppeldis-
menntaða starfsmenn og/eða starfsfólk
með reynslu.
Áherslur í leikskólastarfi eru: Skapandi starf
og listmenning.
Kjör leikskólakennara eru samkvæmt kjara-
samningi Félags leikskólakennara og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Áhugasamir hafi samband við Jóhönnu S.
Hermannsdóttur leikskólastjóra í símum
566 7375 og 861 2957 eða undirritaða í síma
525 6700
Mosfellsbær rekur í dag fjóra leikskóla sem
hver og einn státar af metnaðarfullri stefnu
og starfsháttum.
Íbúafjöldinn er rúmlega 6.000 manns og er
bærinn ört vaxandi útivistarbær enda stutt
milli fjalls og fjöru og umhverfi bæjarins allt
afar fagurt og mannlíf gott.
Leikskólafulltrúi.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Jólaball
Eflingar-stéttarfélags verður haldið laugardag-
inn 28. desember nk. kl. 15 í Versölum, Hall-
veigarstíg 1.
Miðasala er á skrifstofunni. Tryggið ykkur miða
tímanlega.
Efling-stéttarfélag.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Miðvangur 18, hl. 0101, Egilsstöðum, fastnr. 224-6627, þinglýstur
eigandi Austur-Hérað, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
27. desember 2002 kl. 14.00.
Miðvangur 18, hl. 0102, Egilsstöðum, fastnr. 224-6628, þinglýstur
eigandi Austur-Hérað, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
27. desember 2002 kl. 14.10.
Miðvangur 18, hl. 0103, Egilsstöðum, fastnr. 224-6629, þinglýstur
eigandi Austur-Hérað, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
27. desember kl. 14.20.
Miðvangur 18, hl. 0104, Egilsstöðum, fastnr. 224-6630, þinglýstur
eigandi Austur-Hérað, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
27. desember 2002 kl. 14.30.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
17. desember 2002.
TIL SÖLU
Ferðamálasjóður auglýsir
til sölu bátinn Áka sknr. 6357
sem er 10 m langur, ætlaður til ferðaþjónustu.
Báturinn tekur 22 í sæti, hann er knúinn tveim-
ur 200 ha. Volvo penta diesel vélum, smíðaður
árið 1986. Báturinn stendur á flutningsvangi
sem fylgir með í kaupunum.
Frekari upplýsingar eru veittar í Ferðamála-
sjóði, Borgartúni 21 í Reykjavík, eða í síma
540 7510.
Ferðamálasjóður.
TILKYNNINGAR
Bessastaðahreppur
Deiliskipulag
við Brekku
Hreppsnefnd Bessastaðahrepps auglýsir hér
með tillögu að breytingu á deiliskipulagi við
Brekku á miðsvæðisreit í Bessastaðahreppi
samkvæmt 1. mgr. 26. gr., sbr. 25. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin
nær til svæðisins norðan og sunnan við
Brekku. Í skipulagstillögunni er gert ráð fyrir
46 íbúðum í einbýlishúsum, raðhúsum, par-
húsum og fjölbýlishúsum í stað 21 húss í ein-
býlishúsum og parhúsum í gildandi deiliskipu-
lagi. Einnig breytist skipulag gatna norðan
Brekku.
Breytingartillagan verður til sýnis á skrifstofu
Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum, frá kl. 8:00—
16:00 alla virka daga frá 20. desember 2002
til 7. febrúar 2003.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytingartillöguna. Frestur til að skila inn at-
hugasemdum rennur út 7. febrúar 2003.
Athugasemdum skal skilað skriflega til sveitar-
stjóra Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillöguna
innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.