Morgunblaðið - 20.12.2002, Blaðsíða 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 25
UMFANGSMIKLAR framkvæmdir standa nú yfir um borð í Sléttbak EA,
nýja frystitogara Útgerðarfélags Akureyringa hf. Skipt verður um lúgu á
fiskmóttökunni á dekkinu, skápur fyrir flottrollshlera útbúinn og ýmislegt
fleira. Einar þrjár vélsmiðjur koma að verkinu, tvær frá Akureyri og ein
frá Dalvík en stefnt er að því að ljúka þessum framkvæmdum í byrjun jan-
úar. Sléttbakur kom til löndunar á Akureyri í byrjun vikunnar með tæp-
lega 260 tonn af frystum afurðum. Aflaverðmæti skipsins var um 63 millj-
ónir króna.
Morgunblaðið/Kristján
Framkvæmdir í Sléttbak
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti í morgun að styðja fyrir-
hugaðar framkvæmdir Landsvirkj-
unar við Kárahnjúka.
Á fund ráðsins mættu til við-
ræðna Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, Stefán Péturs-
son, framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs, og Bjarni Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri orkusviðs. Þeir
gerðu grein fyrir stöðu mála og
lýstu fyrirhuguðum framkvæmd-
um. Að loknum umræðum sam-
þykkti bæjarráð samhljóða sam-
þykkt þar sem lýst er yfir
stuðningi við það að Landsvirkjun
hrindi áformum um Kárahnjúka-
virkjun í framkvæmd að uppfyllt-
um þeim markmiðum sem fram
hafa verið sett af eigendum um
arðsemi af starfsemi Landsvirkj-
unar.
Bæjarráð Akureyrar
Styður
fram-
kvæmdir við
Kárahnjúka„ÞETTA er auðvitað alveg hræðilegt,“ sagði Ólafur R.
Ólafsson en á miðvikudagskvöld kom eldur upp í íbúð
hans og eiginkonunnar, Oddnýjar Kristinsdóttur, í
Skessugili 1. Íbúðin er ný en þau fluttu inn ásamt þrem-
ur börnum sínum í sumarbyrjun.
Eldsins varð vart um kl. 18.30 og var enginn heimavið
á þeim tíma. „Ég var í vinnunni og það var hringt í mig
þangað, mér varð heldur illa við þegar ég heyrði tíðind-
in,“ sagði Ólafur.
Talið er að kviknað hafi í út frá jólaseríu sem prýddi
hornglugga í íbúð fjölskyldunnar og sagði Ólafur að
menn væru að geta sér þess til að skammhlaup hefði
orðið í perum sem legið hefðu þétt saman. Það voru börn
úr nágrenninu sem fyrst sáu hvers kyns var og létu ná-
grannakonu vita, en hún hringdi umsvifalaust á lög-
reglu sem kom á vettvang ásamt slökkviliði skömmu síð-
ar.
Gífurlegur hiti var inni í íbúðinni þegar að var komið
og komst lögregla ekki inn af þeim sökum. Ólafur sagði
að litlu hefði munað að glugginn hefði sprungið, en hann
hefði sem betur fer haldið, ella hefði mátt búast við enn
meira tjóni en þó varð. Ólafur sagði að einkum væri um
að ræða hita- og sótskemmdir.
Fjölskyldan var búin að skreyta híbýli sín hátt og lágt
og undirbúningi fyrir hátíðina var að mestu lokið, en
þau eiga von á einni dóttur sinni heim á sunnudag. Hún
hefur dvalið með afreksliði Íslands á skíðum í Noregi
síðasta mánuð. „Við vildum vera búin að öllu þegar hún
kæmi heim,“ sagði Ólafur.
Hann nefndi að þó það væri mikið áfall að horfa upp á
íbúðina í þessu ásigkomulagi rétt fyrir jólin væri lán í
óláni að enginn hefði slasast. „Það er hægt að bæta alla
hluti, en mannslífið skiptir mestu,“ sagði Ólafur.
Unnið var við það í gær að rýma íbúðina, en innbú;
rúm, sófar og annað slíkt verður sent í hreinsun. Þá
verður íbúðin þrifin og loks er áætlað að allt að 6 vikur
taki að gera hana upp á nýju. Þau gera ráð fyrir að flytja
inn aftur um miðjan febrúar. Fjölskyldan dvaldi hjá ætt-
ingjum nóttina eftir brunann, en er nú að leita að íbúð.
Talið að kviknað hafi í út frá jólaseríu í glugga
Fyrir mestu að
enginn slasaðist
Morgunblaðið/Kristján
Guðmundur Helgason frá Sjóvá-Almennum skoðar
verksummerki í Skessugili, þar sem talið er að eldurinn
hafi komið upp á miðvikudagskvöldið.
NORÐURORKU, veitufyrirtæki
Akureyrarbæjar, verður breytt í
hlutafélag sem tekur til starfa 1. jan-
úar nk. og yfirtekur allar eignir rétt-
indi, skuldir og skuldbindingar
Norðurorku.
Ekki er einhugur í stjórn Norður-
orku um þessa breytingu á rekstr-
arformi fyrirtækisins og á síðasta
fundi lagði Kristín Sigfúsdóttir,
fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í stjórninni, fram
eftirfarandi bókun: „Vegna eignar-
formsbreytinga Norðurorku í Norð-
urorku hf. lýsi ég yfir ótta mínum um
að stigið hafi verið óheillaspor sem
leiða muni til þess að Akureyringar
missi síðar forræði yfir veitum sínum
og uppskeri hlutfallslega verri og
dýrari þjónustu.“
Óttast að stigið hafi
verið óheillaspor
Fulltrúi vinstri-grænna í stjórn Norðurorku
Herradeild Akureyri,
sími 462 3599.
Frakkar
Stuttir og síðir
ullarfrakkar
SKJALDARVÍK
TIL SÖLU
Fasteignir Akureyrarbæjar auglýsa til sölu og óska
eftir tilboðum í fasteigninar Ytri og Syðri - Skjaldarvík,
í Hörgárbyggð.
Um er að ræða:
· Íbúðarhús, 182,3 m² á einni hæð.
· Íbúðarhús á tveimur hæðum samtals 242,5 m².
· Áður dvalarheimili, heildarstærð 1.867 m², húsið er á tveimur
hæðum og kjallari.
· Skemma samtals 126 m².
· Vélaskemma og geymsla samtals 364 m².
· Fjós, kálfahús og hlaða samtals 560 m².
Húsunum verður afmörkuð leigulóð og til greina kemur að leigja
væntanlegum kaupendum úthaga og tún.
Áskilin er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboðum ber að skila eigi síðar en 9. janúar 2003, kl. 16.00, á
skrifstofu Fasteigna Akureyrarbæjar.
Fasteignir Akureyrarbæjar
Geislagötu 9, 4 hæð,
sími 460 1000, 460 1128.
Jólakossinn
vinargjöf
sími 462 2900
Blómin
í bænum