Morgunblaðið - 05.01.2003, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.01.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ bílar ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM SMÁAUGLÝSING AÐEINS 995 KR.* Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.* Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum. * 4 línur og mynd. HAFÐU SAMBAND! Auglýsingadeild Morgunblaðsins. Sími 569 1111 eða augl@mbl.is „ÞAÐ fléttast saman örbirgð og ömurleg búsetuskilyrði, enda býr fólkið hér í slíkum hreysum að venjulegum Íslendingi dettur varla í hug að þau séu notuð sem mannabústaðir,“ segir Anna Þrúð- ur Þorkelsdóttir, sendifulltrúi hjá Rauða krossi Íslands, um þær að- stæður sem mæta starfsmönnum Rauða krossins í Mangaung, 300 þúsund manna fátækrahverfi í borginni Bloemfontein í miðri Suð- ur-Afríku. Þar hefur verið starfrækt verk- efni á vegum norska Rauða kross- ins, „Community Home Based Care“, sem er heimahlynning fyrir alnæmisjúka. Íslenski Rauði krossinn er ennfremur að setja sams konar verkefni á laggirnar í Galesewe, sem er 100 þúsund manna fátækrahverfi við Kimber- ley sem er 155 km vestan við Man- gaung. Anna Þrúður, sem var for- maður RKÍ um 6 ára skeið, hefur undanfarna sex mánuði verið sendifulltrúi í Mangaung og Gale- sewe og heldur fljótlega aftur utan í eftir jólafrí á Íslandi. A.m.k. 30 milljónir smitaðar „Það eru endalaus verkefni sem bíða Rauða krossins, því ný könn- un sýnir að í héruðunum Free State og Northern Cape í S-Afr- íku, þar sem Mangaung og Gale- sewe eru, er einna hæst hlutfall al- næmismitaðra í Suður-Afríku. Það kom mjög á óvart.“ Talið er að um 42 milljónir manna í heiminum séu alnæmissmitaðar og langflestir smitaðra eru í sunnanverðri Afr- íku, eða um 30 milljónir manna. Segir Anna Þrúður að þessi tala sé mjög varlega áætluð. Grunur leik- ur á mun meiri útbreiðslu sjúk- dómsins en vegna mikilla fordóma Afríkubúa gagnvart sjúkdóminum eru tölur vanáætlaðar. „Fólk fer ekki í HIV-próf nema tilneytt og dánarvottorðin hljóða sjaldnast upp á alnæmi, enda deyr fólk úr berklum, lungnabólgu og ýmsum öðrum sjúkdómum sem herja á það þegar HIV-veiran hef- ur brotið niður ónæmiskerfi sjúk- linganna,“ segir hún „Þetta er skelfilegur faraldur og það fylgir því talsvert andlegt álag að horfa upp á ungt fólk hrynja niður úr al- næmi. Þetta hefur það í för með sér að fjöldi barna verður mun- aðarlaus þegar mæður þeirra deyja, því ef feðurnir eru ekki dán- ir, eru þeir oft farnir burt af heim- ilunum. Þeir láta sig bara hverfa þegar erfiðleikar steðja að.“ Næturkuldar og frost á veturna Í S-Afríku er nú hásumar og um 28–36 stiga hiti, en vetur leggst að þegar tekur að vora hér á norð- urhvelinu og nær hámarki í júlí. Fylgja vetrum miklir næturkuldar og oft frost sem erfitt verður að standast í óupphituðum kofaskrifl- um í Mangaung, sem eru að mestu gerð úr spýtnarusli, múrsteinum og bútum úr bárujárnsplötum. „Fólk lifir nær eingöngu á maís- vatnsgraut ef nokkuð matarkyns er að hafa yfirhöfuð. Meðal at- vinnubærra manna er 46% at- vinnuleysi í Free State og Nort- hern Cape og hlutfallið er miklu hærra í fátækrahverfunum. Glæpatíðnin er mjög há og algengt að bílstjórar á vegum úti séu stöðvaðir, rændir og drepnir, jafn- vel fyrir einn farsíma. Það kemur mér mjög á óvart að fólk skuli svelta í því ríka landi sem Suður-Afríka er. Það er til nógur matur í landinu en mikið skrifræði og ólæsi stendur í vegi fyrir því að fólk fái þær sáralitlu bætur sem það á rétt á. Þó kemur mest á óvart hve lítið hefur þokast í baráttunni við kynþáttamisréttið á undanförnum árum. Hér í ríki Búanna er aðskilnaðarstefnan í fullum blóma.“ Sendifulltrúi hjá RKÍ um alnæmi í S-Afríku „Skelfilegur faraldur“ Morgunblaðið/Árni Torfason Anna Þrúður Þorkelsdóttir, sendifulltrúi hjá RKÍ. LOKASPRETTURINN í frágangi og innréttingum á nýjum barnaspít- ala Hringsins er nú í fullum gangi og stendur til að vígja hann hinn 26. janúar næstkomandi, á 99 ára af- mæli Kvenfélagsins Hringsins. Í kjölfarið mun starfsemi spítalans verða flutt í nýja húsnæðið. Að sögn Ásgeirs Haraldssonar, yfirlæknis á Barnaspítalanum, stendur yfir vinna við uppsetningu innréttinga og sömuleiðis er byrjað að setja upp tæknibúnað á borð við rafmagnstæki og lyftur. „Á næstu vikum verður síðan hafist handa við að koma fyrir lækningatækjum og því sem þeim tilheyrir og þessu á öllu að ljúka á næstunni,“ segir hann. Sömuleiðis segir Ásgeir und- irbúning að sjálfum flutningnum langt kominn en hann krefst tals- verðrar skipulagningar. „Við flytj- um alla sjúklinga í um 80 sjúkra- rúm auk umtalsverðrar göngudeildar, bráðamóttöku og starfsaðstöðu starfsfólks svo það er töluvert fyrirtæki að flytja alla þá starfsemi.“ Ný tæki smátt og smátt að koma Stór hluti tækjabúnaðar er flutt- ur af gamla spítalanum á þann nýja og nefnir Ásgeir sem dæmi tækja- búnað vökudeildar, sem er gjör- gæsla nýbura og fyrirbura. „Það er mjög dýr tækjabúnaður, allir hita- kassar, öndunarvélar, hjartarafsjár o.s.frv. Öll þessi tæki flytjum við með okkur en stærra húsnæði og aukin starfsemi krefst aukinna tækja og þau eru smátt og smátt að koma. Verulegur hluti þeirra verð- ur gefinn af ýmsum félagasam- tökum og fyrirtækjum.“ Að vonum bíða margir með óþreyju eftir því að nýja húsnæðið verði tekið í notkun. „Það er mikil tilhlökkun og eftirvænting, bæði hjá starfsfólkinu og skjólstæð- ingum okkar,“ segir Ásgeir. „Það eru bæði börn sem eru með lang- vinn veikindi og börn með end- urtekin veikindi eða endurteknar innlagnir. Nú sjá þau fram á að inn- an skamms batni aðstaðan verulega fyrir þau og aðstandendur þeirra og það er mjög ánægjulegt.“ Barnaspítalinn vígður á 99 ára afmæli Kvenfélagsins Hringsins Talsverða skipulagningu þarf vegna flutnings starfseminnar yfir í nýja húsnæðið en sjúklingar í um 80 sjúkrarúmum verða fluttir yfir auk göngudeildar, bráðamóttöku og aðstöðu starfsfólks. Unnið er að uppsetningu innréttinga þessa dagana en á næstunni verður lækningatækjum komið fyrir í nýja spítalanum. „Mikil til- hlökkun og eftir- vænting“ Morgunblaðið/Árni Sæberg UNDIRBÚNINGUR vegna björg- unar Guðrúnar Gísladóttur KE-15, sem liggur á 40 metra dýpi undan ströndum N-Noregs, er aftur kominn á fullt eftir nokkurra daga jólafrí björgunarteymisins á Íslandi. Ásgeir Logi Ásgeirsson, verkefna- stjóri aðgerða í Noregi, segir stefnt að því að skipið verði komið til hafnar fyrir miðjan janúar. Það fari þó eftir veðri. Upphaflega stóð til að skipið væri komið til hafnar fyrir jól, en veð- ur tafði aðgerðirnar. Nú er verið að flytja viðbótarbaujur til Lófóten sem munu gera björgunarmönnum kleift að stýra tönkum sem á að sökkva nið- ur að skipinu og nota til að lyfta því upp á yfirborð sjávar. Ásgeir Logi reiknar með að allar baujurnar verði komnar um helgina og þá geti lokaundirbúningur hafist. Veðurspáin er ágæt að hans sögn. „Það er reyndar svolítið kalt, en það hefur verið stillt og gott veður. Ég vona bara að það haldist.“ Mengunar- varnir norska ríkisins (SFT) gáfu eig- endum skipsins tíma til áramóta til að fjarlægja olíuna úr skipinu, en eig- endur hafa frest til maí til að koma skipinu af hafsbotni. Ásgeir segir að norsk yfirvöld sýni skilning á því að menn fái ekki við veðrið ráðið. „Það kom þessi suðvestan hvellur, sá eini sem komið hefur í haust. Hann gerði það að verkum að helmingurinn af kafaradögunum fór í landlegu,“ segir Ásgeir, en alls koma fjórtán Ís- lendingar að aðgerðunum auk tólf norskra kafara. Ákveðið hafi verið að fjarlægja bæði skip og olíu í einu, loka mengunina inni í skipinu og koma með það þannig að bryggju í stað þess að gata olíutankana. Um borð í skip- inu þegar það sökk voru 870 tonn af frystri síld og 300 tonn af olíu. „Þetta er mikil aðgerð, stórt verk- efni sem hefur ekki verið unnið áður og þó við höfum áætlað að gera hlut- ina á einn veg getur komið í ljós að ekki sé hægt að gera þá þannig. Þá þurfa menn að leika af fingrum fram og finna lausnir sem ganga. Óneitan- lega hafa komið upp slík atvik sem tefja verkefnið,“ segir Ásgeir Logi. Allt kapp lagt á að ná skipinu upp sem fyrst UM 40% ungmenna notuðu ekki getnaðarvörn við fyrstu kynmök og tóku því áhættu með þungun og kyn- sjúkdóma. Yfirleitt líður um ár frá því ungt fólk byrjar að meðaltali að hafa kynmök og þar til það leitar til læknis vegna getnaðarvarnar. Þetta kemur fram í rannsókn Sóleyjar S. Bender, dósents við hjúkrunarfræðideild HÍ, sem kynnt var á Vísindaráðstefnu HÍ. Meðalaldur við fyrstu kynmök reyndist vera 15,4 ár. Ungmennin hófu að nota getnaðarvarnir að með- altali 15,8 ára og byrjuðu að leita til læknis vegna getnaðarvarna að með- altali 16,2 ára. Alls notuðu 60% getn- aðarvörn við fyrstu kynmök, þar af var pillan notuð í 9% tilvika og smokk- urinn í 76% tilvika. Segir í ágripi um rannsóknina að ungt fólk á Íslandi byrji fyrr að hafa kynmök en víða í nágrannalöndunum. Fleiri stúlkur byrjuðu snemma að hafa kynmök en strákar. Bæði strák- ar og stelpur byrjuðu seinna að hafa kynmök ef þau höfðu sterk viðhorf til ótímabærrar þungunar, en fyrr ef margir vinir voru byrjaðir að hafa kynmök. Búseta hjá einu foreldri og að vera ekki í skóla virtist auka lík- urnar á að byrja fyrr að hafa kynmök. Spurningalisti var sendur til 2.500 ungmenna á aldrinum 17–20 ára úr þjóðskrá, 20% piltar og 80% stúlkur. 224 strákar og 1.181 stúlka reyndust kynferðislega virk. Svarhlutfall var 70%. Alls höfðu 83% haft kynmök einu sinni eða oftar. 40% notuðu ekki getn- aðarvörn í fyrsta skiptið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.