Morgunblaðið - 05.01.2003, Page 8

Morgunblaðið - 05.01.2003, Page 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ „Hún“ er komin til að máta græjurnar, stólinn, hárkolluna, sólina, gleraugun, olíuna, reglu- strikuna, og hvað þau heita nú öll þessi pólitísku hjálpartæki, herra. Öxulveldi hins illa? Ólík en keimlík og samofin NÁMSKEIÐ meðyfirskriftinni „Öx-ulveldi hins illa? – nútímasaga Írak og Íran“ verður haldið við Endur- menntunarstofnun Há- skóla Íslands dagana 7., 9., 13. og 16. janúar næstkom- andi. Leiðbeinandi er dr. Magnús Þorkell Bern- harðsson, lektor í nútíma- sögu Mið-Austurlanda og íslam við Hofstra-háskól- ann í New York. – Segðu okkur fyrst eitt- hvað frá námskeiðinu. „Í þessu námskeiði verð- ur fjallað um nágrannarík- in Írak og Íran á 20. og 21. öld. Þó að löndin séu ákaf- lega ólík, er pólitísk saga þeirra að mörgu leyti keimlík og samofin. Til dæmis lýsti George Bush Banda- ríkjaforseti því yfir vorið 2002 að ríkin tilheyrðu, ásamt Norður- Kóreu, öxulveldi hins illa, „axis of evil“, eins og hann komst að orði, frá sjónarmiði Bandaríkjanna. En þó að þessar þjóðir hafi verið mik- ið í fréttum að undanförnu og þá yfirleitt í neikvæðum tón er saga þessara ríkja á margan hátt saga tuttugustu aldarinnar í hnotskurn. Í þessu námskeiði verður því fjallað um ýmis mikilvæg stef í sögu Mið-Austurlanda og hvernig þau hafa verið útfærð í Írak og Ír- an. Að lokum verða umræðurnar um framtíðarskipan þessara ríkja.“ – Geturðu útskýrt fyrir okkur hvernig þú byggir námskeiðið upp? „Fyrsti tíminn tekur fyrir stofn- un Írak 1921 og tilkomu Pahlavi- veldisins í Íran. Annar tíminn tek- ur fyrir byltingarnar 1958 og 1978. Þar ræðum við m.a. hvers vegna trúarlegir hópar náðu yfirhönd- inni í Íran. Í þriðja tímanum tök- um við m.a. fyrir hugmyndafræði og stjórnarfar Saddams Hussein og Ayatollah Khomeini og í fjórða tímanum förum við yfir átta ára langt tilgangslaust stríð þessara þjóða 1980–88, Persaflóastríðið og veltum fyrir okkur framtíð þess- ara ríkja.“ – Hver er tilurð þessa nám- skeiðs? „Þetta er fjórða námskeiðið sem ég held í samvinnu við Endur- menntunardeild Háskóla Íslands og öll hafa verið um málefni Mið- Austurlanda. Þau sem á undan hafa verið hafa öll verið mjög vel sótt, 40 til 70 þátttakendur, og þar sem líklegt er að það dragi til tíð- inda á þessum slóðum á næstunni þótti mér tilvalið að stinga upp á þessu námskeiði.“ – Hverjir sitja þessi námskeið? „Það er fólk úr öllum áttum, fjölmiðlafólk, lögreglumenn, fólk tengt stofnunum og fyrirtækjum sem hafa einhver tengsl við þenn- an heimshluta og bara venjulegt fólk. Áhugi manna er mikill og Ís- lendingar eru t.d. mun upplýstari um málefni Mið-Austurlanda held- ur en t.d. almenningur í Bandaríkjunum.“ – Hver eru markmið- in með þessu nám- skeiði? „Markmiðið er að fræða fólk um Íran og Írak. Fyrir marga eru þetta bara nöfn úr fyr- irsögnum blaða og sjónvarpsfrétt- um. Nauðsynlegt er að fólk viti bakgrunn og forsögu, þarna eru mikil örlög og saga samtvinnuð sem og framtíð þessara landa sem verður að teljast frekar óljós sem stendur. Allt sem þarna gerist get- ur haft víðtæk margvísleg áhrif um heim allan.“ – Verður eitthvað ráðið í fram- tíð þessara landa? „Já, við munum velta fyrir okk- ur framtíðarhorfum þessara landa sem við munum meta út frá stjórn- málasögu þeirra. Ef stríð verður um Írak, hvort sem það stendur stutt eða langt og endar með því að stjórn Saddams yrði steypt, gæti það leitt af sér langt óvissu- ástand í Írak þar sem ýmsir hópar myndu berjast um völdin. Líkleg útkoma væri stjórn Sunni-araba sem gæti mögulega með tímanum endurlífgað gamla konungsdæmið Hashimita sem sameiningartákn. Hvað gæti gerst í Íran er einnig nokkuð áhyggjuefni. Um Íran hef- ur verið nokkur friður í ein tólf ár og hefur landið styrkt sig í millitíð- inni, bæði efnahagslega og hern- aðarlega. Hins vegar er þar mjög sterk umbótahreyfing sem ógnar veldi klerkanna sem hafa haldið völdum síðan í byltingunni. Þessi öfl takast nú á í landinu og ætla mætti að við umbótaöflunum verði ekki spornað. Hins vegar er ekki víst að klerkarnir taki því friðsam- lega. Sjálfir náðu þeir völdum með byltingu og vita því allt um slíka framvindu. Þeir vita líka að keis- arinn féll ekki hvað síst vegna þess að hann var ekki nógu fljótur að bregðast við og þeir munu ekki ætla sér að gera sömu mistökin. Þarna er því í raun eldfimt bak- land sem gæti endað með blóðs- úthellingum. Falli klerkarnir á endanum tekur stór hópur umbótasinnaðs ungs fólks við stjórnar- taumunum, en sá hópur er jafnframt mjög mis- litur í pólitík rétt eins og gengur. Það gæti farið svo að það fengi byr að reisa við keisara- dæmið gamla, ekki ósvipað og í Írak, rétt til að hafa sameining- artákn. Sonur síðasta keisara stendur nú á fertugu og er virkur talsmaður þessa vestur í Banda- ríkjunum, en þangað flutti íranska elítan öll eftir byltinguna og hefur haldið þar uppi öflugri stjórnar- andstöðu.“ Magnús Þorkell Bernharðsson  Magnús Þorkell Bernharðsson er fæddur 7.12. 1966. Stúdent frá VÍ og með BA í stjórnmálafræði og guðfræði frá HÍ 1990. MA próf í trúarbragðafræði frá Yale Divinity School og nam síðan ar- abísku í Damaskus í Sýrlandi. Doktorsnám í nútímasögu Mið- Austurlanda frá Yale-háskóla 1999. Fjallaði ritgerðin um þjóð- ernishyggju í Írak. Lektor í nú- tímasögu Mið-Austurlanda og ísl- am við Hofstra-háskóla í New York. Maki er Margrét McCom- ish lögfræðingur og eiga þau tvö börn, Bernharð 5 ára og Karen Magneu 2 ára. Ætla ekki að gera sömu mistökin NÝLIÐINN desember var einn hinn hlýjasti sem vitað er um hérlendis frá því að samfelldar mælingar hóf- ust um 1820. Þetta er samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Ís- lands. Hlýindin voru sérstaklega mikil um sunnanvert landið. Í Reykjavík var álíka hlýtt í des- ember 1933 og nú þegar meðalhit- inn var 4,5°C en hæst komst hann 12,0°C. Á Akureyri var hann hins vegar 2,4°C sem er þriðji hlýjasti desember sem vitað er um þar. Meðalhiti var -0,6°C á Hveravöllum en þar hefur desember aldrei orðið jafnhlýr og nú. Þurrt fyrir norðan – vott fyrir sunnan Úrkoma var 50% yfir meðallag í Reykjavík í mánuðinum eða 119 mm en á Akureyri mældust aðeins 16 mm sem er tæplega þriðjungur meðalúrkomu. Er mánuðurinn einn af fimm þurrustu desembermán- uðum þar frá því að mælingar hóf- ust 1928. Þá mældust sólskinsstundir 7,6 í Reykjavík í desember sem er 5 stundum undir meðaltali. Á Akur- eyri mældist sólskin í aðeins 20 mínútur eins og algengt er þar um slóðir. Desember var með eindæmum snjólaus en aldrei varð alhvítt í Reykjavík og hefur það aðeins tvisvar gerst áður, árin 1952 og 1987. Aldrei varð heldur alhvítt á Akureyri í desember nú og verður að teljast líklegt að snjóleysið norð- anlands sé einsdæmi að því er fram kemur í frétt Veðurstofunnar. Desember fádæma hlýr og snjólítill

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.