Morgunblaðið - 05.01.2003, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 15
KONUNGLEGA breska fuglavernd-
arfélagið (Royal Society for the
Protection of Birds) hefur sent Davíð
Oddssyni forsætisráðherra bréf
vegna fyrirhugaðrar byggingar Kára-
hnjúkavirkjunar. Í bréfinu varar fé-
lagið alvarlega við afleiðingum fram-
kvæmdanna fyrir fuglalíf á svæðinu.
Höfundur bréfsins, Graham
Wynne, aðalframkvæmdastjóri fé-
lagsins, segir að félagið og Alþjóða-
fuglaverndarsamtökin líti svo á að
áhrif þessara framkvæmda séu svo al-
varleg á sameiginlega fuglastofna að
þau gefi tilefni til að farið verði fram á
formlega málshöfðun á vettvangi
Bernar-sáttmálans, sem Íslendingar
eru aðilar að, snemma á þessu ári.
Lýsir hann jafnframt þeirri von
sinni að til þess þurfi ekki að koma og
fer fram á það við forsætisráðherra að
hann beiti sér fyrir því að fram-
kvæmdum verði tafarlaust frestað.
Slæm áhrif á
heiðagæsastofninn
Í bréfinu segir einnig að aðgerð-
irnar á svæðinu muni hafa sérstak-
lega slæm áhrif á stofn íslensk-græn-
lensku heiðagæsarinnar. Með
framkvæmdunum yrði tekin áhætta á
að verulega yrði gengið á heildarstofn
heiðagæsarinnar. Það veki um leið al-
varlegar spurningar um hvort Íslend-
ingar standi við alþjóðasáttmála um
umhverfismál.
Bent er á að framkvæmdirnar
muni hafa áhrif á alþjóðlega mikil-
vægu fuglasvæði sem sé dvalarstaður
4% Evrópustofns kjóans (arctic skua)
og 2% grágæsarinnar í Evrópu.
Félagið sendi einnig afrit af bréfinu
til umhverfisráðherra og álfyrirtæk-
isins Alcoa. Í bréfinu er lýst miklum
áhyggjum af því að framkvæmdir
skuli þegar vera hafnar við Fremri-
Kárahnjúka þrátt fyrir fyrirliggjandi
álit um umhverfisáhrif fram-
kvæmdanna.
Konunglega breska fuglaverndar-
félagið er stærsta fuglaverndarfélag í
heiminum, það er í tengslum við
Fuglaverndarfélag Íslands og eru
bæði félögin aðilar að Alþjóðafugla-
verndarsamtökunum, BirdLife Int-
ernational.
Konunglega breska fuglaverndarfélagið varar við afleiðingum virkjunar við Kárahnjúka
Gefur tilefni til málshöfðunar á
vettvangi Bernar-sáttmálans
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 18 ára pilt í hálfs árs
skilorðsbundið fangelsi fyrir líkams-
árás aðfaranótt 17. nóvember 2001 í
miðbæ Reykjavíkur. Honum var gef-
ið að sök að hafa veist að 34 ára
gömlum manni með eftirlíkingu af
skammbyssu, krafið hann um pen-
inga og misþyrmt honum í félagi við
jafnaldra sinn.
Hann var sakfelldur fyrir vopna-
lagabrot með því að hafa borið loft-
byssuna á almannafæri en sýknaður
af ákæru fyrir ránstilraun. Dómur-
inn taldi það til refsiþyngingar að
ákærði hefði veist að manninum á al-
mannafæri algjörlega að tilefnis-
lausu, mundað byssu að honum og
barið hann þrívegis í höfuðið með
henni.
Ákærði hlaut 60 daga fangelsis-
dóm fyrir fíkniefnabrot í október
2001 og fjögurra mánaða fangelsi
fyrir þjófnaðarbrot í desember sama
ár. Var síðari dómurinn dæmdur upp
að þessu sinni og ákærða gerð refs-
ing í einu lagi sem varð hegningar-
auki að hluta til. Félagi piltsins sem
ákærður var fyrir þátttöku í árásinni
var sýknaður í málinu.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Verjandi sakfellda
var Atli Gíslason hrl. Verjandi þess
sem dómurinn sýknaði var Ólafur
Örn Svansson hdl. Málið sótti Katrín
Hilmarsdóttir fyrir hönd ákæru-
valds.
Sex mán-
aða fang-
elsi fyrir
tilefnis-
lausa árás
♦ ♦ ♦
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, segist stefna að
því að kveða upp úrskurð í kæru
vegna Norðlingaölduveitu um miðj-
an þennan mánuð. Hann segir að
mikið sé búið að vinna í málinu og
það sé að styttast í verklok.
Jón var skipaður umhverfisráð-
herra til að taka afstöðu til kærunn-
ar. Lögbundnir frestir til að afgreiða
kæruna eru liðnir.
„Ég geri mér grein fyrir því að
frestirnir eru löngu liðnir. En það
segir í lögunum um umhverfismat að
ráðherra hafi ríka rannsóknar-
skyldu. Í ljósi þess hef ég sett hóp
manna í að vinna fyrir mig í þessu.
Ég hef líka sjálfur rætt við marga og
reynt að setja mig vel inn í málið. Ég
vil gjarnan fara að ljúka þessari
vinnu og vona að það takist um miðj-
an þennan mánuð,“ sagði Jón.
Úrskurðað
um miðjan
mánuðinn
Norðlingaölduveita
BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur sam-
þykkt að hækka almennt gjald í
Sundlaug Kópavogs úr 200 í 220 kr.
Breytingin tók gildi um áramót.
Aðgangseyrir barna verður
óbreyttur og kostar stakur miði 100
krónur og tíu miða kort kostar 500
krónur. Tíu miða kort fyrir fullorðna
hækkar úr 1.500 í 1.650 krónur.
Gjaldskrá
hækkaði um
áramót
Sundlaug Kópavogs
www.nowfoods.com