Morgunblaðið - 05.01.2003, Side 18

Morgunblaðið - 05.01.2003, Side 18
18 SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ SÁ, ER þetta ritar, var upp-alinn hér í Reykjavík, ogkreppuárin frá 1931–40voru hans bernskuár.Reykjavíkurhöfn, sem hefur oft verið nefnd lífæð Reykja- víkur, gegndi á árum áður tiltölu- lega miklu stærra hlutverki í bæj- arlífinu en hún gerir í dag. Umferð almennings um hafnarsvæðið var meiri, enda fóru farþegaflutningar innan lands þá að stórum hluta fram með skipum og allar utan- landsferðir. Hafnarbakkarnir og bryggjurnar voru ævintýravett- vangur fyrir okkur drengina í bæn- um. Við undum oft við að horfa á skipin og athafnalífið. Svo sterkt togaði höfnin, að væri gefið frí í kennslustund í Menntaskólanum á mínum árum þar (1945–51), gekk hluti okkar bekkjarbæðranna gjarnan niður að höfn til að fylgjast með atvinnulífinu. Höfnin hefur lengi skapað borg- arbúum viðurværi í margþættum skilningi. Þar hefur lífsnauðsynjum verið skipað á land. Þaðan hafa út- flutningsvörur okkar farið að stórum hluta til viðskiptamanna á erlendri grund. Höfnin var þá einn helsti snertiflötur okkar við al- þjóðasamfélagið. Síðast en ekki síst hefur hún skapað mikla atvinnu. Eitt af því, sem lengi setti sterkan svip á umsvif og umhverfi við Reykjavíkurhöfn, var kolainnflutn- ingurinn. Á lóðum við höfnina aust- anverða voru miklir haugar af kol- um, sem flutt voru inn, einkum frá Bretlandi og Póllandi. Kveikjan að þessari ritsmíð eru minningar höf- undar um tvo menn, sem báðir koma við sögu Reykjavíkurhafnar fyrir iðju sína og störf tengd kola- öflun og uppskipun. Talið er, að kol hafi komið fyrst hingað til lands um eða fyrir miðja 18. öld.1 Innflutningur var þá í mjög smáum stíl, trúlega fyrst og fremst til upphitunar í húsum kaupmanna. En svo tóku kolaofnar að verða æ algengari, og um 1870 var innflutningurinn orðinn um þrjú þúsund tonn.2 Er skip fóru að ganga fyrir gufuvélum, kolaelda- vélar og kolakyntir miðstöðvarkatl- ar urðu algeng tæki og Gasstöðin í Reykjavík tók til starfa, þá marg- faldaðist kolanotkunin. Svo fór, að allt að 96 þúsund tonn af kolum voru flutt til Reykjavíkur árlega.3 Ýmsar tegundir kola voru fluttar inn auk venjulegra steinkola svo sem smíðakol, gljákol og sérstök kol til vinnslu í Gasstöðinni.4 Fyrst var uppskipunin þannig, að kolin voru flutt í pokum á uppskip- unarbátum utan af ytri höfninni og að smábryggjum kaupmanna. Það- an báru bæði karlar og konur pok- ana á bakinu í land. Þetta skánaði, þegar bryggjur stækkuðu og hest- vagnar komu til sögunnar. Eftir að millilandaskipin gátu lagst að bryggju, var kolunum mokað í mál eða stór trog í lestunum, þau síðan hífð upp með spilum skipanna og hvolft úr þeim í hestvagnana og síðar á bíla. Þá vildi stundum fara eitthvað á bryggjuna og jafnvel milli skips og bryggju. Úr þessu var reynt að bæta, með því að smíða trérennur eða sliskjur til að stjórna rennslinu á vagnana.5 Mesta framförin var, þegar fyr- irtækið Kol og salt hf. reisti mikinn uppskipunarkrana og tók hann í notkun 1926. Hann fékk nafnið Hegri, en var venjulega nefndur Kolakraninn. Frá honum var svo- nefndur „kjaftur“ látinn síga niður í kolalestarnar. Hann fyllti sig þar af kolum, var dreginn upp og síðan inn yfir birgðasvæðið, þar sem hann var tæmdur í bingina. Færi stór kolamoli í kjaftopið, lokaðist það ekki alveg, og þá hrundi gjarn- an eitthvað úr, bæði niður á bryggjuna og í sjóinn. Algengt var, bæði á kreppuárunum og hvenær sem lítið var um atvinnu, að menn væru á höttunum eftir því sem féll á bryggjuna. Slík kolatínsla var bönnuð meðan Hegrinn var að störfum, en látin óátalin þess utan, svo sem í matartímum og eftir vinnu á kvöldin. Þegar best lét, gátu menn farið langt í að fylla 50 kg poka yfir daginn, en ekki var það algengt. Þegar búið var að losa skipið, var lag til að reyna að slæða upp, það sem í sjóinn hafði farið. Þegar leið á stríðsárin, gafst slíkt lag sjaldan, því þá voru oftast skip við bryggjuna. Þá höfðu líka allir næga atvinnu, höfðu ekki tíma í þetta og enda það góðar tekjur, að þessu var ekki sinnt og lagðist það þá alveg niður. Gott dæmi um mik- ilvægi kolanna fyrir daglegt líf var, að kolaverslanirnar voru oft beðnar um kol í tombóluvinninga. Var þá stundum einn og einn poki í vinn- ing, en þegar verulega átti að freista fólks til að koma á tombólu, þá kom fyrir að hæsti vinningur var heilt tonn af kolum, sem um það leyti mun hafa kostað um 50 krónur.6 Þá kemur að mönnunum, sem um var getið í upphafi og skópu höfundi minningar. Þeir hétu Einar Eiríksson og Þorgeir Gíslason. Þeir eru nefndir hér vegna vinnubragða, sem þeir stunduðu við Reykjavík- urhöfn, atvinnuhátta sem nú eru horfnir og hálfgleymdir. Vorið 1934 fluttu foreldrar mínir í íbúð á fyrstu hæð hússins að Bergþórugötu 15. Einar Eiríksson (1893–1972) bjó þá í kjallaraíbúð- inni ásamt eiginkonu sinni Þórunni Bjarnadóttur og börnum þeirra, Guðbjörgu, Kristni, Bjarna og Guð- mundi Gunnari. Mágur hans, Þor- geir Gíslason (1890–1948), bjó í næsta húsi, númer 13, ásamt sinni konu, Kristínu Eiríksdóttur, og tveimur sonum, Gísla og Guðna. Húsin voru bæði kynt með kolum, og í okkar húsi var kostnaði við kolakaup skipt niður á íbúðirnar eftir ákveðnu hlutfalli. Kolaversl- anirnar sendu kolin í pokum á vörubílum, sem óku af Vitastígnum inn s.k. Öskustíg, milli Bergþóru- götu og Njálsgötu. Hann dró nafn sitt af því, að „öskubílarnir“ óku þar inn til að hirða ösku og annað húsasorp úr öskutunnunum, sem stóðu við hvert hús. „Kolakarlarn- ir“, sem voru yfirleitt tveir á hverj- um bíl, báru pokana á bakinu inn í kolageymslu í miðstöðvarherberg- inu eða í kolakassa utan dyra. Ég man, að foreldrar mínir töluðu um, að Einar og fjölskylda hans þyrftu sjaldan að kaupa kol og dáðu atorku hans við að afla þeirra sjálf- ur niður við höfn. Einar var í senn lærður mótoristi og járnsmíðameistari að iðn. Hann hafði flutt hingað til Reykjavíkur 1929 austan af Eyrarbakka. Einar vann á þessum árum við mulnings- vélina í grjótnámi bæjarins, sem þá var í grennd við Sjómannaskólann, og sér enn í stálið þar að baki húsanna við Skipholt 50. Hann var svo í aukavinnu við Bæjarhesthús- in, sem þá voru bak við gamla Strætisvagnahúsið, sem nú er verslunarhús að Snorrabraut 56. Þar járnaði Einar hestana og gerði við vagnana. Hann var afburðadug- legur maður, verklagni og útsjón- arsemi voru honum í blóð borin og sérhvert verkfæri lék í höndum hans. Eitt af markmiðum þessa manns var að eignast eigið hús- næði. Þess vegna lagði hann oft nótt við nýtan dag til að afla tekna. Eitt af því, sem Einar tók sér fyrir hendur, var að afla kola af hafnarbotninum. Hann hafði aldrei tíma til að vera á hafnarbakkanum og tína upp eftir Hegrann. En væri ekki skip þar að kveldi eða á laugardagseftirmiðdegi, þegar hann átti frí frá störfum, þá fór hann marga ferðina niður að höfn með handtroll og poka á handvagni. Eldri synir hans tveir fóru gjarnan með til skiptis, hjálpuðu til við að koma kolunum í poka og ýttu svo á eftir vagninum heim. Trollið lá heima í bakgarðinum, þegar ekki var verið að nota það. Þetta er höf- undi allt svo minnisstætt, að hann fékk Bjarna, son Einars, til að teikna trollið og rifja upp minn- ingar um þessa horfnu atvinnu- grein, sem engar ritaðar heimildir virðast til um frá Reykjavíkurhöfn, þótt þetta stunduðu ýmsir aðrir á þessum árum bæði hér og víðar.7 Sjálfsbjargarviðleitni á kreppuárunum Á kreppuárunum þró- aðist sú list að slæða kol upp af botni Reykjavík- urhafnar. Það var liður í sjálfsbjargarviðleitni duglegra manna. Þórir Stephensen rifjar hér upp mannlífssögur frá hafnarbakkanum.                 !      Þorgeir Gíslason Einar Eiríksson Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Skip liggja við bryggju í Reykjavíkurhöfn árið 1947 og yfir þeim gnæfir kolakraninn. Mannlífsmyndir frá Reykjavíkurhöfn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.