Morgunblaðið - 05.01.2003, Page 19
Myndir Bjarna og skýringar
sýna þetta atvinnutæki vel. Einar
smíðaði bæði rammann og tönnina
og reið sjálfur vörpuna. Er hann
hafði sökkt trollinu, brá hann drátt-
artauginni um öxl sér og dró það
eftir botninum meðfram bakkanum,
aðallega fyrir framan Kolakranann
en einnig stundum við togara-
bryggjuna, þótt þar væri minna að
hafa. Ekki minnist Bjarni þess, að
mikið væri í pokanum, þegar dreg-
ið var upp, en alltaf einhver reyt-
ingur. Hann man ekki heldur eftir
nema einum manni öðrum við þessa
iðju á sama tíma. Einar mun ekki
hafa stundað þetta lengur en til
1938.8
Þorgeir Gíslason flutti hingað
með fjölskyldu sína austan af
Stokkseyri 1923. Hann vann hér
ýmis störf hin fyrstu ár og varð
þekktur fyrir dugnað og verklagni.
Á árunum 1925–26 hóf hann, ásamt
Guðmundi Jónssyni í Múla við Suð-
urlandsbraut, að taka að sér upp-
skipun í ákvæðisvinnu og ekki síst
á kolum. Undirbuðu þeir á stund-
um Kolakranann, og unnu þannig
mikið fyrir Kveldúlf hf., Gasstöðina
og fleiri. Þeir höfðu aðgang að liði
úrvalsmanna, sem þeir stjórnuðu
við verkið. Þorgeir smíðaði sérstak-
ar sliskjur, sem reyndust vel. Eitt-
hvað munu innflytjendur hafa
gagnrýnt, að of mikið af kolum færi
í sjóinn. Talið er, að þeir Þorgeir
og Guðmundur hafi fyrstir brugðist
við þeirri gagnrýni og farið að nota
undirbreiðslur milli skips og
bryggju. Þær munu hafa verið not-
aðar í fyrsta skipti, er þeir unnu
eitt sinn fyrir Kveldúlf hf. Þeir
Ólafur og Richard Thors, sem þar
voru í forystu, komu þá niður á
höfn og lýstu sérstakri ánægju með
þennan búnað. Gasstöðin, er var
þar sem Lögreglustöðin stendur
nú, var fyrst með eigin bryggju í
Rauðarárvíkinni, en síðar var gas-
kolunum einnig skipað upp í höfn-
inni. Gísla Þorgeirssyni, sem oft
var að störfum með föður sínum, er
það minnisstætt, þegar röð hest-
vagnanna með kolin var óslitin neð-
an af bryggju og inn í Gasstöð.9
Síðar vann Guðmundur í Múla
mikið að því að útvega möl í kjöl-
festu fyrir skip, sem sigldu tóm
héðan. Þorgeir gerðist verkstjóri
við byggingar hjá Einari Kristjáns-
syni húsasmíðameistara og síðar
Byggingafélaginu Stoð hf. Vann
hann þannig m.a. við Háskólann,
Bæjarhúsin við Hringbraut, Arn-
arhvol og Iðnskólann. Þorgeir var
einnig í hópi þeirra, sem öfluðu sér
kola til heimilisnota af hafnarbotn-
inum, en mun hafa hætt því um það
leyti sem höfundur fer að muna eft-
ir Einari við þessa iðju.10
Tómas Guðmundsson orti hið fal-
lega ljóð Við höfnina. Hann segir
þar, að raust Kolakranans flytji
„boðskap hins nýja dags“. Hegrinn
breytti öllum vinnuaðferðum. Sí-
aukin vélvæðing og tækni hafa þeg-
ar valdið því, að jafnvel hann er
horfinn. Reykjavíkurhöfn tekur
breytingum samkvæmt boðskap
hvers nýs dags. Um leið verða
fornir atvinnuhættir að sögu, sem
þarf að skrá. Þess vegna hafa fram-
angreindar mannlífsmyndir verið
færðar á blað.
Heimildir:
1 Guðmundur Jónsson, Magnús S. Magn-
ússon: Hagskinna 1997, s. 436.
2 Halldór Bjarnason: The foreign trade of
Iceland, 1870-1914, doktorsritgerð 2001,
töfluviðauki.
3 Guðjón Friðriksson: Saga Reykjavíkur
Bærinn vaknar 1870–1940 Fyrri hluti
1991, s. 327.
4 Ásgeir Jónsson fv. frkvstj. Kol og salt hf.,
Frímann Jónsson fv. forstj. Ísaga og Gísli
Þorgeirsson fv. kaupm. 2002.
5 Guðjón Friðriksson 1991, I, 327. Ásgeir
Jónsson 2002.
6 Guðjón Friðriksson 1991, I, 327. Ásgeir
Jónsson og Frímann Jónsson 2002.
7 Pétur G. Kristbergsson: Horfin handtök
1998, s. 39–49.
8 Bjarni Einarsson húsgagnasm. 2002.
9 Gísli Þorgeirsson 2002. Guðni Þorgeirsson
fv. kaupm. 2002. Guðjón Friðriksson 1991:
I, 381.
10 Gísli Þorgeirsson 2002. Guðni Þorgeirsson
2002.
Höfundur er fyrrverandi dómkirkju-
prestur og staðarhaldari í Viðey..
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 19
RX300
LEXUS STYRKIR SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
19
84
5
0
1/
20
03
LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS
PERPETUUM MOBILE
VÍNARTÓNLEIKAR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
V Í N A R T Ó N L E I K A R S I N F Ó N Í U H L J Ó M S V E I T A R Í S L A N D S 8 . J A N Ú A R K L . 1 9 . 3 0 , 9 . J A N Ú A R K L . 1 9 . 3 0 , 1 0 . J A N Ú A R K L . 1 9 . 3 0
O G 1 1 . J A N Ú A R K L . 1 7 . 0 0 M I ‹ A P A N T A N I R O G S Í M A S A L A Í S Í M A 5 4 5 2 5 0 0 .
ÚTSALA
20-60%
afsláttur
af öllum skóm
Dömu-, herra- og barnaskór
Kringlunni 8–12 sími 568 6211
Skóhöllin Firði, Hf. sími 555 4420