Morgunblaðið - 05.01.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.01.2003, Blaðsíða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 25 LEIKHÓPURINN Á senunni sýnir leikritið Kvetch á nýja sviði Borg- arleikhússins og verður fyrsta sýningin næstkomandi fimmtudag kl. 20. Leikritið var frumsýnt í Vesturporti í október sl. „Sýningin fékk frábæra dóma og aðsókn varð langt fram úr björtustu vonum,“ segir Felix Bergsson, einn leikaranna í sýn- ingunni. „Í kjölfarið var farið að skoða að flytja sýninguna í stærra húsnæði og varð úr að samningar tókust við Borgarleik- húsið og verður sýningin sýnd á nýja sviðinu næstu vikurnar.“ Kvetch fjallar um fimm einmana manneskjur í firrtum heimi og stöðugan kvíðann sem nagar þau inn að beini. Verkið er farsi sem gerist í kringum þau Frank og Donnu, hjón sem eiga fátt orðið sameiginlegt nema ef vera skyldi endalausa angist og hræðslu hvort við annað og umhverfið. Leikararnir eru, auk Felix, Edda Heiðrún Backman, Steinn Ármann Magnússon, Ólafur Darri Ólafsson og Margrét Ákadóttir. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Morgunblaðið/Jim Smart Margrét Ákadóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Edda Heiðrún Backman, Steinn Ármann Magnússon og Felix Bergsson í Kvetch. Kvetch í Borgarleikhúsið Sigrún Birgisdóttir arkitekt held- ur fyrirlestur í Norræna húsinu kl. 12.05–13 á þriðjudag. Fyrirlest- urinn er í hádegisfundaröð Sagn- fræðingafélags Íslands sem haldin er í samstarfi við Borgarfræðaset- ur. Erindi sitt nefnir Sigrún Borg- in: rými – flæði – byggð og fjalla um einkenni hinnar vestrænu borg- ar út frá byggðamynstri miðkjarna fyrri tíma sem breyst hefur í dreifð- ar jaðarbyggðir og borgarflæmi nú- tímans. Fjallað verður um bæði fyrri og seinni tíma hugmyndir er varða formgerð hinnar útópísku borgar og hina margbreytilegu þætti og áhrifavalda á nútíma kjör- lendi borgarbúa. Fyrirlesturinn er hluti af fundaröðinni „Hvað er borg?“ sem staðið hefur yfir frá því í september 2002. Samtals verða fjórtán fyrirlestrar fluttir um þetta efni en röðinni lýkur í byrjun apríl. Sigrún Birgisdóttir er lektor í inn- anhúss- og landslagsarkitektúr við Buckinghamshire Chilterns Uni- versity College á Bretlandi. Auk þess starfar hún sjálfstætt og í samstarfi við arkitektastofuna Cherie Yeo Architecture and De- sign. Hún hefur einnig sinnt kennslu við Central St. Martin’s í London og starfað á arkitektastof- unum Pip Horne Architecture and Design, Pierre d’Avoine Architects og David Connor Architects. Upplýsingar um dagskrá hádeg- isfundanna eru á slóðinni www.aka- demia.is/saga og www.borg.hi.is. Á NÆSTUNNI NÁMSKEIÐ í kvikmyndaklippingu verður hjá Kvikmyndaskóla Íslands dagana 10., 11. og 12. janúar. Kenn- ari er Valdís Óskarsdóttir. Horft verður á myndir í endanlegri útgáfu og síðan skoðað fyrsta klipp. Fimmtudaginn 9. janúar verða þrjár bíósýningar í Kvikmyndaskóla Ís- lands þar sem þátttakendum er gef- inn kostur á að horfa á þær myndir sem verður fjallað um á námskeiðinu en Valdís hefur klippt þær allar. Myndirnar eru Julien Donky-boy, 1999, sýnd kl. 13, Festen, 1998, sýnd kl. 15, Finding Forrester, 2000, sýnd kl. 17. Þátttakendur skrái sig á sýningar í Kvikmyndaskólanum. Námskeið í kvikmyndaklippingu Alltaf á þriðjudögum Tölvu- og rekstrarnám Námsbraut fyrir þá sem vilja læra bókhald og fá virkilega góða tölvukunnáttu. Vinsælt nám fyrir þá sem vilja skipta um starf eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Morgun- og kvöldtímar, 280 kennslustundir. Verð kr. 196.000. Tölvunotkun 1, 2 og 3 Stutt og hnitmiðuð námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. 60 kennslustundir, engin heimavinna. Morgun-, kvöld- og dagtímar. Verð aðeins kr. 45.000 hvert námskeið. Tölvur og vinnuumhverfi 1 og 2 Ítarlegt og gagnlegt nám. Bæði fyrir þá sem eru að byrja og þá sem ætla sér að ná mjög góðum tökum á tölvunni. Morgun- og kvöldtímar, 120 kennslustundir. Verð kr. 84.000 hvort námskeið. Einnig kennt í fjarnámi. Tölvur og vinnuumhverfi 50+ Sérstakur hópur fyrir þá sem eru um fimmtugt og eldri. Nú er tækifærið fyrir þá sem finnst þeir hafa misst af lestinni. Farið verður ítarlega í öll grunnatriði tölvunotkunar þannig að þátttakendur verða eftir námskeiðið öruggir í allri almennri tölvunotkun. Morgun- og kvöldtímar, 120 kennslustundir. Verð kr. 84.000. Reyndir kennarar og vingjarnlegt andrúmsloft. Tölvur og kennsluumhverfi, fjarnám Hentar þeim kennurum sem vilja styrkja stöðu sína og verða öruggir tölvunotendur. Þetta nám er ætlað byrjendum á tölvur en er líka heppilegt fyrir þá sem vilja bæta þá grunnþekkingu sem þeir hafa. 160 kennslustundir, verð kr. 112.000. Hagnýt netumsjón fyrir kennara Þetta nám er sérstaklega hannað fyrir þá sem þurfa að sjá um netkerfi í skólum eða hafa umsjón með tölvustofunni. 100 kennslustundir, verð aðeins kr. 120.000. Tölvuþjónusta 1 og 2 Tvö stutt námskeið fyrir þá sem vilja læra hagnýt atriði í uppsetningu og þjónustu við PC tölvur. Námskeiðin eru að miklu leyti verkleg. Hvort námskeið er þrír dagar og kostar kr. 45.000. Athugið að félagsmenn flestra stéttarfélaga eiga rétt á styrk úr fræðslusjóðum. Nánari upplýsingar í síma 568 5010. R a f i ð n a ð a r s k ó l i n n k y n n i r f j ö l b r e y t t t ö l v u n á m á v o r ö n n 2 0 0 3 Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · skoli@raf.is · www.raf.is Fyrir þá sem vilja ná árangri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.