Morgunblaðið - 05.01.2003, Side 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ELÍAS M.V. Þórarinsson var
fæddur á Hrauni í Keldudal í Dýra-
firði árið 1926 og lést af slysförum ár-
ið 1988. Hann var alla tíð bóndi, báta-
smiður, refaskytta og sitthvað fleira
fékkst hann við. Fram eftir árum bjó
hann í Keldudalnum og var síðastur
bóndi þar, en á seinni árum átti hann
heima á Sveinseyri. Ungur að árum
kvæntist hann eftirlifandi konu sinni,
Kristjönu S. Vagnsdóttur, og eignuð-
ust þau átta börn. Alla tíð vann Elías
hörðum höndum og lagði nótt við dag
og þótti afar duglegur maður. Dýr-
firðingar kölluðu hann sveitarskáld
sitt, því að hann var ótrauður að fara
með kvæði sín á mannamótum, orti
afmæliskvæði og útfararljóð og frá
honum flugu margar smellnar stök-
ur. Sjálfur kallaði hann sig Jarlinn af
Keldudal.
Ekki fékk Elías notið mikillar
skólagöngu. Stopull farskóli varð að
nægja honum. En kveðskapur hans
ber þess merki að hann hefur verið
talsvert vel lesinn, einkum í ljóðmæl-
um eldri skálda.
Elías mun hafa byrjað ungur að
yrkja. Elsti skáldskapurinn í þessu
safni er frá árinu 1942, þegar hann
var sextán ára, og sleitulaust orti
hann til hinsta dags.
Nú hafa börn og tengdabörn Elías-
ar, ásamt ekkju hans, tekið sig til og
safnað saman öllum þeim skáaldskap
hans, sem til náðist. Á prentuðu um-
slagi utan um bækurnar segir, að þau
hafi lagt mikla vinnu í þá söfnun:
„Vísur og kvæði fundum við t.d. á
spýtum, fjárhúsveggjum, bátum, sem
hann smíðaði, en kveðskapur Elíasar
varð til í dagsins önn og þá hripað
niður á allt það, sem var hendi næst.“
Árangur þessa söfnunarstarfs
varð fjögurra binda safn, liðlega
1.300 blaðsíður.
Er nú rétt að lýsa stuttlega inni-
haldi þessara fjögurra binda.
Í fyrsta bindinu eru óársett kvæði,
en greinilega frá ýmsum tímum.
Þarna er yfirleitt hinn allra snotrasti
skáldskapur og virðist sem í þetta
bindi hafi verið safnað því besta, sem
höfundur orti. Hér er að finna nokkur
mikil kvæði, sem hverju alþýðuskáldi
væri sómi að. Má nefna Galdra-Loft,
Bjarna á Sjöundá, Dauða böðulsins,
Axlar-Björn, Stóra-Jón og faktorinn
og kvæðið Á heiðinni.
Mörg önnur prýðileg
kvæði eru í þessu bindi.
Þá eru hér nokkrar þul-
ur, sem ég kann að vísu
ekki eins vel að meta.
Þrjú viðtöl eru hér við
Elías og þrjár minning-
argreinar.
Annað bindið er allt
annars eðlis. Það ber yf-
irtitilinn Gránuvísur og
stökur. Hér eru vísur
skráðar í aldursröð.
Líklega eru birtar
vísnakompur höfundar.
Sú fyrsta heitir Grána I
(1942–1943), næsta
nefnist Grána II (1942–
1943) og sú þriðja Gránudóttir 1944.
Er sú fyrsta langlengst. Síðan koma
ársettar stökur í flokkum, 1940–50,
1950–60, 1960–70, 1970–80, 1980–88.
Æði er skáldskapurinn höttóttur
hér. Víða er að finna ágætar stökur,
en einnig ber talsvert á lélegum leir-
burði, ljótum vísum og klámi heldur
grófu.
Þriðja bindi ber yfirskriftina Gam-
anmál. Fer þar langmest fyrir tæki-
færiskvæðum. Sex kvæði eru um
frystihússkemmtun, 21 kvæði um
hjónaböll, þrjú þorrablótskvæði og
fimmtán sjómannadagskvæði ásamt
ýmsu fleiru. Yfirleitt er þetta laglega
ort, en höfðar varla til annarra en
þeirra sem til þekkja.
Þá er fjórða bindið. Fyrri hluti
þess er ljóð og má þar finna allmörg
lagleg ljóð og vísur. Í öðrum hluta eru
sögur og leikrit. Sögurnar eru fjórar
stuttar smásögur og leikritið eitt.
Þetta er smellinn og fyndinn sam-
setningur og sýnir, að höfundurinn
var prýðilega ritfær og hefði gjarnan
mátt láta fleira frá sér fara af því tagi.
Í þriðja lagi eru svo Eftirmæli. Þar
hefur Elías verið heldur betur stór-
tækur, því að eftirmælin eru rúmlega
fimmtíu talsins.
Fá skáld þola að allt sé birt, sem
þau hafa borið við að yrkja allt frá
fyrstu tilraunum. Sjálf sjá þau einatt
til þess að vanburða tilraunir þeirra
flækist ekki fyrir fótum manna,
brenna þær eða eyða með öðrum
hætti. Hafi eitthvað af slíku fundist
að mönnum látnum þykir það ekki
alltaf velgerningur að birta það, enda
þótt sumir telji hvern snepil stór-
skáldanna gulls ígildi.
En Elías M.V. Þórarinsson var
vitaskuld ekki stórskáld og að mínum
dómi þoldi hann illa að svo nærri væri
gengið ljóðasyrpum hans.
Hér hefði því verið þörf á að grisja
allverulega. Hygg ég að betur hefði á
því farið að hafa bindin ekki nema
tvö. Þá hefðu hinir
bestu eiginleikar
skáldsins komið betur
fram að ég hygg. En
þeir voru fremur öðru
rík samúð hans með lít-
ilmagnanum og öllum
þeim sem áttu undir
högg að sækja og sterk
og fölskvalaus ættjarð-
arást eða öllu heldur
ást á því umhverfi sem
fóstraði hann.
Bækur þessar eru
sérstaklega vel útgefn-
ar. Prófarkir hafa verið
ágætavel lesnar og efn-
isskrár eru eins og best
verður á kosið. Ágóði
af sölu bókanna rennur í Þyrlusjóð og
er það vissulega virðingarvert.
Ljóðasafn Jarlsins
af Keldudal
BÆKUR
Ljóðmæli
Elías Mikael Vagn Þórarinsson frá Hrauni
í Keldudal (Jarlinn af Keldudal). Útg.: Sig-
geir Stefánsson, Hrafngerður Ösp Elías-
dóttir, 2002. I.b. 342.bls., II.b. 344 bls.,
III.b. 313 bls., IV.b. 320 bls.
ANDBYR – LJÓÐASAFN I–IV
Elías M.V.
Þórarinsson
Sigurjón Björnsson
Árbók Barða-
strandarsýslu
1980–1990 er
komin út. Rit-
stjórar eru
Jóhann Ás-
mundsson, Ari Ív-
arsson og Ragna
Steinunn Eyjólfs-
dóttir. Árbókin
kom fyrst út árið 1948 og síðast kom
út 12. árgangur Árbókarinnar sem
náði yfir árin 1975–1979 en hug-
mynd ritstjórnar er að framvegis komi
Árbókin út árlega. Meðal efnis nýju
bókarinnar má nefna: Samgöngur og
samgöngumál í Rauðasandshreppi
eftir Ara Ívarsson og einnig á Ari þar
greinarnar Á bökkum Bæjaróss, Pétur
Jónsson, fræðamaður frá Stökkum
og Lestrarfélag Rauðsendinga.
Annála úr mörgum hreppum sýsl-
unnar og skrár yfir látna, sem ýmsir
hafa skráð. Þá eru greinar eftir Þórð
Jónsson frá Látrum, Lárus J. Guð-
mundson, Sigríði Guðbjartsdóttur,
Össur Guðbjartsson, Hjört Þór-
arinsson, Gísla Konráðsson, Sighvat
Borgfirðing, Júlíus Sigurðsson á Litla-
nesi og Magðalenu Thoroddsen.
Snorri Jóhannesson, formaður Barð-
strendingafélagsins, ritar skýrslu fé-
lagsins fyrir árið 2001 og María S.
Gísladóttir ritar skýrslu kvennadeildar
þess.
Útgefandi er nýstofnað Sögufélag
Barðastrandarsýslu og Vestfirska for-
lagið. Bókin er 243 bls., prentuð í
Gutenberg. Barðstrendingafélagið
styrkir endurútgáfuna. Verð: 2.150 kr.
Árbók
F l o k k u r Gjalddagi
Innlausnarverð*
á kr. 10.000,00
1989 2.fl. A
1989 1.fl. A
1981 1.fl
15.1.2003 – 14.1.2004
Lokagjalddagi 10.1.2003
Lokagjalddagi 25.1.2003
31.986,95
35.858,85
411.255,80
kr.
kr.
kr.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.
Innlausnarverð er höfuðstóll vextir, vaxtavextir og verðbætur.*
Reykjavík, 4. janúar 2003