Morgunblaðið - 05.01.2003, Side 46

Morgunblaðið - 05.01.2003, Side 46
FÓLK Í FRÉTTUM 46 SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Frumsýning lau 11/1kl. 20 UPPSELT 2. sýn su 12/1 kl 20 gul kort, UPPSELT 3. sýn fö 17/1 kl. 20 rauð kort 4. sýn lau 18/1 græn kort, 5. sýn fö 24/1 blá kort SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller Í kvöld kl 20, Su 19/1 kl 20 Sýningum fer fækkandi HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su 12/1 kl 14, Su 19/1 kl 14 Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 HERPINGUR e. Auði Haralds og HINN FULLKOMNI MAÐUR e.Mikael Torfason í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA Fö 10/1 kl 20 Síðasta sýning RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Fö 10/1 kl 20, Lau 18/1 kl 16 JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Lau 11/1 kl 20, Fö 17/1 kl 20 FÁAR SÝNINGAR EFTIR JÓLAGAMAN BORGARLEIKHÚSSINS Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í leikbúningi ofl. Í dag kl 14 og 15 - Kr 500 KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Fim 9/1 kl 20, Lau 18/1 kl 20. Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Hljómsveitarstjóri: Peter Guth Einsöngvari: Garðar Thór Cortes Einleikari: Lucero Tena Miðvikudaginn 8. janúar kl. 19:30 Fimmtudaginn 9. janúar kl. 19:30 Föstudaginn 10. janúar kl. 19:30 Laugardaginn 11. janúar kl. 17:00 Vínar- tónleikar í Háskólabíói LAUS SÆTI LAUS SÆTI ÖRFÁ SÆTI LAUS UPPSELT 12. jan. kl. 14. örfá sæti 19. jan. kl. 14. örfá sæti 26. jan. kl. 14. laus sæti 2. feb. kl 14. laus sæti Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi 4. sýning í dag sunnudag 5. janúar. kl 16.00 5. sýning laugardag 12. janúar kl.16.00 6. sýning. sunnudag 13. janúar kl 16.00 Aðeins 10 sýningar Ath. syningarnar hefjast kl. 16.00 Miðalsala í Hafnarhúsin alla daga kl. 10-17. Sími 590 1200 Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Munið gjafakortin Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Sun 12/1 kl 21 Fös 17/1 kl 21 Uppselt fim 16. jan kl. 21, sýning til styrktar Kristínu Ingu Brynjarsdóttur, laus sæti föst 17. jan kl. 21, frumsýning, UPPSELT lau 25. jan kl. 21, laus sæti Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu Föst 10. jan, kl 20, laus sæti, lau 18. jan, kl 20. Miðasala í síma 555 2222 0g á www.hhh.is og midavefur.is Miðasala er opinn alla virka daga frá 15.00 til 19.00. Nánari upplýsingar um Grettissögu og máltíð á Fjörukránni fyrir sýningu á www.hhh.is Síðustu sýningar Sunnudagur 5. janúar kl. 20.00 Selló og píanó Margrét Árnadóttir og Lin Hong leika einleikssvítu eftir Bach nr. 5 í c-moll, sónötu nr. 4 í C-dúr og Etýðu op. 10 nr. 1; Noktúrnu op. 55 nr. 2 og sónötu fyrir selló og píanó í g-moll op. 65 eftir Chopin. Verð kr. 1.500/1.200. Sunnudagur 12. janúar kl. 20.00 TÍBRÁ: Tvö píanó og slagverks- hópurinn Benda Píanóleikararnir Hrefna Eggertsdóttir og Jóhannes Andreassen og slagverks- hópurinn Benda leika verk eftir Bartók, Britten og Cage. Verð kr. 1.500/1.200. TÍU kvikmyndagerðarmenn af eldri og yngri kynslóð stilltu saman strengi sína á 100 ára fæðingaraf- mæli Halldórs Laxness og unnu hver sína myndskreytinguna við texta eft- ir Nóbelsskáldið að eigin vali. Nið- urstaðan er sjónvarpsmyndin Tíu Laxnessmyndir sem sýnd var í Sjón- varpinu á jóladag en framleiðandi hennar er Sveinbjörn I. Baldvinsson. Þetta er athyglisverð tilraun, sem býður upp á margar túlkunarleiðir, líkt og sjá má í þeim ólíku nálgunum sem hver og einn leikstjóri velur við verkefni sitt, hvað efnistök og mynd- ræna úrvinnslu varðar. Í myndhlutanum Það vaxa blóm á þakinu sviðsetur Ágúst Guðmunds- son kafla úr Heimsljósi er lýsir sam- skiptum Ólafs Kárasonar og Veg- meyjar. Þannig fer Ágúst þá leið að búa til nokkurs konar örmynd, þar sem persónur birtast þar í búningum í anda sögutímans og ákveðin fram- vinda er rakin í gegnum stutt mynd- ræn brot sem óma undir upplestrin- um. Allt önnur er nálgun Dags Kára við söguna í þættinum Óður til pönnukökunnar en þar er örstutt brot úr Heimsljósi, er lýsir undur- samleika pönnukökunnar, fangað og spunnið út frá því í gegnum mynd og tónlist. Textinn verður því fyrst og fremst útgangspunktur, og tengi- punkturinn pönnukakan sem eitt- hvert alíslenskt fyrirbæri, allt að því heimspekilegur réttur sem veitir skjól og huggun í tilverunni. Heimsljós er reyndar það verk sem flestir hafa valið að vinna með í sínum þáttum, Erlendur Sveinsson leggur út af Sjömeistarasögunni og Heims- ljósi í þættinum Heimþrá og Ásdís Thoroddsen vinnur með lokakafla skáldsögunnar í sínum þætti sem heitir einfaldlega Sögulok. Mynd- skreytingar þeirra Erlendar og Ás- dísar endurspegla ólíkar nálgunarað- ferðir leikstjóranna við verkefni sitt, sá fyrrnefndi notast við sviðsetningu úr sögunni, fangelsisgarð Hegningar- hússins við Skólavörðustíg, til að vinna út frá við myndskreytingu og túlkun á hugleiðingum sögumanns. Ásdís Thoroddsen leggur ekki beint út frá efni lesna kaflans, heldur gæðir hann lífi með því að sýna myndir af vinnandi fólki í samtímanum sem hlustar á lestur sögunnar í útvarpinu. Lárus Ýmir Óskarsson velur einn- ig að nota atriði úr hversdagsleikan- um í samtímanum sem myndskreyt- ingu við kafla úr Vefaranum mikla frá Kasmír í þættinum Ég sé mína sæng en Hilmar Oddsson notar bókstaf- legri sviðsetningu á ástríðufullum samskiptum Diljár og Steins Elliða um fagra sumarnótt á Þingvöllum. Þar er upplesturinn færður í bak- grunninn, kaflinn er fyrst og fremst leikinn og aðeins klykkt út með einni ljóðrænni setningu í lokin. Sá þáttur sem tvímælalaust stend- ur upp úr er Kveðið eftir vin minn eft- ir Óskar Jónasson. Á meðan texti Laxness og upplesturinn er yfirskip- aður hinni kvikmyndalegu úrvinnslu að nokkru en mismiklu marki í öllum í hinum þáttunum, fær Óskar Jónas- son lesturinn og túlkunina til að renna saman í gríðarsterka heild í sínum þætti. Bjarni „móhíkani“ Þórð- arson, fyrrum söngvari Sjálfsfróunar, les þar og túlkar ljóðmælandann sem yrkir eftir vin sinn í ljóðinu „Kveðið eftir vin minn“ úr Kvæðakveri Lax- ness. Áhrifarík myndskeið úr veru- leika drykkjufólks kallast á við hug- leiðingar ljóðmælandans um slíkt líf. Þannig notar Óskar frásagnarrýmið til þess að búa til heildstætt verk sem er meira en myndskreyttur lestur, heldur býr yfir margræðri merkingu þar sem ljóð Laxness og sagan, sem sprettur upp úr túlkuninni, kallast á og skapa eftirminnilega heild. Ragnar Bragason gerir tilraun til nýstárlegrar og óvæntrar túlkunar sem ekki heppnast nógu vel í Eftir- leit, myndskreytingu við kafla í Sjálf- stæðu fólki. Þar er Bjartur í Sum- arhúsum orðinn að drukkinni eftirlegukind djammlífsins í Reykja- vík á bjartri sumarnóttu, og eru tengslin of langsótt til þess að nægi- lega lifandi samspil skapist milli text- ans og hinnar myndrænu útfærslu. Kristín Jóhannesdóttir leggur á sterkan og túlkandi hátt út frá kafla um skáldsöguna og almættið í Kristnihaldi undir Jökli í þættinum Guð er snjótittlingur. Lesari í þeim kafla er sjálfur Laxness og kallast lestur skáldsins og ný tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar skemmtilega á. Fjölmargir leikstjóranna leggja mikið upp úr tónlistinni, frumsamda tónlist er að finna í fjölmörgum þátt- anna, og koma reyndir flytjendur bæði úr rokkgeiranum og þeim klass- íska. Slowblow gefur pönnuköku- myndhverfingu Dags Kára notalegan blæ, Hilmar Örn Hilmarsson semur tónlist við a.m.k. tvo þætti og tónlist Barða Jóhannssonar fullkomnar hinn eftirminnilega þátt Óskars Jónasson- ar. Þrautreyndir leikarar lesa og túlka hlutverk þáttanna og er fram- lag leikmanna í slíkum hlutverkum ekki síður áhugavert. Vel við hæfi er að ljúka myndsyrp- unni á framlagi Friðriks Þórs Frið- rikssonar, en hann velur að vinna með fyrsta kaflann í Íslandsklukk- unni út frá einfaldri heildarhugmynd. Undir lestri kaflans um þjóðartákn Íslendinga eru birtar andlitsmyndir af bæði nýjum og rótgrónum Íslend- ingum af ólíkum uppruna, asískum, afrískum og frönskum svo dæmi séu nefnd. Þessi úrvinnsla Friðriks Þórs á hugmyndum um veruleika þjóðar- innar í ljósi hefðarinnar kallast skemmtilega á við kvikmyndagjörn- inginn Brennu-Njáls sögu, þar sem þjóðarstoltið Njála var færð í óvænt samhengi. Grunnhugmynd þessa kvikmynda- verkefnis er snjöll og til þess fallin að skila vönduðu sjónvarpsefni. Þar hef- ur hver og einn leikstjóri með hönd- um stutt og viðráðanlegt verkefni sem leyst er úr með því að nostra við alla þætti málsins. Samtal myndar og texta Sjónvarp RÚV Það vaxa blóm á þakinu. Handrit og leik- stjórn: Ágúst Guðmundsson. Óður til pönnukökunnar. Handrit og leikstj.: Dag- ur Kári. Ég sé mína sæng. Leikstj.: Lárus Ýmir Óskarsson. Handrit: Guðrún S. Gísladóttir, Lárus Ýmir Óskarsson. Heimþrá. Leikstj.: Erlendur Sveinsson. Kvikmyndataka: Sigurður Sverrir Páls- son. Kveðið eftir vin minn. Handrit og leikstj.: Óskar Jónasson. Sögulok. Leik- stj. og handrit: Ásdís Thoroddsen. Eft- irleit. Handrit og leikstj.: Ragnar Braga- son. Sumarnótt á Þingvöllum. Handrit og leikstj.: Hilmar Oddsson. Guð er snjótitt- lingur. Handrit og leikstj.: Kristín Jóhann- esdóttir. Fyrsti kafli. Handrit og leikstj.: Friðrik Þór Friðriksson. Framleiðandi: Sveinbjörn I. Baldvinsson. Kvikmynda- félagið Túndra ehf., 2002. Sýnt 25. des. Tíu Laxnessmyndir Morgunblaðið/Jim Smart Kvikmyndagerðarmennirnir tíu tóku á ólíkan máta á sköp- unarverkum Laxness. Heiða Jóhannsdóttir ÞRÁTT fyrir að plötusala hérlendis hafi sjaldan eða aldrei verið meiri en í fyrra dróst plötusala saman um tæplega 9% í Bandaríkjunum árið 2002. Árið var þó ekki jafnhart hjá öllum þar vestra og geta rapparar og sveitasöngvarar fagnað umfram aðra. Eminem var söluhæstur en plata hans The Eminem Show var mest selda platan í Bandaríkjunum á síð- asta ári en hún seldist í 7,6 millj- ónum eintaka. Ennfremur hefur platan með lög- unum úr kvikmyndinni 8 Mile selst í 3,5 milljónum eintaka og er hún í 5. sæti yfir söluhæstu plötur ársins. Eminem lék stórt hlutverk í mynd- inni og einnig eru lög með honum á disknum þannig að árið 2002 var gott ár fyrir þennan harðorða bandaríska rappara. Samkvæmt könnun dagblaðsins New York Times flokkast 60% þeirra platna er hafa setið í efsta sæti sölulista á árinu undir rapp eða sveitatónlist. Í raun hafa flestar topp-tíu-plötur á síðasta ári talist til þessara tónlistartegunda. Um 12% söluaukning varð á sveitatónlist á árinu og er það eini tónlistarflokkurinn þar sem salan eykst. Alls dróst plötusala saman um 8,7% á árinu 2001 en árið 2000 var samdrátturinn tæplega 3%. Rapparinn Nelly var næst- söluhæstur og á eftir fylgja Avril Lavigne, Dixie Chicks, Pink, Ash- anti, Shania Twain og breiðskífa með lögunum úr O Brother, Where Art Thou? Plötusala dregst saman í Bandaríkjunum Eminem söluhæstur Reuters Frá heimsfrumsýningu 8 Mile í Los Angeles í nóvember á síðasta ári. Eminem naut aldeilis velgengni á árinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.