Morgunblaðið - 05.01.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.01.2003, Blaðsíða 47
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 47 Smoochy skal deyja (Death to Smoochy) Gamanmynd Bandaríkin 2002. Sam-Myndbönd VHS. Leikstjórn Danny DeVito. Aðalhlutverk Robin Williams, Edward Norton Danny DeVito, Catherine Keener. DANNY DeVito er að mörgu leyti vanmetinn kvikmyndagerðarmaður. Hann er í það minnsta lúmskari en flestir. Myndir hans hafa flestar látið lítið yfir sér, (Throw Moma from the Train, The War of the Roses, Mat- ilda) með hversdagslegum sögum og tiltölulega smáar í sniðum, þótt leik- araliðið sé jafnan með glæstara móti enda vinmargur með afbrigðum. Death To Smoochy hefði átt að hafa flest til að bera til að geta orð- ið hans besta mynd, leikaraliðið hreint fádæma safaríkt og sagan fáránlega frumleg; flugbeitt stunga á yfirborðskenndum og pen- ingadrifnum heimi barnasjónvarps- ins. Williams í enn einu yfirspilinu leikur Rainbow Rudolph, stjórnanda vinsælasta barnaþáttarins, sem er óforskammaður og sjálfumglaður fauti, merkilegt nokk. Þegar Rudolph lendir í fjármálahneyksli er hann rek- inn með skömm og óþolandi lífsglaður hugsjónapési, umræddur Smoochy (Norton), fær starf hans. Upp frá því verður það þráhyggja Rodolphs að koma Smoochy fyrir kattarnef. Hér er vissulega margt smellið, Norton og Keener frábær, og sum skotin á skemmtanaiðnaðinn hitta í mark en yfirgangurinn er alltof mikill og Willi- ams satt best að segja óþolandi (hvort sem honum er ætlað að vera það eða ekki.)  Skarphéðinn Guðmundsson Á vígvelli barna- tímans Skyldukynni (Duty Dating) Gamanmynd Bandaríkin, 2002. Skífan VHS. (96 mín) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn: Cherry Norris. Aðalhlutverk: Lee Everett, Cynthia Formbes og Eric Gustavson. DUTY Dating er ein af þessum furðumyndum sem rata í tækið hjá manni, og mætti helst lýsa henni sem dálítið brjóstumkennanlegri útgáfu af dæmigerðri gamanmynd um leit ungrar konu að draumaprinsinum. Við kynnumst þar Nikki, ungri konu sem gengur vel í starfi, en er alger- lega kærastalaus. Í túlkun leikkon- unnar Lee Everett birtist þessi sögu- hetja því sem ákaf- lega örvæntingar- full og taugaveikluð ung kona, og liggur beinast við að álykta að þetta ástand skapist af skorti hennar á því að vera trúlofuð. Áhorfandum er síðan boðið upp á það að fylgjast sem fremur misheppnuð- um tilraunum Nikki til þess að finna sér draumaprins og er allt að því að erfitt að fylgjast með þeirri fram- vindu vegna þess hversu örvænting- arfullt allt það ferli er. Í bakgrunni húkir þó góður maður sem er verð- ugur ásta Nikki, en flestir verða að ég held löngu búnir að missa áhugann á því að vita hvað verður úr þeim mögu- leika fyrir miðja mynd. Heiða Jóhannsdóttir Myndbönd Sorgleg gaman- mynd ♦ ♦ ♦ BILLY Bob Thornton virðist hafa séð að sér og lætur sína fyrrver- andi, Angelinu Jolie, ekki í friði. Hann hringir stöðugt í leikkonuna, sem er sem stendur í stefnumóta- sambandi við annan fyrrverandi eiginmann, Jonny Lee Miller. Billy Bob vill ólmur fá Angelinu aftur í faðm sinn og segist vera breyttur maður. Leikkonan sótti um skilnað eftir að orðrómur um framhjáhald hans gekk fjöllum hærra. Billy Bob segist vita að hann hafi verið sjálfselskur og hafi orðið afbrýðisamur vegna athygl- innar sem Angelina veitti ætt- leiddum syni þeirra, Madd- ox …Pierce Brosnan er mannlegur þrátt fyrir að James Bond virðist ekki vera það. Hann óttast ellina og kvíðir fyrir hálfrar aldar afmælinu. „Það er stórt skref fyrir mig að verða fimmtugur. Maður finnur fyrir því hversu hratt tíminn líður. Ég hef hugsað um dauðann og ævi mína og verð að segja að ellin er ekki fyrir neina aum- ingja.“ …Halle Berry beinlínis missti leikarann Patrick Stew- art við tökur á kvikmyndinni X- Men 2. Hún leikur ofurhetj- una Storm og varð að halda á Patrick upp snævi þakið fjall en Patrick leikur Xavier prófessor í myndunum, sem er bundinn við hjólastól. Halle hélt á Patrick upp fjallið með hjálp samleikara þeirra, Alan Cumming. Ekki vildi betur til en svo að Halle missti takið og tók hún leikarana tvo með sér í fallinu. Þríeykið slapp með skrekkinn og fannst at- vikið nokkuð skoplegt í ljósi þess að þau leika ofurhetjur í mynd- inni … Reese Witherspoon hefur játað að hún sé langt í frá mesta glæsimamman í leikskóla dóttur sinnar. „Það líður ekki sá dagur að ég sé ekki búin að hella niður á mig kaffi eða einhverju þegar ég fer með hana í leikskólann. Ég er algjör sóði, sagði Reese, sem á tveggja ára dótturina Avu, með eiginmanninum Ryan Philippe … Justin Timberlake finnst hann vera ljótur. Þrátt fyrir að hann hafi verið með glæsikvendum á borð við Britney Spears, Janet Jackson og Alyssu Milano er hann ekki öruggur með útlit sitt. „Mér finnst ég alls ekki sætur. Ég er með of stórt nef, ég er með mjög loðnar augabrúnir, hræðilegt hár, sem ég verð alltaf að klippa mjög stutt og ljóta og stóra fætur,“ sagði hann. FÓLK Ífréttum Patrick StewartAngelina Jolie og Billy Bob Thornton.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.