Morgunblaðið - 05.01.2003, Side 50
50 SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Rapparinn Lil Bow Wow finnur galdraskó sem Jordan
átti og kemst í NBA! Margur er knár þó hann
sé smár - frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Sýnd kl. 2 og 4.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
kl. 3, 7 og 10.30
YFIR 53.000 GESTIR
DV
RadíóX
Sýnd kl. 2, 5, 6.30, 8 og 10. B.i.12 ára
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
i f fi
i i
.
i i .
i
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
i i
RadíóX
DV
YFIR 53.000 GESTIR.
Sýnd kl. 5.15 og 7.40. B.i. 12 ára
Sýnd kl. KRAFTSÝNING kl. 12, 2, 4, 8, 10 og KRAFTSÝNING kl. 12.
KRAFTsýningar
kl. 12 og 12
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
i f fi
i i
.
i i .
i
MARKAÐUR fyrir óhljóðalist
og tilraunakennda tónlist er ekki
stór, þótt hann fari stækkandi, og
sala á slíkum diskum lítil þótt hún
sé kannski mikil á íslenskan mæli-
kvarða. Útgáfan er því oft á safn-
skífum, sem auðveldara er að selja
(og einnig eru margir óhljóðalista-
menn og tilraunatónlistarvinir
ekki góðir nema í litlum skömmt-
um). Þessi safnplata þeirra Still-
uppsteypumanna, „The Immediate
Past Is Of No Interest To Us“,
sem er síðasta platan sem sveitin
sendir frá sér sem tríó, inniheldur
einmitt lög sem tekin voru upp og
unnin fyrir ýmsar safnplötur aðrar
en eru ekki enn komin út.
Það er ákveðinn galli að ekki
kemur fram á plötunni hvenær
hvert lag er tekið upp eða hvort
þau séu yfirleitt í tímaröð, enda
hefði það gefið skífunni meira
vægi, gert hana að einskonar sögu-
legu yfirliti. Það kemur þó fram í
bæklingnum að lögin séu tekin upp
á árunum 1995 til 2002, en Sig-
tryggur Berg sagði í viðtali fyrir
skemmstu að
þeir félagar
hefðu síðan lít-
illega átt við þau
þegar skífan var
sett saman. Það
hefði svo verið
gott að vita
hvort einhver laganna, og þá hver,
séu gerð eftir að Heimir sagði skil-
ið við þá félaga sína.
Óhljóðalistin (og tilraunatónlist
að nokkru leyti) er í kreppu um
heim allan, menn hafa troðist hver
á eftir öðrum inn í blindgötu píet-
isma óhljóðanna, komist að því að
það öngstæti er ekki ýkja langt og
ekki líður á löngu að búið er að
gera allt sem hægt er á því sviði.
Stilluppsteypa hefur að nokkru
gengið þann veg þegar litið er yfir
plötur sveitarinnar en sem betur
fer verið iðin við að hlaupa út-
undan sér eins og heyra mátti á
síðustu breiðskífu þeirra félaga,
„Stories Part Five“, þar sem
greinilega mátti heyra að menn
voru á leið út úr mestu óhljóða-
tilraununum. „The Immediate
Past Is Of No Interest To Us“ er
ekki beinlínis framhald af því,
enda á plötunni lög frá fyrri tím-
um, en nýjustu lögin, ef ágiskun
mín er rétt, eru í rökréttu fram-
haldi af „Stories Part Five“ og
benda til þess að næsta hljóðvers-
skífa eigi eftir að verða býsna
spennandi svo ekki sé meira sagt.
Það kemur varla á óvart að „The
Immediate Past Is Of No Interest
To Us“ er fjölbreytt plata og sem
slík gott yfirlit yfir þróunina í
óhljóðatónlist síðustu árin, enda
Stillupsteypa jafnan í fremstu línu
þegar sú list var annars vegar.
Sum laganna eru suð og smellir en
önnur undirfurðulegar takttilraun-
ir. Vel kann ég að meta lögin „We
Crawled out of the MostlyWood
Works (Ten Years Ago)“,
skemmtileg smámynd sem hefði
mátt vera mun lengra og lagið
„Taking Things a Bit More Ser-
iusly from Now On (Ten Years
After)“ með stökkbreyttan big-
beat takt undir. „Hello, Mr. Robot
Man“ er skemmtileg prógamm-
músík, „It’s Not Pointless“ diskó
frá Helvíti, bráðfyndið lag (sjá
diskókúluna á umslagi), og „Rob-
ots Do Queer Things under Press-
ure“ þar sem beyglað trommusóló
birtist óforvarandis og síðan geysi-
svalur bíboptaktur. Ekki má svo
gleyma lokalagi plötunnar, „falda“
laginu sem birtist ókynnt aftast
með fjarskyldan ættingja bíbop-
taksins í farteskinu, en nú veru-
lega æstan og súran. Þannig er
þessi plata upp full af skemmtan
og fjöri í bland við alvarlegri pæl-
ingar.
TÓNLIST
Skemmtan
og fjör
Stilluppsteypa
The Immediate Past Is
Of No Interest To Us
The Immediate Past Is Of No Interest To
Us, safnplata Stilluppsteypu. Hljómsveit-
ina skipa í dag Sigtryggur Berg Sigmars-
son og Helgi Þórsson, en Heimir Björg-
úlfsson var einnig meðlimur þegar obbinn
(allt?) af því sem á plötunni er var tekið
upp og unnið. B-Boy gefur út 2002, 12
tónar dreifa.
B-Boy
Árni Matthíasson