Morgunblaðið - 11.01.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 9. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 mbl.is
Nýr söngleikur Sálarinnar
frumsýndur Lesbók 16
Til Brooklyn
frá Hollywood
Tónlistarmaðurinn Bix semur
fyrir dansflokkinn Fólk 54
LÁTTU SJÁ fiIG Á FRUMS†NINGUNNI Í DAG FRÁ 12 –16
VOLVO XC90
Nýr lúxusjeppi er kominn úr óvæntri átt:
Skoðaðu auglýsinguna
inn í blaðinu, fallegur bíll.
Nú er jeppinn kominn fyrir þá sem vilja
aðeins aka um á Volvo - Jeppa ársins 2003
í Norður-Ameríku.
Volvo er mest seldi lúxusbíllinn á Íslandi.
Ísknattleikskona til liðs við
finnskt karlalið Íþróttir 1
Wickenheiser
brýtur ísinn
Kröftug sól
og máni
un að beiðni Bandaríkjastjórnar.
Heitir maðurinn, sem handtekinn
var með El Mohad, Said Mohammed
Moshen. Moshen er á þrítugsaldri,
að sögn ónafngreinds heimildar-
manns Associated Press, en hann er
ekki sagður vera háttsettur í al-
Qaeda.
El Mohad ku vera á sextugsaldri
og hann er m.a. sagður sjá um öll að-
föng al-Qaeda í Jemen. Fóru stjórn-
völd þar í landi fram á það við Þjóð-
verja í gær að þeir framseldu
TVEIR Jemenar voru í gær hand-
teknir í Þýskalandi en grunur leikur
á að a.m.k. annar þeirra sé háttsett-
ur liðsmaður al-Qaeda hryðjuverka-
samtakanna. Þýska lögreglan vildi
ekki nafngreina mennina en annar
þeirra er sagður vera Mohammed
Ali Hassan El Mohad, meintur fjár-
málastjóri Osamas bin Ladens, leið-
toga al-Qaeda.
Mennirnir tveir voru handteknir á
hótelherbergi í nágrenni Frankfurt-
flugvallar um kl. hálftíu í gærmorg-
mennina ekki til þriðja lands, heldur
afhentu þá yfirvöldum í Jemen. Þau
myndu sækja þá til saka ef Banda-
ríkjamenn gætu fært sönnur á að
þeir hefðu tekið þátt í hryðjuverk-
um.
Margir af hryðjuverkamönnun-
um, sem stóðu fyrir árásinni á
Bandaríkin 11. september 2001,
höfðu verið búsettir um lengri eða
skemmri tíma í Þýskalandi.
Mohammed Atta, meintur foringi
þeirra, hafði m.a. dvalist í Hamborg.
Meintir al-Qaeda-liðar handteknir
Frankfurt, Sanaa. AFP, AP.
BYGGING álvers í Reyðarfirði virð-
ist vera í augsýn eftir að stjórnir
Landsvirkjunar og Alcoa sam-
þykktu á fundum sínum í gær að
veita forstjórum fyrirtækjanna
heimild til að skrifa undir samninga
um raforku til 322 þúsund tonna ál-
vers Fjarðaáls sf., félags í eigu Al-
coa. Reiknað er með að skrifað verði
undir samninga í byrjun næsta mán-
aðar og framkvæmdir hefjist í mars
nk. við Kárahnjúkavirkjun.
Aðalforstjóri Alcoa, Alain Belda,
segir að álverið í Reyðarfirði muni
gegna lykilhlutverki í áætlunum fyr-
irtækisins um aukin umsvif í fram-
leiðslu áls. Álverið, sem reisa á í ein-
um áfanga, kemur til með að kosta
um 90 milljarða króna í byggingu,
skapa 450 störf og 300 til viðbótar í
tengdum iðnaði og þjónustu. Fram-
kvæmdir eiga að hefjast eftir tvö ár.
„Þetta er gleðidagur“
Þegar tíðindin spurðust út síðdeg-
is í gær brutust út mikil fagnaðar-
læti víða á Austfjörðum. „Þetta er
gleðidagur. Menn eru búnir að
leggja mikið á sig og eru nú að upp-
skera,“ sagði Smári Geirsson, for-
seti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar,
við Morgunblaðið í gærkvöldi, þar
sem hann fagnaði tíðindunum með
íbúum sveitarfélagsins. „Ég tel að
nú hafi verið teknar lykilákvarðanir
sem marki þáttaskil í þessu máli.
Þessi törn hófst 1997 og þær hafa
verið margar síðan um 1980, en nú
er þetta á enda. Ég vona að þegar
niðurstaða er fengin þá sameinist
allir um það að gera eins gott úr
hlutunum og hægt er. Það er grund-
vallaratriði,“ sagði Smári.
Stjórn Landsvirkjunar samþykkti
með sex atkvæðum gegn einu að
veita forstjóra og stjórnarformanni
heimild til að skrifa undir samning
við Alcoa. Helgi Hjörvar, einn
þriggja fulltrúa Reykjavíkurborgar
í stjórn, greiddi atkvæði á móti og
lagði fram bókun þar sem hann seg-
ir m.a. að áhættan sé of mikil í hlut-
falli við arðsemina af virkjuninni.
Honum sé ekki fært að styðja málið
miðað við þann ávinning sem sé fyr-
ir hendi.
Edda Rós Karlsdóttir, hagfræð-
ingur og einn þriggja fulltrúa rík-
isins í stjórn, samþykkti samninginn
en lagði fram bókun þar sem segir
m.a. að heildararðsemi Kárahnjúka-
verkefnisins sé lítil og töluverðar
líkur á að það skili ekki viðunandi
arði til þjóðarbúsins. Það sé hins
vegar hlutverk þingmanna og borg-
ar- og bæjarfulltrúa að taka afstöðu
til þessa. Hún hafi samþykkt málið
þar sem verkið muni auka verðmæti
Landsvirkjunar.
Fyrirvarar hjá Landsvirkjun
Samþykkt Landsvirkjunar var
gerð með nokkrum fyrirvörum,
þeim helstum að eigendur eigi eftir
að samþykkja að ábyrgjast lántökur
og eftir sé að semja við verktaka um
gerð stíflu og aðrennslisganga Kára-
hnjúkavirkjunar. Viðræður standa
yfir við Impregilo, sem bauð lægst.
Eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst var ellefu manna stjórn
Alcoa einhuga í afstöðu sinni til ál-
vers á Íslandi, að því undanskildu að
fulltrúi World Wildlife Fund, WWF,
sat hjá.
Fjarðaáli fagnað
Í blíðviðrinu fyrir utan hótelið á Reyðarfirði kveiktu íbúar á stjörnuljósum
og skáluðu í kampavíni í tilefni fréttanna frá Alcoa og Landsvirkjun.
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur Bjarnason, veitingamaður Fosshótels á Reyðarfirði, bauð til fagnaðar í gærkvöldi, klæddur húfu og
stuttermabol með merkjum Alcoa, og gekk á milli borða með kampavínsglös handa hverjum sem vildi.
Stjórnir Alcoa og
Landsvirkjunar
samþykktu samn-
inga um álver
í Reyðarfirði
Ætlað lykilhlutverk/10–11
DAVÍÐ Oddsson
forsætisráðherra
segir að gríð-
arlegur áfangi
hafi náðst fyrir
þjóðina þegar
stjórnir Alcoa og
Landsvirkjunar
samþykktu að
skrifa undir samninga um álver.
Óhætt sé að telja að málið sé í höfn
og nú sé nýtt og öflugt hagvaxt-
arskeið að hefjast.
Hann segir að atvinnuástand
muni eflast, tekjur landsmanna
aukast og kaupmáttur gjörbreytast
til hins betra. „Þetta eru afar góð
tíðindi fyrir land og þjóð, ekki síst
fyrir Austfirðinga. Nú horfum við
af mjög vel rökstuddri bjartsýni
fram í tímann.“
Komið á beinu
brautina
VALGERÐUR
Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra
segir að ákvarð-
anir gærdagsins
séu það stórar að
málið sé komið á
beinu brautina.
Hún segir það
vera ákveðið afrek að hafa náð svo
langt, aðeins nokkrum mánuðum
eftir að viðræður við Alcoa hófust.
Valgerður segir það ljóst að frá
fyrstu stundu hafi Alcoa unnið að
málinu af mikilli alvöru.
Ekki búið en
útlitið bjart
FRIÐRIK Soph-
usson, forstjóri
Landsvirkjunar,
segir að stórt
skref hafi verið
stigið í gær. Þó
að útlitið sé bjart
um framhald
framkvæmda á
Austfjörðum sé málinu ekki lokið.
Eftir eigi að reyna á ýmis atriði áð-
ur en skrifað verði undir bindandi
samninga.
Friðrik segir að mestu skipti að
eigendur Landsvirkjunar séu til-
búnir til þess að ábyrgjast þau lán
sem taka þurfi vegna Kára-
hnjúkavirkjunar. Hann telur yf-
irgnæfandi líkur á að samþykki
allra eigenda fáist.
Gríðarlegur
áfangi
EFNT var til flugeldasýningar og
mannfagnaðar á Reyðarfirði í gær-
kvöldi og fáni Alcoa var víða dreg-
inn að húni í Fjarðabyggð. Félag
eldri borgara á Eskifirði hafði fyrr
um daginn tekið forskot á sæluna
og flaggað Alcoa-fána fyrir framan
dvalarheimilið. Fólk, jafnt full-
orðnir sem börn, safnaðist m.a.
saman á Fosshótelinu í Reyðarfirði
og á planinu þar fyrir framan þar
sem fylgst var með flugeldasýn-
ingu. Í frásögn fréttaritara Morg-
unblaðsins segir m.a. að nánast hafi
ríkt áramótastemning, slíkur hafi
fögnuðurinn verið.
Flugeldasýning og fánahylling