Morgunblaðið - 11.01.2003, Síða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Einn í gæslu-
varðhald
vegna innbrots
KARLMAÐUR sem grunaður er
um að hafa tekið þátt í innbrotinu í
verslun Hans Petersen við Laugar-
veg á fimmtudagsmorgun, var í gær
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17.
janúar nk. Fimm öðrum sem voru
handteknir vegna rannsóknar máls-
ins var sleppt, en einn þeirra var eft-
irlýstur vegna 12 mánaða fangelsis-
dóms og hóf hann afplánun í gær.
Innbrotsþjófarnir notuðu stóran
jeppa, sem þeir höfðu stolið stuttu
áður, til að brjóta sér leið inn í versl-
unina. Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík,
segir að rannsókn bendi til þess að
þrír hafi tekið þátt í innbrotinu, einn
hafi ekið jeppanum en tveir stokkið
inn í verslunina og látið greipar sóp-
ar. Verðmæti þýfisins er talið nema
um tveimur milljónum og hefur um
helmingur þess verið endurheimtur.
Framsóknar-
menn kjósa í
NA-kjördæmi
RÁÐHERRAR Framsóknarflokks-
ins, Valgerður Sverrisdóttir og Jón
Kristjánsson sækjast bæði eftir
fyrsta sæti á framboðslista Fram-
sóknarflokksins í Norðausturkjör-
dæmi. Aukakjördæmisþing verður
haldið á Hrafnagili í Eyjafirði í dag.
Um 400 fulltrúar hafa seturétt á
þinginu.
Þeir kjósa í tíu efstu sætin á fram-
boðslistanum. Sá sem fær flest at-
kvæði í fyrsta sætið skipar það.
Frambjóðandi sem fær flest atkvæði
samanlagt í fyrsta og annað sæti tek-
ur annað sætið og svo koll af kolli.
Kjörnefnd gerir tillögu um fram-
bjóðendur í sæti neðar á listanum.
Tvö skip Sam-
skipa enn föst
TVÖ fraktskip á vegum Samskipa
eru enn föst í ís í Eystrasalti en vonir
standa til að þau losni á morgun.
Nordic Frost lagði af stað frá
Sankti Pétursborg á gamlársdag, en
í gærkvöldi var gert ráð fyrir að ís-
brjótur kæmi skipinu til aðstoðar í
nótt sem leið og að sögn Ingvars Sig-
urðssonar, deildarstjóra stórflutn-
ingadeildar Samskipa, stóðu vonir til
að skipið yrði komið út úr ísnum á
morgun.
Ingvar segir að ferð skipa með að-
stoð ísbrjóta á leið inn Eystrasaltið
gangi mjög hægt en talið sé að frysti-
skipið Greenland Saga komi til hafn-
ar á morgun eftir vikutöf. Hins vegar
er búið að losa frystiskipið Ice Bird
og er það á útleið.
TÍKIN Trygg var kát þegar
Danni brá á leik við hana á Arn-
arhól. Trygg býr við Laugaveg og
fær því ekki að fara eins oft og
hún sjálf vildi. Það er því um að
gera að nota tækifærið vel.
Reyndar má ekki á milli sjá hvor
skemmtir sér betur, Danni eða
Trygg.
Morgunblaðið/Golli
Hundakúnstir
ÁRNI Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar, segir að niðurstöður arð-
semismats eigendanefndar vegna
Kárahnjúkavirkjunar veiti engar
leiðbeiningar um hvort verkefnið sé
skynsamleg fjárfesting eða ekki og
hefur því beint ákveðnum spurning-
um til Sigurðar Snævarr borgarhag-
fræðings sem hann á að svara ekki
síðar en á borgarráðsfundi á þriðju-
dag.
Árni Þór Sigurðsson segir að svör-
in hafi ekki áhrif á afstöðu sína til
málsins, en fyrst ákveðið hafi verið að
fara í þetta arðsemismat þurfi að
liggja fyrir upplýsingar um arðsemi
verkefnisins miðað við t.d. sambæri-
lega ávöxtunarkröfu og Reykjavíkur-
borg gerði til Nesjavallavirkjunar, í
samanburði við meðalarðsemiskröfu
álvera og kröfur norska fjármála-
ráðuneytisins til framkvæmda sem
bera svipaða áhættu.
Í bréfi sínu til borgarhagfræðings
spyr Árni Þór einnig hverjir séu
helstu fyrirvararnir í tilboði
Impregilo í stíflu- og jarðgangagerð,
hver sé vænt raunávöxtun ríkis-
skuldabréfa og hvaða líkur séu á að
hún náist, og hvernig fjárfesting í
þeim kæmi út samanborið við fjár-
festingu í Kárahnjúkavirkjun, sé gert
ráð fyrir sömu lánsvöxtum. Ennfrem-
ur spyr hann hverju megi búast við
varðandi gengisþróun í ljósi þeirra
efnahagslegu áhrifa sem líklegt sé að
verkefnið leiði af sér og hvernig arð-
semi þess breytist með tilliti til þess-
ara gengisbreytinga. Auk þess spyr
hann hvernig tengslum verðbólgu og
nafnvaxta sé háttað og hvaða áhrif
það hafi á vexti, hækki verðbólga á ný
til samræmis við sögulegt meðaltal.
Þá spyr hann hver verði efnahagur
Landsvirkjunar eftir 15 til 20 ár mið-
að við annars vegar að fyrirtækið ráð-
ist í Kárahnjúkavirkjun og hins vegar
að ekki verði ráðist í virkjunina og
þess í stað greiddar niður skuldir fyr-
irtækisins, og hvers virði eignarhlut-
ur Reykjavíkurborgar yrði í hvoru
tilviki um sig. Að síðustu spyr hann
hvers vegna eigendanefndin og/eða
fulltrúi Reykjavíkur í nefndinni hafi
ekki tekið mið af samþykkt borgar-
stjórnar frá 21. júní 2001 um að meta
eigi umhverfiskostnað og efnahags-
leg áhrif virkjunarframkvæmdar áð-
ur en ákveðið yrði að ráðast í slíkar
framkvæmdir. „Hafi nefndinni ekki
verið falið að skoða þennan þátt,
hvernig getur borgarstjórn þá fengið
fram mat á þessum þáttum?“ spyr
forseti borgarstjórnar.
Forseti borgarstjórnar óskar svara um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar
Segir að upplýsingar
um arðsemi vanti
KJELL Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, hét því á fundi
með íbúum Lekness í N-Noregi á
fimmtudagskvöld að norsk yfirvöld
tækju björgun Guðrúnar Gísladótt-
ur KE-15 yfir ef Íshús Njarðvíkur
stæði ekki við skuldbindingar sínar.
Íshúsið hefur frest til hádegis á
þriðjudag til að ljúka fjármögnun
verkefnisins og mun fjármögnun
vera á lokastigi. Skipið hefur nú leg-
ið í hálft ár á 40 metra dýpi skammt
frá Leknesi.
„Við höfum tilkynnt að verði tog-
arinn ekki hífður upp frá sjávarbotni
fyrir 15. janúar, muni norsk yfirvöld
grípa í taumana. Þá fer Strandgæsl-
an í málið og fjarlægir olíu úr skip-
inu. Við ræðum svo um kostnaðinn
síðar,“ hefur Avisa Nordland eftir
Bondevik á borgarafundinum. Hann
sagði mikilvægt að vernda strand-
svæðin við Lófóten, sem væru gjöful
fiskimið, en skipið liggur á hrygn-
ingarslóð þorskins og fleiri tegunda.
„Þetta hefur tekið allt of langan
tíma. Margt bendir til þess að regl-
urnar séu ekki nógu góðar, þegar
flak getur legið á hafsbotni í hálft ár.
Þennan lærdóm mun ég taka með
mér og koma til ríkisstjórnarinnar,“
sagði Bondevik ennfremur.
Njótum trausts Norðmanna
Ásgeir Logi Ásgeirsson, sem er í
forsvari fyrir björgunaraðgerðirnar
í Noregi, var á íbúafundinum í Lek-
nesi í gær. Hann segir að það sé ekki
rétt sem haft er eftir forsætisráð-
herra Norðmanna að Íshús Njarð-
víkur hafi frest til miðvikudags til að
hífa skipið upp, heldur verði eigend-
ur skipsins að sýna fram á það fyrir
hádegi á þriðjudag að búið sé að
fjármagna allt verkið, en mikill við-
bótarkostnaður hafi bæst við vegna
tafa. „Ef Íshúsið stendur ekki við
sitt þá segir Íshúsið sig frá verkinu
og þá mun norska ríkið grípa inn í.
Það er enginn akkur í því fyrir Ís-
húsið að draga menn á asnaeyrunum
um víðan völl. Við myndum ekki
gera það,“ segir Ásgeir Logi. Alltaf
hafi verið ljóst að norsk yfirvöld
fjarlægðu olíu og lest úr skipinu ef
eigendur skipsins stæðu ekki við sitt
til að bjarga skipinu.
Sjö Íslendingar eru staddir í Nor-
egi vegna björgunaraðgerðanna. Að-
spurður segist Ásgeir Logi telja að
þeir njóti enn trausts norskra yf-
irvalda og þeirra sem að málinu
koma. „Ég held að þeir hefðu ekki
gefið okkur þennan frest ef þeir
hefðu ekki trú á því að við gætum
ekki staðið við það sem við erum að
bjástra við,“ segir Ásgeir. Björgun-
arteymið sé tilbúið til að hefjast
handa um leið og búið sé að tryggja
fjármögnun.
Haukur Guðmundsson, eigandi
Íshúss Njarðvíkur, segist bjartsýnn
á að það náist að útvega banka-
tryggingu fyrir tilsettan tíma. Í
norskum fjölmiðlum hefur verið full-
yrt að um 100 milljónir króna vanti
upp á, en í upphafi var gert ráð fyrir
að aðgerðirnar myndu kosta um 200
milljónir. Haukur segir þetta algjöra
firru, upphæðin sem vanti sé mun
lægri. „Þetta er eitthvert bull sem
kemur frá kafaranum okkar fyrrver-
andi, Stein-Inge Riise,“ segir Hauk-
ur.
Bondevik heitir því að flak
Guðrúnar verði fjarlægt
Eigandi Íshúss Njarðvíkur bjartsýnn
á að það takist að ljúka fjármögnun
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
LEIKSKÓLARÁÐ Reykjavíkur-
borgar hefur staðfest fjögurra vikna
sumarlokanir á leikskólum borgar-
innar. Ákveða á í samráði við for-
eldra í kjölfar skoðanakannana hve-
nær leikskólum verður lokað yfir
sumartímann. Jafnframt var ákveð-
ið að bjóða upp á að opið yrði á ein-
stökum leikskólum fyrir börn for-
eldra sem alls ekki geta tekið
sumarleyfi á þeim tíma sem viðkom-
andi leikskóli er lokaður. Miðað er
við að nægilegur fjöldi barna sé til
þess að halda úti starfsemi fyrir tvo
starfsmenn á deild og einn í eldhúsi.
Sjálfstæðismenn sátu hjá við af-
greiðslu málsins og báru jafnframt
upp tillögu á fundinum um að fallið
yrði frá sumarlokunum. Guðlaugur
Þór Þórðarson, fulltrúi D-lista, segir
að þjónusta verði skert verulega.
„Það verður erfiðara fyrir fjölskyld-
ur að vera saman í sumarleyfinu.
Það segir sig alveg sjálft og það þó
svo að menn reyni að plástra eitt-
hvað með því að vera með svipaða
þjónustu og er hjá gæsluvöllunum
ef það eru nógu margir sem biðja
um hana.“
Sumarlok-
anir stað-
festar í leik-
skólaráði
LEKI kom skyndilega að norska
flutningaskipinu Ice Bear sem sökk
að morgni gamlársdags um 73 sjó-
mílur suðaustur af Dalatanga. Eftir
að lekans varð vart var skipinu snúið
tafarlaust aftur til Íslands. Dælur
voru notaðar til að dæla sjó úr skip-
inu. Þegar þær biluðu ákváðu skip-
verjar að yfirgefa skipið.
Sjópróf fór fram í Noregi sl.
þriðjudag þar sem skipverjar gáfu
skýrslu um atvikið. Ekki er vitað
með vissu hvað olli lekanum. Rann-
sókn beinist meðal annars að því
hvort farmur skipsins hafi farið af
stað í lestinni. Skipstjóri skipsins
sagðist hafa haft umsjón með hleðslu
skipsins meðan það lá í höfn.
Lögmaður Tryggingamiðstöðvar-
innar var við skýrslutökuna, en
tryggingafélagið tryggði farm Síld-
arvinnslunnar sem sökk með skip-
inu. Verðmæti farmsins er metið á 85
milljónir króna.
Sex skipverjar voru um borð áður
en skipið sökk. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar bjargaði mönnunum úr
björgunarbátunum. Þá var komin
allt að fimmtíu gráða slagsíða á skip-
ið. Kallað var eftir aðstoð dráttar-
báts frá Færeyjum en skipið sökk
um áður en hann náði til þess.
Sjódælur Ice
Bear biluðu
♦ ♦ ♦