Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ „JÁ, sjómennskan var mitt aðalfag. Ég vildi hvergi annars staðar vera en á sjó, sem var auð- vitað tóm vitleysa. En svona var það nú,“ segir Jónatan Sveinsson, sem á hundrað ára afmæli í dag. Hann fæddist á bænum Selárdal í Hörðudal í Dalasýslu en bjó lengst af í Hafnarfirði og und- anfarin ár á Hrafnistu í Reykjavík. „Ég hætti á sjónum þegar ég var sjötugur, þá mátti ég ekki vera á sjó lengur. Ég byrjaði sex- tán ára á sjó. Reri á árabátum í Arnarfirði 1916– 1922, hugsaðu þér,“ segir hann hlæjandi er hann rifjar starfsferilinn upp. „Þá var ég orðinn upp- gefinn á árabátunum. Við vorum allt árið að þvælast á þeim.“ Alltaf sjóveikur Jónatan er enn stálminnugur en segir að ein- staka sinnum gleymi hann nöfnum. „Ég var svo slæmur í maga, núna er búið að taka hann úr mér, hugsaðu þér. En á tímabili vann ég í vél- smiðju en síðan sótti sjórinn á mig og ég fór aft- ur í sjómennskuna. En ég var alltaf sjóveikur, en samt vildi ég alltaf vera á sjónum.“ Jónatan var yngstur átta systkina og bjó fram að tvítugu vestur á fjörðum. Hann missti föður sinn, Svein Sveinsson, ungur að árum og bjó hjá skyldfólki þar til hann flutti til Hafnarfjarðar þar sem systur hans tvær og móðir, Sólveig Jón- atansdóttir, bjuggu. „Nei, ég hef aldrei gift mig, en bjó með tveim- ur konum. Þeirri seinni í ellinni, Önnu Ein- arsdóttur,“ segir hann og bendir á mynd af sam- býliskonu sinni ungri sem hann hefur við rúmið sitt. „Nei, nei, heilsan er búin að vera dálítið slöpp hjá mér,“ segir hann aðspurður um heilsu- hreysti. „Það er búið að skera mig fimm sinnum á kviðinn. En ég var alltaf fljótur að ná mér upp svo sem.“ En síðan sjómennskunni sleppti hefur Jónatan ekki setið auðum höndum. Hann ók bíl til 93 ára aldurs og er hann flutti að Hrafnistu tók hann til við að sauma út og prjóna og hélt meira að segja sýningu á verkum sínum. Nú notar hann tímann til að hlusta á sögur af snældum en einnig hlustar hann á útvarp og er það oftast popptónlist sem verður fyrir valinu. Í dag verður heitt á könnunni milli kl. 18 og 20 í Helgafellskaffisalnum á Hrafnistu í tilefni af- mælisins. Jónatan Sveinsson fagnar aldarafmæli í dag Morgunblaðið/Þorkell Jónatan Sveinsson saumaði út þar til hann var 96 ára og ók bíl til 93 ára aldurs. Hann er 100 ára í dag og fagnar afmælinu í hópi vina á Hrafnistu. Var þreytandi að stunda sjó á árabát VILHJÁLMUR Egilsson alþingis- maður hefur sagt af sér þing- mennsku frá og með 16. janúar næstkomandi. Adolf H. Berndsen, framkvæmdastjóri á Skagaströnd, tekur sæti hans á Alþingi. Ýmsar breytingar verða á verka- skiptingu í þingflokki sjálfstæðis- manna vegna þessa. Adolf tekur einnig sæti Vilhjálms í efnahags- og viðskiptanefnd og sjávarútvegs- nefnd. Einar K. Guðfinnsson lætur af formennsku í sjávarútvegsnefnd og tekur við stjórnartaumunum í efnahags- og viðskiptanefnd. Árni R. Árnason verður formaður sjávarút- vegsnefndar. Þá verður Gunnar I. Birgisson varamaður í utanríkis- málanefnd og tekur jafnframt sæti Vilhjálms í Íslandsdeild þingmanna- nefndar EFTA. Adolf verður sömu- leiðis varamaður í þeirri nefnd. Vilhjálmur er annar þingmaður sjálfstæðismanna sem segir af sér þingmennsku á kjörtímabilinu. Hjálmar Jónsson, nú dómkirkju- prestur, sagði af sér þingmennsku fyrir um tveimur árum til að sinna preststörfum og tók Siglfirðingurinn Sigríður Ingvarsdóttir sæti hans á þingi. Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæð- isflokksins í Norðvesturkjördæmi sér ekki forsendu til að ógilda próf- kjör flokksins í kjördæminu í haust en harmar ágalla á framkvæmd þess. Stjórnin kom saman til fundar í Borgarnesi á fimmtudagskvöld þar sem fjallað var um bréf Vilhjálms Egilssonar alþingismanns, sem hafnaði í 5. sæti í prófkjörinu þann 9. nóvember, en hann fór fram á að prófkjörið yrði ógilt. „Stjórn kjördæmisráðs þakkar Vilhjálmi Egilssyni störf hans fyrir Sjálfstæðisflokkinn á liðnum árum og óskar honum velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi,“ segir í samþykkt stjórnarinnar. Kjördæmisþing verð- ur haldið í Dalabúð í Búðardal, sunnudaginn 19. janúar og verður þar endanlega gengið frá lista Sjálf- stæðismanna í kjördæminu fyrir næstu kosningar. Vilhjálmur hættir á þingi Adolf H. Berndsen Vilhjálmur Egilsson Prófkjör Sjálf- stæðisflokks í Norðvestur- kjördæmi gildir HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr- skurðaði í fyrradag fjóra erlenda menn í áframhaldandi gæsluvarð- hald til 13. febrúar, en þeir eru grun- aðir um innbrot á Suður- og Vest- urlandi. Mennirnir voru handteknir eftir innbrot á Snæfellsnesi hinn 1. desember í fyrra. Munir úr tíu inn- brotum, allt frá Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi að Snæfellsnesi, fundust á dvalarstað mannanna og í bifreið sem þeir voru í þegar lög- regla stöðvaði þá. Gæsluvarðhald framlengt SAMBAND íslenskra sveitarfélaga hefur áætlað að tekjutap sveitarfé- laga vegna formbreytingar, þ.e. færslu einkareksturs yfir í rekstur einkahlutafélaga, hafi numið um 1,1 milljarði króna í fyrra. Þá áætlar sambandið að við lok síðasta árs hafi eigendur einkahlutafélaga á Íslandi verið 19.250 talsins en að þeir hafi verið 14.900 árið áður og 8.500 árið 1998. Miðað við tölur Hagstofunnar má því ætla að eigendur einkahluta- félaga hafi verið hátt í 12% af vinn- andi fólki í fyrra en árið 1998 var hlutfallið innan við 6%. Höfum reynt að áætla skerð- inguna eftir bestu vitund Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, flutti erindi um áhrif skattabreytinga ríkis- stjórnarinnar frá 2001 á fjárhag sveitarfélaganna á hádegisfundi Fé- lags viðskipta- og hagfræðinga í vik- unni. Gunnlaugur segir að sam- bandið hafi reynt að áætla tölur um tekjutap sveitarfélaganna vegna breytinga á einkarekstri í einka- hlutafélagsrekstur fyrir síðasta ár eftir bestu vitund og getu. „Við reyndum að leggja fram heiðarlega nálgun á þetta. En þetta er, eins og raunar hefur komið fram bæði hjá fjármála- og félagsmálaráðherra, auðvitað engin sönnun. Þetta er ein- faldlega tilraun til þess að nálgast stærðargráður. Þegar við reiknuðum út fjölda eig- enda einkahlutafélaganna gerðum við ráð fyrir að það væru að með- altali tveir um hvert félag. Það er sömuleiðis nálgun en ekki heilög tala. En við fórum yfir tiltæk gögn, ræddum við ríkisskattstjóra og fleiri aðila og söfnuðum saman þeim gögn- um sem tiltæk voru og út frá þeim stilltum við upp því dæmi sem við gátum sannast fundið,“ segir Gunn- laugur. Gunnlaugur segir að þetta séu vissulega upphæðir sem skipti sveit- arfélögin máli. „Það sem gerir þetta enn alvar- lega er að þetta skiptist ekki jafnt á milli sveitarfélaganna. Það fer eftir samsetningu atvinnulífsins á hverj- um stað hvort það séu hlutfallslega margir smáatvinnurekendur sem hafa verið með sinn rekstur á eigin kennitölu en færa nú reksturinn yfir í einkahlutafélag.“ Aðspurður segir Gunnlaugur að það hafi komið fram á fundinum áhyggjur um mismun í skattlagn- ingu. „Mönnum þykir sá munur, sem er á skattlagningu almennra laun- þega, og þeirra sem hafa möguleika á að nýta sér aðrar skattareglur, vera orðinn úr hófi fram.“ Segja tekjurnar skerð- ast um 1,1 milljarð                                        !         "    # $%% $ &'% ( '%% ')( $ *(# +$* # &'% ' '%% ## %%% )#* ) (%* ',* # #%% ) )%% #+ &%% )&$ ( &+, (#+ ('% , $'% #$ *%% )%% ( *$% *() & #,' * )&' #* &'% )%% ## ''% # #++     HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem er sakaður um að hafa stungið konu í síðuna á heimili hennar á aðfangadagskvöld. Taldi Hæstiréttur ýmislegt óljóst um málsatvik. Hvað sem því liði hefði lögreglan í Reykjavík ekki fært við- hlítandi rök fyrir því að nauðsynlegt væri að maðurinn sæti í gæsluvarð- haldi á grundvelli almannahags- muna, en krafa lögreglu var ein- göngu reist á þeirri forsendu. Í greinargerð lögreglustjórans í Reykjavík kemur fram að lögreglan rannsaki meinta tilraun mannsins til manndráps eða hættulega líkams- árás. Hending ein er talin hafa vald- ið því að stungan varð ekki dýpri en hefði svo verið hefði hún hæglega getað valdið bana. Maðurinn ber við minnisleysi en segist muna eftir því að hafa annað hvort dregið hníf úr sári konunnar eða haldið á blóð- ugum hníf. Kona sem einnig var í íbúðinni hefur borið að hún hafi átt í átökum við konuna og hafi beðið manninn um að hjálpa sér. Stuttu síðar hafi konan hnigið niður og hún þá séð manninn standa með blóð- ugan hníf í hendi. Rannsókn málsins er ekki lokið en erfitt hefur reynst að fá vitni til að mæta til skýrslutöku. Þá hefur verið ákveðið að fram fari DNA- rannsókn á fatnaði mannsins, hnífi og skærum sem fundust blóðug á vettvangi. Gunnlaugur Geirsson, réttarmeinafræðingur sé hins vegar í stuttu fríi um þessar mundir og því sé sú rannsókn ekki hafin. Óljóst um málsatvik í hníf- stungumáli VÉLSTJÓRI slasaðist á hrygg þeg- ar hann féll þrjá metra niður í lest frystiskipsins Björgvins þar sem það lá við höfn í Eelmshaven í Hollandi á fimmtudagskvöld. Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, brákaðist á hryggj- arlið en vonir standa til að hann nái sér að fullu. „Þetta var nokkuð vel sloppið mið- að við fallið,“ sagði Matthías Magn- ússon, framkvæmdastjóri Fisk- vinnslunnar Háteigs sem gerir skipið út. Verið var að vinna við hleðslu á skipinu þegar slysið varð. Vélstjórinn var fluttur á sjúkrahús í Groeningen þar sem hann liggur. Segir Matthías að læknar telji góðar líkur á að hann nái sér að fullu. Féll ofan í lest og slasaðist ÓSKAÐ hefur verið eftir því við dönsk lögregluyfirvöld að þau lýsi eftir Guðrúnu Björgu Svanbjörnsdóttur í þarlendum dagblöðum. Guðrúnar hefur verið leitað frá því fyrir áramót. Jónas Hallsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn í Reykjavík, seg- ir að vonast sé til þess að konan sé enn í Kaupmannahöfn og að auglýsingin kunni að koma lög- reglu í borginni á sporið. Lög- reglan í Reykjavík lýsti eftir konunni hinn 30. desember og gerð var að henni umfangsmikil leit. Vegna mistaka í verkbeiðni frá lögreglunni í Reykjavík til lögreglunnar á Keflavíkurflug- velli kom ekki í ljós fyrr en á mánudaginn, 6. janúar, að hún hafði farið úr landi 29. desem- ber. Lýst eftir konunni í Danmörku ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.