Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Alcoa samþykkti á fundi sínum í New York í gær að ráðast í byggingu 322 þús- und tonna álvers við Reyðarfjörð undir merkj- um Fjarðaáls sf. Áætlað er að álverið hefji framleiðslu árið 2007 og að framkvæmdir hefj- ist í ársbyrjun 2005. Í tilkynningu frá Alcoa segir m.a. að álverið verði hið umhverfisvæn- asta í heimi. Það muni kosta 1,1 milljarð Bandaríkjadala, eða um 90 milljarða króna, og muni skapa 450 störf í álverinu sjálfu og 300 störf í tengdum iðnaði og þjónustu, alls um 750 ný störf. „Fjarðaál mun gegna lykilhlutverki í áætl- unum Alcoa um aukin umsvif í framleiðslu áls,“ er haft eftir Alain Belda, aðalforstjóra og stjórnarformanni Alcoa, í fréttatilkynning- unni. „Við leggjum nú áherslu á að lækka framleiðslukostnað og ná enn aukinni fram- leiðni. Þegar við skoðum ný verkefni víðs veg- ar um heiminn munum við halda áfram að endurmeta hagkvæmni þeirra álvera sem við starfrækjum nú, sér í lagi í Bandaríkjunum þar sem dýr orka og vinnuafl hafa dregið úr samkeppnis- hæfni margra álvera.“ Belda segist gera sér grein fyrir því hve sérstök náttúra Íslands sé og fyrir- tækið heiti því að ganga mjög varfærnislega um umhverfið þegar verk- efnið haldi áfram. „Við hlökkum til að starfa með Íslendingum og kjörnum fulltrúum þeirra við að tryggja þessu verkefni brautargengi á Alþingi þegar kemur til afgreiðslu heimildar- frumvarps og annarra reglna og leyfa er að þessu lúta,“ segir Belda og bætir því við að samþykkt stjórnar Landsvirkjunar í gær hafi glatt hann mjög. Ekki fékkst staðfest hjá Alcoa hvort sam- þykkt stjórnarinnar hefði verið samhljóða en samkvæmt upplýsingum blaðsins sat fulltrúi umhverfisverndarsamtakanna World Wildlife Fund (WWF) hjá við atkvæðagreiðsluna. Ell- efu manns sitja í stjórn Alcoa. Jake Siewert, talsmaður Alcoa, sagði að- spurður við Morgunblaðið í gærkvöldi að starfsemi fyrirtækisins á Íslandi yrði í lág- marki þar til framkvæmdir væru áformaðar eftir tvö ár. Unnið yrði að ýmsum undirbún- ingi í samstarfi við íslensk stjórnvöld og heimamenn á Austfjörðum. Spurður hvort líta mætti á samþykkt stjórnar Alcoa sem end- anlega ákvörðun fyrirtækisins sagði Siewert svo vera. Það hefði skuldbundið sig til að starfa að verkefninu af heilindum með íslensk- um stjórnvöldum, en þau ættu lokaorðið í mál- inu. „Þó að síðasta ár hafi verið erfitt í okkar rekstri þá er fyrirtækið mjög fjárhagslega sterkt. Ég get ekki séð að markaðsástæður í áliðnaði geti breytt okkar áformum að neinu marki. Stjórnin hefur komist að sinni niður- stöðu en við munum vinna áfram við verk- efnið,“ sagði Siewert. Stjórn Alcoa samþykkti á fundi í New York í gær að ráðast í byggingu álvers á Reyðarfirði Álverið kostar um 90 milljarða kr. í byggingu og skapar alls 750 ný störf á Austfjörðum Ljósmynd/Alcoa „Álverið mun gegna lykilhlutverki í áætlunum Alcoa,“ segir forstjóri Alcoa, Alain Belda (t.h.), sem hér er á tali við einn stjórnarmanna fyrirtækisins, Franklin Thomas, á fundi í New York. Ætlað lykilhlut- verk í auknum umsvifum Alcoa Jake Siewert DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir við Morgunblaðið að tíðindi gærdagsins um ákvarðanir stjórna Alcoa og Landsvirkjunar vegna ál- vers í Reyðarfirði og Kára- hnjúkavirkjunar séu gríðarlegur áfangi fyrir þjóðina. Fyrir liggi ákveðinn vilji beggja samningsaðila um að ráðast í verkefnið. Óhætt sé að telja að málið sé í höfn, þó að nokkur atriði séu ófrágengin eins og samningar við verktaka, ábyrgð- ir eigenda Landsvirkjunar fyrir lántöku og frumvarp iðnaðarráð- herra á Alþingi. Davíð segir að nýtt og öflugt hagvaxtarskeið sé að hefj- ast. „Menn hafa unnið að þessu verk- efni með beinum eða óbeinum hætti í á annan áratug. Oft hafa von- brigðin verið mikil og menn hafa ekki þorað að slá neinu föstu fyrr en á stundu sem þessari. Nú telur maður óhætt að segja að málið sé komið í höfn. Þetta þýðir að hér er að hefjast nýtt og öflugt hagvaxt- arskeið, sem kemur í kjölfar 7–8 ára hagvaxtar sem aðeins hefur hægst á upp á síðkastið,“ segir Davíð. Hann segir að atvinnuástand muni eflast tiltölulega fljótt, tekjur Íslendinga útávið aukast og kaup- máttur muni gjörbreytast til hins betra. „Þetta eru afar góð tíðindi fyrir land og þjóð, ekki síst fyrir Austfirðinga. Nú horfum við af mjög vel rökstuddri bjartsýni fram í tímann.“ Einlægur vilji og enginn sýndarskapur hjá Alcoa Forsætisráðherra segir það hafa verið skemmtilegt að starfa með stjórnendum Alcoa síðustu mán- uðina, en fyrstu viðræður við fyr- irtækið hófust í apríl á síðasta ári. Hratt og hreinlega hafi verið unnið og strax myndast mikill trúnaður milli manna. „Menn höfðu traust hver á öðr- um um að einlægur vilji væri til þess að láta verkin tala. Enginn sýndarskapur í því. Á fyrri stigum málsins hefur okkur stundum þótt við vera dregnir á asnaeyrum. Hér hefur verið um gríðarstórar ákvarðanir að tefla og ekki á færi nema stærstu fyr- irtækja að axla þær. Þess vegna var mjög gott, þegar norska fyrirtækið hvarf frá borði með svo óvæntum hætti, að Alcoa skyldi koma svo fljótt til sögunnar. Þetta eru því afskaplega góð tíðindi fyrir landsmenn alla, sérstaklega fyrir Austfirðinga, sem hafa sýnt mikið þolgæði í gegnum tíðina og ekki sparað hvatningar,“ segir Davíð. Aðspurður hvernig megi meta tíðindin í gær í sögulegu ljósi segir Davíð framkvæmdirnar á Aust- fjörðum þær stærstu sem Íslend- ingar hafi tekist á hendur. Þetta sé þó fyllilega sambærilegt við það þegar ákveðið var að reisa álver Alusuisse hér á landi á sjöunda áratug síðustu aldar. Umhverfið nú sé allt annað og betra hvað varðar t.d. tækniþekkingu landsmanna og lánstraust Landsvirkjunar og rík- issjóðs. Meirihlutinn í borginni hlýtur að axla ábyrgð á verkinu Stjórn Landsvirkjunar sam- þykkti orkusamning við Alcoa í gær, m.a. með þeim fyrirvara að eigendur samþykki að gangast í ábyrgðir fyrir lántökur. Hvort hann eigi von á að Reykjavíkurborg sam- þykki málið segir Davíð að meiri- hlutinn í borgarstjórn hljóti að axla ábyrgð á verki sem þessu. „Afstaða meirihlutans í borginni verður að vera klár. Það yrði með ólíkindum ef sá meirihluti, sem hef- ur sameinast um að stjórna borg- inni, ætlaði að vísa ábyrgð á tug- milljarða veðsetningu á fjármunum borgarinnar til minnihlutans til af- greiðslu. Þá væri það enn eitt dæmið um að þessari borg er ekk- ert stjórnað. Henni hefur reyndar ekkert verið stjórnað um nokkra hríð,“ segir Davíð. Davíð Oddsson forsætisráðherra Nýtt hagvaxtar- skeið að hefjast Davíð Oddsson VALGERÐUR Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra segir að ákvarð- anirnar sem stjórnir Alcoa og Landsvirkjunar tóku í gær séu það stórar að málið sé komið á beinu brautina að hennar mati. Allir geri sér ljóst að eingöngu úrvinnslu- atriði séu eftir til að ljúka því, auk þess sem Alþingi eigi eftir að sam- þykkja frumvarp til heimildarlaga um álverið í Reyðarfirði. Fyrir liggi vilji meirihlutans á Alþingi til að ráðast í gerð Kárahnjúkavirkj- unar, atkvæði féllu 44 gegn 9. „Þessar framkvæmdir munu hafa gríðarlega þýðingu fyrir þjóð- arbúið í heild og ekki síst fyrir Austurland og þá íbúa sem þar búa. Þetta skiptir einnig máli þar sem byggðaþróunin síðustu árin hefur verið mjög neikvæð. Sam- dráttur hefur verið í þjóðfélaginu síðustu mánuði og enginn hag- vöxtur á þriðja ársfjórðungi síð- asta árs. Með þessu er rík- isstjórnin að leggja sitt af mörkum til að halda uppi lífskjörum. Þar að auki erum við að nýta endurnýj- anlegar orkulindir, sem allar þjóð- ir eru að keppast við að gera og öfunda okkur af. Viðurkennt er á alþjóðavísu að miklu skiptir fyrir umheiminn að nýta end- urnýjanlega orku. Ég vona að menn átti sig á þessu,“ segir Valgerður. Hún segir það ákveðið afrek að hafa náð svo langt með málið og raun beri vitni, eftir nokkra mánuði frá því að við- ræður við Alcoa hófust. Vissulega hafi miklu skipt að fullmótað verk- efni hjá Norsk Hydro og Hæfi hafi legið fyrir. „Ástæða er til að nefna það sérstaklega hve þeir hafa stað- ið sig vel sem hafa unnið að verk- efninu fyrir okkar hönd. Þeir hafa lagt nótt við dag síðustu níu mán- uði til að ná þeim árangri sem nú blasir við.“ Góð lífskjör kalla á framleiðslu Valgerður segir það ljóst að frá fyrstu stundu hafi Alcoa unnið að málinu af mikilli alvöru. Æðstu stjórnendur hafi komið að því strax, áhuginn hafi verið meiri eft- ir sem ofar hafi dregið í valdastig- anum. Því hafi t.d. verið öfugt far- ið hjá Norsk Hydro, líkt og hafi sýnt sig fyrir tæpu ári. Áformaðar stóriðju- og virkj- unarframkvæmdir á Austurlandi hafa verið umdeildar og aðspurð hvað hún hafi að segja á þessari stundu við andstæðinga þeirra framkvæmda segist Valgerður gera sér grein fyrir því að þeir hafi ekki lagt niður skottið. Hún segist bera virðingu fyrir þeim sjónarmiðum að vernda eigi há- lendi Íslands. Hins vegar verði að minna á að til að halda uppi lífs- kjörum í landinu þurfi framleiðslu. Um það snúist málið og þess vegna séu framkvæmdirnar nauð- synlegar. „Ég minni bara á að málið hefur farið í gegnum lögformlegt ferli. Vilji Alþingis til virkjunar liggur fyrir og þannig er nú lýðræðið að menn verða að lokum að sætta sig við vilja meirihlutans.“ Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra Miklu skiptir að nýta endurnýjanlega orku Valgerður Sverrisdóttir FRIÐRIK Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að með sam- þykki stjórna Landsvirkjunar og Alcoa hafi gríðarstórt skref verið stigið í áttina að því að hefja verk- efnið á Austurlandi. Því beri að fagna en eftir eigi að reyna á ýmis atriði áður en hægt verði að skrifa undir bindandi samninga. Málinu sé ekki alfarið lokið fyrr en skrifað hafi verið undir alla samninga, út- litið sé þó bjart. Friðrik segir að mestu skipti að eigendur Landsvirkjunar séu til- búnir til þess að ábyrgjast þau lán sem taka þurfi vegna Kára- hnjúkavirkjunar. Sökum stærðar og umfangs verksins sé eðli- legt að leita eftir samþykki eig- enda áður en skrifað verði undir samninga við Alcoa í byrj- un næsta mán- aðar. Slíkt hafi ekki gerst áður varðandi samn- inga um raforkusölu hjá Lands- virkjun. Aðspurður um hverja hann telji niðurstöðu Reykjavíkurborgar verða til ábyrgðar á lántöku segir Friðrik yfirgnæfandi líkur á að allir eigendur séu tilbúnir til að sam- þykkja málið, ekki síst í ljósi nið- urstöðu eigendanefndarinnar svo- nefndu. Friðrik segir að einnig sé eftir að gera samning um stórar bygg- ingarframkvæmdir, en viðræður standi nú yfir við lægstbjóðanda, ítalska fyrirtækið Impregilo. Frið- rik segir að þar sé enn talsvert í land þar sem slíkir samningar séu flóknir. Einnig hafi verið rætt við aðra tilboðsgjafa til að kanna hvort eitthvað nýtt sé í spilunum hjá þeim. Þetta mál muni skýrast á næstu tveimur vikum. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar Gríðarstórt skref í málinu Friðrik Sophusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.