Morgunblaðið - 11.01.2003, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 11
Vorönn 2003
Innritun 11. og 12. janúar frá kl. 10 -13 - sími 511 3737
og 13. til 17. janúar frá kl. 9-12 - sími 861 7328
Einsöngsdeild Hóptímar – einkatímar – undirleikur I-V stig
Unglingadeild 13-16 ára
Syngdu með Hóptímar
Tónfræði & Tónlistarsaga
Kórskóli
Stúlknakór Reykjavíkur
Kór 1 Stúlkur fæddar ´95-´97 nokkur sæti laus
Kór 2 Stúlkur fæddar ´90-´94 nokkur sæti laus
Kór 3 Stúlkur fæddar ´86-´89 fullskipður
Gospelsystur Reykjavíkur fullskipaður
Vox Feminae fullskipaður
Péturskirkjukór fullskipaður
Agnar Már Magnússon
Arnhildur Valgarðsdóttir
Ástríður Haraldsdóttir
Hanna B. Guðjónsdóttir
Inga Backman
Ingunn Ragnarsdóttir
Margrét J. Pálmadóttir
Már Magnússon
Skarphéðinn Þ. Hjartarson
Stefán S. Stefánsson
Xu Wen
Þórdís Guðmundsdóttir
Domus Vox ehf., Skúlagötu 30, 2. h., 101 Reykjavík, sími 511 3737, fax 511 3738
www.domusvox.is Netfang: domusvox@hotmail.com
Kennarar:
STJÓRN Landsvirkjunar sam-
þykkti á fundi í gær raforkusamn-
ing við Alcoa, eða Fjarðaál, með sex
atkvæðum gegn einu. Jafnframt var
samþykkt að fela stjórnarformanni
og forstjóra heimild til að undirrita
sameiginlegan raforkusamning.
Samþykktin var gerð með nokkr-
um fyrirvörum. Í fyrsta lagi að eig-
endur Landsvirkjunar, ríkið,
Reykjavíkurborg og Akureyrarbær,
samþykki að ábyrgjast lántökur
Landsvirkjunar vegna Kárahnjúka-
virkjunar, í öðru lagi að samningar
takist við ítalska verktakann
Impregilo um gerð stíflu og að-
rennslisganga Kárahnjúkavirkjun-
ar, í þriðja lagi að ljóst sé að úr-
skurður Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) vegna samningsins við Alcoa
verði Landsvirkjun í hag og í síð-
asta lagi að stjórnarfrumvarp verði
samþykkt á Alþingi vegna bygg-
ingar álversins.
Áhætta of mikil miðað
við arðsemi
Helgi Hjörvar, einn þriggja full-
trúa Reykjavíkurborgar í stjórn-
inni, greiddi atkvæði á móti orku-
samningnum, og lagði fram bókun
til að gera grein fyrir atkvæði sínu.
Í bókun Helga segir m.a. að ekki sé
sá ávinningur fyrir hendi af virkj-
uninni að honum sé fært að styðja
málið. Áhættan sé of mikil í hlutfalli
við arðsemina. Tillagan um virkj-
unina feli í sér að tæpir 100 millj-
arðar króna verði teknir að láni
með veði í eigum almennings og á
ábyrgð skattgreiðenda. Gert sé ráð
fyrir að greiða tæp 4% í vexti af
lánum en samkvæmt forsendum
Landsvirkjunar eigi að fást rúm 5%
ávöxtun til að mæta vöxtunum.
„Þeir eigendur sem ég er fulltrúi
fyrir, Reykvíkingar, myndu fæstir
veðsetja eignir sínar upp á þau
býti,“ segir m.a. í bókun Helga, sem
nálgast má í heild sinni á mbl.is.
Edda Rós Karlsdóttir, hagfræð-
ingur og fulltrúi ríkisins í stjórn-
inni, lagði einnig fram bókun til að
gera grein fyrir sínu atkvæði en
hún samþykkti engu að síður samn-
inginn við Alcoa. Í bókuninni segir
Edda Rós að metin heildararðsemi
verkefnisins, þ.e. arðsemi á lánsfé
og eigið fé, sé lág og því töluverðar
líkur á að verkefnið skili ekki við-
unandi arðsemi til þjóðarbúsins.
Það sé hlutverk lýðræðislegra kjör-
inna fulltrúa á Alþingi, í borgar-
stjórn og bæjarstjórn Akureyrar að
taka afstöðu til þessa.
„Miðað við fyrirliggjandi gögn
mun Kárahnjúkavirkjun skila
Landsvirkjun viðunandi ávöxtun á
eigið fé miðað við þá ávöxtunar-
kröfu sem gerð er til sambærilegra
fyrirtækja erlendis. Arðsemin næst
ekki síst vegna hagstæðra lánskjara
sem tengjast ábyrgðum eigenda.
Verkefnið mun samkvæmt því auka
verðmæti Landsvirkjunar. Á þeirri
forsendu samþykki ég fyrirliggj-
andi tillögu,“ segir í bókuninni en
greinargerð með henni er líkt og
bókun Helga birt í heild á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is, undir liðn-
um „Helstu mál: Kárahnjúkar.“
Auk Eddu Rósar samþykktu eft-
irtaldir stjórnarmenn samninginn
við Alcoa: Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, formaður, Árni Grétar
Finnsson, varaformaður, báðir fyrir
ríkið, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og
Pétur Jónsson, fulltrúar Reykjavík-
urborgar, og Kristján Þór Júl-
íusson, bæjarstjóri á Akureyri.
Landsvirkjun
samþykkti
samning við
Fjarðaál
Einn fulltrúa borgarinnar á móti
og einn þriggja fulltrúa ríkisins
skilaði sérstakri bókun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjórn Landsvirkjunar á fundi sínum í gær. Fremst sitja Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson stjórnarformaður og Friðrik Sophusson forstjóri en fyrir miðju
má sjá Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og Kristján Þór Júlíusson.
TENGLAR
.....................................................
www.mbl.is
Egilsstöðum – „Þetta er gleðidagur.
Menn eru búnir að leggja mikið á sig
og eru nú að uppskera,“ sagði Smári
Geirsson, forseti bæjarstjórnar í
Fjarðabyggð, í gærkvöld, þar sem
hann fagnaði niðurstöðu Alcoa ásamt
fjölda Reyðfirðinga og annarra gesta
á Fosshóteli Reyðarfirði.
„Ég tel að nú hafi verið teknar lyk-
ilákvarðanir sem marki þáttaskil í
þessu máli. Þessi törn hófst 1997 og
þær hafa verið margar síðan um
1980, en nú er þetta á enda. Ég vona
að þegar niðurstaða er fengin þá
sameinist allir um það að gera eins
gott úr hlutunum og hægt er. Það er
grundvallaratriði,“ sagði Smári
kampakátur.
Þegar ljóst varð um fimmleytið í
gærdag að Alcoa ætlar að byggja ál-
ver á Reyðarfirði greip víða um sig
mikill fögnuður og menn þustu til að
samgleðjast á Fosshóteli. Guð-
mundur Bjarnason, bæjarstjóri
Fjarðabyggðar, var ánægður með
fréttirnar. „Menn eru í hátíðarskapi
og það gefur augaleið að nú fara upp-
gangstímar í hönd,“ sagði Guð-
mundur.
Alcoafánum var víða flaggað í
Fjarðabyggð í gær og fréttist m.a. af
því að Félag eldri borgara á Eskifirði
hefði haft mikið fyrir því að nálgast
einn slíkan til að draga að húni.
Þeir þingmenn fjórðungsins sem
stutt hafa virkjunar- og stóriðju-
hugmyndir létu sig ekki vanta í fögn-
uðinn. „Mér finnst þetta afar
skemmtileg stund og gaman að
Reyðfirðingar og aðrir skuli koma
hér saman,“ sagði Arnbjörg Sveins-
dóttir þingmaður. „Þetta eru miklar
ákvarðanir sem nú hafa verið teknar
og við Austfirðingar getum ekki ann-
að en glaðst. Lengi búið að berjast,
bíða og vona og mörg vonbrigði á
þessari leið, en fagnaðarefni að nú
skuli vera komin niðurstaða.“
Ekki aðeins var hótelið troðfullt af
gestum, heldur var planið fyrir utan
þéttskipað fullorðnum og börnum og
nánast áramótastemning, því
stjörnuljós flöktu um myrkrið og
skoteldar lýstu upp himininn.
Gamall og rótgróinn Reyðfirð-
ingur dró fána í hálfa stöng
„Við erum mjög bjartsýnar og ætl-
um að taka lífinu létt næstu daga og
vikur,“ sögðu Reyðfirðingarnir
Birna Björnsdóttir og Dagbjört
Gísladóttir. „Það er allt búið að vera
hér á niðurleið síðustu árin þannig að
þetta var alveg orðið tímabært.“
Þær segjast þó ekki hafa íhugað að
flytja á brott eins og fjöldi manns
hefur gert, en halda að líklega hafi
bæjarbúar innst inni ekki trúað fylli-
lega að þetta myndi nokkurn tíma
gerast. „Þetta er geysileg lyftistöng
fyrir bæjarfélagið og allan fjórðung-
inn. Núna verður farið að halda uppi
einhverju þjónustustigi hérna, sem
ekki veitir af, því fólki hefur farið
fækkandi og þjónustan sömuleiðis
rýrnað.“
Þær láta allar yfirlýsingar um að
mesta uppbyggingin muni verða á
Egilsstöðum sem vind um eyru
þjóta. „Unga fólkið sem hefur verið
að mennta sig kemur heim aftur, því
það sér framtíð í þessum tæknistörf-
um hér í álverinu. Við vitum um fólk
sem er orðið rótgróið fyrir sunnan og
ætlar samt að taka sig upp og koma
aftur heim.“
Aðspurðar hvort álversandstæð-
ingar hafi verið áberandi í reyðfirsku
bæjarlífi segja þær að þeir séu vissu-
lega til. „Ég hitti einn í dag og spurði
hann að gamni mínu hvort hann yrði
ekki ánægður ef Alcoa tæki af skar-
ið,“ segir Dagbjört. „En hann sagðist
reikna með að draga fána í hálfa
stöng. Þetta var nú gamall og inn-
fæddur Reyðfirðingur sem sagði
þetta.“
Einn af stærstu dögunum í
sögu Austfirðingafjórðungs
„Ég er mjög hamingjusamur, því
þetta er einn af stærri dögum í sögu
fjórðungsins og raunar þjóðarinnar
allrar,“ sagði Einar Már Sigurðsson
þingmaður. „Það er búið að berjast
svo lengi að maður man vart eftir
öðru. En þolinmæðin þrautir vinnur
allar, það sannast enn einu sinni. Ég
trúi ekki öðru en að menn sem búnir
eru að berjast eins hatrammlega og
ýmsir hafa gert í þessu máli átti sig á
því að þetta mál er búið og nú er ekki
annað að gera en að slíðra sverðin.
Við verðum að sameinast um að gera
það besta úr þessu, og það veitir ekki
af því að nú blasa tækifærin við og
þau þarf að nýta. Það er ekkert gagn
að svona einstökum atburði ef menn
nota ekki þau tækifæri sem hann
skapar.“
Stuðningsmenn álvers fögnuðu ákvörðun Alcoa í gærkvöld
Nú blasa tækifærin
við á Austurlandi
Morgunblaðið/Golli
Fjöldi fólks safnaðist saman á Reyðarfirði í gær til að fagna þeirri ákvörðun Alcoa að reisa álver á Reyðarfirði.
ALCOA er stærsta álfyrirtæki heims í dag, með starfsemi sem nær til
38 landa og starfsmenn eru um 127 þúsund talsins. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í vikunni eru uppi áform um að fækka starfsmönnum
á árinu um átta þúsund vegna samdráttar í rekstri, aðallega í Banda-
ríkjunum. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Pittsburgh og New York.
Velta móðurfyrirtækisins á heimsvísu er nærri 23 milljarðar
Bandaríkjadala, eða um 1.800 milljarðar íslenskra króna. Alcoa fram-
leiðir súrál, hráál og unnið ál. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru m.a. í
flugvéla-, bíla-, umbúðaframleiðslu og í byggingariðnaði. Alcoa fram-
leiðir einnig neytendavörur á borð við Reynolds-álumbúðir, Alcoa-
felgur og Baco-álpappír. Þá framleiðir fyrirtækið einnig klæðningar
utan á hús, stálsteypumót og rafkerfi í bíla.
Alcoa í 38 löndum