Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 25
GUÐJÓN Kristinsson hefur und-
anfarnar vikur unnið að lagfær-
ingum á grjótgarðinum umhverfis
Húsið á Eyrarbakka.
Aðfaranótt 9. janúar 1799, fyrir
204 árum, gekk sjór á land víða um
suðvestanvert landið í stórstreymi
og aftakaveðri. Tók þá af kaupstað-
inn á Bátsendum og flest kaupstað-
arhúsin á Eyrarbakka og Búðum á
Snæfellsnesi eyddust. Þetta flóð
hefur síðan gengið undir nafninu
Bátsendaflóðið.
Eftir flóðið var hlaðinn mikill og
rammger grjótgarður umhverfis
Húsið á Eyrarbakka, sem hefur síð-
an staðið af sér mörg stórviðri og
flóð. Einhverjar viðgerðir munu
hafa farið fram á garðinum um
aldamótin 1900 en nú fara fram
vandaðar endurbætur á þessu
aldna mannvirki.
Guðjón Kristinsson frá Dröngum,
sem nú býr í Árbæ í Ölfusi, hefur
haft verkið með höndum að mestu
einn, en sonur hans hefur einnig
komið við sögu. Guðjón segir að sjá
Gamalt handverk
og nýtt við Húsið
Eyrarbakki
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Guðjón Kristinsson við garðinn.
megi mikinn mun á handbragði í
gömlu hleðslunni á nokkrum stöð-
um og augljóst að fleiri en einn hafi
þar unnið að, sumir flinkir hleðslu-
menn og aðrir síðri.
Hann kveðst reyna að nota sem
mest gömlu steinana en óhjá-
kvæmilegt er að bæta úr þar sem
gamla grjótið hefur hreinlega
molnað í frostum og sól þessi tvö
hundruð ár.
HAFNAR eru framkvæmdir við sjó-
varnargarð fyrir vestan Stokkseyri.
Gísli Viggósson forstöðumaður hafn-
arsviðs hjá Siglingastofnun segir að
garðurinn eigi að ná frá Kaðlastöð-
um vestur fyrir Hraunsá þar sem ós
árinnar verður breytt þannig að
garðarnir verða látnir vera mislægir
svo að sjórinn eigi ekki greiða leið
upp ósinn.
Verkið var boðið út á haustmán-
uðum og áttu Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða lægsta boð sem hljóð-
aði upp á kr. 24.961.500 en það er
67,2% af heildarkostnaðaráætlun
verksins. Verktakinn tekur efni í
þessa framkvæmd í grjótnámu í
landi Hrauns í Ölfusi.
Þetta er stærsta sjóvarnarverk-
efnið á þessu ári og eru áætluð verk-
lok 23. apríl 2003. Einnig sagði Gísli
að til stæði að vinna tvö minni verk í
Árborg á þessu ári Það eru styrking
garðsins á Stokkseyri við Íragerði og
Hásteinsveg annars vegar og hins
vegar á Eyrarbakka styrking sjó-
varnargarðarins milli samkomuhúss
og bryggjunnar.
Sjóvarnargarður og
breytingar á ósnum
Stokkseyri
Morgunblaðið/Gísli
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 25
„MAÐUR er auðvitað alltaf að
hugsa um að hafa verkefni fyrir
starfsemina og alla þessa starfs-
menn og það er auðvitað mun betra
að starfa í heimabyggð eða sem
næst henni,“ segir Ólafur B. Snorra-
son, framkvæmdastjóri Ræktunar-
sambands Flóa og Skeiða. Hann tók
við starfi framkvæmdastjóra 1. júní
1979 en hafði þá unnið með hléum á
vélum og á verkstæði félagsins.
„Ég tók við á þeim tíma sem ríkið
tók upp útboðsstefnu sína að bjóða
út verk í vegagerð. Við helltum okk-
ur út í það að gera tilboð, þá með 6–8
starfsmenn, og það hefur gengið vel
með því að fara ekki of geyst. Við
höfum alltaf verið með afburða
starfsmenn sem þetta hefur allt
byggst á en við pössum okkur á að
taka ekki of stóra bita í einu,“ segir
Ólafur þegar hann er inntur eftir
þróun og starfsemi fyrirtækisins.
Nú eru starfandi hjá fyrirtækinu
60 manns og hafa verið það und-
anfarin þrjú ár. Umfang og starf-
semi fyrirtækisins hefur breyst og
verkefnin orðið fjölbreyttari.
„Við höfum sérhæft okkur í borun
eftir heitu og köldu vatni og tökum
að okkur rannsóknarboranir og er
þá um að ræða djúpar rannsóknar-
holur vegna jarðgangagerðar og
margvíslegra verka s.s. vegna
gangagerðar við Kárahnjúkavirkj-
un. Við höfum útbúið okkur vel í
þetta og höfum ákveðið forskot þó
svo alltaf sé mikil samkeppni um
verkin.
Einnig höfum við komið okkur
upp hönnunardeild sem gerir okkur
kleift að taka að okkur verk og hönn-
un þeirra um leið. Af þessum sökum
berast til okkar verk án útboða.“
Þið keyptuð nýlega land hér í ná-
grenni Selfoss, Hagalandið niður
með Eyrarbakkavegi. „Já, við sáum
fyrir okkur að byggðin myndi þróast
niður með Eyrarbakkaveginum og
keyptum þetta land með það í huga
að þar mætti koma fyrir íbúðalóðum
í einhverri framtíð. Svo vantaði okk-
ur athafnapláss vegna verka sem við
erum í á Selfossi, við stofnræsi sem
kallar á mikla efnisflutninga að og
frá skurðunum. Þá erum við einnig í
gatnagerð í Fosshverfinu. Við ætl-
um að skipuleggja Hagalandið sem
íbúðarbyggð og erum í samstarfi við
Fossmenn ehf. um kaup á meira
landi suður af Haga þar sem flug-
völlurinn stendur.
Það er auðvitað viðkvæmt að
snerta svæði flugvallarins en við höf-
um hugsað það þannig að það sé
auðvelt að flytja hann til. Það er auð-
velt að benda á nýtt svæði undir
flugvöllinn neðan við svonefnda Síb-
eríu hér niður með Eyravegi í landi
sem er í eigu sveitarfélagsins Ár-
borgar. Þar mætti auðveldlega koma
vellinum fyrir. Ef hugað er að því
strax þá ætti að vera auðvelt að
flytja efni í hann á ódýran hátt ef
menn hafa tíma fyrir sér til þess,“
segir Ólafur.
Gullfiskar í garðinum
„Ég eyði frítímanum á sumrin í
laxveiði sem ég hef ákaflega gaman
af og svo er garðurinn heima dálítið
áhugamál en þar er ég með gullfiska
á sumrin en þeir fá að hvíla sig í bíl-
skúrnum yfir vetrartímann. Svo þarf
maður auðvitað að sinna fjölskyld-
unni með vaxandi fjölda barnabarna
sem er mjög gefandi og ánægju-
legt,“ sagði Ólafur B. Snorrason,
framkvæmdastjóri Ræktunarsam-
bands Flóa og Skeiða á Selfossi.
Gætum okkar á að taka
ekki of stóra bita í einu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ólafur B. Snorrason, framkvæmdastjóri Ræktunarsambands Flóa og
Skeiða, við stæðu af fóðringum fyrir stærstu holurnar sem fyrirtækið borar.
Ólafur B. Snorrason, framkvæmdastjóri á Selfossi
Selfoss
Í SJÖUNDA sinn á jafnmörgum ár-
um var slegið upp tónlistarveislu í
ár á Hótel Örk. Margir af þeim tón-
listarmönnum sem búa eða hafa bú-
ið í Hveragerði komu saman og
spiluðu og sungu, þar á meðal var
hljómsveitin Loðmundur sem þekkt
var fyrir „nokkrum“ árum.
Upphafsmaður að þessari
skemmtun er Sölvi Ragnarsson,
rafvirki og tónlistarmaður. Fyrir
sjö árum ákvað hann að halda upp á
afmælið sitt með því að bjóða
nokkrum tónlistarmönnum að
koma og skemmta sér og öðrum.
Ein þeirra hljómsveita, sem Sölvi
hefur verið í, hét „Með afa“ og er
tónlistarveislan nefnd eftir þeirri
sveit. Þessi afmælisveisla hefur síð-
an undið upp á sig og er nú orðin
helsta skemmtun Hvergerðinga á
milli jóla og nýárs.
Í fyrra var hátíðin haldin á Þing-
húscafé, en í ár var ákveðið að taka
stóra salinn á Örkinni undir herleg-
heitin og veitti ekki af. Salurinn var
troðfullur svo opna þurfti inn í hlið-
arsalinn. Misjafnt er á milli ára
hverjir koma og troða upp og er
fjölbreytni mikil.
Fyrri hluta kvöldsins voru tón-
leikar þar sem boðið var upp á ým-
iskonar tónlist, en þegar Loðmund-
ur tók lagið gátu gestir ekki hamið
sig lengur og dansinn dunaði langt
fram á nótt. Það var skemmtilegt
að sjá að burtflognir Hvergerð-
ingar halda tryggð við bæinn sinn
með því m.a. að koma og hitta alla
gömlu vinina.
Með afa á Örkinni
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Kristinn Harðarson, Sölvi Ragnarson afmælisbarn, Hafsteinn Bjarnason
og Björn Eiríksson spiluðu gömlu góðu lögin og kunna þau öll ennþá.
Hveragerði
SUNDKONAN Kolbrún Ýr Krist-
jánsdóttir var útnefnd íþróttamaður
ársins á Akranesi hinn 6. janúar sl.
og fékk Kolbrún fullt hús stiga hjá
þeim sem greiddu atkvæði að þessu
sinni. Þetta er í fjórða sinn á sl. fimm
árum sem Kolbrún Ýr er kjörin
íþróttamaður Akraness en hún var
einnig kjörin sundkona ársins af
Sundsambandi Íslands á sl. ári. Hún
tryggði sér rétt til þess að taka þátt í
Evrópumeistaramótinu í 25 m og 50
m laug í janúar í fyrra.
Hún varð fimmfaldur Íslands-
meistari í 25 m laug í mars og bætti
um betur á Íslandsmótinu í 50 metra
laug í júlí er hún varð sexfaldur Ís-
landsmeistari. Kolbrún Ýr tryggði
sér rétt til þess að taka þátt í heims-
meistaramótinu í 50 m laug sem
fram fer í sumar, en hún tók þátt í
Evrópumeistaramótunum í 25 metra
laug og 50 metra laug á árinu sem
var að líða. Kolbrún verður tvítug í
nóvember á þessu ári og er hún í
undirbúningshóp Ólympíusambands
Íslands fyrir Ólympíuleikana í
Aþenu sem fram fara árið 2004.
Hvert aðildarfélag innan Íþrótta-
bandalags Akraness, ÍA, tilnefndi
einn íþróttamann úr sínum röðum en
þeir eru: Hólmsteinn Valdimarsson,
badminton, Ingibergur Jónsson,
hestaíþróttir, Ester María Ólafs-
dóttir, fimleikar, Lindberg Már
Scott, íþróttir fatlaðra, Stefán Orri
Ólafsson, golf, Eydís Líndal Finn-
bogadóttir, karate, Reynir Leósson,
knattspyrna, Magnús Þórður Helga-
son, körfuknattleikur, Birgitta Þura
Birgisdóttir, keila, og Stefán Örlygs-
son, skotfimi. Athöfnin fór fram í
íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum
að lokinni árlegri álfabrennu á þrett-
ándanum og þar fengu allir Íslands-
meistarar ársins 2002 úr röðum ÍA
viðurkenningu.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Kolbrún Ýr
íþróttamað-
ur ársins í
fjórða sinn
Akranes
ÞEIR voru kátir á fyrsta degi árs-
ins, frændurnir Ísak og Davíð, þeg-
ar farið var með þá í sleðaferð á ísi-
lagða tjörn.
Morgunblaðið/Gunnar
Sleðaferð
á ísnum
Grundarfjörður
LANDIÐ
♦ ♦ ♦