Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 27
VERÐ á Cape-vínberjum frá Suður-
Afríku hefur farið lækkandi á mörk-
uðum ytra og segir Eggert Gíslason
framkvæmdastjóri Mata ehf. sem
flytur Cape-vínber til landsins að
heildsöluverð hafi lækkað um 36%
síðastliðinn mánudag. Hefur verð á
vínberjum lækkað undanfarna daga
og kemur til með að lækka meira um
helgina og í byrjun næstu viku.
Áætla má að um eða yfir 50 tonn séu
flutt inn til landsins af suður-afrísk-
um vínberjum í desember og janúar.
Eggert segir að sending af vín-
berjum hafi komið með skipi til
landsins fyrir skömmu og sé nú að
skila sér á markaðinn. Cape-vínber-
in sem voru í verslunum yfir hátíð-
irnar voru flutt með flugi, að hans
sögn.
Í lauslegri verðkönnun Morgun-
blaðsins á vínberjum í hádeginu í
gær kostaði kíló af Cape-vínberjum
sem hér segir:
Bónus 499 krónur
Fjarðarkaup 559 krónur
Sparverslun 559 krónur
Nettó 799 krónur
Hagkaup 949 krónur
Nóatún 998 krónur
Suður-afrísk vínber, stundum
nefnd jólavínber, kostuðu 798–998
krónur kílóið í verslunum á höfuð-
borgarsvæðinu 30. desember síðast-
liðinn.
Til samanburðar má geta að jóla-
vínber voru á 578 krónur upp í 1.299
krónur kílóið í verðkönnun Morgun-
blaðsins 7. janúar í fyrra.
Von á enn frekari lækkunum
Kaupás flytur inn suður-afrísk
vínber, ekki Cape, en sambærilega
vöru og segir Sigurður Gunnar
Markússon rekstrarstjóri Nóatúns
að enn sé verið að selja ber sem flutt
voru flugleiðina frá Suður-Afríku.
„Við eigum von á sendingu með
skipi á mánudag eða þriðjudag og
ekki að búast við lækkunum fyrr en
hún er komin. Þá er verð á mörk-
uðum ytra að lækka og því má búast
við enn meiri lækkun á vínberjaverði
í þarnæstu viku,“ segir Sigurður
Gunnar.
Bjarni Finnsson forstöðumaður
ávaxta- og grænmetis hjá Búri ehf.
segir að heildsöluverð á vínberjum
muni lækka um 42% á mánudag.
Vínberin sem Kaupás selur nefnast
Safe og segir Bjarni um að ræða
sömu vínber og seld eru með Cape-
vörumerkinu. „Hér er um að ræða
bændur sem hafa klofið sig út úr
Cape-samstarfinu,“ segir hann.
Vínberjaverð var hæst um 1.500
krónur kílóið fyrir jólin í verslunum í
fyrra og mun að sögn ekki vera um
afgerandi breytingar á innkaups-
verði að ræða milli ára.
Segir Bjarni Finnsson reyndar að
ástæða margfalt lægra vínberja-
verðs um þessar mundir sé harka í
samkeppni milli matvöruverslana.
Sigurður Reynaldsson innkaupa-
stjóri Hagkaupa segir verð á suður-
afrísku vínberjunum jafnan hátt
meðan eftirspurnin er mest á heims-
markaði og að Hagkaup séu enn að
selja vínber sem flutt voru með flugi.
Segir hann loks að kíló af Cape-
vínberjum muni lækka umtalsvert í
verslunum Hagkaupa í dag og verði
seld á 699 krónur kílóið.
Jólavínberin
hafa lækkað
um 36%
Verð á vínberjum hefur
lækkað umtalsvert í
þessari viku og er frek-
ari lækkunum spáð
næstu daga. Helga
Kristín Einarsdóttir
ræddi við innflytjendur
og verslunarmenn og
bar saman verð í
nokkrum verslunum.
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Kaupmenn segja mikla samkeppni
hafa leitt til mun lægra vínberja-
verðs nú en á sama tíma í fyrra.
Lægsta kílóverð var 499 kr. í há-
deginu í gær.
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 27
INGVI Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Sparverslunar gerir
athugasemd við þau orð Ingimars
Jónssonar, forstjóra Kaupáss, að
innflutningur Búrs ehf. hafi orðið
til þess að lækka verð á ávöxtum
og grænmeti undanfarna mánuði.
„Ég finn mig knúinn til þess að
hrekja orð forstjóra Kaupáss í
Morgunblaðinu á fimmtudag.
Ástæðan er einfaldlega sú að um
mitt síðasta ár gerðum við hér í
Sparverslun mikið átak og fram-
kvæmdum reglulegar verðkannan-
ir á ákveðnum grunntegundum
ávaxta og grænmetis hjá Nóatúni
og Hagkaupum, sem eru sambæri-
legar verslanir við Sparkaup að
mati Samkeppnisstofnunar. Sam-
kvæmt gögnum sem ég hef undir
höndum byrjuðu þeir ekki að
lækka verð fyrr en um miðjan
október.
30% verðmunur
Um var að ræða verðkannanir á
kínakáli, hvítkáli, blómkáli, papr-
iku, tómötum, gúrku, eplum, app-
elsínum og banönum og í verð-
könnun frá 2. október var kílóverð
með körfu af þessum tegundum
um 30% hærra í Nóatúni og 22%
hærra í Hagkaupum en í Spar-
verslun. Það var síðan ekki fyrr en
að við auglýstum þennan verðmun
opinberlega að við urðum varir við
að þeir lækkuðu verð. Hvers vegna
lækkaði það ekki um leið og þeir
hófu innflutning sjálfir?“ segir
Ingvi Guðmundsson.
Segir Sparverslun
hafa riðið á vaðið
ÚTLÍNUR opnustúlkna í tíma-
ritinu Playboy hafa orðið kyn-
lausari í áranna rás, samkvæmt
rannsókn sem greint hefur verið
frá í læknatímaritinu British
Medical Journal.
Brjóst- og mjaðmamál hefur
minnkað og mittismál aukist en
þyngd staðið í stað.
Rannsakendur tilheyra deild
sálgreiningar og sállækninga í
læknaskóla háskólans í Vín-
arborg og voru niðurstöðurnar
birtar í BMJ í lok desember.
Skoðuðu þeir 577 tölublöð
Playboy, frá desember 1953,
þegar tímaritið kom fyrst út, til
desember 2001.
Fram kom í samanburði á
myndum í tímaritunum að lík-
amsfita fyrirsætna hefur minnk-
að og hæð þeirra aukist, en nú-
tímamaðurinn mun almennt
vera að lengjast, samkvæmt
rannsóknum.
Heilsa og líkamlegt ágæti
„Líkamsstuðull [æskilegt hlut-
fall þyngdar og hæðar, svokall-
að BMI-vægi] og ákjósanlegt
hlutfall milli mjaðmabreiddar og
mittismáls er tengt frjósemi,
innkirtlastarfsemi, sjúkdóms-
hættu og langlífi. Æskilegur lík-
amsstuðull með tilliti til heilsu-
fars er að jafnaði 20 og hlutfall
milli mittis- og mjaðmamáls
[svokallað epla/peruhlutfall] 0,7.
Sama formúla virðist gilda
þegar mælt er hvaða konur hafa
mest aðdráttarafl fyrir karla og
þar sem hár aðlöðunarstuðull
endurspeglar líka ákjósanlegt
líkamsform með tilliti til frjó-
semi og heilsufars ætti hún ekki
að vera tískusveiflum háð,“ seg-
ir í BMJ.
Í niðurstöðum segir enn-
fremur að breytingar á máli fyr-
irsætnanna virðist til komnar
vegna væntinga nútímans.
Stundaglas eða þvengur
„Dæmigert BMI-vægi Playboy
fyrirsætu er orðið minna en hjá
konum almennt, meðan epla/
peruhlutfall er líkara því sem
gengur og gerist. Í stuttu máli
sagt hafa útlínur opnufyr-
irsætna orðið kynlausari með
tímanum. Fullyrt hefur verið að
vöxtur fyrirsætnanna dragi
meiri dám af stundaglasi en skó-
þveng, en af þessum nið-
urstöðum má vera ljóst að epla/
peruhlutfall kvenna sem þykja
hvað mest aðlaðandi kynferð-
islega er að breytast,“ segir
BMJ.
Þess má geta að lokum að
hægt er að reikna út BMI-vægi
og epla/peruhlutfall á heimasíðu
netdoktor.is.
Opnustúlkur sagðar
kynlausari nú en áður
Reuters
Sautjándu aldar kona að hætti Rubens, kvikmyndagyðjan Marilyn Monroe
um miðja síðustu öld og Eva Herzigova á tískusýningarpalli nútímans.