Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.01.2003, Qupperneq 28
ÚR VESTURHEIMI 28 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ „Ég mjaðmagrindarbrotnaði fyrir rúmlega tveimur árum og komst ekki út úr húsi,“ segir dr. Jonas Johnson um tilurð bókarinnar. Hann flettir handritinu, horfir út á vatnið og bæt- ir við: „Ég þurfti að hafa eitthvað fyr- ir stafni og þetta er árangurinn.“ Dr. Jonas Johnson verður átt- ræður á næstunni, en hann fæddist í Lundar í Manitoba 22. janúar 1923. Sonur hjónanna Björns Johnsons, bónda og fiskimanns, og Guðlaugar, en þau áttu sex syni. Afi hans í móð- urætt var Jónas Jónasson frá Skaga- firði, sem flutti með Þóru Þorfinns- dóttur, konu sinni, til Norður-Dakóta. Eftir að hún dó kvæntist hann Guðrúnu Finn- bogadóttur, ömmu Jonasar Johnson, en þau bjuggu síðar í Vogar við Manitobavatn. Föðurafi hans, Guð- mundur Jónsson frá Húsey, settist líka að í Vogar. Hann skrifaði m.a. bókina Að vestan, en kona hans var Jónína Björnsdóttir. Fyrri kona dr. Jonasar var Elizabeth Ann en hann er nú kvæntur Stellu Annette og eiga þau tvö börn, Bjorn og Betty Van Winkle. Læknirinn sinnti starfi sínu á þremur stöðum í Manitoba. Fyrst var hann í Vita í suðausturhluta fylk- isins 1948 til 1949, síðan í Rossburn- Angusville í vesturhlutanum 1949 til 1959 og loks í Gimli til 1993 þegar hann hætti sjötugur að aldri. Það er greiðfært um Manitoba á sumrin, en það getur verið erfitt að komast á milli staða á veturna. Sam- göngurnar voru augljóslega allt aðr- ar og verri, þegar vegakerfið var ekki eins gott og það er nú, þegar ökutæki voru af skornum skammti og ferðast þurfti á hestum, sleðum eða snjóbíl- um. „Það þekkja orðið fáir þessa tíma og ég var hvattur til að segja söguna eins og ég upplifði hana, en ég var síðasti læknirinn, sem fór í húsvitj- anir í Manitoba,“ segir dr. Jonas. „Bókin endurspeglar þá reynslu auk þess sem ég endursegi sögur sem mér voru sagðar.“ Reynslusögur Læknirinn sinnti starfi sínu á þremur stöðum í Manitoba. Fyrst var hann í Vita í suðausturhluta fylk- isins 1948 til 1949, síðan í Rossburn- Angusville í vesturhlutanum 1949 til 1959 og loks í Gimli til 1973 þegar hann hætti sjötugur að aldri. „Starfið var vissulega erfitt um miðja nýliðna öld, ekki síst vegna þess að það vantaði lækna eftir stríð- ið. Ég var mikið á ferðinni og þurfti að fara víða um sveitir en þannig var það og ekkert við því að segja. Það gat komið sér vel að þekkja til í sveit- inni þegar þurfti að yfirgefa far- artækið vegna ófærðar og vissulega lenti ég í ýmsu óvenjulegu í lækn- isvitjunum. Tvö atvik frá Vita eru of- arlega í minni en í báðum tilfellum var um fæðingarhjálp að ræða. Í öðru tilvikinu var ég kallaður á afskekktan bæ og eftir erfiða ferð mætti ég hús- bóndanum og krakkaskara fyrir framan bæinn. Hann heilsaði mér en strunsaði síðan inn í skóginn og sagð- ist þurfa að höggva við. Ekki var mikil birta inni í bjálkahúsinu og því varð ég að skilja dyrnar eftir opnar en í stóru rúmi lá konan, þrír kettir uppi í hjá henni og hænur á rúmgafl- inum. Ég þurfti að ýta köttunum frá til að geta athafnað mig en fæðingin gekk vel. Hitt atvikið var ekki eins broslegt. Vorið 1949 voru mikil flóð í Manitoba og ég var kallaður á flóða- svæði um miðja nótt. Það gekk ekki vel að komast að bóndabænum en það tókst að lokum. Ég lagði ekki í að fara með ófrísku stúlkuna til baka vegna flóðanna og skýrði stöðuna fyrir eiginmanninum og þremur kon- um sem þarna voru. Konurnar voru tilbúnar að aðstoða við fæðinguna á staðnum en maðurinn, vopnaður byssu, var langt því frá að vera al- mennilegur og fullvissaði mig um að kæmi eitthvað fyrir konuna eða barn- ið dræpi hann mig. Fæðingin tók langan tíma en engum varð meint af og ég hélt til baka að loknu verki. Skömmu síðar var mér sagt að veg- urinn hefði horfið.“ Miklar breytingar Vinnan var fyrir öllu og því segist Jonas ekki hafa verið mjög virkur í „íslenskum“ félagsmálum. „Við höf- um samt alltaf verið með í Íslend- ingafélaginu og svo var ég einn af stofnendum Rótarýfélagsins hérna og hef unnið fyrir félagið í 35 ár,“ segir hann og bætir við að mikið hafi breyst frá því hann kom til Gimli 1959. „Þegar ég kom hingað voru Ís- lendingar í miklum meirihluta sjúk- linga. Þeir vildu tala íslensku og ég var þeim til aðstoðar þó að íslenskan mín væri ekki alltaf rétt. Það kom þó ekki fyrir mig að segja að ég kæmi afturábak á morgun eins og góður maður sagði. Hins vegar lenti ég í vandræðum með að skilja konu sem var greinilega þurr í munninum en átti í erfiðleikum með að kasta af sér þvagi. Ég hafði aldrei heyrt orðið þvag, en nú hef ég séð og reynt allt.“ Dr. Jonas Johnson síðastur til að sinna læknisvitjunum í dreifbýli Manitoba í Kanada „Hef séð og reynt allt“ Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Dr. Jonas Johnson í Gimli í Kanada með handrit bókar sinnar. Fyrir jólin kom út bókin Stories of a Country Doctor eftir dr. Jonas Johnson í Gimli í Kanada. Steinþór Guðbjartsson settist niður með höfund- inum í húsi hans við Winnipegvatn. steg@mbl.is VERKEFNANEFND sem starf- ar á vegum þjóðræknisfélaganna í Vesturheimi og á Íslandi hefur auglýst einn eða tvo styrki lausa til umsóknar fyrir íslenska rithöf- unda sem hafa áhuga á að ferðast um slóðir Vestur-Íslendinga á árinu 2004 og kynna verk sín. Nefndin International Visits Program gerir ráð fyrir að greiða hluta kostnaðar vegna ferðar eins eða tveggja rithöfunda og er ósk- að eftir umsóknum frá rithöfund- um, sem hafa skrifað bækur sem þýddar hafa verið á ensku og/eða frönsku. Byrjaði 1997 Þetta verkefni hófst 1997 með fyrirlestrum Aðalsteins Ingólfs- sonar, þáverandi forstöðumanns Listasafns Íslands, víða í Kanada, en síðan hafa Páll Stefánsson, ljósmyndari, Fríður Ólafsdóttir, sem sýndi gerð íslenska þjóðbún- ingsins, og síðast Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzósópran, og Guð- ríður St. Sigurðardóttir, undir- leikari hennar, verið styrkt vegna ferða til Kanada en Patricia Gutt- ormson Peacock, listmálari, Ein- ar Vigfusson, útskurðarmaður, Carole Davis, söngkona, Harold Brown, undirleikari hennar, og Doug Rognvaldson, rokkasmiður, hafa heimsótt Ísland á vegum nefndarinnar auk þess sem frá- gengið er að Ruth Christie, sagnakona frumbyggja, og Martha Brooks, rithöfundur og djasssöngvari, koma á þessu ári. Verkefnið er skipulagt af Þjóð- ræknisfélagi Íslendinga í Norður- Ameríku og stutt af Þjóðrækn- isfélagi Íslendinga hér á landi. Það hefur m.a. verið styrkt af sérstökum menningarsjóði í Kan- ada, The Cultural Exchange Fund of the Canada Iceland Fo- undation, listasjóði Kanada, utan- ríkisráðuneyti Íslands og utan- ríkisráðuneyti Kanada, menntamálaráðuneytinu, Íslands- banka og Flugleiðum. Umsóknareyðublöð eru á vef- síðunum http://users.imag.net/ ~sry.rasgeirs/default.html og http:www.inl.is/frettir.htm, en umsóknareyðublaði þarf að skila í tvíriti ásamt æviágripi og eintaki af ritverki (t.d. bókarkafla auk ljósrits af forsíðu og baksíðu við- komandi bókar) til Þjóðræknis- félags Íslendinga, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 20. jan- úar 2003. Rithöfundar styrktir til Kanadaferðar FYRIR skömmu fór hópur manna í útreiðar- túr á íslenskum hestum við Mill Farm í New York-ríki í Bandaríkjunum og var tilgang- urinn að ná eigendum íslenskra hesta á svæð- inu saman með aukna samvinnu í huga. Riðið var út á 34 íslenskum hestum og segir Dan Slott í Mill Farm að sennilega hafi aldrei jafn- margir íslenskir hestar verið í ferð í Banda- ríkjunum. Á íslenskum hestum í New York Gimli verð- ur hreppur UM áramótin sameinaðist Gimli í Manitoba þéttbýliskjarnanum í kring og er Kevin Chudd oddviti nýja sveitarfélagsins, en hann hafði betur í kosningu við Bill Barlow, fyrrverandi bæjarstjóra Gimli, fyrr í vetur. Með sameiningunni verður sveit- arfélagið hreppur, að minnsta kosti til að byrja með, og því talað um odd- vita en ekki bæjarstjóra eins og áð- ur, en fyrsti opinberi fundur nýju sveitarstjórnarinnar var í gær. Í Gimli búa um 1.700 manns og um 3.200 í næsta nágrenni auk þess sem margir eiga sumarhús á svæðinu. Gimli er „höfuðborg Nýja-Ís- lands“ eins og stendur á skilti við þjóðbraut 8 nálægt bænum og vina- bær Akureyrar. Íslendingar settust þar fyrst að 21. október 1875 og er mikið gert til að halda í íslenska menningu, en í því sambandi má nefna að Íslendingadagshátíðin þar í byrjun ágúst ár hvert er fjölmenn- asta hátíð sinnar tegundar í Kanada. Þjóðræknisþing í Edmonton í maí Ferð um Kletta- fjöllin eftir þingið ÁRSÞING Þjóðræknisfélags Ís- lendinga í Vesturheimi verður haldið í Edmonton í Kanada í byrj- un maí, en að loknu þingi stendur þingfulltrúum til boða að fara í skipulagða vikuferð um Klettafjöll- in. Íslendingafélagið Norðurljós í Edmonton sér um skipulagn- inguna og undirbúning þingsins, sem verður haldið í 84. sinn og fer fram dagana 1. til 4. maí. Auk venjulegra þingstarfa verður boðið upp á viðamikla dagskrá og meðal annars verður eitt kvöldið helgað skáldinu Stephani G. Stephanssyni og Björn Thoroddsen treður upp með Halla’s Travels. Yfirskrift þingsins verður „Sameining og samstarf í íslensku samfélögun- um.“ Framtíðarskipulagningin var til umræðu á þinginu í Minneapolis í fyrra og verða lagðar fram tillögur þess efnis á þinginu í Edmonton. Um 350 manns sóttu þingið í fyrra og vonast skipuleggjendur í Ed- monton til að þingið í ár verði ekki síður glæsilegt. Mikið hefur verið til lagt og er skráning þegar hafin. Vikuferð Eins og í fyrra er lögð mikil áhersla á þátttöku frá Íslandi og segir Walter Sopher að þess vegna hafi verið skipulögð sérstök ferð um Klettafjöllin með Íslendinga í huga. Gert er ráð fyrir að fara meðal annars til Jasper, Banff og Calg- ary, en ferðinni lýkur í Edmonton 10. maí og verður komið við í Markerville á leiðinni til baka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.