Morgunblaðið - 11.01.2003, Page 29

Morgunblaðið - 11.01.2003, Page 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 29 SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norður- lands fagnar nýju ári með Vínartón- leikum í Laugarborg í dag kl. 20.30 og í Dalvíkurkirkju á morgun kl. 16.00. Það er Salonhljómsveit Sinfón- íuhljómsveitarinnar sem leikur, en einsöngvari með hljómsveitinni verður Hanna Dóra Sturludóttir og tónlistarstjóri Sigurður Ingvi Snorrason. Tónleikarnir hefjast í anda álfa og dísa, enda þrettándinn nýliðinn. Flutt verður lag Atla Heimis Sveins- sonar, Álfareiðin, sem hann samdi fyrir nokkrum árum við þýðingu Jónasar Hallgrímssonar á ljóði Hei- nes og einnig tengjast álfarnir þeim Strauss-feðgum í gegnum Álfapolka eftir Jósef Strauss. Jóhann Strauss yngri á drjúgan hluta efnisskrár þessara tónleika enda afkastamikið tónskáld. Faðir hans, Jóhann eldri, lagði ásamt Jos- ef Lanner grunninn að vinsældum vínarvalsins. Hann hafði um tíma 200 hljóðfæraleikara á sínum snær- um, en stjórnaði sjálfur hljómsveit með 50 færustu mönnunum. Jóhann yngri stundaði tónlistarnám í óþökk föður síns og samdi sinn fyrsta vals sex ára gamall. Hann tók við hljóm- sveit föður síns að honum látnum 1849. Gæti snúið mér við og stjórnað Hanna Dóra Sturludóttir syngur nú í fyrsta sinn á vegum Sinfón- íuhljómsveitar Norðurlands, en hún er ein fremsta söngkona okkar og hefur starfað um árabil í óp- eruhúsum í Þýskalandi og víðar. „Þetta verður létt óperettutónlist úr öllum mögulegum óperettum; Wien- erblut úr Sígaunabaróninum og þess háttar lög. Hljómsveitin verður líka með sín atriði án mín. Prógrammið er mjög glæsilegt og þetta verður örugglega mjög skemmtilegt.“ Hanna Dóra segir að það skapist meiri nánd milli tónlistarmannanna þegar hljómsveitin er svona lítil; – eins og salonhljómsveit er. „Svona var þetta gert áður fyrr á dans- leikjum og á slíkum uppákomum, og það veltur meira á hverjum og ein- um í hópnum að ná réttu sveiflunni. Sif Tulinius verður konsertmeistari, en það verður enginn formlegur stjórnandi. Ég var nú að grínast með það um daginn, að ég gæti bara snú- ið mér við og stjórnað, – en auðvitað geri ég það á minn hátt með hreyf- ingum og söng.“ Hanna Dóra Sturludóttir fæddist í Búðardal, en lærði við Söngskólann í Reykjavík þar til hún hélt utan til náms við Listaháskólann í Berlín. Haustið 1995 vann hún ljóðasöng- skeppni sem haldin er annað hvert ár í Berlín. Hún hefur verið gesta- söngvari við óperuhús víðsvegar um Þýskaland og frá 1998–2001 var hún fastráðin við óperuna í Neustrelitz og söng þar mörg þekktustu sópr- anhlutverk óperubókmenntanna. Sumarið 2002 var Hanna Dóra gestur á tónlistarhátíðinni í Chiemgau í Suður-Þýskalandi þar sem hún söng hlutverk Desdemonu í óperu Verdis, Otello, og hlaut hún mikið lof fyrir frammistöðu sína. Þetta er sívinsæl tónlist Sigurður Ingvi Snorrason er tón- listarstjóri Vínartónleikanna, valdi prógrammið, og hafði ennfremur veg og vanda af því að útsetja þá tónlist sem flutt verður og ekki var fáanleg á nótum fyrir fyrir salon- sveit og söngvara. „Þetta verða tvær fiðlur, selló, kontrabassi, flauta, klarinetta, píanó og slagverk, og svo söngkonan,“ segir Sigurður Ingvi. „Ég setti saman í marsasyrpu nokk- ur álfalög og hef þau í Vínarstíl, og útsetti svo annað sem ég hef ekki náð í eftir venjulegum leiðum. Eftir hlé spilum við í ennþá minni grúpp- um, svona eins og gengur gerist kannski hjá vínbændum, og þar bæt- um við nikkunni og gítarnum við; – Daníel Þorsteinsson spilar á harm- ónikkuna og sjálfur ætla ég að grípa í gítarinn, en ég hef ekki troðið upp á gítar síðan ég var í poppinu í gamla daga. Ég hef ekki mikið spil- að með þessu fólki, en ég þekki tón- listina þeim mun betur; hef lifað með henni ansi lengi og hef alltaf eitt- hvað verið að koma við hana eftir að ég kom heim úr námi frá Vín. Þetta er sívinsæl tónlist og aðsókn á Vín- artónleika alltaf góð.“ Sigurður Ingvi hóf tónlistarnám níu ára gamall hjá Karli Ottó Run- ólfssyni í Barnalúðrasveitum Reykjavíkurborgar. Hann hélt til Vínarborgar til framhaldsnáms 17 ára gamall og lauk prófi með láði frá Tónlistarháskólanum þar í borg árið 1971. Á námsárunum lék hann um tveggja missera skeið Vínartónlist í Salonhljómsveit Borgargarðsins í Vín, en þar lék Johann Strauss á of- anverðri 19. öld og þar stendur hið gyllta minnismerki um valsakóng- inn. Sigurður var ráðinn til Sinfón- íuhljómsveitar Íslands árið 1973 þar sem hann hefur starfað síðan að undanteknum árunum 1981–1985 þegar hann vann að stofnun, og var fyrsti skólastjóri Tónlistarskóla FÍH. Sigurður kennir við Tónlistar- skólann í Reykjavík og er deild- arstjóri blásaradeildar skólans. „Ég hef lifað lengi með vín- artónlistinni“ Sigurður Ingvi Snorrason, klarin- ettu- og gítarleikari. Hanna Dóra Sturludóttir sópransöngkona. TÓNLISTARHÓPURINN Andro- meda, sem skipaður er fjórum hljóðfæraleikurum er starfa í Bost- on í Bandaríkjunum, heldur tón- leika í Ými í kvöld. Íslenski fiðluleik- arinn Íma Þöll Jónsdóttir er einn af stofnendum hópsins, en ásamt henni koma fram Evan Harlan á harmoniku, Adam Larrabee á gítar og mandólín og Andrew Blicken- derfer á kontrabassa. Ekki hægt að setja merkimiða á tónlistina Þetta er í fyrsta sinn sem hóp- urinn heldur tónleika á Íslandi, en hann hefur starfað í núverandi mynd síðan árið 2001. Íma Þöll seg- ir tónlistina sem hópurinn flytur vera undir áhrifum frá margvísleg- um tónlistarstefnum. Efnisskrá tónleikanna í kvöld inniheldur að mestu tónlist eftir meðlimi Andro- medu, auk balkanskrar syrpu og dansa eftir Corigliano. „Það er mjög erfitt að skilgreina tónlistina sem við leikum og hún er ólík því sem flestir hafa heyrt áður. Engu að síð- ur er hún að mínum dómi hvorki þung né erfið fyrir áheyrendur, heldur skemmtileg og öðruvísi.“ Tónlistinni lýsir Íma Þöll sem sam- blöndu af djassi, tangó, þjóðlagatón- list, með indverskum og írskum áhrifum, en einnig klassískri nú- tímatónlist og tekur Sjostakovítsj sem dæmi. „Það er ekki hægt að setja ákveðinn merkimiða á tónlist- ina okkar, sem mér finnst skemmti- legt. Þú heyrir eitt lag og hugsar, já, þetta er svona tónlist, en svo þegar þú heyrir næsta hugsarðu, nei, þetta er ekki þannig,“ segir hún. Ástæða þessarar flóknu blöndu tón- listarstrauma sem endurspeglast í tónlist Andromedu er fjölbreyttur tónlistarlegur bakgrunnur hljóm- sveitarmeðlima. „Evan, harmon- ikkuleikarinn, semur mest af tón- listinni. Hans bakgrunnur er í djassi og einnig Adams, gítarleikarans okkar. Það heyrist mjög glögglega í spilamennsku þeirra. En svo koma einnig inn áhrif frá annarri tónlist sem þeir hafa hlustað á og lært, eins og frá Sjostakovítsj og tangótón- skáldinu Astor Piazzolla. Minn bak- grunnur er hins vegar upphaflega í klassískum fiðluleik, og svo stund- aði ég nám í heimstónlist og spuna, þar sem ég lagði ríka áherslu á ind- verska tónlist og klezmer. Ég kem með þau áhrif inn. Andy, kontra- bassaleikarinn, hefur einnig mjög blandaðan bakgrunn,“ segir Íma Þöll. Þó að Evan semji flest lög Andromedu, auk Adams, eiga hljóð- færaleikararnir einnig þátt í mynd- un tónverkanna, en flest lögin inni- halda spunakafla fyrir eitthvert hljóðfæranna. „Við komum þannig með okkar eigin áhrif inn í tónsmíð- arnar,“ segir hún. Tilraun með svið Andromeda heldur reglulega tón- leika á Boston-svæðinu, þar sem formið er einskonar stofutónleikar, með nokkuð fáum áheyrendum og mikilli nálægð flytjenda við þá. „Tónleikarnir á laugardag verða því einskonar tilraun með hvernig okk- ur finnst að koma fram í hefðbundn- um tónleikasal með sviði og bak- sviði,“ segir Íma Þöll og brosir, en bætir við að hópurinn íhugi að snúa sér í auknum mæli að slíku tónleika- formi. Hljóðfæraskipan Andromedu er nokkuð sérstök og segist Íma Þöll ekki vita til annarra tónlistarhópa sem séu að fást við svipaða hluti. „En Boston-svæðið er mikill suðu- pottur fyrir tónlist um þessar mundir og tónlist okkar hefur verið mjög vel tekið þó að ég viti ekki um aðra hópa sem fást við samningu svipaðrar tónlistar. Ég vona að hún falli Íslendingum einnig í geð,“ segir hún að lokum. Tónleikar Andromedu í Ými hefj- ast í kvöld kl. 20. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónlistarhópurinn Andromeda heldur tónleika í Ými í kvöld kl. 20. M.a. verður flutt tónlist úr smiðju hópsins. Ekki hægt að setja merkimiða á tónlistina Næsta gallerí, Næsta bar, Ingólfs- stræti 1a. Árni Ingólfsson opnar sýningu. Hann sýnir splunkuný verk og eiga þau örugglega eftir að koma á óvart, segir í fréttatilkynningu. Sýningin stendur til 8. febrúar. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is TRÉ er heiti sýn- ingar bandarísku myndlistarkonunnar Joan Backes, sem opnuð verður í Hafnarborg í Hafn- arfirði í dag kl. 15. Joan Backes kom fyrst til Íslands árið 1989 og hafði þá þegið styrk til að kynna sér málverk Þórarins B. Þorláks- sonar sem hún hafði mikið dálæti á. Hún hefur komið hingað nokkrum sinnum eft- ir það og haldið tvær sýningar á eigin verkum. Á þessari þriðju sýningu beitir Joan ýmsum miðlum til að koma til skila vangaveltum sínum um tré og skóga og það sjónræna viðhorf sem þar kviknar. Málverk af trjáberki mynda kjarna sýning- arinnar en til viðbótar sýnir Joan litaglærur af myndunum og end- urtekur þemað í verkum sem sam- sett eru af málningu, glerperlum, neti, pappír, trjáberki, glimmeri, mold og fleiru. Með öllu þessu leit- ast hún við að endurvekja minn- ingar okkar um tré og skóglendi og kynda þannig undir ímyndunarafli áhorfandans. „Ég er að horfa á tré frá ýmsum sjónarhornum,“ segir listakonan. „Málverkin mála ég með akrýllitum á handgerðan trépanel, sem gerður er úr samskonar trjám og ég er að mála. Ég er að gera tvennt; – annars vegar að mála trjábörk, og hins vegar málverkið sjálft, og velti því fyrir mér hvort barkarmyndirnar geti lifað sjálf- stæðu lífi sem abstrakt málverk. Myndirnar taka á sig ólík form eftir því hvort maður horfir á þær í ná- vígi, eða stendur fjær. Það er hálf- gerð þráhyggja að mála þetta, því hvert verk tekur gríðarlangan tíma í vinnslu. Til að létta á því skapa ég annars konar tré í litlu myndunum sem ég geri með blandaðri tækni, og þær eru mér líka mikilvægar.“ Á sýningunni eru líka trjábolir í raun- stærð, eins konar skógur í salnum. „Ég geri þessar myndir þannig að ég festi pappír; – búinn til úr trjám, – á trjáboli og mála yfir með lit. Fyrir mér eru þessi verk eins og minning um skóg, – svolítið skrjáf sem vekur tifinninguna um skóg- lendið. Þetta er sérstök tegund af hlyni sem vex á heimaslóðum mín- um, í vernduðu votlendi, þar sem skógarhögg er bannað. Á glærun- um er ég með negatívar ljósmyndir af málverkunum mínum. Mig lang- aði til að taka röntgenmyndir af trjánum, en það er erfitt að vera með svoleiðis græjur úti í skógi, en með negatívu glærunum kemst ég næst röntgenmyndunum.“ Á miðju salargólfinu er einstakt laufteppi, með laufum frá heimaslóðum lista- konunnar og héðan frá Íslandi. Formin eru fjölbreytt og litirnir ekki síður, en laufunum er raðað upp af kostgæfni í eins konar skrautmunstur. Á morgun kl. 15 verður Joan Backes með fyrirlestur og leiðsögn um sýninguna, sem verður opin alla daga nema þriðjudaga, til 27. jan- úar. Tré, stór og smá Morgunblaðið/Árni Sæberg Joan Backes við verk sín í Hafnarborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.