Morgunblaðið - 11.01.2003, Síða 36
UMRÆÐAN
36 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMSÓKNARMENN í Norð-
austurkjördæmi munu í dag kjósa í
tíu efstu sæti fyrir næstkomandi al-
þingiskosningar. Fimmtán fram-
bjóðendur eru í boði, þar eru margir
efnilegir frambjóðendur, fimm kon-
ur og tíu karlar. Þegar litið er á
frambjóðendur í fimm efstu sætum
þá eru einungis tvær konur en tíu
karlar sem sækjast eftir þeim sæt-
um.
Þær konur sem sækjast eftir sæt-
um á listann eru mjög frambærileg-
ar, þær hafa bæði mikla reynslu í
stjórnmálum eða eru ungar og eiga
framtíðina fyrir sér ellegar hvort
tveggja. Þessum konum hefur verið
treyst fyrir miklum ábyrgðarstöðum
hvort sem það eru ráðherrastöður,
mikilvægar trúnaðarstöður innan
flokksins eða sveitarstjórnarstörf í
þeirra heimahéröðum.
Það er mikilvægt að hvetja fólk til
að kjósa konur í efstu sæti til að
tryggja að bæði kynin fái sem jafnast
vægi á listanum, einnig er mikilvægt
er að rödd kvenna heyrist á alþingi
því kynin eru jú ólík og hafa mismun-
andi sýn á þarfir þjóðfélagsins.
Með breyttri kjördæmaskipan lít-
ur út fyrir að hlutur kvenna verði
lakari í næstu alþingiskosningum.
Er það okkar framsóknarmanna að
tryggja að svo verði ekki. Ég vil því
hvetja framsóknarfólk til að kjósa
konur og tryggja þeim örugg sæti.
Tryggjum konum
góða kosningu
Eftir Bryndísi
Bjarnarson
Höfundur er jafnréttisráðgjafi og
formaður jafnréttisnefndar
Framsóknarflokksins.
„Ég vil því
hvetja Fram-
sóknarfólk
til að kjósa
konur.“
ÞAÐ var einu sinni tröll – bara
svona lítill geðþekkur tröllastrákur –
sem átti heima á Hringbrautinni og
var kallaður Landspítali. Einn dag-
inn var hann vélaður til að éta yfir sig
og hann gleypti miklu meira en hann
hafði gott af – og það er afskaplega
óhollt eins og allir vita. Hann breytt-
ist í stóran þurs sem gat ekki hugsað
skýrt og fór að gera alls kyns und-
arlega hluti. Einu sinni sem oftar
fékk þursinn verk í tærnar af því að
hann var í of litlum skóm. Þá brást
hann þannig við að hann skaut sig í
fæturna og það hafði ægilegar afleið-
ingar …
Þetta er ekki ein af ofbeldisfullu
þjóðsögunum úr safni Jóns Árnason-
ar eins og lesandann grunar líklega.
Þetta er saga sem varð til vegna lok-
unar annarrar af tveimur heilabilun-
ardeildum Landakots og þeirrar
fréttar að ekki skuli staðið við að
opna deildina aftur um áramót eins
og lofað var á sínum tíma. Nýjustu
fréttir herma að þar skuli nú komið
fyrir (tímabundið) húðdeild, sem er
algjörlega á skjön við aðra starfsemi í
húsinu, en Landakot er öldrunarspít-
ali eins og margir vita.
Eiginlega hlýtur að verða fallið frá
þeirri ákvörðun að koma húðdeild
fyrir á öldrunarspítalanum því það
kallar á breytingar á húsnæði sem
vafalítið kosta sitt – það sér hver heil-
vita þurs. Eða hvað?
Vonandi verðum við
hress gamalmenni
Þegar við sem yngri erum hugsum
til efri áranna vonumst við til að
verða hraust og fær um að njóta lífs-
ins þótt æskufegurð og líkamlegt at-
gervi sé á undanhaldi. Við vitum samt
að töluverðar líkur eru á að óskir okk-
ar um „góða“ elli rætist ekki því
hækkandi aldri fylgja ýmsir fylgi-
kvillar sem geta komið í veg fyrir það.
Einn ógnvænlegasti kvillinn í huga
margra er heilabilun.
Heilabilun er miskunnarlaus sjúk-
dómur sem leggst á fólk, oftast eldra
fólk, og getur rænt það sjálfsbjarg-
argetu, sjálfsvirðingu og mannlegri
reisn.
Staða aldraðs einstaklings með
heilabilun er því afar veik. Hann get-
ur ekki varið sig eða barist fyrir rétti
sínum.
Skerðing á sérhæfðri þjónustu
Á heilabilunardeildum Landakots
hefur verið boðið upp á sérhæfða
þjónustu fyrir sjúklinga með heilabil-
un og aðstandendur þeirra.
Með markvissri meðferð sérhæfðs
starfsfólks er hægt að bæta lífsskil-
yrði sjúklinganna verulega, sömu-
leiðis er hægt að létta undir með að-
standendum með ráðgjöf og
stuðningi.
Það getur verið mikið álag að ann-
ast sjúklinga með heilabilun. Það er
staðreynd að aðstandendur eru oft
einangraðir og þreyttir og í mikilli
þörf fyrir stuðning og hvíld.
Það er einmitt eitt af hlutverkum
starfsfólks heilabilunareiningar
Landakots að grípa inn í í tíma.
Þursinn áttar sig ekki á þessu og
skýtur sig í lappirnar með því að tak-
marka þjónustuna verulega og
þrengja að skjólstæðingum og starfs-
fólki. Afleiðingin er lakari þjónusta
og í staðinn fyrir einn sjúkling fáum
við marga. Stöðug streita og álag eru
heilsuspillandi. Er ekki dýrt að fram-
kvæma hjartaaðgerðir og kosta ekki
taugapillurnar sitt?
Á Landakoti er fólk mjög ósátt við
þessar aðgerðir og miður sín.
Starfsfólk heilabilunareiningar
hafði byggt upp starfsemi sem vissu-
lega hefur sannað gildi sitt. Nú má
það fylgjast með hvernig þursinn
trampar á því sem vel var gert. Hver
stjórnar honum og hvar stígur hann
niður næst?
Í klóm risans
Eftir Ingibjörgu
Pétursdóttur
Höfundur er iðjuþjálfi á Landakoti.
„Heilabilun
er miskunn-
arlaus sjúk-
dómur.“
MEÐ því að stytta þann tíma
sem íslensk börn og unglingar
ganga í skóla geta Íslendingar
sparað gríðarlega fjármuni. Ávinn-
ingurinn fram til ársins 2050 gæti
numið kostnaði við Kárahnjúka-
virkjun. Ávinningur á einu ári gæti
jafngilt öllum fjárfestingum ríkisins
í vegakerfi, skólum, heilbrigðis-
stofnunum og höfnum á árinu 2003.
Í flestum löndum OECD eru
nemendur 18 ára þegar þeir ljúka
framhaldsskóla og hefja nám á há-
skólastigi eða þátttöku á vinnu-
markaði. Flestir Íslendingar koma
því tveimur árum seinna út á
vinnumarkaðinn en tíðkast erlend-
is. Því eru Íslendingar að jafnaði
fleiri ár í skóla en íbúar annarra
landa.
Samkvæmt skýrslu sem Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands vann
fyrir Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur um áhrif styttingar grunn- og
framhaldsskóla á einstaklinga,
sveitarfélög, ríkissjóð og þjóðar-
framleiðslu væri ábatasamt að gera
breytingar á íslenska skólakerfinu
með það að markmiði að nemendur
ljúki námi úr framhaldsskóla fyrr
en nú er. Með því að hefja grunn-
skólanám fimm ára, lengja hvert
skólaár í grunnskóla og framhalds-
skóla og stytta þannig námstímann
mætti útskrifa nemendur allt að
þremur árum fyrr úr framhalds-
skóla en nú er gert.
Ávinningurinn af styttingu skól-
ans er margþættur. Ætla má að
það dragi úr brottfalli úr fram-
haldsskóla ef nemendum gefst
kostur á að útskrifast fyrr. Því
yngri sem nemendur eru við út-
skrift því hærri verða ævitekjur
þeirra. Einnig mundi breyting af
þessu tagi draga úr því álagi sem
fjölskyldur nemenda verða fyrir
vegna mismunandi sumarleyfa í
skólum og á vinnustöðum foreldra.
Í skýrslu Hagfræðistofnunar er
reiknað út hve mikinn fjárhagsleg-
an ávinning íslenskt þjóðarbú hefði
af styttingu skólans (sjá meðfylgj-
andi töflur). Áhrifin yrðu mismikil
eftir því hvaða kostir yrðu valdir og
hve langt yrði gengið. Ávinning-
urinn væri mestur ef allir þrír kost-
irnir yrðu fyrir valinu og gætu
numið allt að 10,8 milljörðum króna
á einu ári. Það jafngildir þeim fjár-
hæðum sem ríkissjóður hyggst
verja til fjárfestinga í vegakerfi,
háskólum, framhaldsskólum, hafn-
arframkvæmdum og heilbrigðis-
stofnunum á næsta ári. Á næstu
fimmtíu árum gæti ávinningurinn
jafngilt um 157 milljörðum króna.
Sú upphæð er talsvert hærri en
sem nemur öllum kostnaði við
framkvæmdir við Kárahnjúkavirkj-
un.
Eftir Gunnar Pál
Pálsson
„Ávinning-
urinn fram til
2050 gæti
numið
kostnaði við
Kárahnjúkavirkjun.“
Höfundur er formaður Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur.
Styttri skóli –
betri lífskjör
Tafla 1. nettóávinningur af því fyrst í stað að breyta skipulagi skóla.
Milljónir króna.
A B C AogB AogC BogC A,BogC
Áhrif á sveitarfélög -575 -900 0 -1.800 -575 -900 -1.800
Í % af gjöldum árið 2001 -,13 -1,76 0 -3,53 -1,13 -1,76 -3,53
Áhrif á foreldra 875 0 0 875 875 0 875
Áhrif á nemendur 3.100 3.250 4.000 6.500 5.000 5.300 8.300
Áhrif á ríkissjóð 0 0 85 0 85 85 85
Í % af gjöldum árið 2001 0 0 0,04 0,04 0,04 0,04 0,04
Samtals 3.400 2.350 4.085 5.575 5.385 4.485 7.460
Áhrif á þjóðarframleiðslu 5.600 3.950 4.100 9.700 6.000 6.500 10.800
Í % af þjóðarframleiðslu 2001 0,79 0,56 0,58 1,37 0,84 0,92 1,52
Heimild: Hagfræðistofnun.
A=færa grunnskóla niður um eitt ár. B=stytta grunnskóla um eitt ár en lengja
hvert skólaár. C= stytta framhaldsskóla um eitt ár en lengja hvert skólaár.
Tafla 2. Nettóávinningur af því til lengri tíma litið að breyta skipu-
lagi skóla. Tímabilið 2001–2050. Millj. kr.
A B C AogB AogC BogC A,BogC
Áhrif á sveitarfélög -9.300 -14.700 0 -30.200 -9.300 -20.700 -30.200
Í % af gjöldum árið 2001 -18,24 -28,82 0 -59,22 -18,24 -40,59 -59,22
Áhrif á foreldra 13.500 0 0 13.500 13.500 0 13.500
Áhrif á nemendur 44.400 47.300 68.700 94.600 72.600 77.600 121.700
Áhrif á ríkissjóð 0 0 1.400 0 1.400 1.400 1.400
Í % af gjöldum árið 2001 0 0 0,64 0,04 0,64 0,64 0,64
Samtals 48.600 32.600 70.100 77.900 78.200 58.300 106.400
Áhrif á þjóðarframleiðslu 78.400 56.500 68.500 139.200 86.800 93.000 157.300
Í % af þjóðarframl. 2001 11,04 7,96 9,65 19,60 12,22 13,09 22,15
Heimild: Hagfræðistofnun.
A=færa grunnskóla niður um eitt ár. B=stytta grunnskóla um eitt ár en lengja
hvert skólaár. C= stytta framhaldsskóla um eitt ár en lengja hvert skólaár.
www.starri.is
Sérhæfing í
Intel-vörum
Móðurborð - Örgjörvar
- Flatir skjáir
3ja ára ábyrgð