Morgunblaðið - 11.01.2003, Síða 40

Morgunblaðið - 11.01.2003, Síða 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast … (Sálmur 23.1). Hvílast – hve oft fannst mér ekki að amma þyrfti að hvílast! Því hún var alltaf að, hún unni sér aldrei hvíldar. Jafnvel þegar hún gerði ekkert og sagði ekki orð (sem var ekki oft!), var hún samt að: hún var að hugsa! Hugur ömmu var alltaf á ferð og flugi, síkvikur, sjaldan eða aldrei kyrr. Hugsun hennar var ekki markviss og kryfjandi, heldur svíf- andi, óróleg og flögrandi frá einni mynd til annarrar sem stundum virt- ist alls óskyld þeirri næstu á undan. Hún bjó yfir hugarflugi listamanns- ins – amma var í öllu eðli sínu lista- maður. En því miður naut hún hvorki menntunar né þess skilnings og stuðnings umhverfisins sem nauðsynlegur er til þess að þroska slíka hæfileika og veita þeim útrás á IDA JENSEN ✝ Ida Jensen fædd-ist á Eskifirði 3. júní 1912. Hún lést á Landspítalanum hinn 20. desember síðastliðinn. Hún var dóttir Rósu Konráðs- dóttur Kemp og Vil- helms Jensen. Ida ólst upp á Framnesi við Reyðarfjörð en fluttist til Reykjavík- ur um 1930 þar sem hún giftist Ísak M. Jónssyni bakara- meistara, f. 13.10. 1903, d. 6.9. 1989. Börn þeirra: Hörður Þór, f. 31.3. 1934, d. 29.6. 1986; Rósa Ólafía, f. 11.9. 1942. Einnig ólu þau upp sonarson sinn, Ísak Harðarson. Barnabörn Idu og Ísaks eru sex talsins, barnabarnabörnin fimm. Útför Idu fór fram í kyrrþey, að hennar ósk, hinn 30. desember síðastliðinn. markvissan hátt – enda stóð slíkt konum (og körlum) ógjarnan til boða á þeim árum. Amma var því lista- maður án þess að hafa hugmynd um það sjálf, hún var listamaður án penna, pensils eða hljóðfæris (þótt hún blési stundum í munn- hörpuna). Næmi henn- ar og frumleiki braust í staðinn út í stöðugri taugaspennu, í ódrep- andi áhuga og forvitni um allt og ekkert; þetta setti óafmáanlegt mark á allt hennar líf og umhverfi: krafturinn sem í henni bjó, og fékk aldrei markvissa og fullnægjandi útrás, hafði mikil áhrif á alla í kringum hana. Eftir á að hyggja var amma mín mesta ögrun og örvun – án þess að ætla sér það á neinn meðvitaðan hátt … Svona man ég ömmu frá fyrstu tíð. Og þannig mun ég alltaf muna hana – auk hinna dýrmætu, sárasjaldgæfu stunda þegar friðurinn náði að hjarta henn- ar og hún ljómaði á alveg sérstakan hátt sem ég mun aldrei gleyma … Hvílast – nú trúi ég að loksins loks- ins hvílist hún amma og ljómi í náð- arfaðmi Guðs. Aldrei hef ég séð betur en nú, hvað hún amma var óvenjuleg manneskja! Í vitund minni var hún og verður sjálfsagt alltaf eins og huldukona í mistri – það var svo margt óljóst við hana. Ástæðan getur að vissu leyti verið mín eigin þokukennda hugsun. Þannig veit ég svosem að amma var fædd og uppalin fyrir austan. En eins og Austfjarðaþokan máir út all- ar línur og skil, rennur síðan allt saman í einn hrærigraut: Var amma örugglega fædd 1912 en ekki 1913 eins og virðist hafa misritast í kirkju- bækur og þjóðskrá? Var hún fædd á Eskifirði og alin upp við Reyðarfjörð – eða öfugt? Ólst hún örugglega upp hjá mömmu sinni á bænum Fram- nesi þar sem móðursystir hennar var húsfreyja? Hét sú örugglega Þóra? En hvað hét maður Þóru? Og hvað voru uppeldissystkini ömmu nú aftur (fjölda)mörg? Hvað hétu þau – og börn þeirra og barnabörn? Og hann Vilhelm langafi frá Danmörku, pabbi ömmu. Strauk hann af skútu við Ís- landsstrendur, settist hér óvart að og hóf verslunarrekstur? Eða kom hann hingað gagngert í þeim til- gangi, jafnvel með nánum skyld- mennum sínum? Ég veit fyrir víst að langafi fór víða og gat ótal börn í a.m.k. tveimur heimsálfum. En hvað voru þau mörg, hvað hétu þau, hvað heita börn þeirra og barnabörn? – Ég reyndi nokkrum sinnum að spyrja ömmu um allt þetta og öðlast sýn yfir þessa sundruðu og sundur- leitu föðurætt mína. En alltaf varð ég að gefast upp, því fyrr en varði hvarflaði amma frá aðalatriðum yfir í aukaatriði, þaðan yfir í algjör smáat- riði í ævi einstakra persóna eða sér- stök einkenni þeirra (oft í afar löngu og hlykkjóttu máli) – og þráðurinn hvarf upp í nefið á mér. Í dag stend- ur það eitt eftir í huga mér að amma fæddist örugglega fyrir austan og ég á urmul óþekktra ættingja hirst og her. Og hvaða máli skiptir svosem allt hitt? Ég vona bara að öllum heil- sist vel og séu sæmilega hamingju- samir! Annað einkenni ömmu var það hvað hún var stór. Persóna hennar var stolt og mikil og áberandi, og á mannamótum gat hún verið mjög skemmtileg. Reyndar var amma lengstum aldrei dauf. Það var nóg að ömmustrákurinn kæmi í heimsókn – þá lifnaði hún öll við og gat talað endalaust um heima og geima. Og ef langömmustelpurnar voru með í för, var ekki óalgengt að amma brygði á leik, segði sögur sem ung eyru svolgruðu í sig, eða drægi upp gljá- andi munnhörpuna og brysti í fjörugt lag. Þess nutu allir – nema kannski kötturinn Gutti (sem hafði reyndar alltaf fremur vafasaman músíksmekk). – Stærð ömmu olli henni stundum óþarfa erfiðleikum. Þannig var mikið stoltið oft við- kvæmt og auðsært; það fauk oft í ömmu en alltaf var hún tilbúin að sættast og taka manni að nýju. Á hinn bóginn gat hún stundum miklað smáatriðin fyrir sér út í það óend- anlega uns þau voru orðin að óyf- irstíganlegum fjallgörðum. Og þann- ig gat hún stundum með sjálfri sér gert svo mikið úr eigin mistökum og breyskleika (sem hlutu auðvitað að vera meiri en allra annarra) að hún efaðist jafnvel um að hún fengi nokk- urn tíma aðgang að betri staðnum handan móðunnar miklu (sem er jafnvel þykkari en Austfjarðaþok- an). – En elsku amma mín, veistu það ekki núna: Í miðjum dauðans hönd þín mýkri en vatn og armur þinn sem ljóstaug upp á þurrt. Lokuð sund – en opinn lófi þinn ber Ísafold úr greipum dauðans burt! Amma var tilfinningamanneskja og sveiflaðist gjarnan skyndilega frá djúpri sút og tárum upp í hæstu hæðir gleði og bjartsýni – og brast þá ósjaldan í hjartanlegan söng, oft- ast í dægurlög og revíusöngva, jafnt á íslensku, dönsku og ensku. Á leið- inni heim úr skólanum sem drengur vissi ég aldrei hvað biði mín sem meðlæti með hádegismatnum daginn þann; sálarkvöl hins fordæmda eða söngur engils. Annan daginn var ýs- an maríneruð bjartri og áhyggju- lausri gleði, næsta dag krydduð brimsöltum tárum. En hvort sem sól skein í heiði í sinni ömmu eða drottn- aði svartasta myrkur, var ýsan alltaf á sínum stað á eldhúsborðinu. Alltaf. Amma stóð sig í því stykki sem ætl- ast var til, hún var af þeirri kynslóð íslenskra húsmæðra sem elduðu ýs- una svikalaust í hádegismatinn á hverjum degi, hvort sem lífið hafði tilgang eða ekki og þótt oft væri úr afar litlu að spila. Svo stolt og tilfinningasöm mann- eskja hlaut að hafa sitt stóra hjarta á réttum stað. Amma þoldi ekki neitt sem henni fannst bera keim af órétt- læti og mátti ekkert aumt sjá. Um- hyggja hennar og fórnfýsi voru al- gjör þegar fjölskyldan átti í hlut. Þegar ljóst var að foreldrar undirrit- aðs gátu ekki haft hann hjá sér og al- ið hann upp, vílaði amma ekki fyrir sér að taka hann að sér og annast í tuttugu ár. Það var svo sjálfsagt að það var eins og að drekka vatn! Slíkt þakkar maður ekki með orðum á prenti – og þakkar sjálfsagt seint eins og vera ber … Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi … Trúir þú þessu?“ (Jóh. 11.25). Elsku amma mín, við komum til þín um hálfri stund áður en þú skild- ir við, hún Gunna mín og ég. Ég veit ekki hvort þú varðst okkar vör, efast fremur um það. Þú varst svo lítil og magnvana á dánarbeðnum þínum að mér datt ekki lengur í hug að þú værir hún amma mín. Þú varst litla stelpan mín – kannski hafðirðu lengi þráð að vera það innst inni og nú varstu loksins ekkert annað. Svo ósköp lítil varstu orðin að þú varst í þann veginn að fæðast – nýr og ljóm- andi hvítvoðungur í ríki sjálfs Guðs þar sem ekkert tekur framar enda. Í gegnum stríðið þitt sá ég geisla af einhverju svo eilífu og réttlátu og kærleiksríku að ég reyni ekki að lýsa því. Ég yfirgaf sjúkrastofuna og þær urðu eftir einar saman, hún amma mín og mamma, háöldruð og södd líf- daga, og yngri dóttir mín, þrettán ára ung. Það var við hæfi að elsta konan og ein þeirra yngstu ættu saman síðustu stund á jörðu. Hvað þeim fór á milli á þessum síðustu andartökum, mun ég aldrei reyna að grafast fyrir um. En ég veit að það var eitthvað mjög satt, eitthvað mjög gott. Og ég veit að um eilífð mun það vera skráð í himininn. Eins og flestir sem eru á förum, hafði amma síðustu árin talsverða þörf fyrir að tala um dauðann og það sem tekur við hinum megin. Ég var hins vegar ekki á förum – kornungur maðurinn, að eigin hyggju – og því oft svo mjög á kafi í daglegu amstri að ég gaf mér of sjaldan tóm til að tala við ömmu um það sem lá hjarta hennar næst. Þó kom það fyrir að við ræddum hispurslaust um dauðann. Þá gerðist það stundum að ég reyndi að slá á bjarta strengi og bað hana endilega að taka frá gott herbergi handa fjölskyldunni þegar hún yrði útskrifuð af Hótel Jörð og kæmi heim í himininn … Ömmu fannst sonarsonurinn víst óþarflega gal- gopalegur á þeim stundum. Að taka frá herbergi – hvílíkur óþarfi! Allt er það ákveðið fyrirfram. Um stutta stund erum við gestir og hótel okkar er Jörðin. Síðan förum við heim – heim í Eilífðina. Við þurf- um ekki að hafa áhyggjur eða vasast í einhverri herbergjaskipan eftir okkar eigin skammsýna höfði. Hann Pabbi hefur þegar séð fyrir öllu og skipað okkur rúm einmitt þar sem við eigum best heima í hjarta hans. Og þar er engin Austfjarðaþoka – þar er bjart. Elsku amma mín, ég trúi að við lif- um um eilífð í hjarta Guðs. Ísak. Mig langar að kveðja þig, elsku amma mín, og þakka þér fyrir öll ár- in sem við áttum saman. Frá því að afi dó fyrir þrettán árum bjuggum við saman og oft var hlýlegt og nota- legt hjá okkur, þótt stundum væri líka erfitt því báðar vorum við slæm- ar til heilsunnar. En hugurinn reikar enn aftar í tímann til þess þegar ég var litla ömmustelpan þín. Þá fékk ég stund- um að gista hjá þér og afa á Snorra- brautinni um helgar og það voru ljúf- ar stundir. Ég veit að þá var ég Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, BJARNI ÞRÖSTUR LÁRUSSON, lést á sjúkrahúsi í Skien, Noregi, miðvikudaginn 8. janúar. Halla Jörundardóttir, Lárus Bjarnason, Einar Bjarnason, Guðlaug Guðjónsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Þuríður Lárusdóttir, Hildur Jörundsdóttir, Þórdís Lárusdóttir, Helga Jörundsdóttir, Erla Lárusdóttir, Einar Jörundsson, Jóhannes Lárusson, Sveinn Jörundsson, Sveinbjörn Lárusson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ANNA SIGURÐARDÓTTIR, Smyrilsvegi 29, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 9. janúar. Árni Kr. Þorsteinsson, Anna Árnadóttir, Ásta Árnadóttir, Böðvar B. Kvaran, Þorsteinn Árnason, Hrefna Leifsdóttir, Sveinn Árnason, Sigurlína Vilhjálmsdóttir, Erna Þ. Árnadóttir, Benedikt Sigmundsson, Ingibjörg H. Árnadóttir, Finnbjörn V. Agnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓSAVINSDÓTTIR, Staðarbakka, lést á hjúkrunarheimilinu Seli, Akureyri, þriðju- daginn 7. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 17. janúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Myrkárkirkjugarði. Ásgerður Skúladóttir, Ólafur Eggertsson, Sigurður Skúlason, Margrét Halldórsdóttir, Guðmundur Skúlason, Sigrún Franzdóttir, Dóra Margrét Ólafsdóttir, Árni Freyr Antonsson, Borghildur Ólafsdóttir, Friðrik Baldur Þórsson, Birgitta Sigurðardóttir, Robert Lauis Pells, Helga Margrét Sigurðardóttir, Tómas Jónsson, Erla Elísabet Sigurðardóttir, Steingrímur Hannesson, Sólveig Elín Þórhallsdóttir, Auður María Þórhallsdóttir, Hjalti Þórhallsson og langömmubörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, HJÖRDÍS GEIRDAL, Laufengi 3, Reykjavík, er látin. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 16. janúar kl. 13.30. Guðmundur Áki Lúðvígsson, Erna Steina Guðmundsdóttir, Gestur R. Bárðarson, Sigríður Guðmundsdóttir, Erna Geirdal, Ingólfur Geirdal og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.