Morgunblaðið - 11.01.2003, Side 54
54 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og powersýning kl. 11.45.
kl. 3, 7 og 11.
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.50. B.i.12.
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV.
MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
YFIR 60.000 GESTIR Á 13 DÖGUM
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
DV
RadíóX
YFIR 60.000 GESTIR STÆRSTA BONDMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI
Powersýning
kl. 12
Powe
rsýnin
g
kl. 11
.45.
Frumsýning
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og powersýning kl. 12. B.i.14 ára
Sýnd kl. 2.
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
LEON OG LE FEMME NIKITA
Fantaflottur spennutryllir með ofurtöffaranum
Jason Stratham úr Snatch
Hraði , spenna og slagsmál í svölustu mynd
ársins.
DV
RadíóX
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
Sýnd kl. 5.30. B.i. 12 áraSýnd kl. 8 og 11.15. B.i. 16 ára
YFIR 60.000 GESTIR
YFIR 60.000 GESTIR Á 13 DÖGUM
Sýnd kl. 2, 4, 8 OG 10. B.i. 12 ára
TÓNLISTARMAÐURINN Birgir
Konráð Sigurðsson, betur þekktur
sem Bix eða Biggi Bix, hefur verið
búsettur í Bandaríkjunum síðustu
ár. Hann bjó og starfaði í Los Ang-
eles í þrjú ár þar sem hann fékkst
mikið við gerð tónlistar fyrir aug-
lýsingar. Birgir er nú fluttur til
New York þar sem hann býr ásamt
unnustu sinni, fyrirsætunni El-
ísabetu Davíðsdóttur.
„Ég var í LA í þrjú ár. Ég tók að
mér að gera svolítið mikið af aug-
lýsingum í tvö ár af þessum þrem-
ur. Mig langaði að taka mér pásu
frá minni tónlist. Mér fannst ekki
skemmtilegt það sem ég var að
gera og var að leita að einhverju
nýju,“ segir Birgir og bætir við að
kaupið hafi verið gott og frítími
nægur. Eftir hryðjuverkin 11. sept-
ember gjörbreyttist þessi heimur,
útskýrir hann, enda gætti sam-
dráttar þar líkt og víðar.
Stærsta verkefnið fyrir Xbox
Þegar hryðjuverkin riðu yfir var
Birgir að vinna í stærsta verkefn-
inu sem hann hefur unnið að í aug-
lýsingaheiminum. „Ég hannaði
hljóð og músík fyrir Xbox,“ segir
hann en um var að ræða stóra aug-
lýsingaherferð fyrir leikjatölvuna
og var verkefnið í fullum gangi 11.
september.
„Í byrjun október þurfti ég að
fara til New York til að klára verk-
efnið,“ segir Birgir, sem var tregur
til ferðarinnar í fyrstu. „Þá þorði
enginn að fljúga og allt var í lama-
sessi en ég bara varð að fara.“
Þrátt fyrir að ástandið í New
York væri óvenjulegt varð Birgir
samt var við aðdráttarafl borg-
arinnar. „Um allt voru hermenn
með byssur og allt mjög skrýtið. Þó
að ástandið væri svona var samt
eitthvað sem mér fannst tosa mig til
New York þarna strax. Á fyrsta
degi langaði mig að flytja þangað,“
segir Birgir og áttu örlögin enn eft-
ir að grípa í taumana.
„Nokkrum dögum seinna hitti ég
Elísabetu og það voru strax miklir
töfrar á milli okkar,“ útskýrir Birg-
ir. Hann flutti í byrjun apríl til
borgarinnar sem aldrei sefur og
búa hann og Elísabet, sem eru ný-
lega trúlofuð, í Williamsburg í
Brooklyn.
Mikið breytingaskeið
Birgir hefur dregið sig út úr aug-
lýsingagerðinni að miklu leyti.
„Það var erfitt því New York er
dýrari borg að búa í en LA. Þetta
hefur verið mikið breytingaskeið,
sem er gott, því það hefur ýtt mér
út í að semja aftur mína eigin tón-
list,“ segir hann.
„Ég geri ennþá stöku auglýsingu
hér og þar. Þá geri ég það í gegn-
um fyrirtæki sem heitir Stimmung,
það er fyrirtæki í Los Angeles,“
segir Birgir, sem er með stúdíó í
Brooklyn en Stimmung hjálpar til
við reksturinn.
„Núna er ég að vinna plötuna
mína, sem er búið að taka mörg ár.
Ég er alltaf að byrja aftur og aftur
á henni. Hún kemur út einhvern
tímann fyrir 2010,“ segir Birgir en
viðurkennir að í raun stefni hann á
að klára hana í ár.
Fer í hlutlausan í LA
„Ég vil að tónlistin komi frá
hjartanu,“ segir Birgir. Hann segir
að New York veiti jafnframt inn-
blástur og að hann hafi kynnst
nýrri tónlist í borginni. „Hún er
rosalega lífleg þessi borg. Maður
fer bara í neðanjarðarlestina og sér
eitthvað sem heillar mann, ein-
hvern tónlistarmann eða stepp-
dansara. Eitthvað sem kveikir hug-
mynd.“
Birgir segir borgina mjög ólíka
Los Angeles. „Þótt það sé voða
þægilegt að vera í LA er það næst-
um því of þægilegt. Maður fer eig-
inlega í hlutlausan. Um leið og ég
kom til New York gerðist eitthvað
sem setti mig strax allavega í fyrsta
gír.“
Birgir kom til Íslands ásamt El-
ísabetu yfir hátíðirnar. Hann hefur
reyndar haft í mörgu öðru að snú-
ast en sækja jólaboð og skemmta
sér.
Tónlist við nýtt dansverk
„Ég gerði tónlist fyrir tvær litlar
auglýsingar fyrir ÍTR og Íslensku
auglýsingastofuna. Ég gerði einnig
tónlist ásamt Daníel Ágústi Har-
aldssyni við Bursting Pipes, stutt-
mynd Reynis Lyngdals, sem hann
er að vinna með Íslenska dans-
flokknum.“
Síðast en ekki
síst hefur hann
unnið að öðru
verkefni ásamt
Daníel Ágústi, þ.e.
að semja tónlist
við nýtt dansverk
Íslenska dans-
flokksins eftir
Katrínu Hall, list-
rænan stjórnanda
dansflokksins.
Dansverkið verð-
ur sýnt ásamt
tveimur öðrum
verkum eftir Itzik
Galili og Ed
Wubbe í Borgar-
leikhúsinu í febr-
úar.
Birgir og Daníel
hafa áður fengist
við verk af svip-
uðu tagi því þeir,
ásamt Gus Gus,
sáu um tónlistina
fyrir aðra sýningu
Íslenska dans-
flokksins, Diaghi-
lev: Goðsagnirnar
eftir Jochen Ul-
rich, sem sett var
upp árið 2000.
„Það var meiri-
háttar gaman síð-
ast þegar við gerðum þetta og þess
vegna var ég meira en til í að gera
þetta aftur,“ segir Birgir.
Frjálsara umhverfi
Þeir störfuðu náið með Katrínu
Hall því hugmyndirnar voru ekki
fullmótaðar í upphafi. Auk þess að
semja nýja tónlist notast þeir við
tvö eða þrjú lög sem Daníel var bú-
inn að semja og útfæra þau, en
verkið er alls um 35 mínútur að
lengd.
„Það er mjög skemmtilegt að
semja tónlist við dansverk. Það er
miklu frjálsara umhverfi en í venju-
lega tónlistarheiminum. Þarna er
frjálsari sköpun,“ segir hann.
„Þetta gefur manni margar nýjar
hugmyndir til að vinna með
seinna,“ segir Birgir og bætir við
að þeir hafi einnig fylgst með dans-
flokknum að störfum.
Til Brooklyn
frá Hollywood
Tónlistarmaðurinn Bix hefur starfað
síðustu ár í Los Angeles og New York.
Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við hann
um nýjasta verkefni hans, tónlist við
dansverk Íslenska dansflokksins,
og lífið í stórborgunum.
Ljósmynd/Elísabet Davíðsdóttir
Birgir Konráð Sigurðsson, Bix, er búsettur í Brooklyn,
en gerði nú síðast tónlist við nýtt dansverk Íslenska
dansflokksins ásamt Daníel Ágústi.
Birgir Konráð Sigurðsson hefur starfað við auglýsingagerð í Bandaríkjunum