Morgunblaðið - 25.01.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Nú liggja Danir í því, litli karl. Hann kemur til með að sjá alveg í gegnum okkur með þess-
um nýju þrívíddar gleraugum.
Styrkir úr Fornleifasjóði
Reisn mála-
flokks borgið
Fornleifasjóður hefurnú tekið til starfaog í auglýsingu frá
sjóðnum í Morgunblaðinu
um síðustu helgi var óskað
eftir umsóknum um styrki
til verkefna sem stuðla að
rannsóknum og varðveislu
á fornleifum og forngrip-
um. Í viðtalinu hér að neð-
an má sjá að sjóðurinn fer
rólega af stað. Honum
mun vaxa ásmegin eftir
2006, er Kristnitökuhátíð-
arsjóðurinn mun renna sitt
skeið á enda, en veglegir
styrkir til fornleifarann-
sókna hafa fengist úr hon-
um síðustu árin. Svo er því
að sjá að þeir sem áhuga
hafa á fornleifarannsókn-
um í framtíðinni muni hafa
a.m.k. í þetta nýja hús að
venda. Þórir Stephensen er for-
maður stjórnar Fornleifasjóðs og
svaraði hann nokkrum spurning-
um Morgunblaðsins.
– Hvar og hvenær verður veitt
úr sjóðnum?
„Úthlutað verður tvisvar á ári.
Umsóknarfrestir eru nú til 17.
febrúar og 18. ágúst. Að loknum
fresti verða umsóknir sendar til
umsagnar fagaðila. Fyrsta úthlut-
un úr sjóðnum gæti orðið í byrjun
apríl. Menntamálaráðuneytið sér
um afhendinguna.“
– Hér er um nýjan sjóð að ræða,
hver er tilurð hans og tilgangur?
„Sjóðurinn var stofnaður sam-
kvæmt ákvæðum þjóðminjalag-
anna frá 2001. Hann fékk ekki
fjárveitingu fyrsta árið. Honum
var hins vegar skipuð stjórn og
settar úthlutunarreglur. Sam-
kvæmt þeim á stjórn sjóðsins að
úthluta styrkjum bæði til rann-
sókna og varðveislu.
Hvað rannsóknirnar varðar er
einkum hugsað til grunnrann-
sókna í fornleifafræði, forvörslu
og minjaverndar. Þar er einnig
talað um forvarnir og rannsóknir
á minjastöðum sem eru í uppnámi
vegna náttúruafla. Loks er sjóðn-
um ætlað að styrkja rannsóknir
og fornleifaskráningu á vegum að-
ila, sem þjóðminjalög skylda til
slíkra verkefna.
Með varðveislu er hugsað til
minja staða, sem friðaðir eru sam-
kvæmt þjóðminjalögum, einnig til
aðgengis þar og kynningar.“
– Hvað fær sjóðurinn mikla
fjármuni til úthlutunar?
„Að þessu sinni hefur hann að-
eins fimm milljónir króna, sem er í
raun allt of lítið. En hafa verður í
huga, að Kristnihátíðarsjóður,
sem starfar í fimm ár og er mjög
öflugur, styrkir stóru verkefnin,
sem nú eru í gangi, og hefur gjör-
breytt allri aðstöðu á þessu sviði.
Þegar styrkja hans nýtur ekki
lengur við, þ.e. eftir árið 2006, þá á
að efla Fornleifasjóð, svo að hann
geti tekið við og haldið uppi þeirri
reisn, sem nú einkennir þennan
málaflokk. En ég hygg að það
muni koma í ljós nú, þegar um-
sóknir fara að koma til Fornleifa-
sjóðs, að hann þurfi að
fá ríflegri framlög á
næstu árum til þess
eins að hægt verði að
framfylgja ákvæðum
þjóðminjalaganna. Ég
nefni þar sem dæmi að þegar
fornleifar koma í ljós við verkleg-
ar framkvæmdir og Fornleifa-
nefnd ríkisins ákveður að fara
skuli fram ítarleg rannsókn, þá
ber framkvæmdaaðila að kosta
hana. Þegar slíkt hendir hjá
einkaaðilum, sem ekki hafa til
þess efni, hugsanlega bændum,
sumarbústaðaeigendum og öðr-
um, þá þurfa þeir að geta leitað
styrks í sjóði sem þessum. Sé
þeirri aðstoð ekki til að dreifa,
skapast óneitanlega hætta á, að
fornleifum verði leynt og jafnvel
eytt. Varla vilja menn skapa þær
aðstæður.“
– Mun sjóðurinn á einhvern
hátt fylgja eftir styrkjum sínum?
„Meginreglan er að styrkþega
ber ætíð, að verkefni loknu, að
kynna árangur og niðurstöður
fyrir stjórninni með skriflegri
skýrslu. En svo er styrkþegum
skylt að kynna fulltrúa stjórnar-
innar stöðu verksins, hvenær sem
þess er óskað. Einnig er hægt að
óska eftir áfangaskýrslum. Loks
er hægt að svipta umsækjanda
styrk, sé mikið að.“
– Hverjir geta leitað eftir
styrkjum og hversu vítt má sviðið
vera?
„Í raun geta allir, sem þurfa að
fást við verkefni á sviði sjóðsins,
sótt um styrk. Ég á þar við að ein-
staklingar, sveitarfélög, fyrirtæki
og stofnanir eru jafngjaldgeng,
svo framarlega sem verkefnið
sjálft verður talið styrkhæft og
umsækjandi tryggir að sérmennt-
að fólk verði fengið til að vinna
verkið.“
– Hvaða þýðingu telurðu þetta
hafa fyrir rannsóknir á fornleifum
í landinu?
„Eins og ég sagði hér fyrr, þá
hafa styrkir Kristnihátíðarsjóðs
verið mikil lyftistöng fyrir íslensk-
ar fornleifarannsóknir. Þær áttu
áður fáa aðra kosti en fjárveiting-
ar til Þjóðminjasafns og byggða-
safna, styrki Rann-
sóknarráðs og um tíma
Þjóðhátíðarsjóðs. En
það, sem nú er að ger-
ast, er að leiða í ljós
bæði nýjan og aukinn
skilning á sögu okkar og menn-
ingu. Þetta hefur t.d. haft þau
áhrif, að sífellt fleiri stofnanir og
fyrirtæki, sem styrkja menning-
armál, einnig erlendir háskólar,
hafa lagt íslenskum fornleifarann-
sóknum lið. Vel menntað og fram-
sækið lið íslenskra vísindamanna,
sem hafa unnið vel saman að þess-
um rannsóknum, mun skila æ dýr-
mætara verki.“
Þórir Stephensen
Þórir Stephensen er fæddur í
Reykjavík 1. ágúst 1931. Lauk
guðfræðiprófi og hlaut prests-
vígslu 1954. Til ársins 1989 sókn-
arprestur á Hvoli í Saurbæ,
Sauðárkróki og við Dómkirkjuna
í Reykjavík. Síðustu starfsárin
staðarhaldari í Viðey. Lauk MA-
prófi í kirkjusögu við HÍ síðasta
vor. Þórir vinnur enn prestsstörf
og stundar sagnfræðirannsóknir.
Hann er og formaður stjórnar
Fornleifasjóðs. Eiginkona hans
er Dagbjört G. Stephensen og
eiga þau þrjú börn.
… og aukinn
skilning á
sögu okkar
Taktu Ford á
rekstrarleigu
Hafðu strax samband við ráðgjafa okkar og fáðu
nánari upplýsingar um hagstæðu rekstrarleigu
Brimborgar.
Hlutverk okkar hjá Brimborg er að bjóða
einstaklingum og fyrirtækjum framúrskarandi
þjónustu fyrir heimsþekkt merki sem skara framúr:
Nú getur Brimborg boðið alla verðlaunabílana
frá Ford á einstaklega hagstæðum rekstrar-
leigukjörum.
Settu öryggi og þjónustu ofar öllu öðru. Vertu í hópi
með þeim sem vita hvað góð hönnun er – vertu
í Ford hópnum; leigðu nýjan verðlaunabíl frá Ford.
Misstu ekki af tækifærinu. Komdu í Brimborg.
Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • Bílavík Reykjanesbæ sími 421 7800 • brimborg.is
Lausnin er í Brimborg
– leigðu nýjan verðlaunabíl frá Ford
Smur- og þjónustuskoðanir eru innifaldar í leigugreiðslu
Rekstrarleiga m.v. mánaðarlegar greiðslur í 36 mánuði og er háð breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra.
Ford Mondeo
frá kr. 33.950
á mánuði í 36 mánuði.
Ford Fiesta
frá kr. 24.950
á mánuði í 36 mánuði.
Ford Focus
frá kr. 27.950
á mánuði í 36 mánuði.
Vertu
á ný
jum
Vertu
á ný
jum
Vertu
á ný
jum