Morgunblaðið - 25.01.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.01.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Námskeiðið „Trúarsýn formæðra okkar“ verður haldið í Háskóla Íslands, Aðalbyggingu, stofu V, fjóra þriðjudaga frá 28. janúar til 18. febrúar kl. 20:00-22:00. Kennari: Inga Huld Hákonardóttir sagnfræðingur. Verð kr. 4.000. Skráning á Biskupsstofu í síma 535 1500. www.kirkjan.is/leikmannaskoli/ Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar sagði Guðbjörg Glóð Logadóttir fisksali og verðlaunahafi um AUÐ- AR-námskeiðið. Efst í huga Ing- unnar Egilsdóttur og Maríu Más- dóttur, stofnenda Blómahönnunar ehf., sem einnig voru verðlauna- ðar, var „alveg hellingur af þakk- læti“ til allra sem að verkefninu komu. Guðrún Möller, sem opnað hefur Thyme Maternity-verslanir á Íslandi og í Svíþjóð, sagði um verk- ÞÓTT verkefninu AUÐUR í krafti kvenna hafi formlega lokið í gær er langt því frá að kraftur kvennanna sem tóku þátt í verkefn- inu sé á þrotum. Við lok verkefn- isins, sem á rætur sínar að rekja í Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, stendur eftir 51 fyrirtæki sem stofnað var af þátttakendum í AUÐI. Alls sköpuðust 217 störf í kringum fyrirtækin sem spruttu úr hugmyndum 163 kvenna sem sátu námskeiðið FrumkvöðlaAUÐUR. Krafturinn og hinn góði andi sem fylgt hefur AUÐAR-verkefn- inu frá upphafi sveif yfir stóra sal Borgarleikhússins í gær þegar uppskeruhátíð þess var haldin. „Uppskeran er margföld á við það sem bændurnir þorðu að vona þeg- ar þeir lögðu af stað,“ sagði Guð- rún Pétursdóttir, formaður verk- efnisstjórnar. Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, sagði að ekki væri hægt að ljúka svo árang- ursríku verkefni nema skora á yf- irvöld og þjóðina alla að hlúa að nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi. Hún sagðist telja Ísland hafa alla burði til að verða nýsköpunarland en til þess þyrfti að mennta frum- kvöðla. Konur ekki konum verstar Þær „Auðir“ sem skara þóttu fram úr voru verðlaunaðar á hátíð- inni í gær. „Konur eru konum verstar afsannaðist þar og þá,“ efnið að það hafi verið „mikið æv- intýri en enn meiri skóli.“ Afl „betri helmingsins“ virkjað Lokaorð hátíðarinnar átti Davíð Oddsson, forsætisráðherra, sem veitti áskorun til þjóðarinnar frá AUÐI viðtöku. Hann sagði nýsköp- un vera Íslendingum, sem hefðu barist við óblíð veðuröfl um árabil, í blóð borna. „Það er gæfa okkar Íslendinga hve margir eru tilbúnir að leggja á djúpið þó ekki sjáist til lands.“ Davíð sagði nýsköpun oft vera rædda á tyllidögum en AUÐ- AR-verkefnið hefði svo sannarlega farið frá orðum í athafnir og náð að virkja það afl sem býr með „betri helmingi landsmanna,“ sagði Davíð Oddsson og lauk þar með þriggja ára sýnilega árangursríku verkefni, AUÐI í krafti kvenna. Yfir 200 ný störf í krafti AUÐAR Morgunblaðið/Árni Sæberg AUÐAR-verðlaunin að þessu sinni hlutu María Másdóttir og Ingunn Egilsdóttir hjá Blómahönnun, Guðrún Möller hjá Thyme Maternity og Guðbjörg Glóð Logadóttir sem rekur fiskbúðina Fylgifiska. Forsætisráðherra sagði mikinn heiður að fá að hafa lokaorðin um svo árangursríkt verkefni. DELOITTE & Touche hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það vís- ar ásökunum endurskoðunarfyrir- tækisins KPMG um rangt verðmat Deloitte & Touche á Frjálsa fjár- festingarbankanum á bug. Endur- skoðunarfyrirtækið Deloitte & Touche stendur við verðmat sitt um að verðmæti Frjálsa fjárfestingar- bankans sé 2,4 til 2,9 milljarðar króna. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis greiddi Kaupþingi rúma 3,8 milljarða króna fyrir bankann í lok september í fyrra. Yfirlýsing Deloitte & Touche fer hér á eftir: „Í yfirlýsingu frá endurskoðun- arfyrirtækinu KPMG í Morgun- blaðinu í gær koma fram yfirlýs- ingar um að Deloitte & Touche (D&T) hafi vanmetið verðmæti Frjálsa fjárfestingabankans (FF) um 1200 milljónir króna. Þessum ásökunum KPMG er hér með vísað á bug og lýst vonbrigðum með að eitt stærsta endurskoðunarfyrir- tæki landsins skuli taka út einstaka þætti eins og vaxtamun og framlög í afskriftareikning án þess að skoða áhrif þeirra á aðra þætti sem auð- vitað hafa áhrif á verðmatið. Del- oitte & Touche stendur því í einu og öllu við verðmat sitt á Frjálsa fjárfestingarbankanum og telur virði bankans, að teknu tilliti til arðgreiðslna til Kaupþings, sé á bilinu 2,4–2,9 milljarðar króna. Við mat Deloitte & Touche á vaxtamun hjá FF var tekið mið af þróun vaxtamunar á undangengn- um árum hjá Samvinnusjóðnum, sem er forveri FF. Jafnframt var litið til útkomu hjá sambærilegum fyrirtækjum erlendis. Það er ein- faldlega rangt að D&T hafi miðað við vaxtatekjur 9 mánaða í stað þess að líta til heils árs. Forsendur D&T byggja á áætlaðri meðalstöðu heildareigna FF á árinu 2002 þegar búið er að taka tillit til arðgreiðslna og lækkunar CAD-hlutfalls. D&T telur að sú aðferð að lækka CAD- hlutfallið, gefi hagstæðari niður- stöðu fyrir eigendur FF en að reikna með aukningu lánsfjármögn- unar. Að teknu tilliti til þeirrar for- sendu um fjármagnsskipan FF er óeðlilegt að gera ráð fyrir því að vaxtamunur haldist svo hár sem fram kemur í athugasemdum KPMG. Hvað varðar framlag í afskrift- areikning útlána hjá FF hefur það verið jafnt eða lægra en endanleg útlánatöp. Á síðustu 5 árum nema útlánatöp að jafnaði 1,24% af útlán- um og hefur þá verið litið til þess sem var hjá Samvinnusjóðnum. Hér verður líka að hafa í huga að í árshlutareikningi 30. september sl., kemur fram að vaxtafryst útlán FF jukust verulega á árinu 2002. Við mat á framlagi í afskriftareikning útlána er einnig litið til heildarútl- ánasafns bankans, en fyrirliggjandi upplýsingar benda til þess að bank- inn hafi þurft að leysa til sín tölu- verðan hluta eigna til að verja útlán sín, m.a. til verktaka. Jafnframt skal bent á að afskriftareikningur útlána FF er töluvert lægri en hjá eignarleigufyrirtækjum sem eru í svipaðri útlánastarfsemi og hann. Forsendur í verðmati D&T miðast hins vegar við sambærilegt hlutfall og þekkt er hjá viðskiptabönkun- um, sem ýtir undir hærra verðmat á FF.“ Mat á Frjálsa fjárfestingarbankanum Deloitte & Touche vísar gagnrýni KPMG á bug Morgunblaðið/Árni Sæberg ÁÆTLANIR Landsvirkjunar gera ráð fyrir að á þessu ári verði boðin út verk vegna Kárahnjúkavirkjunar fyrir samtals 22–24 milljarða króna. Þar af er gert ráð fyrir bygginga- framkvæmdum upp á 7–8 milljarða og véla- og rafbúnaði fyrir 15–16 milljarða. Þetta kom fram í máli Agnars Olsen, framkvæmdastjóra verkfræði- og framkvæmdasviðs Landsvirkjunar, á árlegu Útboðs- þingi Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda í gær. Inni í þessum tölum er ekki útboð Landvirkjunar frá því fyrir áramót á stíflu og aðrennslisgöngum virkj- unnarinnar þar sem ítalska fyrir- tækið Impregilo bauð lægst eða 44 milljarða króna. Á þinginu gerðu fulltrúar helstu verkkaupa opinberra framkvæmda grein fyrir áætlunum þeirra. Agnar sagði að áætluð unnin ársverk starfsmanna verktaka við Kára- hnjúkavirkjun til ársins 2009 yrðu um 3.200. Þegar mest verði muni um 1.200 manns starfa við virkj- unina, á miðju ári 2005. Heildarfjárfestingar Landsvirkj- unar á tímabilinu frá árinu 2001 til ársins 2009 verða væntanlega um 95 milljarðar króna, án virðisauka- skatts, að því er fram kom í máli Agnars. Hann lagði áherslu á að fjárfest- ingar Landsvirkjunar væru að sjálf- sögðu háðar því að virkjunarfram- kvæmdir yrðu að endingu samþykktar af þar til bærum yf- irvöldum. Það ætti jafnt við um Kárahnjúkavirkjun og fyrirhugaða Norðlingaölduveitu. Áætlanir Landsvirkjunar geri ráð fyrir að boðin verði út verk vegna hennar fyrir upp á 6–7 milljarða króna á þessu ári, ef grænt ljós fæst vegna þeirra framkvæmda. Hann sagði að hafa verði í huga að þær fram- kvæmdir væru mjög umdeildar og því verði að hafa allan vara á í sam- bandi við þær. Mest framkvæmt fyrir menntamálaráðuneytið Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, sagði að umfang framkvæmda á vegum Framkvæmdasýslunnar fyrir ráðu- neyti verði væntanlega um 5,5 millj- arðar króna á þessu ári og að mest verði væntanlega boðið út á fyrri hluta ársins. Hann sagði að ef ákvörðun verði tekin um byggingu stjórnsýslubyggingar á Keflavíkur- flugvelli fyrir embætti sýslumanns og flugvallarstjóra, sem heimild sé fyrir í fjárlögum, geti umfang fram- kvæmda Framkvæmdasýslunnar aukist um 800–1.000 milljónir króna. Óskar gerði grein fyrir fram- kvæmdum á vegum einstakra ráðu- neyta á árinu og kom fram í máli hans að menntamálaráðuneytið veg- ur þar þyngst með áætlaðar fram- kvæmdir upp á um 1,9 milljarða króna. Umhverfisráðuneytið kemur næst með um einn milljarð. Flýting framkvæmda í Reykjavík Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði að áætlað umfang framkvæmda Reykjavíkurborgar á þessu ári væri um 11,8 milljarðar króna. Það væri rúmum milljarði króna lægri fjárhæð en varið var til framkvæmda á síðasta ári, sem skýrist fyrst og fremst af minni framkvæmdum Orkuveitunnar. Aðrar framkvæmdir væru svipaðar og verið hefur. Hún greindi frá samþykkt borg- arráðs frá 21. janúar sl. þess efnis að borgarverkfræðingi og forstjóra Orkuveitunnar hefði verið falið að gera tillögur um flýtingu fyrirhug- aðra framkvæmda á árunum 2003 og 2004, sem hugsanlegar mótvæg- isaðgerðir vegna virkjana- og ál- versframkvæmda. Að stærstum hluta væri verið að skoða flýtingu framkvæmda við skólabyggingar, íþróttamannvirki, gatnagerð og orkuframkvæmdir. Samgönguáætlun hefur ekki verið samþykkt Gísli Viggósson, forstöðumaður hafnasviðs Siglingastofnunar, og Rögnvaldur Gunnarsson, forstöðu- maður framkvæmdadeildar Vega- gerðarinnar, gerðu hvor fyrir sig grein fyrir fyrirhuguðum fram- kvæmdum á vegum þessara stofn- ana á árinu. Fram kom í máli þeirra að tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir tímabilið 2003 til 2014 hefði verið lögð fyrir Alþingi en ekki samþykkt enn og því liggi ekki endanlega fyrir skipt- ing fjárveitinga á verkefni. Gísli sagði að samkvæmt fjárlög- um fyrir árið 2003 sé gert ráð fyrir að verja tæpum 2,4 milljörðum króna til nýframkvæmda við hafnir. Fjármagn til þessara verkefna hafi stöðugt farið vaxandi frá árinu 2000. Í máli Rögnvaldar kom fram að hann geri ráð fyrir að framboð á verkum, sem verktakar muni geta gert tilboð í á þessu ári, verði ekki minna en á síðasta ári. Því til við- bótar komi væntanleg jarðgöng. Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, tók sér- staklega fram að hann fagnaði því að Kópavogsbær skyldi nú í fyrsta skipti gera grein fyrir fyrirhuguð- um framkvæmdum á vegum sveitar- félagsins á Útboðsþinginu, en Gunn- ar I. Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs, sagði frá helstu fyrirhug- uðu framkvæmdum á vegum bæj- arins í ár og á næstu tveimur árum. Um 3.200 ársverk í Kárahnjúkavirkjun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.