Morgunblaðið - 25.01.2003, Side 22

Morgunblaðið - 25.01.2003, Side 22
LANDIÐ 22 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR SMÁSÖLUVERÐ á 26 af 37 vöruteg- undum hefur hækkað meira undan- farnar vikur, en sem nemur 3,36% hækkun á heildsöluverði, samkvæmt könnun Verðlagseftirlits ASÍ á mjólk- urvörum í verslunum á höfuðborgar- svæðinu. Mesta hækkunin nemur 6%, en skoðuð var breyting á meðalverði milli tveggja kannana. Hækkun á heildsöluverði er ákvörðun Búvöru- nefndar. „Verðlagsnefnd búvara ákvað í lok síðasta árs að frá og með 1. janúar kæmi til 3,36% meðalhækkunar á heildsöluverði mjólkur og mjólkuraf- urða. Þessi hækkun samsvarar 0,1% hækkun á vísitölu neysluverðs, sam- kvæmt útreikningum verðlagsnefnd- arinnar. Í tengslum við fyrirhugaða hækkun gerði Verðlagseftirlit ASÍ tvær kannanir með það að markmiði að skoða hvaða áhrif þessi hækkun hefði á smásöluverð. Fyrri könnunin var gerð 19. desember 2002, það er áður en hækkunin tók gildi, en sú seinni 16. janúar 2003,“ segir í nið- urstöðum ASÍ. Vörunum var skipt í tvo flokka, annarsvegar mjólkurvörur og hins- vegar ost og smjör, alls 37 vöruteg- undir. Í ljós kom, að allar mjólkurvör- ur (fyrir utan ost og smjör) hækkuðu milli kannana, 26 vörutegundir hækk- uðu um meira en 3,36% og þrjár teg- undir hækkuðu um rúmlega 6%. „Ef litið er á einstakar vörur má til dæmis sjá að meðalverð nýmjólkur í eins lítra umbúðum hefur hækkað um 3,23%, léttmjólk í eins lítra umbúðum um 3,70% og AB mjólk m/perum hef- ur hækkað um 6,15%.“ Skoðaðar voru 20 tegundir í flokknum ostur og smjör og hækkuðu 16 vörur í þeim flokki en fjórar lækkuðu. „Þegar þessi hækkun á heildsölu- verði er metin, virðist sem neytand- inn taki hana að mestu á sig og í nokkrum tilfellum ríflega,“ segir í fréttatilkynningu frá ASÍ. Könnunin var gerð í átta stærstu verslunarkeðjum á höfuðborgarsvæð- inu: Bónusi, Smáratorgi, Nóatúni, Nóatúni, Hagkaupum, Skeifunni, 10- 11, Barónsstíg, 11-11, Skúlagötu, Fjarðarkaupum, Hólshrauni, Nettó, Þönglabakka og Europris, Skútuvogi. Endurspegla þessar verslunarkeðjur ríflega 90% markaðar á svæðinu. Morgunblaðið bætti heildsöluverði sem tók gildi áramótin 2002 og 2003 við útreikninga ASÍ, lagði á 14% virð- isaukaskatt og bar saman hæsta og lægsta verði tiltekinna tegunda sem valdar voru úr könnuninni. Niður- stöðurnar sjást í meðfylgjandi töflu. Með því að bera saman heildsöluverð 1. janúar 2003 með virðisaukaskatti við hæsta og lægsta verð í könnun ASÍ 16. janúar má fá smjörþefinn af álagningu verslananna sjálfra. Heildsöluverð stundum hærra en lægsta smásöluverð Athygli vekur þegar taflan er skoð- uð, að heildsöluverð með vsk. er í sumum tilvikum hærra en lægsta verð í verðkönnun ASÍ 16. janúar. Lægsta verð á AB-mjólk með perum er til að mynda 119 krónur í könn- uninni en heildsöluverð með vsk. rúm 121 króna. Lægst verð kotasælu er 98 krónur, heildsöluverð rúmar 106, lægst verð á Smjörva 148 krónur, heildsöluverð tæpar 162 krónur, lægst verð á Léttu og laggóðu 125 krónur og heildsöluverð rúmar 164 krónur. Þá má nefna Kastala, sem kostar minnst 157 krónur í verðkönn- un ASÍ en heildsöluverðið er rúmar 192 krónur. Samkvæmt upplýsingum frá Mjólkursamsölunni er staðgreiðsluaf- sláttur af heildsöluverði til verslana um 0,5%. Magnafsláttur er 1-3%. Osta- og smjörsalan mun að jafnaði veita svipuð kjör.               !  " #$ %& '( ' ) *+ , !  -+  .  */(  0 ) *1* & ! " #  234  '( )  2,4 /,5 6 +    6(7 ) 0  (/ ' -/6( ) 0 869 )  * : #   6 6   ;   )!  8 )!  <'(6( !  # 0 # .#0 !$0 0 # $ 0 ! 0  0 ! !0 ! #0 0 !0 ! 0 ) .0  0 4# .!0 # )!0 4 .0 !0 4) 0 0 =/,& 5># 5 . #  # ).  . # )$ )$ ! )! ! ! !$ # !# #.  # #. )! $ )$ $!! .. 5 # ) )! ! ! .. $ . ) !  ..                       .) $ ) )# ! ) $ !! #!  ! .)  .  $ . ) . ) # ! )$ !$ # ) ) . #  ## $ $# ) $  )) )!$   ## ! !) !) .# #! $ !  )   # .  .$) )  ) ..  ) $) ! $)                                 ) 0 )0 .0  $0 . .0 $ !0 ) 0 )! !0 ## .0 !0 ) 0 ) 0 ! #0 ! #0 # .0 ) 0 !$ )0 ) 0 !. 0 $ 0 1/:/ $5 75?) 1/:/ 5 5?# 7 (4 :/ 5 ?) 5: 7 (4 :/ 5 ?# 5: 9 :/ 5 5 9 :/ 5 5 1(( @ 9 6 9            ! "##" $%  &'& "##( Smásöluverð hækkar umfram heildsöluverð ASÍ gerir verðkönnun á mjólkurvörum ALTEX ehf. seg- ir frá nýjum lista frá Margaretha, sem er póstversl- un með hann- yrðavörur. „Í list- anum er mikið úrval af útsaums- vörum fyrir byrj- endur og fagfólk og er honum dreift um landið fólki að kostnaðarlausu,“ segir í tilkynningu. Sjá einnig www.margaretha.is. NÝTT Vor- og sum- arlisti með hannyrðir HEILSA ehf. hefur sett á markað sterkar hvítlaukstöflur en hvítlauks- töflur eru til dæmis notaðar til þess að fyrirbyggja æðakölkun og lækka kólesteról í blóði, segir í tilkynningu. „Rannsóknir benda jafnframt til að regluleg notkun hvítlauks fyrir- byggi kvef og flensu. Töflur úr fersk- um hvítlauk eru þeim mun virkari sem þær innihalda meira af virka efn- inu allicin og hafa rannsóknir sýnt bestan árangur þar sem magnið er yfir 3,6 mg.“ Nýju hvítlaukstöflurnar frá Heilsu innihalda 4 mg af allicin í hverri töflu og eru lyktarlausar. Sterkar hvít- laukstöflur IÐNMARK hef- ur sett nýtt Stjörnusnakk á markað, Stjörnu- Nachos, sem hefur þá sér- stöðu að vera eingöngu búið til úr maís og létt- steikt úr fljót- andi jurtaolíu, að því er segir í til- kynningu. Á snakkinu er einnig Nachos ostakrydd sem gefur gott ostabragð og gerir snakkið brak- andi stökkt. Hefur Iðnmark unnið að þessu verkefni í 2 ár. „Hollusta þessarar vöru er fólgin í hlutföll- um milli kolvetna, olíu og próteins, nánar tiltekið prótein 6 g, kolvetni 64 g og olía 25 g. Þess má til gam- ans geta að Stjörnu-Nachos verður á vörusýningu í Barcelona í júní, þar sem helstu snakkframleiðend- ur heims koma saman og kynna nýjungar.“ Meðfylgjandi eru tvær tillögur að snakki fyrir laugardagskvöld frá Iðnmarki. Skyr-salsa með Stjörnu Nachos Kea-skyr hreint ½ dós salsa sósa ½ hvítlaukur Stjörnu Nachos í ofni 200 g Stjörnu Nachos 1 dós salsa sósa Jalapeno Rifinn ostur Takið snakkið og setið á hitaþol- inn disk, setjið salsasósu í litlum skömmtum í kring, jalapeno ávöxt- inn inni á milli og rifinn ost yfir. Bakað í ofni við 150 gráður í 15 mínútur. Nachos Stjörnusnakk KEYPT hefur verið ný slökkviliðs bifreið til Patreksfjarðar. Bíllinn er af gerðinni MAN og er hann árgerð 1997. Búið er að setja í hann flestan þann búnað sem þarf til slökkvi- starfa. Hann er með 8.000 lítra tank en hann getur einnig sótt vatn í vatnsból. Dælan sem sett hefur verið í bílinn getur afkastað 4.200 lítrum á mínútu, og er hún af gerðinni Bedford. Fyrir framan tankinn er 5 fermetra kassi þar sem hægt er að geyma flestan þann búnað sem nota þarf við slökkvistörf. Þar er m.a. krani með lyftigetu fyrir eitt tonn. Bifreiðin er Patreksfirðingum vel kunn, þar sem hún var áður notuð til mjólkurflutninga. Fyrir átti slökkvi- stöðin Bedford slökkvibíl sem hefur þjónað Patreksfirðingum í áratugi, hann mun verða áfram á staðnum en tveir aðrir bílar, tankbíl og pallbíl með lausri dælu verða látnir fara. Slökkviliðið er komið í góð húsa- kynni og er aðbúnaður þar þokkalega góður. Fyrir nokkru kom á staðinn klippibúnaður, sem geymdur verður í flutningshúsi nýja bílsins. Einnig veður geymdur þar annar búnaður s.s. laus dæla og léttvatnstankur. Slökkviliðið leggur upp með 12 menn í aðalliði og svipaður fjöldi er til reiðu sem varamenn. Ný slökkvibifreið í Vesturbyggð Patreksfjörður Morgunblaðið/Birna Mjöll Frá vinstri, Guðmundur Sævar Guðjónsson, Þuríður Ingimundardóttir, Kolbrún Pálsdóttir, Jón B.G. Jónsson og slökkviliðsstjóri Vesturbyggðar, Sigurður Pétur Guðmundsson. GOLFKLÚBBUR Borgarness hélt upp á 30 ára afmæli sitt 21. jan- úar síðastliðinn. Um 50 manns mættu í afmælisboðið sem haldið var í Golfskálanum Hamri. Fé- lagar í klúbbnum eru um 150 tals- ins og hefur fjölgað undanfarin ár. Rekinn er 9 holna völlur við Hamar en til stendur að stækka hann. Búið er að teikna 18 holna völl, og verður byrjað á að stækka í 12 holur eftir 1–2 ár. Mikil aðsókn er á golfvöllinn og segir Ásdís Helgadóttir, formaður klúbbsins, hafa orðið vör við tals- vert aukna aðsókn eftir að Hval- fjarðargöngin komu. Golfvöll- urinn sé í klukkutíma akstursfjarlægð frá höfuðborg- arsvæðinu og því hentugt fyrir golfáhugamenn þar að skreppa í Borgarfjörðinn. Eins noti margir sumarbústaðaeigendur aðstöðuna. Á Hamri er rekið farfuglaheim- ili auk veitingareksturs á sumrin. Tveir starfsmenn eru í fastri vinnu hjá klúbbnum allt árið. Á afmælinu var Gísli Kjart- ansson sparisjóðsstjóri gerður að heiðursfélaga, en hann var einn af frumkvöðlunum í undirbúningi við stofnun klúbbsins. Gísli var fyrsti formaður og gegndi þeirri stöðu í alls 8 ár. Áður hafa verið gerðir heið- ursfélagar þeir Albert Þorkelsson og Einar Jónsson sem einnig komu að undirbúningi og hafa unnið mikið sjálfboðasstarf fyrir Golfklúbb Borgarness. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Ásdís Helgadóttir, formaður Golfklúbbs Borgarness, og Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri og heiðursfélagi. Stækkun fram- undan á Hamri Borgarnes

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.