Morgunblaðið - 25.01.2003, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 25.01.2003, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. KÁRAHNJÚKAVIRKJUN er stað- reynd. Sumir fagna, aðrir syrgja. Ég sendi náttúru Austurlands innilegar samúðarkveðjur. Ég er fædd og upp- alin í Þýskalandi og kom fyrst til Ís- lands sem ferðamaður árið 1973. Stórbrotið landslagið hafði strax djúp áhrif á mig. Hér fann ég sköp- unarneista í náttúrunni sem er löngu horfinn annars staðar. Þýskaland hefur vissulega fjölbreytt landslag frá sjó til fjalla, en þar er hver einasti ferkílómetri skipulagður af manna völdum. Ég varð svo heilluð af Ís- landi að ég sótti um starf hjá Sinfón- íuhljómsveit Íslands sem hörpuleik- ari, og hef gegnt því starfi síðan. Ekki voru það launin sem freistuðu. Þau voru talsvert lægri en fengust fyrir sama starf í Þýskalandi. Ást mín á íslenskri náttúru leiddi mig svo í Leiðsögumannaskólann árið 1979. Síðan hef ég ferðast með þýsk- um ferðamönnum og hópum um landið allt, sem ég þekki eins og lóf- ann á mér. Enn í dag finnst mér mik- ilvægast í þessu starfi, að erlendir sem innlendir ferðamenn fái tæki- færi að komast í nánd við ósnortna náttúru. Það er upplifun sem er ekki mæl- anleg í krónum og aurum. Landslag af manna völdum Landslagið hefur breyst nógu mikið síðan ég hóf starfsferil minn sem leiðsögumaður. Ef leiðin liggur á Sprengisand, þarf maður að fara í gegnum stórt virkjunarsvæði á Suð- vesturlandi. Sprengdir skurðir, brýr, stíflur, uppistöðulón og stein- steypt mannvirki er það sem blasir við sjónum ferðamannsins. Búrfells- virkjun 210 MW, Sultartangavirkjun 120 MW, Hrauneyjarfossvirkjun 210 MW, Sigölduvirkjun 150 MW, og nýjasta barnið er Vatnsfellsvirkjun 90 MW. Háspennulínur fylgja manni svo langleiðina inní Landmannalaug- ar. Ferðamenn hafa lítinn áhuga á að taka ljósmyndir af uppistöðulónum, það veit ég af fenginni reynslu. Það er villt náttúran sem þeir sækjast eftir, og eru tilbúnir til að borga stór- ar fjárhæðir fyrir það eitt að sjá það. Nú á að rústa náttúrunni á Austur- landi. Nú er byrjað að sprengja, leggja vegi og brátt verður stíflað, landinu sökkt og skapað enn eitt mannvirkið í íslenskri náttúru. Allt í þágu stóriðju fyrir erlend fyrirtæki. Næst á dagskrá er fyrirhuguð Norð- lingaölduveita. Hvað kemur þar á eftir? Eitt X á 4 ára fresti Ég tilheyri þeim hópi sem finnst íslensk náttúra dýrmæt og einstök og vil ekki fórna henni á þennan máta. En hvað get ég gert? Skrifað þessa grein? Skrifað nafnið mitt á undirskriftalista? Senda póstkort til ráðherra og ráðamanna landsins? Spila ljúfa tóna á hörpuna mína í mótmælaskyni? Þetta er ég allt búin að gera og mér líður eins og skellt hafi verið skollaeyrum við mér. Ég er íslenskur ríkisborgari og ég finn bara til vanmáttar. Er ég ekki þegn í lýðræðissamfélagi? Ég má merkja X á kjörseðil á 4 ára fresti, og svo hlustar enginn á mig þess á milli. Þjóðaratkvæðagreiðsla er lýðræði Ég öfunda Svisslendinga sem hafa þjóðaratkvæðisrétt í sinni stjórnar- skrá. Þegnarnir eru spurðir í öllum mik- ilvægustu málum landsins. Mál á borð við Kárahnjúkavirkjun væri lagt á borð fyrir þjóðina. Ég gæti þá betur sætt mig við virkjun á Austur- landi ef ég vissi að meirihluti þjóð- arinnar væri hlynntur þessu. Þá bara myndi ég tilheyra minnihlutan- um, og það er í lagi. Það er lýðræði! Ég er ekki tilbúin að borga tapið af Kárahnjúkavirkjun ef það verður. Ég var ekki spurð. Ég veit að fólki í landinu er skipt í tvo hópa: Þeim sem fagna fréttunum um Fjarðaál á Austurlandi með kampa- víni og stjörnuljósum – og svo þeim sem eru með sorg í hjarta undir norðurljósum himinsins. Ég er ein þeirra. MONIKA ABENDROTH, tónlistarmaður og leiðsögumaður. Samúðarkveðjur til náttúru Austurlands Frá Moniku Abendroth: HRYÐJUVERKAMENN (úlfur, úlfur), lemur á eyrum okkar dag eftir dag, ár eftir ár. Innrásarher gyðinga fremur nær daglega hryðjuverk á íbúum Palestínu en alltaf eru ástæður fyrir glæpnum. Oftast eitthvað eins og „þetta voru bara hryðjuverkamenn; við höfum sannanir fyrir því“. En við sem þetta lesum fáum aldrei að heyra neinar þessara sannana sem þá eru kallaðar „hern- aðarleyndarmál“. Nú, oftast er „þar að auki verið að hefna fyrir óþokka- verk sem einn af þessum sjálfs- morðsóþokkum Palestínumanna framdi á góða innrásarliðinu okkar. Þess vegna er okkar hryðjuverk líka allt í lagi og þetta eigið þið sko að skilja“. Ég sem þetta skrifa er orðinn mjög þreyttur á að hlusta á þetta hryðjuverkavæl í þessum foringjum hryðjuverkanna. Það má vera að margir séu svo áhrifagjarnir að þeir fari að trúa þessu, þegar sama tugg- an er bara tuggin nógu oft ofan í þá. En ég er bara ekki einn af þeim. KARL JÓNATANSSON, Hólmgarði 34, 108 R. Gyðingar og hryðjuverkamenn Frá Karli Jónatanssyni:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.