Morgunblaðið - 25.01.2003, Side 56

Morgunblaðið - 25.01.2003, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. – leiðandi í lausnum Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001 UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að Inn- heimtustofnun sveitarfélaga hefði átt að fall- ast á kröfu manns um að fá endurgreitt með- lag í kjölfar dóms þar sem faðernisviðurkenning hans var ógilt vegna þess að sannað þótti að hann væri ekki raun- verulegur faðir barnsins. Umboðsmaður taldi að eftir ógildinguna hefði einnig orðið ljóst að sú forsenda sem upphaflega lá til grundvallar greiðsluskyldu hans á meðlaginu hefði verið röng. Því kynni stjórn Innheimtustofnunar að hafa verið skylt á öðrum grundvelli, t.d. al- mennra reglna kröfuréttar, að fjalla efnislega um hvort rétt hefði verið að verða við beiðni mannsins að hluta eða að öllu leyti. Umboðs- maður beinir því þeim tilmælum til stjórnar Innheimtustofnunar að taka mál mannsins til endurskoðunar fari hann fram á það. Í janúar 2001 vöknuðu grunsemdir hjá manninum um að hann væri ekki faðir barns- ins sem fæddist í nóvember árið 1999 og fór hann í kjölfarið fram á DNA-rannsókn. Rann- sóknarstofa Háskólans í meinafræði komst að þeirri niðurstöðu að útilokað væri að maðurinn væri faðir barnsins. Maðurinn krafðist þess þá af Innheimtustofnun endurgreiðslu meðlags en því hafnaði stofnunin og sagði að ekki hefði verið staðfest hver réttur faðir stúlkunnar er og því ekki hægt að fella niður greiðslur eða meðlagsskyldu. Greiddi með barni sem hann átti ekki Fékk með- lagið ekki endurgreitt ÁRNI M. Mathiesen sjávarút- vegsráðherra hefur aukið ufsa- kvóta yfirstandandi fiskveiðiárs um 8 þúsund tonn, úr 37 þúsund tonnum í 45 þúsund tonn. Aukn- ingin er í andstöðu við ráðlegg- ingar Hafrannsóknastofnunar- innar en Árni segir að veiðistofn ufsa sé nú jafn stór og stofnunin spáði að hann yrði eftir tvö ár. Þá hafi ufsaafli aukist mjög á síðustu árum og sjómenn segi greinileg merki um aukna ufsa- gengd á miðunum. Þess vegna hafi hann ákveðið að auka kvót- ann. Hafrannsóknastofnun lagði til að aflinn á þessu fiskveiðiári kvóti ársins aukinn um 36 þúsund tonn og úthafskarfakvót- inn um 10 þúsund tonn. Samtals nema auknar aflaheimildir um 12 þúsund þorskígildistonnum sem er meiri aukning en sem nam samdrætti í leyfilegum heildarafla þorsks á yfirstand- andi fiskveiðiári. Ætla má að út- flutningsverðmæti sjávarafurða aukist með þessu um 2,5–2,8 milljarða króna eða um liðlega 2% frá fyrri áætlunum. Er þá gert ráð fyrir að verðmæti út- fluttra sjávarafurða á þessu ári verði 130 milljarðar króna. farið yfir þá þætti í nýliðun og veiðum sem legið hafi fyrir, en mikil óvissa sé í stofnstærðar- mati á ufsa, sérstaklega hvað nýliðun snertir. „Hrygningarstofninn hefur verið talinn í lágmarki síðustu ár og þótt hann hafi sýnt ein- hver batamerki, þá teljum við einmitt í ljósi óvissunnar að fara verði varlega,“ segir Sigfús. Samtals 12.000 þorskígildistonn Ráðherrann kynnti einnig í gær aukingu á sandkolakvótan- um úr 4 þúsund tonnum í 7 þús- und tonn. Þá verður kolmunna- yrði ekki meiri en 35.000 tonn. Sigfús A. Schopka fiskifræðing- ur segir að ufsaafli á almanaks- árinu 2002 hafi orðið 41.000 tonn og ljóst sé að afli á sóknarein- ingu hafi aukist. Stofnunin hafi Sjávarútvegsráðherra eykur ufsakvótann um átta þúsund tonn Aukningin í andstöðu við ráðleggingar Hafró       !"#$%%$ ((- +    :  :  : :  :  :  :  : : :  Útflutningsverðmæti/14 í húsinu sem er einkar glæsilegt. Sérstaklega er tekið tillit til for- eldra og annarra aðstandenda á nýja spítalanum en sjúklingarnir dvelja á eins og tveggja manna stof- um. Ásgeir sagði að mikil áhersla væri lögð á dag- og göngudeildir í þeim tilgangi að stytta innlagnir eins og kostur er. Húsið ber ein- kenni þess að vera sjúkrahús fyrir börn, t.d. eru glefsur úr ævintýrum sandblásin í gluggana og leikstofan, sem er órjúfanlegur hluti af barna- spítala, er einkar rúmgóð og útsýnið til miðborgarinnar glæsilegt. Almenningi gefst tækifæri til þess að skoða nýjan Barnaspítala Hrings- ins á milli kl. 14 og 18.30 á morgun. „JÁ, ÞÚ mátt skoða lykilinn en þú færð hann ekki strax, sýndu þol- inmæði,“ sagði Hjálmar Árnason, þingmaður og formaður bygging- arnefndar Barnaspítala Hringsins, í gríni við Ásgeir Haraldsson yf- irlækni í gær. Þá var fréttamönn- um boðið að skoða húsakynni spít- alans sem verður vígður á morgun, á 99 ára afmæli kvenfélagsins Hringsins, sem hefur stutt dyggi- lega með fjárgjöfum við byggingu og tækjakaup sjúkrahússins. Á næstu dögum verður svo hafist handa við að koma fyrir lækn- ingatækjum og húsgögnum og inn- an skamms munu fyrstu sjúkling- arnir og starfsfólkið hreiðra um sig Morgunblaðið/Golli Anna Ólafía Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri, ásamt læknunum Magnúsi Ólafssyni, Gunnlaugi Sigfússyni og Ásgeiri Haraldssyni yfirlækni reyna að ná lyklinum að Barnaspítalanum af Hjálmari Árnasyni, formanni byggingarnefndar sjúkrahússins. Læknarnir vilja lyklavöldin Í menntamálaráðuneytinu er ver- ið að undirbúa tillögur um stofn- un tónlistarsjóðs sem hefði það hlutverk að veita styrki til tón- listarverkefna hér á landi og er- lendis. Að auki ætti sjóðurinn að hafa það hlutverk að veita styrki til útrásar íslenskrar tónlistar en það væri nýtt viðfangsefni. Þetta kom fram í máli Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra við afhendingu Íslensku tónlist- arverðlaunanna í Borgarleikhús- inu í fyrrakvöld „Er það ósk mín að með þessu megi vegur ís- lenskrar tónlistar vaxa og dafna um ókomna tíð,“ sagði ráðherra í ræðu sinni. Ráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að verið væri að vinna að því að móta hugmyndir um sjóðinn innan ráðuneytisins. Hann gæti því ekki sagt á þessari stundu nákvæmlega til um það hvernig sjóðurinn yrði útfærður. Ráðherra sagði heldur ekki tímabært að segja til um það hvenær sjóðurinn yrði formlega stofnaður eða hve mikið fjármagn færi í hann. Hann sagði þó ljóst að fjárveitingavaldið, Alþingi, kæmi til með að taka afstöðu til sjóðsins þegar þar að kæmi. Tónlistarsjóður í undirbúningi í menntamálaráðuneytinu Styrki útrás ís- lenskrar tónlistar HEILDSÖLUVERÐ að viðbættum virðisauka- skatti, er hærra í sumum tilvikum en lægsta smá- söluverð í verðkönnun á mjólkurvörum, sem ASÍ gerði 19. desember og 16. janúar síðastliðinn. Lægsta verð á AB-mjólk með perum var 119 krónur í könnuninni en heildsöluverð með vsk. rúm 121 króna. Lægsta verð kotasælu var 98 krónur en heildsöluverð rúmar 106 krónur. Lægsta verð á Smjörva var 148 krónur, heildsöluverð tæpar 162 krónur, og lægst verð á Léttu og laggóðu 125 krónur en heild- söluverð rúmar 164 krónur. Þá má nefna ost- inn Kastala, sem var lægstur á 157 krónur í verðkönnun ASÍ, en heildsöluverð rúmar 192 krónur. Heildsöluverð stundum hærra en lægsta verð  Smásöluverð/22 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.