Morgunblaðið - 24.02.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.02.2003, Blaðsíða 15
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003 15 Hóll hefur opnað söluskrifstofu í Kópavogi! Með þessu stóraukum við þjónustu okkar við Kópavogsbúa og Garðbæinga. 10 sölumenn reiðubúnir til starfa fyrir þig. Líttu við hjá okkur í Hlíðarsmára 15 eða sláðu á þráðinn í síma 595 9090. Alltaf heitt á könnunni. Á ENGAN er hallað þótt fullyrt sé að Herranótt og Leikfélag Mennta- skólans við Hamrahlíð séu öflugustu framhaldsskólaleikfélögin sem ekki gera út á „stórsjóin“, heldur halda sig við „venjulegri“ leiklist. Metnaður í verkefnavali og listrænn kraftur er jafnan einkenni á starfsemi þeirra. Að þessu sinni hafa þau bæði valið leikgerðir á skáldsögum, og svo vill til að báðar sögurnar eru af fantasíuætt. Terry Pratchett er afkastamikill höfundur og Diskheimssögur hans eiga sér drjúgan hóp aðdáenda hér á landi, enda mikið hugmyndaflug í gangi og Pratchett leikinn í að láta undur og stórmerki Diskheims kall- ast á við hinn öllu hversdagslegri raunveruleika okkar jarðarbúa. Ör- lagasystur er í grunninn nokkuð venjulegt ævintýri, sem er teygt og togað í spéspegli höfundar. Í ríki einu hefur kóngurinn verið myrtur og valdaræningi sest í stól hans. En vita- skuld hefur tekist að koma kornung- um syni hans undan og nornirnar þrjár sem nafnið vísar til koma hon- um í fóstur hjá farandleikflokki. Og auðvitað er nýi stjórnandinn alger- lega ómögulegur, og auk þess nag- aður af samviskubiti. Og konan hans tík með kvalalosta. Fljótlega sjá nornirnar að það er ekki um annað að ræða en að koma hinum rétta krónprinsi til manns hið snarasta og gera hann að konungi. Pratchett leikur sér hér með ýmis ævintýraminni og bætir vænum skammti af Shakespeare við. Sumt er það hnyttið, annað frekar þunnt eins og gengur. Það verður að segjast að ekki skila töfrar Diskheims sér alfarið af papp- írnum yfir á leiksviðið. Trúlega er húmorinn of víða bóklegur, og hitt hjálpar ekki að til að skila heilli nýrri heimsmynd þarf íburðarmeiri um- gjörð og sviðsetningu en þá sem LFMH hefur á valdi sínu. Allt um það þá gerir stór og kraftmikill leikhóp- urinn sitt besta til að skemmta áhorf- endum og sýningin er full af litlum skemmtilegum hugmyndum sem kalla fram bros og hlátur. Nornunum þremur er ágætlega skilað af Uglu Jóhönnu Egilsdóttur, Jóhönnu Ósk Baldvinsdóttur og Höllu Ólafsdóttur og Antoine Hrann- ar Fons og Hildur Helga Kristjáns- dóttir eru skemmtileg sem hin sið- lausu valdaránshjón. Fíflið er gott hjá Árna Kristjánssyni og samleikur þeirra Höllu Ólafsdóttur einlægur og jafnframt fyndinn. Örlagasystur eru fyrsta sýningin sem undirritaður sér í Austurbæ og ekki get ég sagt að húsið hafi heillað mig. Fyrir utan stærðina, sem öll er á lengdina, er hljómburðurinn afleitur fyrir óuppmagnað talað mál. Fyrir vikið þurftu óþjálfaðir leikarar sýn- ingarinnar alltof oft að standa á org- inu, sem einatt dregur úr áhrifamætti þess sem sagt er. Þar fyrir utan var margt gott um vinnu þeirra og leik- stjóraparsins að segja og aðdáendur höfundarins ættu ekki að sleppa þessu tækifæri til að skoða sig um í Diskheimum. Hundshjarta á Herranótt Í Hundshjarta erum við hins vegar stödd í okkar eigin heimi, nánar til- tekið í sæluríki kommúnismans með allri sinni yfirborðsstjórnvisku og undirkraumandi spillingu og valda- tafli. Vísindamaður gerir tilraun með að græða hjarta úr smáglæpamanni í flækingshund og öðlast rakkinn þeg- ar ýmsa mannlega eiginleika. Þetta þykja mikil undur og stórmerki, en fljótlega kemur í ljós að afstyrmið sem hann hefur skapað er óþægilega flinkur í lífsbaráttunni í Sovét, eig- inleikar hunds og manns nýtast sér- lega vel við að koma ár sinni fyrir borð í þessu spillta og ómennska sam- félagi. Leikstjórinn velur þá leið að stað- setja verkið í heimi gamalla hryllings- mynda og tekst sú stílfærsla afar vel, enda gegnumfærð í búningum, leik- mynd og tónlistarflutningi. Efnið er líka í anda slíkra mynda svo þetta er vel til fundið hjá Ólafi. Það er helst að leikurinn hefði mátt vera meira gegn- umfærður í „þöglumyndastíl“, en ef til vill er það til of mikils mælst. Sviðsetningin er feikivel unnin í einfaldri en snjallri umgjörð Kristínu Berman. Það er mikill hraði í sýning- unni, sem er gott, nema þegar mik- ilvæg augnablik týnast í látunum sem gerist stundum, og þegar hraðinn smitast yfir í talhraða leikenda, sem henti hjá nokkrum, þó síst hjá aðal- leikendum, sem er gott. Þá hefur leik- stjórinn greinilega það mikið vald á verki sínu að hann leyfir sér að hlaupa út undan stílnum þegar góður brand- ari er í húfi og uppsker iðulega vel. Læknarnir tveir eru vel leiknir af Hilmi Jenssyni og Karli Ágústi Þor- bergssyni, og sá síðarnefndi var eins og klipptur út úr dr. Caligari. Helga Lára Haarde og Harpa Við- arsdóttir eru góðar sem eldabuska og hjúkrunarkona/húsfreyja/ritari. Mik- ið hvílir á Sigurði Arent Jónssyni í stjörnuhlutverki hundsins. Mér fannst hann ekki allskostar finna sig í hinum „hreinræktaða“ hundi, en eftir að mannshjartað var komið í hann var hann frábær, hvíldi algerlega í sínum siðblinda skíthæl og stóð með honum allt til enda. Húsfélagsformenn eru einatt afkáraleg mannkerti hjá Búlgakov eftir því sem ég þekki til og Markús Már Efraím var ágætur sem einn slíkur, þó ekki væri hann alfarið laus við fyrrnefndan talhraðavanda. Hundshjarta er heilsteypt og sterk sýning á skemmtilega súrrealískri martröð með sterkum siðferðilegum undirtóni sem aldrei týnist alveg í uppátækjum og ólíkindalátum hóps- ins. Leikfélag Húsavíkur Tónlistin gegnir óvenju mikilvægu hlutverki í sýningu Leikfélags Húsa- víkur á Þrúgum reiðinnar, stærra hlutverk en í rómaðri uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur. Auk laga KK sem þar urðu til hafa Húsvík- ingar bætt við lögum eftir Bubba Morthens, tveimur eftir tónlistar- stjórann, Guðna Bragason, og kyrja auk þess hið frábæra Man of Con- stant Sorrow úr Ó brother, where art thou, sem á einstaklega vel við. Það sama gildir um lög Guðna og svo nátt- úrulega Fjöllin hafa vakað, sem ég hef hingað til ekki vitað um hvað er, en veit núna. Innblásin hugmynd. Um Manila er ég ekki eins viss. Tónlistarflutningur þriggja manna hljómsveitar er algerlega skotheldur og kontrabassi hljómsveitarstjórans er á við meðal hljóðgervil í áhrifs- hljóðadeildinni. Stórvirki Steinbecks um uppflosn- un Oklahomabænda vegna kreppu og vélvæðingar og ómennska misnotkun ávaxtaiðnaðarins í Kaliforníu á neyð fólksins snertir greinilega streng í brjósti Þingeyinga nú á tímum kvóta- brasks, fólksflótta og óvissrar fram- tíðar. Arnór Benónýsson hefur sýnt það í kraftmiklum sýningum sínum hjá Ungmennafélaginu Eflingu að honum er lagið að virkja tilfinningar leikara sinna og þessi sýning er engin undantekning þótt annað sé félagið. Leikgerðin fer eðlilega þá leið að einbeita sér að Joad-fjölskyldunni og ferðalagi hennar og er þeim öllum skilað á einkar trúverðugan og sterk- an hátt, og eins og áður í sýningum Arnórs næst hér alger samruni milli Oklaranna úr kreppunni og Húsvík- inganna á sviðinu. Gunnar Jóhanns- son og synir hans, Jóhann Kristinn og Hilmar Valur, eru verulega góðir sem fjölskyldufaðirinn og tveir sona hans og Anna Ragnarsdóttir sterk og sönn sem móðirin. Þorkell Björnsson er sannfærandi sem hinn samviskubitni bróðir Joads og það sama má segja um aðra fjölskyldumeðlimi sem leikn- ir eru af Svavari Jónssyni, Guðnýju Þorgeirsdóttur, Eyrúnu Ýri Tryggvadóttur, Sigurjóni Ármanns- syni, Ármanni Erni Gunnlaugssyni og Anítu Guðjónsdóttur. Fyrir utan fjölskylduna mæðir mest á hinum heimspekilega predikara Jim Casy. Hann er í öruggum höndum Sigurðar Illugasonar. Aðrir leikarar fá tæki- færi til að skapa persónur sem birtast í svipleiftri og trúlega verða vankaður tjaldbúi Guðnýjar Þorgeirsdóttur og bílasali Guðna Bragasonar eftir- minnilegust af þeim. Þrúgur reiðinnar er stór saga og vitaskuld er stiklað á stóru í leikgerð hennar. Þetta bitnar meira á síðari hluta sögunnar sem verður æði brota- kennd og ekki alls kostar ljósar þær skelfilegu aðstæður sem Joad-fólkið mætir og hvernig þær eru til komnar. Sýningin missir fyrir vikið flugið eftir hlé, en nær því aftur í tilfinninga- þrungnum og dramatískum lokaat- riðum sem eru verulega áhrifamikil í einfaldleik sínum. Fyrri hlutinn er sterkari enda erum við þá að kynnast þessu blóðríka og skemmtilega fólki og draumum þess um betra líf, sem okkur og jafnvel þau grunar að sé tál- sýn ein. Þrenns konar heimar Morgunblaðið/Árni Sæberg Úr Örlagasystrum, sýningu Menntaskólans við Hamrahlíð. Þorgeir Tryggvason LEIKLIST Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð Leikgerð Stephen Briggs á sögu Terry Pratchett, þýðandi: Gunnar Freyr Steins- son, leikstjórar: Atli Rafn Sigurðsson og Brynhildur Guðjónsdóttir, tónlist: Guð- mundur Steinn Steinsson, lýsing: Geir Magnússon. Austurbæ 14. febrúar 2003. ÖRLAGASYSTUR Á Herranótt Leikgerð og þýðing Ólafs Egils Egils- sonar á sögu Mikhail Búlgakovs, byggð á leikgerð Alexanders Chervinsky. Leik- stjórn: Ólafur Egill Egilsson, leikmynd og búningar: Kristína Berman, lýsing: Halldór Örn Óskarsson, dramatúrg: Hlynur Páll Pálsson, tónlist: Björn Gauti Björnsson. Tjarnarbíó 16. febrúar. HUNDSHJARTA Leikfélag Húsavíkur Höfundur: John Steinbeck, leikgerð: Frank Galati, leikstjórn: Arnór Benón- ýsson, tónlistarstjórn: Guðni Bragason. Samkomuhúsið á Húsavík 7. febrúar. ÞRÚGUR REIÐINNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.