Morgunblaðið - 02.04.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.04.2003, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2003 27 ÞAÐ verður æ erfiðara fyrir kjós- endur að átta sig á því hvað greini stjórnmálaflokkana að. Munurinn á stefnu flokkanna hefur minnkað. Þó eru það nokkur atriði, sem geta ver- ið kjósendum til leiðbeiningar í þessu efni. Eitt þessara atriða er skattastefna stjórnmálaflokkanna og aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skattamálum. Núverandi ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokksins og Framsóknarflokksins hefur lækkað skatta á fyrirtækjum og hátekjumönnum. Hins vegar hafa tekjuskattar á einstaklingum, þ.e. almenningi, ekki verið lækkaðir, ef tekið er tillit til skattleysismarka. Þeir hafa þvert á móti hækkað. Þetta er í samræmi við stefnu Sjálf- stæðisflokksins. Sá flokkur hefur ávallt borið hag atvinnurekenda fyr- ir brjósti og tekið hagsmuni þeirra fram yfir hagsmuni almennings. Það er ekkert við því að segja. Þetta er stefna Sjálfstæðisflokksins. En hins vegar vekur það undrun, að Framsóknarflokkurinn, sem var upphaflega samvinnu- og fé- lagshyggjuflokkur skuli hafa lagt blessun sína yfir það, að tekjuskatt- ar atvinnurekenda skuli hafa verið lækkaðir á sama tíma og tekjuskatt- ar einstaklinga hafa hækkað. Skatt- byrði launafólks hefur aukist fjór- falt meira en skattbyrði þeirra efnameiri. Þróun skattamála hér á landi hefur verið þveröfug við það sem átt hefur sér stað í öðrum ríkj- um OECD að undanförnu. Þar hef- ur skattbyrði einstaklinga minnkað en skattbyrði fyrirtækja aukist. Nokkrar deilur hafa verið um skattamálin hér að undanförnu. Stjórnmálamönnum ber ekki saman um hvort tekjuskattar einstaklinga hafi hækkað eða lækkað. Félag eldri borgara fékk hag- fræðing til þess að reikna út skatt- byrði eintaklinga. Leiddi sú athug- un í ljós, að skattbyrði einstaklinga hefði aukist síðan núverandi skatt- kerfi var tekið upp 1988. Orsökin er sú, að skattleysismörk hafa dregist verulega aftur úr launaþróun. Einna mest hefur skattbyrðin auk- ist hjá þeim, sem hafa lægstu laun, þar á meðal hjá elli- og örorkulíf- eyrisþegum. Enda þótt tekjuskatts- hlutfall einstaklinga (staðgreiðsla) hafi lækkað frá árinu 1990 úr 39,79% í 38,55% árið 2003 hafa skattar hækkað verulega á þeim sem hafa lægstu tekjur vegna þró- unar skattleysismarka. Skattleysis- mörk hækkuðu úr kr. 53.988 á mán- uði árið 1990 í kr. 69.585 árið 2003. Það er mun minni hækkun en nam hækkun verðlags og launa. Ef skattleysismörk hefðu hækkað eins og verðlag á þessu tímabili ættu þau að vera kr. 84.340 á mánuði í ár en ef þau hefðu hækkað eins og laun ættu þau að vera kr. 110.208 á mán- uði. Eldri borgari,sem hafði 64.012 í mánaðatekjur 1990 greiddi 6,2% í skatt þá eða 3.989 kr. Í dag greiðir hann af sambærilegum tekjum (100.000 kr.) 11,7% í skatt eða 11.722 kr. Tekjur ársins 1990 hafa verið færðar upp til verðlags dags- ins í dag. Af þessum tölum er ljóst, að skatturinn hefur hækkað. Hag- fræðingur Eldri borgara segir, að lækka þyrfti skattprósentuna (stað- greiðslu) úr 38,55% í 20,49% til þess að eldri borgari, sem hefur þessar tekjur, greiddi sama hlutfall af tekjum sínum í skatt nú og hann gerði 1990 miðað við óbreytt skatt- leysismörk. Hagfræðingurinn segir, að allir einstaklingar, sem nú eru með lægri tekjur en kr. 242.000 á mánuði greiði meira í skatt af tekjum sínum en þeir gerðu árið 1990. Fjármálaráðherra bendir á að þrátt fyrir þetta hafi ráðstöfunar- tekjur aukist og það skipti mestu máli. Það er sjálfsagt rétt, að ráð- stöfunartekjur hafi aukist en þær hafa aukist minna hjá bótaþegum og láglaunamönnum en þeim, sem háar tekjur hafa. Það er einmitt í því sem stjórnarstefnan kemur fram. Það er verið að bæta hag þeirra efnameiri mun meira en þeirra sem minna mega sín. Þjóð- arkakan hefur stækkað á undan- förnum árum. Það hefði átt að auð- velda það að bæta verulega kjör lífeyrisþega og þeirra, sem lægst hafa launin. Það hefði átt að gera kleift að bæta kjör þeirra meira en kjör hinna efnuðu. En það hefur verið farið þveröfugt að: Kjör þeirra efnameiri hafa verið bætt meira en kjör hinna efnaminni. Samfylkingin fylgir skattastefnu, sem er þveröfug við stefnu stjórn- arflokkanna. Samfylkingin vill lækka skatta á láglaunafólki meira en á hinum efnameiri. Samfylkingin telur, að það hefði átt að ganga fyrir að lækka tekjuskatta einstaklinga í stað þess að byrja á skattalækkun fyrirtækja. Einhvern tímann hefði Framsókn verið sammála þeirri stefnu en ekki í samstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Framsókn hefur fylgt skattastefnu Sjálfstæð- isflokksins undanfarin ár. Fram- sókn ber því ábyrgð á skattaáþján aldraðra, öryrkja og láglaunafólks ekki síður en Sjálfstæðisflokkurinn. Tekjuskattar einstak- linga hafa hækkað Eftir Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur. „Framsókn ber ábyrgð á skattaáþján aldraðra, ör- yrkja og lág- launafólks ekki síður en Sjálfstæðisflokkurinn.“ w w w .t e xt il. is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.