Morgunblaðið - 17.04.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 105. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kraftmikið
og fagurt
Guðbrandsmessa frumflutt í
Langholtskirkju Listir 38
Hildur og
Helgi best
Körfuknattleiksmenn ársins
valdir Íþróttir 51
Ingunn
Birta sýnir
Síðasta sýningin á vegum Lista-
smiðju Lóu Höfuðborg 22
VIÐ eftirlitsflug Landhelgisgæsl-
unnar yfir úthafskarfamiðin á
Reykjaneshrygg í gær kom í ljós að
af 29 skipum
sem þar voru
á veiðum voru
13 frá ríkjum
sem ekki eiga
aðild að Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiðinefnd-
inni, NEAFC, sem stjórnar veiðum á
svæðinu. Segir Gæslan flest skipin
hafa verið í „línudansi“ á mörkum
lögsögunnar.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir við Morgunblaðið að
þessar upplýsingar undirstriki mik-
ilvægi NEAFC og nauðsynlegt sé að
vinna að því að fá fleiri ríki þar inn.
Ríki utan NEAFC geti grafið undan
fiskveiðistjórn á svæðinu.
Umrædd skip voru m.a. frá Belís,
Lettlandi, Litháen og Eistlandi.
NEAFC hefur úthlutað þessum ríkj-
um 1.200 tonna úthafskarfakvóta ár-
lega en Gæslan segir þau hafa farið
langt fram yfir þau mörk í fyrra. Tal-
ið sé að ríki utan nefndarinnar hafi
veitt alls um 30 þúsund tonn. Sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins mun
það vera mjög varlega áætlað.
Fordæmi fyrir hafnbanni
Að sögn Kolbeins Árnasonar,
skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu
sjávarútvegsráðuneytisins, ber
Landhelgisgæslunni að tilkynna
ólöglegar veiðar til aðildarríkja
NEAFC og þau geti þá gripið til
hafnbanns á umrædd skip. Önnur úr-
ræði hafi ríkin ekki, utan „diplómat-
ískra“ leiða. Hann segir fordæmi fyr-
ir að gripið hafi verið til hafnbanns
vegna ólöglegra veiða á úthafssvæð-
um en það geti verið erfitt í fram-
kvæmd. Brögð séu að því að skip
skiptist á afla á hafi úti sem geri eft-
irlit örðugt. Innan NEAFC sé unnið
að því að styrkja þá aðgerð að geta
lokað höfnum fyrir þessum skipum.
Nefndin hefur samþykkt að veita
Eistlandi aðild og Litháen hefur sótt
um hana. Kolbeinn segir erfiðara að
eiga við „hentifánaskip“ frá ríkjum
eins og Belís, Sierra Leone og Pan-
ama, sem sést hafi á hryggnum.
Skip utan NEAFC
veiða á Reykjaneshrygg
Geta grafið
undan fisk-
veiðistjórn
Möguleiki að beita
skipin hafnbanni
Eitt erlendu skipanna.
TALSMENN Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, WHO, segja, að
lungnabólgufaraldurinn HABL í
Kína sé miklu meiri en stjórnvöld þar
hafa látið í veðri vaka. Í Hong Kong
hafa vísindamenn áhyggjur af því, að
fram sé komið nýtt og skæðara af-
brigði af sjúkdóminum.
Nú er vitað með vissu um 161
dauðsfall í heiminum öllum en óttast
er, að þau séu í raun miklu fleiri, eink-
um með það í huga, að WHO sakar
kínversk stjórnvöld um að hafa sagt
ósatt um útbreiðslu sjúkdómsins og
fjölda látinna. Talið er að fjórir hafi
nú greinst með sjúkdóminn í Svíþjóð.
Alan Schnur, sérfræðingur í smit-
sjúkdómum og starfsmaður WHO,
sagði í gær, að líklega hefðu mörg
hundruð manna sýkst í Peking einni
en ekki 40 eins og gefið væri upp.
Sagði hann, að á sjúkrahúsum borg-
arinnar væru meira en 1.000 manns,
sem tekið hefðu veikina eða væru
taldir hafa gert það.
Hópur vísindamanna við Hong
Kong-háskóla sagði í gær, að hugs-
anlega væri komið fram nýtt og
miklu hættulegra afbrigði af lungna-
bólgunni. Er ástæðan meðal annars
sú, að síðustu daga hafa verið mörg
dauðsföll hjá tiltölulega ungu og
hraustu fólki. Heilbrigðisyfirvöld í
Hong Kong vara hins vegar við get-
gátum um nýtt afbrigði og segja, að
verið sé að rannsaka hvort önnur
veira auk HABL-veirunnar hafi lagst
á fólkið.
Sérfræðingar WHO staðfestu í
gær, að HABL stafaði af corona-
veiru en veira af þeirri ætt veldur
venjulegu kvefi.
Kínastjórn sögð skrökva um lungnabólgutilfellin
Faraldurinn meiri
en áður var talið
Ótti við nýtt og
skæðara afbrigði
í Hong Kong
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði eftir leiðtogafund ESB í
Aþenu, þar sem samningarnir um
stækkun sambandsins til austurs
voru undirritaðir í gær, að hann væri
vongóður um að Bandaríkin, Samein-
uðu þjóðirnar og Evrópusambandið
gætu unnið vel saman í uppbygging-
arstarfinu sem framundan er í Írak.
Franski forsetinn Jacques Chirac
sagði að með ályktununum væri verið
að reyna að móta grundvöllinn að því
að byggja íraska ríkið upp á ný og
koma á stöðugleika í landinu. „Allt
þetta ber að gera með Sameinuðu
þjóðirnar í lykilhlutverki. Við erum
allir sammála um það,“ sagði hann á
blaðamannafundi. Að tillögu Chiracs
mun ESB skipuleggja loftflutninga á
særðum, íröskum börnum til Evrópu
þar sem þau munu fá aðhlynningu.
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, sagði að
brýnt væri að senda strax gæslulið á
vettvang, ástandið væri svo slæmt.
„Við getum ekki beðið eftir ályktun
frá SÞ,“ sagði hann.
Eins og stríðsandstæðingarnir í
ESB, sem Frakkar og Þjóðverjar
hafa farið fyrir, hafa þeir Straw og
Blair sagt að Bretar óski þess að SÞ
gegni mikilvægu hlutverki við endur-
skipulag Íraks, en stjórn George W.
Bush Bandaríkjaforseta hefur ótví-
rætt gefið til kynna að hún kæri sig
ekki um að samtökin gegni nema
mjög takmörkuðu hlutverki fyrsta
„eftirstríðsskeiðið“ í Írak.
„Fundirnir [í Aþenu] í dag gegna
mikilvægu hlutverki við að skapa nýtt
andrúmsloft,“ sagði Jack Straw, utan-
ríkisráðherra Bretlands í gær. Hann
dró hins vegar úr væntingum um að á
leiðtogafundinum yrðu gefnar út
sameiginlegar yfirlýsingar um Íraks-
málin. „Við reynum ekki að byrja á
því að koma saman texta [að sam-
komulagi] vegna þess að þá værum
við að byrja á öfugum enda. Við fetum
okkur áfram, skref fyrir skref.“
Leiðtogar ESB samþykktu einnig
að hvetja Bandaríkjamenn til þess að
leggja fram svonefndan „vegvísi“ að
lausn á deilum Ísraela og Palestínu-
manna. Búist er við að ný stjórn
Mahmouds Abbas, væntanlegs for-
sætisráðherra Palestínumanna, taki
senn við völdum.
Viðskiptabanni verði aflétt
Bush Bandaríkjaforseti hvatti í
gær til þess að viðskiptabanni SÞ á
Írak yrði aflétt að fullu þar sem búið
væri að frelsa landið. Tommy Franks,
hershöfðingi og yfirmaður aðgerða
bandamanna í Írak, heimsótti í gær
yfirmenn bandaríska liðsins í Bagdad
í fyrsta sinn.
Bandaríkjamenn segja að enn geti
orðið einhver átök við íraska hermenn
sums staðar í landinu, m.a. í bæjum
sem herir bandamanna sniðgengu á
leið sinni til Bagdad og fleiri mikil-
vægra staða í stríðinu.
SÞ verði í lykilhlutverki
Reuters
Frakkar, Þjóðverjar, Bretar
og Spánverjar reyna að ná sam-
an um uppbyggingu í Írak
Aþenu. AP, AFP.
Evrópa/20
Franks í Bagdad
TOMMY Franks, yfirmaður herja
bandamanna, er hér á gangi við
höll Saddams í Bagdad í gær.
„Þetta er olía fyrir höll-áætlunin,“
sagði Franks um baðherbergi þar
sem blöndunartæki, rúlluhaldari og
bursti eru úr skíra gulli. SÞ leyfðu
Saddam að selja næga olíu til að
geta keypt mat og aðrar nauðsynj-
ar, áætlunin kallaðist olía fyrir mat.
LEIÐTOGAR Frakklands, Þýskalands, Bretlands og Spánar reyndu í
gær að brúa þá vík sem myndast hefur milli vina vegna Íraksmálsins og
lögðu sameiginlega til að Evrópusambandið (ESB) gæfi út yfirlýsingu
þar sem kallað væri eftir því að Sameinuðu þjóðirnar gegndu mikilvægu
hlutverki við enduruppbyggingu í Írak. Jafnframt skyldi skorað á
Bandaríkin og bandamenn þeirra að halda uppi lögum og reglu í Írak í
kjölfar þess að stjórn Saddams Husseins var hrakin frá völdum.
Hong Kong. AFP.