Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 4

Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.isb.is  Vertu me› allt á hreinu! Hagstæ› framkvæmdalán Allt fyrir húsfélög í framkvæmdahug Kynntu flér kjör in, flau eru hag stæ› í Íslandsb anka! MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá Davíð Oddssyni forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins vegna ummæla Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur tals- manns Samfylkingar, sem féllu í ræðu sem hún flutti á stjórn- málafundi Samfylkingarinnar í Borgarnesi í fyrrakvöld. „Vegna ummæla Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össur- ar Skarphéðinssonar á fundi í Borgarnesi í [fyrrakvöld] vill forsætisráðherra taka fram að hann hyggst ekki taka þátt í stjórnmálaumræðu sem bygg- ist á dylgjum og hálfkveðnum vísum. Stjórnmálaumræður eiga að fjalla um málefni og Sjálfstæðisflokkurinn mun áfram haga sinni kosningabar- áttu í samræmi við það.“ Yfirlýsing frá forsætisráðherra Ræði ekki stjórnmál á þessum nótum VERÐI af öllum þeim stór- iðjuframkvæmdum, sem gert er ráð fyrir að ráðast í á næstu árum, má reikna með að eftirspurn eftir vinnuafli verði talsvert umfram inn- lent framboð frá miðju næsta ári og til síðari hluta ársins 2007. Yfir sum- artímann árin 2005 og 2006 verður eftirspurnin eftir vinnuafli allt að 900 manns umfram framboð. Um- frameftirspurn er mismikil eftir at- vinnugreinum og tímabilum, einna mest í bygginga- og jarðvinnu og málmiðnaði en aðeins í stuttan tíma í rafiðnaði. Þetta kemur fram í skýrslu um mannaflaþörf og sérhæfni vegna stóriðjuframkvæmda 2003–2008, sem kynnt var á fundi á Akureyri í gær. Skýrslan var unnin að ósk Val- gerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra og flutti hún ávarp á fundinum. Í máli ráðherra kom fram að framundan væru ein- hverjar mestu framkvæmdir á sviði stóriðjumála sem um getur í at- vinnusögu þjóðarinnar. „Það er ekki daglegt brauð að erlendir aðilar fjárfesti hér á landi í atvinnulífi fyrir tugi milljarða eins og fyrirhugað er vegna byggingar álvers á Austur- landi og á Vesturlandi. Þegar er- lendir aðilar fjárfesta hér á landi er mikilvægt að sem mest af þeirri fjár- festingu skili sér sem aukin umsvif innlendra aðila, bæði hvað varðar uppbyggingu og rekstur,“ sagði Val- gerður. Bent er á í skýrslunni, að þrátt fyrir umframeftirspurn eftir vinnu- afli á einstaka tímabilum, séu nokkr- ir óvissuþættir, eins og hreyfanleiki vinnuafls milli atvinnugreina, fram- boð á námsfólki og áhrif af ríkjandi atvinnuástandi á hverjum tíma. Þessi atriði kunni að valda því að framboð vinnuafls verði meira en áætlanir gera ráð fyrir. Ef innlendur vinnumarkaður annar ekki eft- irspurn vegna framkvæmda komi til samsvarandi tímabundinn innflutn- ingur á erlendu vinnuafli. Jafnframt er bent á að efla þurfi tækniþekk- ingu og huga tímanlega að hæfn- iskröfum og starfsmenntun, einkum í málmiðnaði, til að gera greininni kleift að ráða við stór verkefni. Við ákvörðun um tímasetningu annarra umfangsmikilla verkefna geti þurft að taka af þeim stór- iðjuframkvæmdum sem þegar eru ákveðnar eða fyrirsjáanlegar, til að koma í veg fyrir mikla röskun á vinnumarkaði. Bent er á í skýrslunni að stjórnvöld ættu að vera á varð- bergi varðandi tímasetningu ein- stakra framkvæmda og leita leiða til að þess að jafna sveiflur. Í starfshópnum sem vann skýrsl- una áttu sæti þeir Baldur Pétursson frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, Andrés Svanbjörnsson frá Fjárfest- ingastofunni – orkusviði, Ingólfur Sverrisson frá Samtökum iðnaðar- ins og Örn Friðriksson frá Samiðn, sambandi iðnfélaga. Starshópurinn réð Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns sem tæknilegan ráðgjafa. Ný skýrsla um mannaflaþörf og sérhæfni vegna stóriðjuframkvæmdanna Eftirspurn eftir vinnuafli verður meiri en framboð Morgunblaðið/Kristján Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra gluggar í skýrsluna á fundinum. Við hlið hennar sitja Ásgeir Magnússon og Magnús Ásgeirsson. „ÉG tel að Írak eigi bjarta framtíð fyrir höndum og myndi vilja fara þangað og leggja mitt af mörkum við enduruppbyggingu landsins,“ segir Jay Jamchi tölvufræðingur um föð- urland sitt, en hann fæddist í suður- hluta Bagdad árið 1963 og ólst þar upp til sjö ára aldurs. Hann segir landið búa yfir miklum auðlindum auk olíunnar og landið sé einnig mjög frjósamt. „Það er hægt að rækta hvað sem er í Írak og þar er einnig að finna alls konar málma í jörð. Menntunarstig fólks er einnig mjög hátt.“ Síðastliðin 27 ár hefur hann búið í Bandaríkjunum þar sem hann rekur eigið tölvufyrirtæki í San Diego. Hann er kvæntur Margréti Ólafs- dóttur Jamchi. Jamchi, eða Jamil, eins og hann er kallaður, segir að búast megi við mannskæðum átökum ólíkra hópa í Írak á næstu 3 til 5 árum á meðan landið þróast í lýðræðisátt, en á end- anum telur hann að jafnvægi muni nást. „Ég held að Írakar séu betur í stakk búnir fyrir breytingar en margur heldur,“ segir Jamil. „Þeir hafa búið við þvílíka harðstjórn, að allt er betra en það sem var áður við lýði. Þeim mun takast að innleiða lýðræði í landinu og það yrði það besta sem gæti komið fyrir Mið- Austurlönd. Þessi þróun mun hafa góð áhrif á nágrannaríkin og ég trúi því heilshugar að Íran sé næst í röð- inni. Íranir eru reiðubúnir sem aldr- ei fyrr að innleiða lýðræði og þurfa bara smáaðstoð frá Evrópu eða Bandaríkjunum við að ýta úr vör.“ Jamil er ekki með öllu ókunnugur aðstæðum í Íran, því hann bjó þar fram á unglingsaldur eftir að fjöl- skylda hans var rekin frá Írak um 1970, sem og fjöldamargir Íranir. Þetta var um það leyti sem Saddam Hussein komst til valda, þótt ekki yrði hann forseti landsins fyrr en 9 árum síðar. Jamil er af írönsku bergi brotinn, en afi hans var Írani, og nægði það sem brottrekstrarsök allrar fjölskyldunnar. „Fólk var bók- staflega fjarlægt af götunum og rek- ið burt, flæmt burt frá heimili, vinnu og skóla. Fjölskylda mín missti fyr- irtækið og heimilið, en fram að því höfðum við lifað góðu lífi.“ Næstu fimm árin var Jamil í Íran, þangað til hann fluttist einsamall til Banda- ríkjanna 1976 og hefur verið búsett- ur þar upp frá því. „Írakar hafa búið við ógnarstjórn sem hefur haldið hverjum einasta borgara landsins í greipum óttans og fólkið studdi stjórnina til að forða sér frá lífláti. Ég held að ástæðan fyrir litlu mannfalli í þessu stríði sé sú að Írakar voru ekki að berjast fyrir land sitt heldur reyndi Saddam Hussein að þvinga þá til að berjast fyrir sig. Það vildi enginn berjast fyrir Saddam Hussein, enda hefur stjórn hans líklega drepið fólk úr hverri einustu fjölskyldu í landinu.“ „Enginn vildi berj- ast fyrir Hussein“ Morgunblaðið/Árni Torfason Jamil spáir Írak bjartri framtíð. Hér er hann ásamt konu sinni Margréti Ólafsdóttur Jamchi og börnunum Nadíu Margréti og Daníel Ólafi. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðarskólans til að greiða End- urmenntunarsjóði rafeindavirkja tæplega 32 milljónir sem dómurinn taldi hann hafa tekið sér af reikningi sjóðsins í heimildarleysi. Við þessa upphæð bætast dráttarvextir frá 1. janúar 2002 og 1,2 milljónir í máls- kostnað. Kyrrsetningaraðgerð á eignum skólastjórans fyrrverandi var jafnframt staðfest. Áður en maðurinn var ráðinn sem skólastjóri gegndi hann stöðu fram- kvæmdastjóra Endurmenntunar- sjóðs rafeindavirkja frá 1987. Árið 1994 var hann gerður að skólastjóra Rafiðnaðarskólans og af hálfu sjóðs- ins var því haldið fram að í því hafi falist breyting á starfi hans og jafn- framt stöðuhækkun. Því hafi ekki verið þörf á að segja honum upp sem framkvæmdastjóra. Eftir þetta hafi hann átt að fá greidd laun frá skól- anum en ekki endurmenntunar- sjóðnum enda gegndi hann ekki föstu starfi fyrir hann. Svik skóla- stjórans hafi falist í því að á árunum 1994–2001 hafi hann látið sjóðinn leggja 32 milljónir inn á bankareikn- ing sinn en með blekkingum leynt sjóðinn þessum greiðslum. Var það tekið fram að þessar greiðslur voru aldrei taldar fram til skatts, hvorki af hálfu skólastjórans né sjóðsins. Þá kemur fram í dómnum að eftir að skólastjóranum var sagt upp hafi hann afsalað fasteign sinni til tiltek- ins einkahlutafélags þar sem mágur hans situr í stjórn og einnig bifreið sinni til tiltekins einkahlutafélags. Skólastjórinn hélt því fram að honum hafi aldrei verið sagt upp sem framkvæmdastjóra endurmenntun- arsjóðsins og því bæri sjóðnum að greiða laun samkvæmt samningi. Þessar fjárhæðir næmu um 54 millj- ónum króna. Í niðurstöðukafla dómsins segir að skólastjórinn hafi ekkert til að styðja þessa fullyrðingu sína. Hvorki framburð forsvars- manna sjóðsins né skrifleg gögn. Hún væri því ósönnuð. Sama ætti við um fullyrðingu hans um að hluti af fjármunum hafi verið vegna útgjalda sjóðsins. Endurmenntunarsjóður rafeindavirkja hefur sigur í Héraðsdómi Reykjavíkur Dæmt að skólastjórinn hafi tekið 32 millj. í heimildarleysi ÞRJÚ tilboð bárust í fram- kvæmdir við Friðarhöfn í Vestmannaeyjum og voru öll undir kostnaðaráætlun. Verk- ið felur í sér steypu á þekju, að grafa skurði, leggja ídráttar- rör fyrir rafmagn og steypa upp ljósamasturshús í Friðar- höfn. Áætluð verklok eru 15. ágúst næstkomandi. Lægsta tilboðið var frá Al- menna byggingafélaginu ehf., en það bauðst til að vinna verkið fyrir 26,3 milljónir króna, sem er 71,4% af kostn- aðaráætlun Siglingamála- stofnunar. Hæsta tilboð var upp á 34,7 milljónir, en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 36,8 milljónir. Þrír buðu í verk í Friðarhöfn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.