Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 9

Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 9 FYRIRSVARSMAÐUR fyrirtæk- isins Costgo, sem auglýsti ódýr heimilistæki í Fréttablaðinu á sín- um tíma, hlaut níu mánaða fangels- isdóm í Hæstarétti í fyrradag fyrir fjársvik og fleiri brot. Þyngdi Hæstiréttur því sex mánaða dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 1. nóvember 2002. Ákærði lét birta auglýsinguna hinn 5. nóvember 2001 þar sem hann auglýsti vörur á heildsölu- verði. Gefið var upp verð á pönt- unarlista, 5 þúsund krónur, og til- greind nokkur sértilboð mánaðarins. Vörurnar voru á gjaf- verði, t.d. Toshiba-fartölva 750 Mhz á 25 þúsund krónur og AEG- þvottavél 1600 snúninga á 25 þús- und krónur. Fjölmargir brugðust við auglýs- ingunni og 85 manns greiddu 5 þúsund krónur inn á uppgefna reikninga ákærða dagana 5. og 6. nóvember. Ákærði var talinn hafa blekkt fólk til að greiða fyrir vöru- lista og aðgang að frekari viðskipt- um þrátt fyrir að hann hefði hvorki haft á boðstólum þær vörur sem auglýstar voru né staðið í nokkrum viðskiptasamböndum um öflun þeirra. Ákærði bar fyrir dómi að hann hefði búist við viðbrögðum frá um sextíu manns og að hann hefði haft vörur fyrir um tíu manns. Hæstiréttur leit m.a. til þess að ákærði hefði með háttsemi sinni beitt fjölda manns blekkingum og ekki bætt að fullu fyrir brot sín. Þá kemur einnig fram í dómnum að ákærði hafi í sviksamlegum til- gangi stofnað til reikningsviðskipta við verslunina Byko hf. og blekkt starfsmenn hennar til frekari reikningsviðskipta með því að greiða skuld fyrir úttektir með tékka, sem hann gaf heimildarlaust út í eigin nafni á tékkaeyðublað í eigu húsfélags og áritaði með bleki sem hvarf þremur dögum síðar. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Verjandi ákærða var Hilmar Ingimundarson hrl. Málið sótti Sigríður Jósefsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara. Blekkingar við sölu á heimilistækjum Hlaut níu mánaða fangelsi fyrir fjársvik UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur í nýju áliti sínu gert athugasemd við þá afstöðu embættis landlæknis að læknisvottorð frá tilteknum lækni hafi staðist ákvæði læknalaga og reglur um gerð og útgáfu slíkra vottorða. Dregur umboðsmaður í efa að svo hafi verið og beinir þeim tilmælum til landlæknis að við út- gáfu læknisvottorða verði framvegis tekið mið af sjónarmiðum í álitinu. Tilefni þessarar athugasemdar er kvörtun til umboðsmanns yfir af- greiðslu landlæknis á erindi þar sem maður óskaði eftir áliti á vinnu- brögðum læknis við útgáfu á vott- orði vegna dóttur sinnar. Átti mað- urinn í deilu um umgengnisrétt yfir dóttur sinni. Í bréfi embættisins til mannsins kom fram að vottorðið hefði verið skoðað en ekki gerðar við það at- hugasemdir. Umboðsmaður segist í áliti sínu ekki gera athugasemd við þá niðurstöðu landlæknis að ekki hafi verið tilefni til að beita tiltekn- um úrræðum læknalaga gegn um- ræddum lækni. Umboðsmaður gerir hins vegar athugasemd við þá afstöðu land- læknisembættisins að vottorðið hafi staðist ákvæði læknalaga. Við mat á því hafi átt að hafa í huga að veru- legar líkur hafi verið á því að það hefði áhrif á framgang í ágreinings- máli sem var til úrlausnar sýslu- manns um rétt mannsins til að um- gangast dóttur sína. Telur umboðsmaður að tiltekin ákvæði reglna um útgáfu læknisvottorða verði ekki skilin öðruvísi en að í vottorði þurfi að koma fram á hverju álit læknis byggist, þ.á m. hvort það byggist á frásögn for- eldris um hegðun og atferli barns eða sjálfstæðri athugun læknis á barninu. Því gerir umboðsmaður at- hugasemd við afstöðu landlæknis en telur sig hins vegar ekki hafa for- sendur til að leggja mat á hvort ít- arlegt viðtal við annað foreldri upp- fylli þá kröfu að læknir hafi sjálfur sannreynt það sem staðhæft hafi verið í vottorði. Umboðsmaður Alþingis Gerir athugasemd við afstöðu landlæknis fyrirtaeki.is Skarthúsið s. 562 2466, Laugavegi 12. Fermingargjafir Fermingarhárskraut Fermingarskartgripir Laugavegi 63, sími 551 4422 Fallegar sumarkápur Maura Yfir 4.000 nýir vöruflokkar - betra verð Rýmingarsala og nýjar vörur Lokað 17.-21./4 Argos pöntunarlistinn Verslun Argos (Kays), Austurhrauni Gbæ, sími 555 2866 ÓSKUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR GLEÐILEGRA PÁSKA I I I Kringlunni - sími 581 2300 Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið laugardag kl. 10-14 Hátíðar- og partýföt Gleðilega páskahátíð BUXUR SÍÐAR BUXUR, KVART BUXUR HERMANNA BUXUR, GOTT VERÐ - STÆRÐIR 34-48 HLIÐARGANGINUM SMÁRALIND BUXUR, BUXUR GALLA, STRECH, HÖR MIKIÐ ÚRVAL OG GOTT VERÐ STÆRÐIR 34-56

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.