Morgunblaðið - 17.04.2003, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 17.04.2003, Qupperneq 37
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 37 ÉG held ekki að hægt sé að nálg- ast myndlist á einhvern einn ákveð- inn hátt sem tekur öðrum fram. Fyrst og fremst þurfa verkin að fá að tala, lifa, njóta sín án fordóma áhorf- enda, sem geta verið margvíslegir. Sýningar vekja upp mismunandi hugrenningar og tilfinningar hjá áhorfendum, sumir myndlistarmenn leggja sig fram um að vera vits- munalegir í verkum sínum og hata alla tjáningu og tilfinningar á meðan aðrir virðast hafa þveröfugt viðhorf. Þegar best lætur kemur fram fínt samspil þarna á milli og áhorfandinn finnur hjarta slá að baki hverju verki á meðan hann samtímis gerir sér grein fyrir faglegum og vitsmuna- legum forsendum þess. Nú vill svo vel til að sýningarnar fjórar sem fjallað er um hér falla all- ar undir það síðastnefnda, þegar áhorfandinn finnur áþreifanlega fyr- ir nærveru listamannsins, markmið- um hans, faglegum metnaði og sterkum tilfinningum. Milli himins og jarðar Þorgerður Sigurðardóttir nefnir sýningu sína í Listasafni ASÍ Him- inn og jörð. Hún leiðir áhorfandann inn í verk sín í gegnum fallega bernskuminningu sem hún segir frá í sýningarskrá. Á sama stað fjallar sr. Kristján Valur Ingólfsson um trúar- leg tákn, en Þorgerður vinnur nokk- uð með þau hér líkt og hún hefur gert undanfarin ár. Þó held ég að nú opni hún verk sín meira en áður og margt fleira megi lesa úr þeim. Hún hefur mestmegnis einbeitt sér að grafíkverkum en sýnir nú fjölmargar teikningar bæði stærri og minni, unnar með blýi á akrílgrunn en áferð þeirra minnir enn á grafíkverk. Í þeim er nokkuð um hringi, ferninga og krossa en eiginlega fannst mér ég sjá í þeim allt milli himins og jarðar, byggingar, sólkerfi, svarthol, stór- borgir og á myndinni sem hér er birt, sem er ein af einfaldari myndum hennar en þó sú sem höfðaði mest til mín, birkiskóg. Á sama tíma og hægt er að lesa jarðbundin mótíf úr mynd- unum má líka skoða þær í því tákn- fræðilega og trúarlega samhengi sem krossinn, hringurinn og ferning- urinn bjóða upp á. Teikningar Þor- gerðar eru kraftmiklar og opnar, henni virðist liggja mikið á hjarta og tekst að koma því til skila. Bernsku- minning hennar var mér líka mik- ilvægur tengiliður við verkin. Lista- menn geta oft á tíðum skapað mun sterkara samtal milli áhorfenda og verka með því að fylgja verkum sín- um úr garði með nokkrum einföldum orðum. Undir fögru yfirborði G.Erla sýnir þrjú verk í Listasafni ASÍ, í Gryfju, stigum og á þaksvöl- um. Í Gryfju sýnir hún verkið Ef til vill …, útsaumaðar servíettur á mál- uðum bakgrunni. Formfagurt yfir- borð kallast á við raunveruleikann í þessu vel hugsaða og útfærða verki. Hér er enginn nýr sannleikur á ferð en skemmtileg útfærsla á kunnug- legri hugsun. Það bætir þarfri vídd við verkið að velja orðin sem saumuð eru beint úr orðabók, þannig kemur fram önnur speglun við opinbera lífið og einkalífið, stafrófsröðin og lita- skalinn eru mikilvægt mótvægi við tilfinningaríkari hlið verksins. Í stig- unum spilar G.Erla líka með kvenleg sjónarhorn, ræstingatæknar í dag eru víst flestir enn kvenkyns, bæði heima og í vinnu þó þar séu sem bet- ur fer undantekningar á. Þessar undnu tuskur eru grátbroslegar og smellnar og margt má úr þeim lesa, m.a. hlutskipti listakvenna í gegnum aldirnar. Víst hefur þar mikil breyt- ing orðið á sem betur fer en jafnrétti hefur samt ekki enn verið náð hvað sem hver segir. G.Erla nýtir sér þaksvalirnar hug- vitsamlega í verki sínu Hvert, en ég myndi ráðleggja barnafólki að hafa gát á börnum sínum þar uppi þar sem handriðið er lágt! Verkið Hvert er unnið með koparþráðum og akrýl- litum í akrýldúk. Hin tæra, fallega hugsun sem er til staðar í hinum verkunum tveimur er hér í útsaum- uðum fótsporunum en umgjörðin er heldur þunglamaleg. Það er fallegt að hugsa sér hvernig sporin munu veðrast og falla inn í bakgrunninn, eins gæti maður hugsað sér að sauma út í fótspor þeirra sem maður elskar, eða fótspor barna sinna til að varðveita þau að eilífu líkt og í ljóði Halldórs Laxness úr Silfurtúnglinu; Hvert örstutt spor, var auðnuspor með þér … Verk G.Erlu eru hér í anda listakvenna sem unnið hafa á jafnréttissinnuðum nótum án þess að verk þeirra verði á nokkurn hátt áróðurskennd og hún sýnir hér vel möguleika útsaums í samtímalistum. Ómælisvíddir Ragna Hermannsdóttir sýnir nú vatnslitamyndir og teikningar í kjall- ara Gallerís Skugga við Hverfisgötu. Ragna á fjölmargar einka- og sam- sýningar að baki og hefur auk mynd- listarnáms við Myndlista- og hand- íðaskólann og Ríkisakademíuna í Amsterdam lokið heimspekiprófi frá HÍ. Verk hennar eru þó langt frá því að vera á fræðilegum nótum. Vatns- litamyndir hennar byggjast mikið á eiginleikum litanna sjálfra og hún leitast við að skapa óræðar víddir innan þeirra, einna best finnst mér það takast þar sem litirnir eru ekki ofunnir heldur fá að njóta sín léttir og flæðandi. Auk vatnslitamyndanna sýnir Ragna myndir unnar í tölvu, þar sem bakgrunnurinn minnir að nokkru leyti á flæði vatnslitanna og síðan er teiknað ofan í það með línum sem minna á olíukrít eða álíka. Hún virðist líka notfæra sér eiginlega tölvunnar til að brengla og skekkja myndirnar svo að á litaglaðri og fjör- legri mynd skapast dökkt og dular- fullt andrúmsloft. Það er ákveðin togstreita í þessum myndum sem er spennandi. Ragna velur að teikna og mála með tölvunni á hefðbundinn hátt. Það er undarlegt að ný tækni skuli reyna af fremsta megni að líkja eftir því sem fyrir er, að tölvuforrit reyni að líkja eftir því sem gert er fríhendis á pappír. Útkoman er alltaf vélrænni og fjarlægari. Það er ein- mitt þetta sem Ragna vinnur að mínu mati meðvitað með og tekur síðan einu skrefi lengra með því að brengla myndirnar, þær eru bæði glaðlegar og næstum óhugnanlegar í senn líkt og margt búi í litríkri þok- unni. Hraun og blúndur Kristín Pálmadóttir sýnir ljós- myndaætingar á jarðhæð í Gallerí Skugga. Hún hefur áður sýnt hæfni sína á þessu sviði með myndum af landslagi, m.a. myndum frá Græn- landi. Hér sýnir hún svarthvítar eða tvítóna myndir af yfirborði grjóts og má inn á milli greina klæði á mynd- unum, einna skýrast á myndinni sem hér er birt. Kristín er fær á sínu sviði og myndir hennar einfaldar, hreinar og beinar. Fínleg klæðin falla vel inn í margbreytilegt yfirborð hrauns og grjóts svo oft sést tæpast hvað er hvað. Bláleitar myndir hennar eru draumkenndar og búa yfir afar fal- legri dýpt. Hún vinnur vel úr ein- faldri hugmynd og mun án efa halda áfram á þessari braut. Innan þessara verka er vel rúm fyrir dirfsku og út- úrdúra sem væru meira spennandi en innsetning hennar í skáparými gallerísins, ljósmyndaætingarnar eru langtum betur heppnuð verk. Er það hið kvenlega innsæi eða hvað? Ég velti því fyrir mér eftir að skoða þessar fjórar sýningar hversu hreinar og beinar mér fannst þær allar og eins og ég sagði hér að ofan, fannst mér ég finna fyrir nærveru listamannsins, faglegum metnaði, markmiðum og tilfinningum. Einnig finnst mér viðfangsefni þeirra allra vera margbreytileiki lífsins sjálfs og þeim öllum takast að ná til áhorfenda á áreynslulausan hátt. Ég er ekki viss um hvort það eru hér konur á ferð sem tala sterkar til kvenna, ég er sjálf ekki hrifin af orðatiltækjum eins og kvenlegt innsæi því innsæi getur varla verið kynbundið. Þó vil ég meina að munur sé oft á list kvenna og karla en engum í óhag. Kynin eru líka á margan hátt ólík en ég skil ekki af hverju það þarf að koma í veg fyrir jöfn laun. Ég get ekki skilgreint í stuttu máli í hverju þessi munur felst og án efa margir mér ósammála um þetta. Það er líka gefið mál að oft geta karlar unnið sína list á kvenlegan hátt og öfugt. Hvað sem því öllu líður eru hér fjór- ar sýningar á ferð sem vert er að skoða og njóta. Kvenleg mýkt og margbreytilegt grjót í verki Kristínar Pálmadóttur á sýn- ingu hennar sem stendur nú yfir í Galleríi Skugga á Hverfisgötu. Ein af margræðum og kraftmiklum teikningum Þorgerðar Sigurðar- dóttur í Listasafni ASÍ. Himinn og jörð og allt þar á milli Einkalífið og opinber hlið þess kemur skemmtilega fram í verki G.Erlu, Ef til vill…, á sýningu listakonunnar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. MYNDLIST Listasafn ASÍ við Freyjugötu Listasafn ASÍ er opið frá kl. 14–18, alla daga nema mánudaga. Til 21. apríl. HIMINN OG JÖRÐ, TEIKNINGAR, ÞORGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR HVARF, BLÖNDUÐ TÆKNI, G.ERLA Ragna Sigurðardóttir Gallerí Skuggi, Hverfisgötu Til 27. apríl. Sýningarnar í Galleríi Skugga eru opnar frá kl. 13–17, alla daga nema mánudaga. RAGNA HERMANNSDÓTTIR, VATNS- LITAMYNDIR OG TÖLVUTEIKNINGAR KLÆÐI, KRISTÍN PÁLMADÓTTIR, LJÓS- MYNDAÆTINGAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.